Helgarpósturinn - 27.03.1986, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Blaðsíða 30
HELGARDAGSKRÁVEIFAN Föstudagurinn langi 19.00 Sæmi Klem. Fótasprikl við Þursa- músík. Endursýnt aö sjálfsögðu. 19.20 Endursýningar úr Stundinni okkar endursýndar. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. Endursýning. 20.00 Fréttir. Frumsýning. 20.20 Kvöldstund með listamanninum Hannesi skáldi Péturssyni. 21.15 Jesús frá Nasaret. Þriðji hluti hans. 22.50 Sumartónleikar í Skálholti. 23.35 „Theink Godd, ðis dei is ówer". . . Laugardagurinn stutti 17.30 íþróttir og Bjarna Felspyrnan. 19.25 Búrabyggð. 19.50 Táknmálið. 20.00 Fétta leitaö á veðurkortinu sem hefur gleypt bunkann frá því í gær og fyrra- dag. 20.25 Auglýsingar fyrir elsku börnin að horfa á. 20.35 Kvikmyndakrónika. Viðar Víkings kynnir páskamyndirnar á tólfta popp- poka. 20.55 Dagbókin hans Dadda. 21.25 Svarti folinn (The Black Stallion) ★★★ Bandabíómynd frá 1979, byggð á skáldsögu eftir Walter Farley. Leik- stjóri Carroll Ballard. Aðalleikarar Kelly Reng, Mickey Rooney og Teri Garr. Frábærlega tekin hestamynd, falleg og allt að því væmin saga pilts og hests sem einir komast af úr sjávar- háska og lenda á fjarlægri strönd. 23.15 Silfurtunglið endursýnt í leikstjórn Hrafns Gunnlaugssonar sem einn- ig leikgerði verkið og annast um þess- ar mundir dagskrárstjórn á Lista- og skemmtideild sjónvarpsins. 00.50 Dagskrárlok ef Hrafn lofar. Sunnudagurinn 30. mars Páskadagur 16.00 Sálumessa frá útlöndum. 17.00 Páskamessa úr Árbænum. 18.00 Páskastund úr sjónvarpi. 18.45 Páskaendursýning. Steinunn Sigurð- ardóttir tekur aftur á móti hjónunum Margréti Matthíasar og Hjálmtý Hjálmtýssyni ásamt Diddú dóttur þeirra. 19.50 Páskafréttaágrip á táknmáli. 20.00 Sálufréttir, páskaveður og Guð má vita hvað. 20.20 Manngerðir hellar á íslandi. Ný heim- ildamynd um þá. Spenna, myrkur og bergmál. Árni Hjartarson fer fyrstur inn og æði margir á eftir. 21.00 Kvöldstund með listamanninum Haf- liða celló Hafliðasyni. 21.35 Kvöldstund með lærimeistaranum Jesú Kristi Jósefssyni. 23.25 Dagskrárlok. © Fimmtudagskvöldið 27. mars Skírdagur 19.00 Fréttirnar. 19.50 Martin Giinther Förstemann leik- ur á orgel. a. Prelúdía og fúga í Fdúr eftir Dietrich Buxtehude. b. Cha- conna í f-moll eftir Johann Pachelbel. c. „Ach, wie nichtig. . .", sálmpartíta eftir Georg Böhm. 20.15 Leikrit: ,,Snjómokstur" eftir Geir Kristjánsson. Leikstjóri: Helgi Skúla- son. Leikendur: Rúrik Haraldsson og Þorsteinn ö. Stephensen. (Áður út- varpað 1970 og 1979). 21.00 Karlakór Reykjavíkur syngur frekar hátt. 21.40 Nokkur Ijóð eftir Vitezlaw Nezual. 22.30 Fimmtudagsumræðan. 23.00 Tónlistartúlkunin. 24.00 Dagskrárgatsloka. Föstudagurinn langi 08.00 Morgunandakt. 08.20 Morguntónleikar. 09.05 Morgunstund. 09.20 Morguntónleikar. 10.30 Morgunspjall. 11.00 Morgunmessa.. 11.50 Morguntónleikar. 12.00 Morgunógleði. 12.20 Hádegisfréttir. 13.15 Hugleiöing um lengd föstudags- ins. Vósteinn Lúðvíksson mælir með tommustokk. 13.40 Beethoven. 14.30 Kaj Munk. 15.30 Placido Domingo. 16.20 Jón Helgason. 17.05 Vernharður Linnet. 17.50 Franz Schubert. 