Helgarpósturinn - 26.06.1986, Page 12
FF
<% æ m
lAi
ISLXNDI
1FÆREYJA
OG
SKOTLANDS
16.550.-
OG HEIMAFTUR
FYRIR AÐEINS KR.
Flug til Færeyja er ekki aðeins ódýrt — það er skemmtilegt og það
er iíka nýstárlegt því eyjarnar átján hafa ótrúlega margt að bjóða góðum
gesti.
Eftir dvöl í Færeyjum er hægt að fljúga beint þaðan til Skotlands — í
innkaup í Glasgow eða skoða heillandi fegurð skosku Hálandanna.
Aflaðu þér upplýsinga hjá næstu söluskrifstofu Flugleiða,
umboðsmanni eða ferðaskrifstofu um þennan ódýra og nýstárlega
ferðamöguleika.
Seglagerðin Ægir
hefur stækkað búðina
Nú erum vió meó mikió úrval af hústjöldum
Ægistjöldum og göngutjöldum.
I 1 & nS*
200
1 ll
Ll J
Barnatjöld í miklu úrvali frá
1000,- kr.
Hefur þú mátað alla
sólstólana?
Viðleguútbúnaður og
garðhúsgögn í miklu úrvali.
Hagstætt verð.
e^\ager(/y
Eyiðslód 7, Reykjavik Pósthólí 659
Simar 14093 - 13320 Nafnnr 9879 - 1698
Dallas
4ra manna, verð kr. ca.
19.850,- 6 manna, verð
kr. 25.040,-
l^lraunir búvörudeildar Sam-
bandsins til að koma lambakjötinu
okkar á markað erlendist hafa löng-
um verið stirðbusalegar og fornfá-
legar. Ein þessara tilrauna snerist
um að selja svokallað Ladolamb til
Svíþjóðar. Steindór Haraldsson,
sem nú rekur fyrirtækið Marska á
Skagaströnd og framleiðir rækju-
rúllur og sjávarbökur, kom með
uppskrift að Ladolambinu til þeirra
Sambandsmanna og samdi við þá
um að hann hefði sjálfur frjálsa
markaðssetningu erlendis gegn
vissri prósentu af hugsanlegri sölu.
Steindór fór af stað ásamt Friðfinni
Daníelssyni markaðsráðgjafa og
komst fljótlega í samband við Sven
Áke Boding, innkaupastjóra ICA-
samsteypunnar, sem selur um þriðj-
ung neysluvörunnar í Svíþjóð.
Samningaumleitanir við hann
stefndu í að fyrir Ladolambið fengist
allt að 50% hærra verð en fengist
hafði fyrir íslenskt lambakjöt á
sænska markaðinum áður. Þeir fé-
lagar kynntu Magnúsi Friðgeirs-
syni, framkvæmdastjóra búvöru-
deildarinnar, þennan möguleika og
bentu honum á gríðarleg umsvif
þeirra hjá ICA. Sambandinu hefur
aldrei líkað vel að einhverjir menn
úti í bæ væru að garfa í því að selja
lambakjötið þeirra svo að þeir að-
höfðust lítið í málinu. Þó sendu þeir
Boding bréf þar sem þeir buðu hon-
um mun lægra verð en Steindór og
Friðfinnur töldu sig allt að því vera
búna að semja um. Boding varð að
vonum hissa og sendi fyrirspurn til
Friðfinns sem var orðinn langþreytt-
ur á tregðu búvörudeildarinnar og
hætti afskiptum af málinu enda átti
SÍS allt lambakjötið. Af samningum
Sambandsins við Boding er það að
segja að þeir lognuðust fljótlega út
af og Boing sjálfsagt orðið þreyttur
á að ganga á eftir búvörudeildinni
með grasið í skónum. Ástæðan fyrir
einkennilegri hegðun Sambandsins
í þessu máli er víst sú að SCAN,
sænska SÍS, var víst ekki alltof hrifið
af því að bróðir þess á íslandi væri
að selja einhverjum kaupmanna-
samtökum vörur. Því heldur bú-
vörudeildin áfram að sinna jafn æv-
intýralegum samningum og að selja
framparta til Japan fyrir 4 kr. kíló-
ið. . .
Þ
að er víðar en við Haffjarð-
ará sem bændur og borgarbúar
elda saman grátt silfur. Norður í
Húnaþingi, nánar tiltekið að
Þingeyrum í Þingi, hefur bændum
verið sagt upp ábúð á jörðinni án
þess að nokkur skýring sé gefin. Að
Þingeyrum búa tengdafeðgar mesta
rausnarbúi og jörðin er ein sú besta
á öllu Norðurlandi. Eigendur jarðar-
innar eru Heklubræður, Ingimund-
ur og aðrir synir Sigfúsar heitins
sem keypti þessa laxveiðijörð fyrir
margt löngu. Húnvetningar velta
vöngum en eru jafnnær um það
hversvegna ábúðinni er sagt upp.
Það er á hinn bóginn ljóst að brott-
för tveggja fjölskyldna úr Sveins-
staðahreppi er mikil blóðtaka fyrir
sveitarfélag þar sem fyrir eru tæp-
lega 200 manns. . .
Þ
að er greinilega mikill áhugi
á hvers kyns umfjöllun um kjör
karla í lok hins margumrædda
kvennaáratugar Sameinuðu
þjóðanna. í riti Kvenréttindafé-
lags íslands, 19. júní, var kastljós-
inu beint að karlmönnum og þeim
áhrifum sem jafnréttisbaráttan hef-
ur haft á líf þeirra, og eftirspurnin
eftir blaðinu var með eindæmum
góð. Ritið er nú uppselt á skrifstofu
félagsins — á mettíma. Þeir sem
hyggjast taka þátt í næstkomandi
jólabókaflóði, geta eflaust dregið af
þessu nokkurn lærdóm, eða
hvað?...
HREINNA LOFT
Þaö er ekki bara hreinna lott og auöveldari þrif sem fylgja því aö velja
TARKETT PARKETT á gólfin
TARKETT PARKETT er heimsfrægt fyrir stööugleika.
TARKETT PARKETT hefur sérstaklega sterka lakkhúð.
TARKETT PARKETT er auðvelt I uppsetningu.
Þeim fjölgar slfellt sem velja TARKETT PARKETT á gólfin, því þeir vita að
þau veröa fallegrl og fallegri með hverju ári sem líður.
HARÐVIÐARVAL
KR0KHÁLSI 4 110 REYKJAVlK SlMI 671010
mm.
12 HELGARPÓSTURINN