Helgarpósturinn - 26.06.1986, Síða 26
Menningarsöguleg verdmæti í Ijósi Iðnskólabrunans:
GOTT ÁSTAND
í BRUNAVÖRNUM
er niðurstaða skyndikönnunar HP í nokkrum söfnum og leikhúsum borgarinnar.
Betra ástand en á stofnunum sem annast fólk! Einn af örfáum þáttum sem átti eftir aö endurnýja í gamla
lönskólahúsinu viö Tjörnina, var rafkerfiö.
G. Pétur Matthíasson mynd: Jim Smart^^^M^^^MMMMN^^^^HHMMMMH^^MaMNMaNNBB
Nú hefur það gersl sem menn ótt-
uðust: Stórbruni í gömlu timburhúsi
í miðbœnum. Eldur kom upp í
gamla Iðnskólahúsinu á laugardag-
inn var. Þegar slökkuiliðið kom á
staðinn um klukkan sex, leit ekki of
vel út með húsið og jafnvel var talið
að nœrliggjandi hús vœru I hoettu.
Slökkvistarfið tók fjórar klukku-
stundir með öllu tiltæku slökkviliði.
En betur fór en á liorfðist. Bruna-
veggur á mi/lisuður- og norðurenda
hússins hélt og eldur náði heldur
ekki að breiðast vestur Vonarstrœt-
ið. Ris hússins eyðilagðist alveg en
önnur hœð skemmdisl minna og
fyrsta hæð slapp að miklu leyti. Það
er mál manna að miklu verr hefði
getað farið. Nýbúið var að gera hús-
ið upp að utan og hefur verið staðið
að því verki síðastliðin 4—5 ár. Nœst
á dagskránni var að taka húsið í
gegn að innan, þar með taldar raf-
magnsleiðslur, og var einungis beð-
ið eftir því að Leikfélag Reykjavíkur
flytti alfarið í nýja Borgarleikhúsið í
nýja miðbœnum. Það má því segja
að það hafi verið síðustu forvöð að
kviknaði í þessu húsi, svo kald-
hæðnislegt sem það nú er.
„Það er mikið áfall að verða fyrir
þessu," sagði Stefán Baldursson,
leikhusstjóri Iðnó, í samtali við HP.
„Það brunnu þarna búningar í
hundraðatali, sumir margra áratuga
gamlir. Það er ómetanlegt tjón.
Þetta voru gömul föt sem höfðu nýst
mikið í sýningum og hefðu komið til
með að gera það áfram. Líka er mik-
il eftirsjá í upptökum á sýningum
sem voru á segulböndum. Það nýj-
asta er reyndar myndbandsupptök-
ur og þær eru geymdar í eldtraust-
um stað. Það eru upptökur frá síð-
ustu sex til sjö árum. Segulbönd af
eldri sýningum eyðilögðust eigin-
lega alveg, því það virðist sem eld-
urinn hafi komið upp í herberginu
þar sem segulböndin voru.
Það var spurning um eitt misseri
að koma þessum hlutum inn í Borg-
arleikhús. Við höfðum ekki haft að-
stöðu til að hafa þessa hluti annars
staðar sökum húsnæðiseklu, Sér-
staklega eru búningarnirfyrirferðar-
miklir en þeir eru reyndar líka i
stöðugu sambandi við leikhúsið
þannig að það er ekki annað hægt
en að hafa þetta á staðnum.
Megnið af leikmunum slapp al-
veg, og reyndar líka eitthvað af bún-
ingunum. Við héldum um tíma að
húsið myndi allt fara, okkur fannst
tvísýnt um að slökkviliðið myndi
ráða við eldinn þegar hann var sem
mestur, þannig að verr hefði getað
farið,“ sagði Stefán.
Nú er talið fullvíst að kviknað hafi
í út frá gömlum radíófóni, sam-
byggðu útvarpi og plötuspilara. Það
þarf ekki að hafa verið kveikt á tæk-
inu, því nægilegt er að tæki séu í
sambandi til að kviknað geti í út frá
þeim. En hvernig er háttað bruna-
vörnum á öðrum stöðum í Reykja-
vík sem geyma menningarsöguleg
verðmæti? Helgarpósturinn gerði
skyndikönnun á því.
BORGARBÖKASAFNIÐ
Þórdís Þorvaldsdóttir borgar-
bókavörður sagði að Borgarbóka-
safnið væri hvergi í timburhúsi.
