Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 28
Hjá Sláturfélaginu færðu allt í grillveisluna og að auki fylgja hér nokkur heilræði um steikingu á teini Þú færð allar tegundir af góðu kjöti á grillið, vínar- og medisterpylsurnar okkar vinsælu, kol, grillolíu, ótal tegundir af kryddi, grænmeti og öðru meðlæti sem þarf til að útbúa girnilega grillveislu. Heilræði um steikingu á teini Allt kjöt, fisk, brauð og grænmeti má glóða á teini, en það er ekki sama hvemig það er gert. Best er að smyrja teininn vel áður en þrætt er á hann. Grænmetið er gott að skera í aðeins stærri bita en kjötið svo það verði ekki ofsteikt þegar kjötið er tilbúið. Teinamat á I (ka alltaf að pensla áður en hann er settur á grillið - annars ofþornar hann og skorpnar. Best er að nota grillolíu eða kryddlög. Lögurinn gerir matinn meyran og bragðgóðan, og hann er tilvalið að nota sem sósu á eftir. Varast ber að stinga í kjötið á teininum - þá lekur gómsætur safinn úr, og ekki er ráðlegt að strá salti á kjötið fyrr en eftir að steikingu er lokið. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS ráðstefna í Borgarnesi um málefni Ríkisútvarpsins. þar sem meðal annars voru saman komin Markús Orn Antonsson útvarpsstjóri, Elfa-Björk Gunnarsdóttir fram- kvæmdastjóri, Inga Jóna Þórðar- dóttir, formaður útvarpsráðs, deild- arstjórar og nokkrir fulltrúar starfs- manna. Eftir því sem okkur skilst voru settar fram margar merkar til- lögur á þessum fundi, en þeirra ný- stárlegust var sennilega þessi hérna: ,,Rás 2 verði seld einkaaðil- um...! Fyrir þessu mælti Inga Jóna Þórðardóttir og kvaðst ennfremur ekki sjá ástæðu til þess að Ríkisút- varpið stæði í útsendingum á léttum tónlistarþáttum þegar fyrirsjáanlegt væri að frjáls útvörp einkaaðila myndu að mestum hluta sinna því útvarpsefni. Ekki vitum við hvaða rómur var gerður að þessari tillögu frjálshyggjukonunnar, sem eins og fyrr greinir er formaður útvarps- ráðs... l síðasta blaði sögðum við frá því að við formjega opnun fiskeldis- stöðvarinnar Islandslax á dögunum hefðu óbreyttir verkamenn verið sendir á brott til þess að rýma fyrir „fína fólkinu", sem hafði verið boð- ið. Þórður H. Ólafsson, forstjóri íslandslax, hefur hins vegar skýrt okkur frá því, að ákveðið hefði ver- ið, og það í samráði við starfsmenn, að „uppáhellingarnar" yrðu í tvennu lagi og yrði haldin sérstök opnunarveisla fyrir þá sem hefðu unnið beint að framkvæmdunum. Sú veisla verður 11. júlí. Þetta hefði öllum átt að vera kunnugt og með þessi væri íslandslax ekki að fara í manngreinarálit. Við mætum. .. GIRNI OG HJÓL ALLT TIL VEIÐA KYNNINGARAFSLÁTTUR AF jk [SPOPTLlf VEIÐIVÖRUM A má EIÐISTORGI13-SÍMI 611313 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.