Helgarpósturinn - 26.06.1986, Side 27
eitthvað kemur fyrir hér fuðrar allt
upp. En við erum á góðri leið.“
SLÖKKVILIÐIÐ í
REYKJAVÍK
Það er greinilegt á viðtölunum hér
að ofan að ástand brunamála á þeim
stöðum sem um ræðir virðist í mjög
þokkalegu ástandi. I mun betra
ástandi heldur en t.d. ýmsar aðrar
stofnanir sem hýsa fólk en ekki
söguleg verðmæti. Það kom ber-
lega í Ijós ekki alls fyrir löngu þegar
kviknaði í Kópavogshælinu. Sá
bruni hefur vonandi orðið til að
bæta ástandið á öðrum stofnunum.
Ástandið er jafnvel svo gott að það
virðist ótrúlegt en Hrólfur Jónsson
varaslökkviliðsstjóri staðfesti þetta
ágætisástand í samtali við HP. „Ég
held að það sé heilmikið til í því að
ástand brunavarna sé nokkuð gott á
þessum stöðum. Núorðið er ástand-
ið almennt gott, þetta hefur verið að
smákoma. Það eru t.d. ekki mörg ár
síðan Ásgrímssafn tengdist hingað
upp í Slökkvistöð. En þeir eru tengd-
ir hingað þessir staðir þar sem mest
verðmæti eru geymd. Og ég held að
yfirleitt sé þessu nokkuð vel fyrir
komið.
En það er sjálfsagt að vekja at-
hygli á því að víða í gömlum húsum
eru miklar minjar og mikil verð-
mæti og einnig hvað eldviðvörunar-
kerfi gerir fljótt vart við eld. Með
slíku kerfi er nánast útilokað að eld-
urinn nái að búa nokkuð um sig að
ráði. Og þegar slökkviliðið kemur á
staðinn á að vera hægt að slökkva
eldinn áður en hann breiðist út.“
— Nú eru brunaverdir í 1dnó og
Þjódleikhúsinu, huad gerir bruna-
vördur?
„Brunavörður fer um húsið, fylg-
ist t.d. með því að ekki sé reykt á
stöðum þar sem ekki má reykja,
hann fylgir fram þeim relgum sem í
húsinu gilda, hann fylgist með því
að hlutir séu í lagi; slöngur, slökkvi-
tæki o.s.frv. En brunavörður er ein-
göngu í húsinu meðan á sýningu
stendur. Að næturlagi gæti eldur
búið um sig í þeim húsum þar sem
ekki eru eldviðvörunarkerfi. Ef
eldur kemur upp í húsinu hefur
brunavörður ákveðnu hlutverki að
gegna. í leikhúsunum er líklegast að
eitthvað gerist á sviðinu, þar er oft
verið með eld og eins í sambandi
við ljósabúnað. 1 Þjóðleikhúsinu er
stáltjald á sviðinu og er það hlut-
verk brunavarðar að koma því nið-
ur og loka þannig sviðið af. Hann
gerir náttúrlega viðvart strax. Þetta
er öryggisvakt, brunavörður fylgir
því eftir að öryggisreglum sé fylgt,
t.d. vegna ljósabúnaðar og annars.
í Óperunni eru allir hlutir í lagi,
neyðarútgangur, viðvörunarkerfi,
rafkerfi og annað. Það hús teljum
við í mjög góðu standi. Iðnó er búið
að vera að flytja í tíu til fimmtán ár,
sem er líklega skýringin á því af
hverju ekki er búið að setja þar upp
eldviðvörunarkerfi, og eins í Iðn-
skólahúsinu. En þar hefur alltaf búið
fólk þar til fyrir stuttu. Það er samt
full ástæða til að hafa viðvörunar-
kerfi í húsum þrátt fyrir að þar sé
fólk allan sólarhringinn. Þótt vakt-
maður fari um hús t.d. á tveggja
tíma fresti, getur eldur búið vel um
sig á þeim tírna," sagði Hrólfur Jóns-
son að lokum.
SALIR
Fyrir t.d.
Ættarmót
Stúdentsveislur
Brúðkaup
Afmæli
Erfidrykkju
Róðstefnur
Fundarhöld
Framreiðslumaður: Pétur Sturluson
FREE
STY
FORMSKUM
LOREAL
r’Anis
RISIÐ
Veislu- og fundarsalir
Hverfisgötu 105
Símar 29670 - 22781
SKÚMíbárii?
J*
— nýja lagningarskúmið
frá L'ORÉAL!
og hárgreiðslan verður
leikur einn.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUDURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222
Rafmagn er svo snar þáttur
í lífi okkar að við veitum því
varla athygli. Flest heimilistæki
og vélar á vinnustað ganga
fyrir rafmagni og við erum svo
háð þeim að óbeint göngum
við sjálf fyrir rafmagni.
Þessu ,,sjálfsagða“ raf-
magni er dreift til okkar af
rafmagnsveitu. Rafmagnsveita
Reykjavíkur leggur metnað
sinn í stöðuga og hnökralausa
dreifingu til neytenda. Dreif-
ingarkostnaður greiðist af
orkugjaldi.
Ógreiddir reikningar hlaða
á sig háum vaxtakostnaði sem
veldur því að rafmagnið er nær
þriðjungi dýrara hjá þeim
skuldseigustu — þar til þeir
hætta að fá rafmagn.
Láttu orkureikninginn hafa
forgang!
Þaðerdýrt
rafmagnið sem þú dregur að borga
HELGARPÓSTURINN 27