Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 21
p M^k.ólegheitum er ekki fyrir að fara í flugturninum í Reykjavík þar sem Pétur Einarsson flug- málastjóri og flugumferð- arstjórar búa í erfiðri sambúð. Fyrir skemmstu birtist í HP grein þar sem kafað var ofan í kryt aðila og þar lýsti Bragi Ólafsson flugum- ferðarstjóri, sem lengi hefur setið í tölvu- og radarnefnd fiugmála- stjórnar, því yfir að allar nýjungar sem komið hefðu inn í núverandi tölvukerfi hefðu verið að frum- kvæði fiugumferðarstjóra og þeirra verk og tiltók sérstaklega forrit sem hann og fyrrverandi flugumferðar- stjóri, Sigurður Hauksson, hefðu búið til. Fauk þá í Leif Hákonarson flugumferðarstjóra og svokailaðan „gæðing" Péturs Einarssonar flug- málastjóra og fannst honum mjög vera hallað á sig því hann hefur ver- ið eftirlitsmaður tölvunnar um langt skeið og samið nokkur forrit í hana. Fjarlægði hann því forrit sín úr tölv- unni eina nóttina, án þess auðvitað að láta nokkurn mann vita og með þeirri vitneskju að ef menn reyndu að nota forritin myndi allt kerfið frjósa fast í nokkrar mínútur, sem að óreyndu getur verið mjög vafasamt, miðað við þá þjónustu sem þarna fer fram. Aðrir flugumferðarstjórar brugðust hinir verstu við og nokkrir þeirra tóku sig saman og rituðu Al- bert Guðmundssyni, staðgengli samgönguráðherra, bréf þar sem þeir kröfðust rannsóknar og skýr- inga á málinu og daginn eftir kom fulltrúi ráðuneytisins í flugstjórnar- miðstöðina og vappaði þar um en enginn formleg svör hafa enn borist þaðan. Flugumferðarstjórar eru öskuillir vegna þessa máls og draga í efa hæfni þessa „gæðings" Péturs til að gegna vaktstjórastöðu þar eð hann eigi við mikla skapgerðarörð- ugleika að stríða. Hér hafi verið um hreint skemmdarverk að ræða sem hefði getað haft hinar skelfilegustu afleiðingar... dreift er til bankastofnana og fyrir- tækja, komast a.m.k. 10 þúsund nöfn hverju sinni og mörg vegna vanskila sem ekki ná 1000 krónum eins og fram kemur í ítarlegri úttekt HP á þessum málum fyrr á þessu ári. En heldur betur mun Reiknistof- unni hf. hafa förlast í starfsemi sinni. Þannig fékk fyrirtæki nokkurt á Reykjavíkursvæðinu bréf frá henni um að mistök hefðu átt sér stað og fyrirtækið óvart auglýst gjaldþorta og þeim upplýsingum hafði verið komið áfram til allra bankastofn- ana. Var viðkomandi fyrirtæki beð- ið innilega afsökunar á þessum al- varlegu mistökum og ekkert nema gott um það að segja að Reiknistof- an skuli sjá að sér. En það sem vakti furðu í þessu máli var að bréfið, sem HÖNNUN OG AUGLÝSINGATEIKNUN GUÐBERGUR AUÐUNSSON Þingholtsstræti 23 101 Reykjavík Sími 619062 fyrirtækið fékk sent, var fjölritað og nafn og aðrar upplýsingar, sem tengdust fyrirtækinu, settar í þar til gerðar eyður. Eitthvað virðist því kveða að slíkum fimbulgangi hjá Reiknistofunni að fyrirtæki séu þvers og kruss sett að ósekju á van- skilalista, sem að sjálfsögðu getur haft hinar ógurlegustu afleiðingar og óþægindi í för með sér. . . BÍLEIGENDUR B0DDÍHLUTIR! Trefjaplastbretti á lager fyrir eftirtaldar bifreiðir: Subaru '77—79, Mazda 929, 323 og Pickup, Daihatsu Charmant '78 og '79, Lada 1600,1500,1200 og sport, Polonez, AMC Eagle og Concord, Datsun 180 B og Sunny. Brettakantar á Lödu Sport Toyota Landcruiser og Blazer. Einnig samstæða á Willy’s. BÍLPLAST Vagnhöfða 19, simi 688233. I Tökum að okkur trefjaplastvinnu. Póstsendum. I Veljið íslenskt. lTvisvar á ári gefur einkafyrir- tækið Reiknistofan hf. út skrá yfir einstaklinga, fyrirtæki og aðrar „lögpersónur" sem teljast vanskila- aðilar og því vafasamir í lánsvið- skiptum. A þennan svokallaða ,, svarta lista" Reiknistofunnar, sem BILALEIGA REYKJAVÍK: AKUREYRI: BORGARNES: VIDIGEROI V-HÚN.: BLÖNDUÓS: SAUDÁRKRÓKUR: SIGI.UFJÖRDUR: HÚSAVÍK: EGII.STADIR: VOPNAFJÖRDUR: SEYDISFJÖRDUR: FÁSKRÚDSF.IÖRDUR: HÖFN HORNAI IRDI: 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent Samstarf Búnaðarbankans og Brunabótafélagsins gerir þér nú mögulegt að kaupa ferðatryggingu um íeið og þú kaupir gjaldeyri í bankanum. Ferðatrygging Brunabótafélagsins er samsett trygging sem bætir tjón vegna slysa, sjúkdóma og ferðarofs, auk tjóns á farangri. Búnaðarbankinn býður ferðatékka í 7 gjaldmiðlum, seðla í öllum skráðum gjaldeyristegundum og Visa greiðslukort. Ferðatrygging og gjaldeyrir á sama stað. tBRUnnBÓT $BÚNAÐARBANKINN -AFÖRYGGISÁSTÆDUM V/V/ mAUsnjn mnki HELGARPÖSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.