„Safnið í Gerðubergi er mjög vel bú-
ið, þar er allt samkvæmt nýjustu
kröfum, enda húsið alveg nýtt. Les-
stofan í Þingholtsstræti er tengd
beint við Slökkvistöðina í Reykjavík
og betra verður það ekki. Einnig er
nýbúið að gera húsið upi>, skipta um
allar raflagnir og annað. í aðalsafnið
var flutt 1936 og það er ekki bein
tenging við slökkviliðið en hinsveg-
ar er allt fullt af slökkvitækjum og
starfsfólkið kann mjög vel á þessi
tæki. Bækur eru nú þannig að ef
kviknaði hér í og einhver eldur yrði
að ráði, þá myndi allt eyðileggjast,
ef ekki af eldi þá vatni og reyk. Þess
vegna höfum við lagt áherslu á
handslökkvitæki og þjálfun starfs-
fólks."
ÞJÓÐMINJSAFN
„Hér eru þessi mál í þokkalegu
standi, held ég að megi segja," sagði
Geir Björnsson, húsvörður í Þjóð-
minjasafninu. „Við erum í mjög góðu
sambandi við Eldvarnaeftirlitið. Nú,
svo er verið að setja upp eld- og
þjófavarnakerfi frá Securitas. Þeir
eru búnir að tengja þjófavarnakerf-
ið og eldvarnakerfið verður fullfrá-
gengið nú um mánaðamótin. Síðan
er náttúrlega margt annað, svo sem
handslökkvitæki um allt hús og
brunaslöngur á rúllum, þannig að
eftir mánaðamótin verður allt orðið
viðunanlegt. Það má segja að það sé
frekar eytt fé í þessa hluti heldur en
margt annað sem einnig er brýn
þörf á.“
ÍSLENSKA OPERAN,
GAMLA BÍÖ
„Þessi mál eru í mjög góðu lagi
hér, held ég,“ sagði Kristín Kristjáns-
dóttir sýningarstjóri aðspurð um
brunavarnir í Gamla biói. „Eld-
varnaeftirlitið kemur reglulega og
yfirfer allt húsið. Sömuleiðs verða
þeir að taka út hverja einustu leik-
mynd og samþykkja hana. Og við
erum a.m.k. í lagi á þeirra mæli-
kvarða. Nú, síðan eru tvö ár síðan
sett var upp í húsinu fullkomið
brunavarnakerfi sem er tengt við
Slökkvistöðina. Við getum t.d. ekki
steikt okkur egg hér uppi í eldhúsi
án þess að ailt fari af stað, ýli og
væli. Þegar Óperan tók við húsinu
var allt endurnýjað; það voru settar
upp nýjar rafmagnstöflur með leka-
straumsrofum þannig að ég býst við
að raflagnir hafi einnig verið endur-
nýjaðar, þótt ég viti það ekki alveg
fyrir víst.
Maður fékk óneitanlega í magann
þegar kviknaði í nú um helgina og
fór að hugsa um hvað gæti gerst. En
í kjallaranu hjá okkur, þar sem bún-
ingar og annað er, er tekið af raf-
magn þegar við yfirgefum húsið."
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR, IÐNÖ
„Það er mjög ströng brunavarsla
hér í Iðnó,“ sagði Stefán Baldursson.
„Á leiksýningum eru hér bruna-
verðir, það er skylda. Það er einnig
mikið og gott samband við bruna-
eftirlitið, þ.e. slökkvistöðina, þannig
að það á að vera mjög tryggt. Það er
alltaf beint samband við slökkvi-
stöðina á sýningum en ég bara veit
ekki hvernig þessu er háttað að deg-
inum til.
KVIKMYNDASAFN
ÍSLANDS
Kvikmyndasafn íslands er með
yngstu söfnum landsins og er í frek-
ar nýlegu húsi við Skipholl í Reykja-
vík. „Hvað varðar geymsluna á
kvikmyndunum sjálfum, þ.e.a.s.
