Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 36

Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 36
leftir Egil Helgason ásamt Friðrik Þór Guðmundssyni myndir Jim Smart HELGARPOSTURINN SKOÐAR SUMARBUSTAÐI EFN/ Áðan flugu tveir svanir austryfir. Veröldin er einsog svid þar sem alt er í hag- inn búid undir mikinn saungleik: bjarkarilmur í Þíngvallahrauni, kylja af Súlum, purpuralog á Esjuhimni, bláminn djúpur og kaldur yfir Skjaldbreid; en þad kvöldar ekki meir; nátt- leysa og andvaka í öllum áttum. Ylfíngabúd stendur á rima milli hraun- sprúngna hlaðin úr aðfluttum grásteini, í brunagrjótinu miðju. Villibjörkin bœrist fyrir kyljunni og párar ósýnileg teikn á himin kvöldsins, en innanúr húsinu kemur kornúng mœr frammá pallinn sunnanundir, horfir vest- ur skógarbrautina og hallast frammá pall- riðið. Hún teygir úr hálsinum einsog fjalla- rjúpa, leggur eyrað við vestrinu og hlustar, saklaus og björt einsog persóna úr goðsögn, sem hefði alið aldur sinn með þelhvítum skóg- ardilkum. Klukkan inní húsinu slœr tíu högg. Svona hefst æskuverk Halldórs Laxness, Vefarinn mikli frá Kasmir, í sumarbústað pen- ingafólks og broddborgara á Þingvöllum fyrr á öldinni. 1 rauninni kemur þetta fallega sögu- brot nóbelskáldsins meginmáli þessarar grein- ar ósköp lítið við, nema kannski að því leytinu til að við ætlum að skreppa í stuttan bíltúr til Þingvalla og huga að því hverjir eiga helstir sumarbústaði og sumarhús í þessum helga reit þjóðarinnar, einkum þó vesturbakka vatnsins, og líklega tekst okkur að sýna fram á að það séu fyrst og fremst þeir sem meira mega sín í þjóðfélaginu sem hafa fastan íverustað í sum- arsælunni á Þingvöllum, peningafólkið og broddborgararnir. Það er náttúrlega rétt að taka fram að hér er ekki á ferðinni einhver alls- herjar úttekt á sumarbústaðaeign við Þing- vallavatn, við tínum einungis til fáeina þekkta borgara sem eiga hina veglegri bústaði á þessu svæði — í Þingvalla- og Grafningshreppum — eins og gengur hafa sumir þeirra erft sumar- bústaðina, aðrir hafa keypt þá og enn aðrir reist sér sumarafdrep á Þingvöllum af eigin rammleik. Varnagli Þess ber að geta að í þessari samantekt er byggt á fasteignamati frá hausinu 1984 ogallar tölur sem þar eru látnar standa. Þessar tölur ætti lesendum að vera óhætt að hækka um að minnsta kosti 50 prósent. Það er ekki ólíklegt að einhverjar villur og rangfærslur finnist í grein þar sem jafnmargir koma við sögu og í þessari — sumar þeirra skrifast ábyggilega á reikning blaðsins, en aðrar ef til vill á reikning þeirra heimilda sem við höfum notað. Friðlýstur helgistaður Langstærsti landeigandinn í Þingvalla- hreppi er ríkissjóður, enda hefur það staðið í ís- lenskum lögum í meira en fimmtíu ár að Þing- vellir við Öxará og grenndin þar við skuli vera friðlýstur helgistaður allra íslendinga. Nokkr- ar jarðir í Þingvallahreppi eru þó í eigu ein- staklinga og verður vikið að þeim síðar. Innan sjálfrar þjóðgarðsgirðingarinnar eru um 80 sumarbústaðir og teljast eigendur þeirra leigja lóðirnar af ríkinu, þótt sú fjárhæð sé reyndar ekki í frásögur færandi. I lögum eru ákvæði um það að ekkert jarðrask, húsbyggingar, vegi eða önnur mannvirki megi gera á hinu frið- lýsta svæði í landi jarðanna Kárastaða, Brúsa- staða, Svartagils og Gjábakka nema með sam- þykki Þingvallanefndar. Stefna nefndarinnar hefur um allnokkurt skeið verið sú að alls ekki verði byggð fleiri sumarhús innan þjóðgarðs- ins, enda hafa sumarbústaðirnir þar löngum sætt mikilli gagnrýni, og ekki eru menn held- ur á eitt sáttir um það hvar draga skuli mörk þjóðgarðsins. Þetta deilumái er reyndar ekki efni þessarar greinar — hér er fyrst og fremst fjallað um það fólk