Helgarpósturinn - 26.06.1986, Page 29

Helgarpósturinn - 26.06.1986, Page 29
viku þegar Jóhannes Árnason, sýslumaðurinn í Stykkishólmi, fékk það óvinsæla hlutverk að bera Sigurð Oddsson, bónda og hrepps- nefndarmann í Eyjarhreppi, út af jörðinni Höfða. Á skjá landsmanna komu þeir Sigurður bóndi og Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræð- ingur landeiganda. 1 ræðu Jóns kom fram að Sigurður hefði ekki borgað eina einustu krónu í leigugjald af jörðinni. Hið rétta er að Sigurður borgaði af jörðinni fyrst eftir að samningur við hann var gerður, og auk þess er hann eini leiguliði Thorsara sem borgað hefur leigu fyrir jörð sína síðustu 30 eða 50 ár- in, — ef ekki frá því að Thor Jensen eignaðist þessar 10 jarðir sem land eiga að ánni, snemma á öldinni... Bóndinn Sigurður Oddsson er nú borinn út á þeim forsendum að leigusamningur hans og eigenda sé úr gildi fallinn — sem báðir aðilar eru sammála um. Það hefur aftur á móti ekki verið dregið fram að lík- legast er þessi samningur sá eini sem gerður hefur verið við iand- drottna þarna um ábúð í áratugi. Annarsstaðar búa bændur á þessum jörðum eins og þeir hafa alltaf gert samningslaust og án þess að borga nokkurt leigugjald. Það sem hugs- anlega hefur orðið til þess að Sig- urður var látinn víkja er að hann hefur verið kokhraustari en aðrir landsetar á þessum slóðum og óspar á málaferli við landdrottna sína. Þess er skemmst að minnast að í fyrstu atrennu Jóns Steinars Gunn- laugssonar hdl. vann Sigurður mál- ið, og þá var verjandi, sem atti kappi við hæstaréttarlögmanninn, enginn annar en Sigurður sjálfur, óbreyttur og hvatvís sveitamaðurinn. Kannski svolítið neyðarlegt... iSnn af málum Sigurðar í Höfða. Margir furða sig á að Jón Steinar Gunnlaugsson hdl. og hans menn skuli sækja það fast að fá úrskurði, sem kveðinn var upp fyrir næstum ári, framfylgt núna. Ástæðan er þessi, að því er heimild- ir HP herma: Þeir hófsamari og frið- samari úr liði eigenda eru í viðræð- um við bændur um sölu á ánni, jörð- unum öllum og öllu sem þeir eiga vestra. í kringum þennan hóp stend- ur allstór lögfræðiklíka sem hefur lengi makað krókinn á laxveiðitekj- um þessara eigna og sjá nú ofsjón- um yfir tekjutapinu. Eina tiltæka leiðin til þess að stöðva söluna er að koma öllu í bál og brand einn gang- inn enn — og allt er talið leyfilegt í leik þar sem tilgangurinn helgar meðalið... o ^^^kkur hefur verið góðfús- lega bent á dulítið fleipur sem við fórum með á dögunum þar sem við fullyrtum víst að Yngva Kjartanssyni blaðamanni hefði verið ,,sparkað“ af Degi á Akureyri vegna lítillar fylgispektar sinnar við norðlenska framsóknarmenn. Stað- reyndin mun vera sú að Yngvi sagði upp með nokkuð eðlilegum hætti, en víst þykir þó að aðstandendur Dags hafi tekið uppsögninni fegins hendi. Og nú hefur Yngvi fært sig um set, og kannski er hann kominn í sínar réttu herbúðir — hann er nefnilega orðinn fréttaritari Þjóð- viljans á Akureyri... 2ja-5 manna hústjöld Verð frá kr. 22.000. - Tjaldteppi. Göngutjöld, 3ja-4ra manna tjöld með framlengdum himni, kr. 12.000. Tjaldbúðir, Geithálsi, sími 44392 l—'arís er full af lífi og krafti, fjöri og ferðamannalúxus. J_ Þar blómstrar lifandi menning og sérdeilis lystaukandi matarlist; kræsingar fyrir líkama og sál á hverju götuhorni. Úrval býður farþegum sínum mikinn fjölda hótela í París. Allt frá notalegum 3ja stjörnu hótelurn uppí 5 stjörnu lúxushótel. Innifalið í verði er flug, gisting og morgunverður. Vika íglœsilegum íbúdwn kastar Jrá kr 20.934.- I í boði eru glæsilegar íbúðir á besta M stað í borginni. Þar eru öll þægindi. jjoB Ef dvalið er lengur en 7 daga fæst 15% afsláttur og 30% ef dvalið er lengur en 3 vikur. Innifalið: M Flug, gisting, söluskattur, ÉÉM hreingerning o.fl. Brottfarir til Parísar: Alla JgM miðvikudaga og sunnudaga §58 í júní, júlí og ágúst. Sérstakar viku hóþ- Jeröir 6.og20.ági)st Gist er á fallegu 3ja stjörnu hóteli-verðá mann í tvíbýli: kr. 24.470,— eða lúxus- hótelinu Lutetia Concorde - verð á mann í tvíbýli: kr. 28.390,-. Innifalið: Flug, gisting, morgunverður, akstur frá og að flugvelli í París, skoðunarferðir um París og Versali og íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur. Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900. stærstu sérverslun landsins með sport- veiðivörur. Valin merki - Vönduð vara — Kynningarverð Verslunin eiöiv Langholtsvegi 111 104 Reykjavík ) 6870'90 Allt í veiðiferðina fyrir stóra sém smáa. Gott verð, betri búð. Eitthvað fyrir alla, konur sem karla. Veiðivon vonin sem ekki bregst. Cm I HELGARPOSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.