Helgarpósturinn - 26.06.1986, Page 11
A
gaman að heyra fréttir
af stórum frama íslendinga í útlönd-
um, ekki satt? Þær glænýjustu eru af
Sigurjóni Sighvatssyni, kvik-
myndagerðarmanni og forðum
poppara. Sigurjón hefur lengi verið
með annan fótinn í Kaliforníu og
samkvæmt bestu heimildum Helg-
arpóstsins virðist hann hafa komið
sér býsna vel fyrir þar í sólinni. Nú
starfar Sigurjón aðallega við að gera
skonrokksmyndbönd, og engir smá-
karlar sem koma þar við sögu. Með-
al þeirra rokkkúnstnera sem Sigur-
jón hefur aðstoðað við að gera
vídeóklippur eru Kenny Loggins,
hljómsveitin Tears for Fears og
Bob Seager. Allt nöfn sem unga
fólkið þekkir mæta vel. Reyndar
fylgir það sögunni að vídeóið sem
Sigurjón gerði fyrir Bob Seager hafi
kostað heila 150 þúsund dollara —
sem færi víst langleiðina með að
gera heila íslenska bíómynd. Af Sig-
urjóni er það ennfremur að segja að
nú í sumar hyggst Polygram-hljóm-
plötufyrirtækið, einn af risunum á
þeim markaði, ráðast í gerð sinnar
fyrstu kvikmyndar. Það kvað eiga
að verða hasarmynd og pródúsent-
inn — hann heitir Sigurjón Sighvats-
son. . .
Þ
essa dagana er verið að
ganga frá ráðningu nýs fram-
kvæmdastjóra Jafnréttisráðs, en
Elín Pálsdóttir Flygenring lög-
fræðingur hefur gegnt því starfi síð-
astliðin þrjú ár. Hún hyggst nú taka
sér launalaust leyfi í eitt ár og virðist
allt benda til þess að Elsa Þorkels-
dóttir gegni starfinu í fjarveru Elín-
ar. Elsa hefur að undanförnu unnið
sem lögfræðingur Barnaverndar-
ráðs...
að var ekki bara Óskar Guð-
mundsson, ritstjórnarfulltrúi Þjóð-
viljans, sem hætti störfum á blaðinu
í kjölfarið á ritstjóraþrasinu um dag-
inn. Það gerði einnig Þröstur Har-
aldsson blaðamaður og segja
heimildir Helgarpóstsins, að hann
hafi nánast verið hrakinn af blað-
inu, þótt þess sé skylt að geta, að
hann mun hafa verið orðinn hálf-
þreyttur á ástandinu og fiokksaf-
skiptunum reglulegu. Hið alvarlega
í málinu er það, að Þröstur var trún-
aðarmaður blaðamanna gagnvart
Blaðamannafélagi íslands. Sagan
segir að Guðrún Guðmundsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Þjóðviljans,
hafi staðið á bak við þetta, en hún er
eiginkona verkalýðsleiðtogans
Ásmundar Stefánssonar. Útslag-
ið gerði afstaða Sigríðar Hönnu
Sigurbjörnsdóttur auglýsinga-
stjóra, sem hótaði ugpsögn ef Þröst-
ur hætti ekki. Ossur ritstjóri
Skarphéðinsson reyndi að bera
klæði á vopnin en án árangurs. ..
D
■ ■keykvíkingar munu ef til vill
fá nýja útvarpsrás í afmælisgjöf
þann 18. ágúst næstkomandi. Is-
lenska útvarpsfélagið mun nefni-
lega stefna að því að hefja útsend-
ingar þann dag, ef allt fer að óskum
og þeir verða ekki fyrir neinum töf-
um af óviðráðanlegum orsökum...
BJARTUR
er bónaóur bíll
■ Komdu með bílinn eða láttu okkur
sækja hann og þú færð nýbónaðan
bílinn kláraðan samdægurs, fyrir sölu
eða eigin ánægju. Við bjóðum uppá
eftirfarandi þjónustu:
• Tjöruhreinsun
• Bón
. Djúphreinsun (sæti og teppi)
. Sprautun á felgum
. Vélarhreinsun
Opið alla virka daga frá kl. 8—19.
Laugardaga frá kl. 9-18.
VERIÐ VELKOMIN!
MENU
Forréttir
Rjómalöguð skelfisksúpa.
Cream of shellfish soup
Kr. 340,-
Fiskréttir
Steikt lúðukótiletta með skelfiski og bakaðri
kartöflu
Coated halibut steaks with shellfish and baked potatoes
Kr. 570,-
Kjötréttir
Nautalundir meö brie osti, rósapipar og kartöflum
Tenderloin steak with brie cheese and potatoes
Kr. 910,-
Eftirréttir
Eplaundur með heitri ávaxtasósu
Apples with hot fruit sauce
Kr. 210,-
Sýnishorn af matseðli
Njótiö góðra veitinga
Opid
allan daginn
frá
kl. 11.30
í sögulegu umhverfi
Vesturgötu 4 - HafnarfirSi
Simar 651130 - 651693
HELGARPÓSTURINN 11