sem á sumarbústaði við Þingvallavatn norðanvert, en samt getum við ekki setið á okkur að birta það sem Björn Th. Björnsson hefur að segja um þessi mál í ný- legri Þingvallabók sinni: Endimörk þjóðgarðsins „Margir þeir sem ganga suður með Hallin- um í átt frá Valhöll og koma skyndilega að girðingu og þrephliði, munu ætla að þar séu endimörk þjóðgarðsins og handan við séu þeir 36 HELGARPÓSTURINN komnir í einkalönd manna. Svo er þó ekki. í lögunum um friðun Þingvalla, frá 7. maí 1928, segir um takmörk þjóðgarðsins á þennan veg (2. gr., a): ,,Að sunnan: Frá hæstu brún Arnar- fells í beina stefnu á Kárastaði, yfir Þingvalla- vatn og upp á vestari bakka Almannagjár." Lína þessi sker Kárastaðanes alllangt sunnan Lambagjár, þannig að öll sumarbústaðaröðin undir Hallinum er innan þjóðgarðsins. Þetta er þeim mun undarlegra sem í sömu grein friðun- arlaganna segir: Ekkert jarðrask, húsbygging- ar, vegi, rafleiðslur eða önnur mannvirki má gera á hinu friðlýsta svæði, eða í landi jarð- anna Kárastaða, Brúsastaða, Svartagils og Gjá- bakka, nema með leyfi Þingvallanefndar." Hér gengur friðunarætlun löggjafans greinilega fram: Ætlunin var að engin mannvirki, og þá sízt í einkaeigu manna, tálmuðu þvi að „Þing- vellir við Öxará og grenndin þar (skuli) vera friðlýstur helgistaður allra íslendinga", svo sem segir í 1. grein laganna. Til þess að gæta þessa á vegum þjóðarinnar kaus Alþingi sér- staka nefnd vorið 1928, Þingvallanefnd, sem í áttu sæti þrír helztu stjórnmálaforingjar lands- ins. Þeim mun undarlegra er það grunlausum manni til aflestrar, að ekki var enn Iiðið heilt ár frá kjöri nefndarinnar er hún samþykkti og bókaði í gerðarbækur sínar þessa ályktun: „Akveðið að biðja húsameistara að gera tillög- ur um land undir sumarbústaði á Þingvöllum." A fundunum næstu, á undan og eftir, var hins- vegar mest um það rætt, hvernig bola mætti skógarbændum, í Hrauntúni og Skógarkoti af jörðum sínum. Það tókst, sem og hitt, að taka allan Hallinn suður með vatninu og búta hann sundur í sumarbústaðalönd handa hástéttar- mönnum úr Reykjavík. Er það einn fegursti vanginn sem til er með Þingvallavatni í öllum þjóðgarðinum. Og þar sem friðun var eitt helzta erindi nenfdarinnar, taldi hún sér skylt að friða þessa sumarbústaðaeigendur fyrir ágangi þjóðarskrílsins með því að setja þjóð- garðsgirðinguna niður á alröngum stað eða nær tveim kílómetrum norðar en vera ætti. Og þannig er þjóðgarðurinn nú merktur á kortum." Skrifar Björn Th. Björnsson, og líklega væri hægt að skrifa mikla grein um þessi mál. Það meginefni sem er hér til umfjöllunar er þó annað, raunar ekki óskylt — en mörk þjóð- garðsins látum við liggja á milli hluta að þessu sinni. Gjóbakki I landi Gjábakka, sem liggur norðaustan- megin við Þingvallavatn, eru nokkrir sumar- bústaðir, byggðir á árunum 1967—72. Þar var reyndar búið að veita lóðir undir fleiri sumar- bústaði, en Þingvallanefnd ákvað að grípa í taumana, fékk þeim samningum rift og bú- staðirnir voru í staðinn reistir í Kárastaðanesi, norðvestanmegin við vatnið. Stærsti bústaður- inn í Gjábakkalandi er í eigu Sambands ís- lenskra berklasjúklinga (fasteignamat lóðar 311 þús., fast.mat mannvirkis 248 þús.). Þar eiga aukinheldur eilítið minni sumarbústaði Jón Þórðarson kaupmaður, Gunnar Möller, fyrrv. framkvœmdastjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur, Asgeir Hallsson framkvœmda- stjóri og þeir Indriði Pálsson, framkvœmda- stjóri Skeljungs, og Ingvar N. Pálssnn. fyrrv. framkvœmdastjóri Lífeyrissjóðs Verslunar- mannafélags Reykjavíkur. Haustið 1984 er fasteignamat þessara mannvirkja skráð á bil- inu 150—170 þúsund, en landeigandi er ríkis- sjóður. Heiðarbær Jörðin Heiðarbær, vestanmegin