19.00 Jóhannes Arason. Ég mœli með Rás 1, Páskadag, klukkan 12.20: Hádegisfréttir af fólki sem reyndi að spæla brúnu páskaeggin sín í morgunsárið — með subbulegum árangri! 19.25 Kveðið um Krist. 20.05 Frédéric Chopin. 20.45 Kvöldvaka. 21.30 Atli Heimir. 22.20 Kvöldtónleikar. 23.00 Kolla Halldórs. 00.05 Púuuhh. Laugardagurinn 29. mars 07.00 Veðurbænir með fréttum. 07.20 Morguntrimm. Landsmenn sparka - óvart í páskaeggin sem þeir áttu - óvart að finna undir rúmi að dagi liðn- um. Pínlegt!!!! 07.30 íslenskir einsöngvarar og kórar stama á rispaðri plötu sem tæknimaður fæst ekki til að laga af því að hann er ekki á nógu háu vaktaálagi til þess að mega gera það fyrst það eru engir fingravettlingar til taks ef eitthvað færi úrskeiðis en við því má alltaf búast í - svona djobbi. 09.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þonn Steph- ens sendir veika fólkinu nokkra - smellna málshætti í bólið. 11.00 Heimshorn. 12.20 Fréttir, tónleikar. 14.30 Þátturinn okkar. Handrit og um- sjón: Pétur Egerzog Erla B. Skúladótt- ir. Umsjónarmaður tónlistar: Edvard Fredriksen. Flytjendur auk þeirra: Sig- ríður Pétursdóttir, Ellert A. Ingimund- arson, Kristján Hjartarson og Birgir Karlsson. Fram að þættinum eru tón- leikar. 15.00 Miödegistónleikar. Gott nafn á góð- um þætti. 15.50 íslenskt mál. Guðrún Kvaran setur tunguna sína í ýmsar æði sérkenni- legar stellingar. 16.20 Listagrip. Sigrún Björnsdóttir tekur nokkur vinnukonugrip í hljóðstofu. 17.00 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Árni í Hraunkoti". 17.30 Karlakór Reykjavíkur syngur gegn Karlakór Akureyrar í beinni útsend- ingu sem Ingólfur Hannesson lýsir frá Sviss. 19.00 Fréttir af helstu fótbrotum skíða- svæðanna. 19.35 „Sama og þegið". Kalli, össi og Siggi Sigurjóns flissa og flassa fyrir framan hljóðnemann sem fer hjá sér fyrir bragðiö... 20.00 Harmóníkkuþáttur. Bjarni Marteins- son mundar magaorganið. 20.30 Grund í Eyjafirði. 22.20 Síðasti lestur Passíusálma. Takk, Herdís. 22.30 Bréf frá Danmörkutil Grænlands, sem aldrei komst alla leið... 23.00 Danslög. Parkettið heima nítt niður. 00.05 Jón örn Marinós fær menn til aö slappa af. 01.00 Afslöppuð dagskrárlok og allir happý. Egg á morgun! Sunnudagurinn 30. mars Dagur eggsins 07.45 Klukknahringing — sem enginn heyr- ir fyrir japlinu í næsta mapni. 08.00 Messa í Hallgrímskirkju — Séra Karl Sigurbjörnsson les upp nokkra rosalegustu málshættina sem söfnuðurinn fékk í bítið. 09.00 Morguntónleikar. 10.25 Lokaþáttur Passíusálmana og þjóöar- innar. Hjörtur Pálsson stokkar bunk- ann, stendur upp. Og fer. . . 11.00 Messa í Garðakirkju. Séra Sigurður H. Gumundsson tekur við þar sem frá var horfið í Neskirkju. 12.20 Hádegisfréttir af fólki sem reyndi að - spæla brúnu páskaeggin sín í morg- unsárið — með subbulegum ár- angri! 13.00 Páskatónlist í Bregenz. 13.30 Leikritið „Til Damaskus" eftir Strind- berg. 16.20 Páskatónlist af plötum. 17.10 Erindi. 18.00 Dimitris Sgouros. Drengurinn leik- ur sér að nokkrum mollum Rakk- mannínoffa eins og hann ætti heima hér. 19.00 Kvöldfréttir af fleira fólki sem reyndi að spæla brúnu páskaeggin sín um morguninn — með subbulegum árangri! 19.30 Sænski páskasöngvarinn Thomas Lander syngur alveg súkkulaðibrúnn í framan. 