Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 19
dettur ekki í hug að koma til lífeyris-
sjóðsins og krefjast þess að hann
láni sér fyrir afborgunum og vöxt-
um. Þetta er að mínu mati mjög
hættuleg miðstýring á fjármagni,"
sagði dr. Pétur Blöndal.
Jóhann Einvarðsson:
„Lögin eru spor í rétta
ótt"
„Það var gert samkomulag milli
aðila vinnumarkaðarins með vel-
vilja ríkisstjórnarinnar í vetur og
þar voru þessi húsnæðismál stórt
atriði," sagði Jóhann Einuardsson,
aðstoðarmaður félagsmálaráð-
herra. ,,Sú lagabreyting, sem gerð
var á lögunum um Húsnæðisstofn-
un rikisins, var unnin af sérstakri
nefnd sem forsætisráðherra skipaði.
Nefndin fékk það verkefni að breyta
lögunum með tilliti til þess sam-
komulags sem gert hafði verið.
Þannig að það ákvæði — sem þú
spyrð sérstaklega um — þess efnis
að menn fái lán í hlutfalli við það
sem lífeyrissjóðirnir samþykkja að
kaupa, er bein afleiðing af samning-
unum í vetur. Það sem er nýtt í þessu
er að menn fá ekki hámarkslán
nema lífeyrissjóður viðkomandi
kaupi fyrir a.m.k. 55% af ráðstöfun-
arfé sínu og lágmarkslán, sé keypt
fyrir 20%. Síðan kemur upp sú staða
sem nokkuð hefur verið gagnrýnd,
og það er það að ef lífeyrissjóðurinn
kaupir ekkert fá sjóðfélagarnir ekk-
ert lán.
Til mín hafa hringt ýmsir aðilar,
svo sem litlir sjálfstæðir atvinnurek-
endur, listamenn, námsmenn o.fl.
sem segjast ekki vera í neinum líf-
eyrissjóði og fái þar af leiðandi ekki
lán. En síðan 1980 hefur það verið
lagaskylda að vera í lífeyrissjóði og
allir hafa haft möguleika á að vera í
lífeyrissjóði. Ég held nú ekki að lög-
in séu ámælisverð að þessu leyti
heldur geri þau það að verkum að
menn gangi frekar í lífeyrissjóð en
ella og tryggi þannig sína framtíð.
Því tilgangurinn með lífeyrissjóðun-
um er ekki bara sá að veita lán,
heldur er fyrst og fremst verið að
hugsa til elliáranna eða veikinda.
Lögin eru spor í rétta átt
Ég held að það fari ekkert á milli
mála að það verður ekki ríkisvaldið
sem þrýstir á lífeyrissjóðina um að
kaupa skuldabréf af íbúðalánasjóð-
unum, heldur verði það meðlimir
lífeyrissjóðanna. Þess vegna held ég
að niðurstaðan verði sú að allir líf-
eyrissjóðirnir kaupi fyrir 55% af
sínu ráðstöfunarfé.
Þessi lög eru spor í þá átt að fólk
fái lán á einum stað til að byggja eða
kaupa, í staðinn fyrir að fara til líf-
eyrissjóðs, Húsnæðisstofnunar og
svo til bankanna. Þetta dæmi lítur
vel út fyrir þá sem eru að byggja í
fyrsta sinn. Viðkomandi fær
2.100.000,- króna lán og fyrir það
má fá mjög frambærilega íbúð fyrir
fólk sem er að byrja að búa."
VERKFRÆÐISTOFUR,
PRENTSMBJUR, AUGLÝSINGASTOFUR,
BNSKÓLAR, TÆKNISKÓLAR,
MYNDLISTARSKÓLAR 0G HEMU.
Á ÖLLUM ÞESSUM STÖÐUM
ERU NE0LT TEKNIB0RÐ
0G FYLGIHLUTIR ÞEIRRA
ÓMISSANDI.
Hjoiagfm lur fyrir
ALLT í EINNI FERÐ
KL teikm 'él
Það er gott að eiga annað borð heima
fyrst maður vinnur á annað borð heima
Hjólaskáp ii
NEOLT vörumar eru framleiddar af einum stærsta
teiknivöruframleiðanda í heimi.
Þær eru vandaðar og á hagstæðu verði.
NEOLT teikniborð em nú í vaxandi mæli einnig notuð
við teiknivinnu í heimahúsum.
Þau em óneitanlega þægilegri en eldhúsborðið eða
borðstofuborðið.
Við NEOLT teikniborðið ertu alltaf í réttum stellingum
og reynir ekki um of á bakið.
Að lokinni notkun má leggja það saman.
Þannig geymist það auðveldlega til dæmis á
bakvið hurð.
Það ber mörgum saman um að gott sé að eiga annað
borð.
Nú er nýkomið frá NEOLT:
Teikniborð, margar gerðir og stærðir með stiUanlegri
hæð og halla.
KL teiknivélar, sem em arftakar JOKER teiknivélanna.
Hirslur fyrir teikningar, bæði skápar til að geyma
hangandi teikningar, skúffuskápar
og grindur fyrir teikningar.
Ljósaborð í þremur stærðum með fjórum útfærslum.
Hæð og halli stillanlegt.
Hjólaskápar fyrir ýmsa smáhluti og skjöl.
Lampar og aðrir fylgihlutir, svo sem pennabakkar og
rennur.
cnm>-
Hallamnúla 2 Sími 83211
ST0R4R
SUÐR€N4R
POTTK
PLONTUR
EINNIG FALLEGIR KERAMIKPOTTAR
ORGARBLOMÍÐ
SKÍPHOLTÍ 35
SÍMÍ: 3ZZI3
HELGARPÖSTURINN 19