við vatnið, liggur utan þjóðgarðsgirðingarinnar en er í eigu ríkissjóðs. Þar er mýgrútur af sumarbú- stöðum, byggður á tímabilinu 1936—181, flestir þó á áratugnum 1960—70. Tveir þeirra eru langstærstir; metinn á um eina milljóna og byggður árið 1978 er sumarbústaður í eigu Stefáns Gunnarssonar flugstjóra, en metinn á tæpa 1.3 milljónir er sumarbústaður, skráður á nafn Kristján G. Kjartanssonar, forstjóra hjá Verslunar- og bygggingarfé/aginu Borginni. Elstu sumarbústaðirnir í Heiðarbæjarlandi eru skráðir á nöfn Tryggva Ólafssonar, kaupsýslu- manns og fyrrv. forstjóra Lýsis hí, og Björns Hallgrímssonar, stjórnarformanns Skeljungs, og bróður Geirs Hallgrímssonar. Það má nefna fleiri stönduga menn sem eiga veglega sumar- bústaði á þessu svæði: Gunnar Guðjónsson skipamiðlara og stjórnarformann í Olís, Gunnar Kvaran hjá samnefndri heildverslun, Hermann Bridde bakarameistara, Ólaf Mixa lœkni, Helga Olafsson, hagfrœðing og fyrrv. framkvœmdastjóra hjá Framkvœmdastofnun ríkisins, Kristin A. Guðjónsson klœðskera, Jens S. Jensson tannlœkni, Ottar Möller fyrrv. forstjóra Eimskips, Pál Vígkonarson, fram- kvœmdastjóra Myndamóta hí, Runólf Þor- geirsson skrifstofustjóra, Sigurð Njálsson for- stjóra, Baldur Ársœlsson heildsala, Sigurgeir Sigurjónsson hœstaréttarlögmann, Svein Val- fells forstjóra, Magnús Torfason hœstaréttar- dómara, Jónas Aðalsteinsson, hæstaréttarlög- mann og lögfrœðing Þingvallanefndar, Ásgeir Gunnarsson, framkvœmdastjóra Veltis hf. og son Gunnars Ásgeirssonar, Magnús Jónsson flugstjóra, Gunnar Dungal, forstjóra Pennans, Ebenesar Asgeirsson, forstjóra Vörumarkað- arins og Dagbjarl Einarsson stjórnarformann hjá Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda. Haustið 1984 er fasteignamat téðra sumarbú- staða á bilinu 250—600 þúsund krónur. Heiðarbær enn Þrír ötulir sjálfstæðismenn eiga einnig sum- arhús í Heiðarbæjarlandi, þeir Ölafur B. Thors fyrrv. forseti borgarstjórnar og núverandi for- stjóri Almennra trygginga, Birgir Isl. Gunnars- son alþingismaður og Albert Guðmundsson ráðherra. Raunar er ekki óforvitnilegt að þarna á Brynjólfur Bjarnason, fyrrv. mennta- málráðherra og stórsósíalisti líka sumarbú- stað, sem og Lúðvík Jósefsson, fyrrv. sjávarút- vegsráðherra A Iþýðubandalagsins. Það er náttúrlega hægðarleikur að nefna fleiri þekkta borgara sem eiga hina minni af þeim fjölmörgu sumarbústöðum sem eru á víð og dreif um land Heiðarbæjar — tala þeirra mun nálgast hundraðið. Til að gleyma ekki alltof mörgum getum við nefnt Óðin Rögn- valdsson, fyrrv. yfirmann í Blaðaprenti, Jón H. Skúlason póst- og símamálastjóra, Guðrúnu S. Karlsdóttur sem er kona Hallvarðs Einvarðs- sonar rannsóknarlögreglustjóra, Isak Sigur- geirsson framkvœmdastjóra, Hildi Hákonar- dóttur, fyrrv. skólastjóra Myndlista- og hand- íöaskólans, Ragnar Borg forstjóra, Þorstein Sigurðsson forstjóra, Berg G. Gislason, kaup- mann og rœðismann, Einar G. Kvaran fram- kvœmdastjóra — og svo má reyndar telja áfram. Kárastaðaland Jörðin Kárastaðir liggur norðar en Heiðar- bæjarland, við norðvesturenda Þingvalla- vatns, sunnan Valhallar. Þar er landið einnig í eigu ríkissjóðs, en sumarbústaðir í eigu ein- staklinga eru fjölmargir, líklega telja þeir hátt í sjötta tuginn. Sá veglegasti þeirra var reistur árið 1978 og er í eigu Seðlabankans. Fast- eignamat hans haustið 1984 var um 1.2. millj- ónir. Einnig á Aburðarverksmiðja ríkisins þarna stórt sumarhús, metið á um hálfa millj- ón. Elstu sumarbústaðirnir á þessu svæði eru frá því í stríðslok, en þeir yngstu eru tiltölulega mjög nýlegir — frá árunum lOSS-^á. Af ný- legum og glæsilegum sumarbústöðum í Kára-

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.