20.00 Stefnumót. 21.00 Ljóð og lag. 21.30 Útvarpssagan. 22.20 Þar sem rauðar rósir spretta. 23.00 Þunglamalög. 00.05 Milli svefns og vöku. 00.55 öll egg uppurin, jafnvel þau spældu!!! £ Fimmtudagurinn 27. mars Skírdagur 10.00 Morgunþáttur. 12.00 Hádegislok. Laugardagurinn 29. mars 10.00 Morgunþáttur. Sigurður Blöndal reyn- ir að kitla fram bros á fés fólks eftir - skeifur gærdagsins. 12.00 Óþægilegt suð, ef menn fatta ekki að slökkva. 14.00 Laugardagur til lukku. Svavar Gestur um Gest frá Gesti til Gests.. . (Frum- legur þessi!) 16.00 Listapopp. Gunnar Salvarsson segir fréttir af popplist enskumælandi fólks fyrir austan og westan. 17.00 Hringborðið. 18.00 Allt búið. Sunnudagurinn 30. mars Páskadagur 13.30 Salt í samtíðina. 15.00 Jón Krossgátufari. 16.00 Vesældarlistinn. 18.00 Endir. ÚTVARP eftir G. Pétur Matthíasson Nœsti gjördu svo vel SJÓNVARP eftir Jónínu Leósdóttur Sjónvarpskallarnir verri en mjólkurkallarnir! Þaö er ekki annað hægt en að dást að hugrekki Svavars Gests á rás 2. Laugardag eftir laugardag lætur hann sig hafa það að biðja fólk að hringja í sig og svara ákveðn- um spurningum um tónlist í þættinum Laugardagur til lukku. Og ekki bara einu sinni hvern iaugardag heldur tvisvar. En er ekki alltaf verið að gera þetta á rás 2? Mikið rétt en Svavar fer öðruvísi að en hinir. Hann veitir ekki plötuverðlaun og ef til vill er það það eða eitthvað annað sem veldur því að hann fær allt öðruvísi upphringing- ar en hinir á rás 2. Síðastliðinn laugardag t.d. hringdi einn sem þóttist hafa svar á reiðum höndum en hafði ekki. í staðinn sagði hann ,,þú ert ömurlegur” og meinti Svavar. Ekki vil ég dæma um það hvort Svavar er ömurlegur eða ekki en þessar gátur hans þar sem meirihluti þeirra sem hringja svara út í hött og láta öllum illum látum eru ömurlegar. Reyndar til að kóróna allt þá heyrði Svavar ekki hvað hinn sagði og hváði, viðmæland- inn sagði þá aftur að Svavar væri ömurleg- ur og þá sagði Svavar „næsti, gjörðu svo vel“. En ekki var allt búið, þegar nokkrir aulabrandarar frá hlustendum höfðu feng- ið Svavar til að segja „næsti gjörðu svo vel“ kom loks einn með svar og það meira að segja rétt. Og Svavar spurði hvaðan hann hringdi, viðkomandi sagðist mú hringja heiman frá sér og þá gerði Svavar sig sekan um sömu aulafyndnina og hlustendur hans. Við það hætti ég að dást að hugrekki Svavars Gests og mér fannst hér komið gott dæmi um lélega útvarpsmennsku. En þó tók steininn úr í seinni spurninga- gátuleik Svavars. Eftir langa mæðu og mikla aulafyndni hlustenda kom rétt svar og við því hafði Svavar ,,rétt“ svar á reiðum höndum: „Loksins einn sem ekki er löggilt- ur fáviti" og viðmælandinn þakkaði Svav- ari fyrir það. Þetta var hræðilegt að hlusta á. Ég legg til að Svavar annaðhvort hætti þessari spurningavitleysu eða að hann hætti með þættina alveg. Það er móðgun við hlustendur að stjórnanda þáttar kalli flesta þeirra sem í hann hringja löggilta hálfvita eða eitthvað annað í þá áttina, jafn- vel þó að þeir hlustendur hafi ekki beint verið kurteisir. Það verður að túlka við- brögð þeirra sem álit þeirra á þættinum og Svavar verður að bíta í það súra epli að margir hafa ekki mikið