filmunum, þá er sú vörn nokkuð
góð,“ sagði Guðbrandur Gíslason,
forstöðumaður safnsins. „Við geym-
um filmurnar í herbergi sem er sér-
staklega einangrað og það er eld-
traust hurð hér fyrir dyrum. Það er
reyndar ekkert kerfi sem byrjar að
blístra eða neitt slíkt. Eg myndi
segja að brunavarnir væru í þokka-
legu standi en þó má alltaf gera bet-
ur og ef við förum í annað húsnæði
þá geri ég ráð fyrir að við okkar
kerfi verði settur rofi sem tengist
beint niður á lögreglustöð eða beint
til fyrirtækis. Þetta hér er bráða-
birgðahúsnæði og óttalega lítið og
þröngt um okkur en ég geri ráð fyrir
að það breytist. Hvað varðar eld-
varnir er ég nokkuð óhræddur um
myndirnar okkar.“
LANDSBÓKASAFN
Finnbogi Guðmundsson lands-
bókavörður sagði að í Safnahúsinu
öllu væri viðvörunarkerfi í beinu
sambandi við Slökkvistöðina í
Reykjavík. „Einnig tökum við raf-
magn af öllu húsinu að degi lokn-
um. Það eru einungis nokkur ár síð-
an allar rafmagnsleiðslur voru end-
urnýjaðar þannig að þar er ástandið
ágætt. Eldvarnakerfið er hinsvegar
nokkuð eldra, ég man ekki hve
gamalt það er en það var sett upp
einhvern tímann eftir 1970.“
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
„Það er alltaf vakt hér á hverri
sýningu," sagði Vilhjálmur Hjör-
leifsson eldvarnaeftirlitsmaður að-
spurður um brunavarnir í Þjóðleik-
húsinu. „Hér er einnig reglulegt eft-
irlit, hver einasta leikmynd tekin út.
Eigi að nota opinn eld eru gerðar
sérstakar ráðstafanir eða sýningarn-
ar bannaðar. Nú, húsið er nokkuð
vel búið eldvörnum. Það var á sín-
um tíma byggt eftir sömu kröfum og
nú eru í gildi. Ég er hér alltaf með
annan fótinn og ástandið er þannig
að varla verður á betra kosið. Við er-
um með beint samband upp í
Slökkvistöð. Hér er slökkvibúnaður,
bæði kolsýrubúnaður og vatnskerfi.
Það er kerfi hér sem brunaverðir og
starfsmenn geta sett í gang, þ.e.
slökkvikerfi. Vatninu er t.d. hægt
að stjórna frá ákveðnum stað í hús-
inu. Ánnars er verið að setja hér upp
fullkomið brunavarnakerfi sam-
kvæmt nýjustu kröfum sem verður
jafnvel komið í gagnið í haust. Þetta
kerfi verður tengt beint við Slökkvi-
stöðina.
Ég sé líka um Iðnó. Þar er líka vakt
á öllum sýningum en húsinu er, eins
og gefur að skilja, mörgum sinnum
hættara en hér. Þar eru bara hand-
slökkvitæki en alltaf maður á vakt á
öllum sýningum."
ÁRBÆJARSAFN
„Við höfum unnið að því undan-
farin tvö ár að setja upp þjófa- og
brunavarnakerfi í safninu," sagði
Ragnheiður Þórarinsdóttir, borgar-
minjavörður og forstöðumaður Ár-
bæjarsafns. „Við erum komin í beint
samband við lögregluna og erum í
þann vegir.n að komast í beint sam-
band með brunavarnakerfið við
Slökkviliðið. Það er búið hér í tveim-
ur húsum allt árið og kerfið er tengt
við þau hús. Við erum að reynslu-
keyra kerfið. Þar sem ýmsir gallar
hafa komið í ljós er ekki enn búið að
tengja okkur endanlega við lög-
reglu og slökkviliðið en það verður
gert í haust. Við verðum nefnilega
að sitja á strák okkar á meðan safnið
er opið. Það er ekki hægt að bjóða
gestum upp á sundurgrafið safn. En
við erum sem sagt tiltölulega vel á
vegi stödd. Þetta tekur að sjálfsögðu
allt sinn tíma. Við erum nýbúin að fá
símalínu sem mun gefa okkur beint
samband við Slökkviliðið, sem er al-
veg nauðsynlegt því að um leið og
Beint samband við slökkvilið endur- nýjaðar raflagnir bruna vakt eldtraust geymsla
Árbæjarsafn X
Borgarbókasafn lesstofa lesstofa
Gamla bíó X X
Kvikm.safn íslands nýtt X
Landsbókasafn X X
Iðnó X
Þjóðleikhús á leiðinni X
Þjóðminjasafn við Securitas
Eldviðvörunarkerfi eru tengd beint frá 77 húsum og stofnunum við Slökkviliðið í
Reykjavík. Auk ofantalinna má nefna Fríkirkjuveg 11, Höfða, Seðlabankasafnið,
Listasafn Einars Jónssonar, Stjórnarráðið, Ásgrímssafn, Kjarvalsstaði, Menntaskól-
ann í Reykjavík, Miðbæjarskólann o.fl. Auk þess eru mörg tengd við stjórnstöðvar
öryggisvörslufyrirtækjanna Securitas og Vara.
26 HELGARPÓSTURINN