álit á þætti hans Laugardagur til lukku. Annars er það ágætt að hafa Svavar á rás 2 því hann er öðruvísi en hinir þáttagerðar- mennirnir. Og það er nauðsynlegt að hafa breidd á rásinni en betur má ef duga skal og betur má Svavar líka ef duga skal. Sífellt verður meiri bernskublær á dag- skrá og útsendingum íslenska sjónvarpsins sökum „útgöngu" rafeindavirkja, sem eng- inn er alveg klár á hvað gerðu, hvenær og við hvað. Eitthvað virðist líka á reiki með það hvort blessaðir mennirnir eru í verk- falli, eða búnir að segja upp. Sjálfir segja þeir að um mannréttindamál sé að ræða, en það segir sig nú sjálft. Öll barátta fyrir auknum launum á íslandi í dag, er mann- réttindabarátta — nema þá helst hjá banka- stjórum, flugstjórum og öðrum stjórum. Það er annars svolítið skondið með hvaða skilyrðum umræddir rafeindavirkj- ar hættu við að hætta, áður en þeir siðan hættu fyrir alvöru. Þeir samþykktu sem sagt að mál þeirra skyldi tekið fyrir af Fé- lagsdómi — með þeim fyrirvara að úr- skurður yrði þeim í hag! Að öðrum kosti myndu uppsagnir þeirra taka gildi. Þeir ákváðu þannig fyrirfram að taka einungis mark á niðurstöðu dómsins, ef hann felli þeim í hag. . . Ég ætla nú að misnota mér aðstöðu mína og koma á framfæri mikilli reiði og sárind- um sonar mins í garð sjónvarpsins. Þessi umræddi piltur er aðeins fjögurra ára, en orðinn lífsreyndur mjög af því að alast upp í þessu yfirvinnu- og okurvaxtasjúka landi. Hann hefur meðtekið hinar köldu stað- reyndir lífsins (varðandi verðbólgu, verk- föll og launamismun kynjanna) allt frá því er hann fyrst fór að teyga rándýra þurr- mjólkina og skila henni í bréfbleyjur en í frumbernsku hans voru þessar vörur enn tollaðar sem munaður. Eins og aðrir guttar á fimmta ári, er son- ur minn löngu orðinn háður barnatímum sjónvarpsins, hverju nafni svo sem þeir nefnast — Aftanstund, Stundin okkar, end- urtekið barnaefni, og svo videre. Á okkar síðustu og verstu mannréttindabaráttutím- um hefur sjónvarpssjúklingum af yngstu kynslóðinni hins vegar verið neitað um skammtinn sinn, eins og okkur hinum. Þetta finnst títtnefndum einkasyni alveg sérdeilis fúlt. Að liðnum nokkrum barna- tímalausum dögum, spurði hann mig að því hvort það væri út af þessu „peninga- veseni“ sem skortur á krakkaefni væri í sjónvarpinu. Ég játti því auðvitað og við áttum síðan langar og góðar samræður um gildi verkfalla í nútímaþjóðfélagi. Þegar ég var búin að bæta barninu upp sjónvarpsleysið með margfalt lengri kvöld- sögu en venja er til á mínum bæ, sagði sá stutti upp úr eins manns hljóði: „Mamma, sjónvarpsmennirnir eru vondir kallar.” Þegar ég hváði, stóð ekki á rökstuðningi: „Jú, sjónvarpskallarnir eru að minnsta kosti verri en kallarnir, sem taka mjólkina úr beljunum og setja hana í fernur. Þeir gera undanþágur fyrir gamla fóíkið og börnin!" RS. Fyrst ég er á annað borð farin að láta aðra tala í gegnum mig á þessum vett- vangi, sakar ekki að koma því á framfæri að mikill meirihluti af kaffistofum landsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að þátt- urinn „Á líðandi stundu'1 hafi farið stór- batnandi á síðustu tveimur vikum. 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.