Helgarpósturinn - 26.06.1986, Síða 37
lFOLKS og embættismanna við þingvallavatn
staðalandi má til dæmis nefna sumarbústað
Kjartans Sveinssonar arkitekts og sumarbú-
stað Gardars Lárussonar tœkniírœðings, en
hvor um sig var metinn á um hálfa milljón
haustið 1984. Eldri sumarbústaði á þessu
svæði eiga meðal annarra Auður Eydal kenn-
ari, dóttir Ástvalds Eydal prófessors og kona
Sveins R. Eyjólfssonar, kaupsýslumanns og
stjórnarformanns Frjálsrar fjölmiðlunar,
Bjarni V. Magnússon, framkvæmdastjóri ís-
lenskur umboðssölunnar, Sameinaðra fram-
leiðenda og stjórnarmaður í fjölda fyrirtœkja,
Hannes 0. Johnson hjá 0. Johnson og Kaaber,
Jón Ingimarsson lögfrœðingur, Kristján G.
Gíslason kaupmaður, Páll Pálsson lögfrœðing-
ur og Stefán G. Björnsson, fyrrv. fram-
kvœmdastjóri Sjóvá. Sumarbústaður í Kára-
staðalandi er einnig skráður á Ingibjörgu
Thors, ekkju Ólafs Thors forsœtisráðherra.
Að sjálfsögðu má tilgreina fleiri sumarbú-
staðaeigendur í landi Kárastaða, upptalningin
er máski þurrpumpuleg, en engu að síður for-
vitnileg: Börge Petersen fulltrúi, dánarbú
Olivers Steins Jóhannessonar bóksala, Valdi-
mar Hansen lœknir, Hjálmar Vilhjálmsson,
fyrrv. ráðuneytisstjóri, Kristján Aðalsteinsson
skipstjóri, Ragnar Kjartansson, fyrrv. stjórnar-
formaður Hafskips, Þór Guðjónsson veiði-
málastjóri, Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðu-
neytisstjóri og mágur Steingríms Hermanns-
sonar forsœtisráðherra, Órlygur Geirsson,
deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, Jón
Oddgeir Jónsson fulltrúi, Guðjón Eyjólfsson
endurskoðandi, Þórir Jensen verslunarmaður
og Njáll Ingjaldsson verslunarmaður. Á þessu
svæði eru einnig skráð fyrir lóðum Thyra
Loftsson tannlœknir og Tryggvi Ófeigsson út-
gerðarmaður.
Miðfellsland
í Þlngvallahreppi austanmegin vatnsins, en
nokkuð langt utan þjóðgarðsgirðingar, er mik-
ið kraðak af sumarbústöðum og eru þar bæði
lóðir og hús í einkaeign. Sé litið á fasteignaskrá
þessa svæðis, í og við land Miðfells, má ljós-
lega sjá að það er ekki nándar nærri eins „fínt“
að eiga sumarbústaði þarna og norðan og
vestanmegin Þingvallavatns, enda er sumar-
bústaðabyggðin öll miklu lágreistari og um-
hverfið yfirleitt napurlegra. Þó getum við
nefnt að þarna eiga sumarhús Einar Sœ-
mundsson, fyrrv. formaður KR, Einar Her-
mannsson skipaverkfrœðingur, Agnar Magn-
ússon byggingaverkfrœðingur, Sigursœll
Magnússon veitingamaður, svo fáeinir séu
nefndir. En þetta er sumsé ekki „fína hverfið".
Skálabrekkuland
Skálabrekka liggur hinum megin við vatnið,
á milli Kárastaða og Heiðarbæjar. Eigendur
jarðarinnar Skálabrekku eru Guðmann Ólafs-
son bóndi, Magnús Skaftfjeld, Unnur Samúels-
dóttir og Svava Samúelsdóttir. Flestar sumar-
bústaðalóðirnar í landi Skálabrekku eru í
einkaeigu. Þekktastur sumarbústaðaeigenda í
Skálabrekkulandi hefur óefað verið Gunnar
heitinn Thoroddsen forsœtisráðherra, sem átti
þar veglegan bústað. Þar á Ásgeir Thoroddsen
lögfræðingur, sonur Gunnars, líka bústað sem
haustið 1984 var metinn á um hálfa milljón.
Ásgeir er kvæntur Sigríði Svanbjörnsdóttur,
dóttur Svanbjarnar Frímannssonar, fyrrv.
seðlabankastjóra, en á hans nafn er skikinn,
sem sumarbústaður Ásgeirs stendur á, skráð-
ur. Á nafn Svanbjarnar er raunar skráður ann-
ar sumarbústaður í Skálabrekkulandi og ekki
er örgrannt um að synir Svanbjarnar, Andrés
byggingaverkfræðingur og Agnar fram-
kvœmdastjóri eigi líka reisulega sumarbústaði
á þessu svæði.
Það er hægðarleikur að telja upp fleiri mekt-
armenn sem eiga sumarbústaði í landi Skála-
brekku. Þar er einn, skráður á nafn Björns
Halldórssonar, fyrrv. framkvœmdastjóra Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna, annar á nafn
Baldvins Einarssonar, fyrrv. forstjóra Al-
mennra trygginga. Meðal íandeigenda á þessu
svæði eru systurnar Svava og Unnur Samúels-
dætur og náttúrlega eru eiginmenn þeirra
skráðir eigendur sumarbústaða í Skálabrekku
— það eru þeir Pétur Rafnsson forstjóri og Sig-
urður H. Guðmundsson. Að öðrum sem eiga
væna sumarbústaði á þessum slóðum má
nefna Björn Vilhjálmsson garðyrkjumann,
Erling Brynjólfsson fulltrúa, Pál Þorgeirsson
heildsala og Magnús Magnússon, prófessor og
tengdason Guðmundar Vilhjálmssonar sem
lengi var forstjóri Eimskipafélagsins.
Stíflisdalur
Eigendur jarðarinnar Stíflisdals, sem liggur
við Stíflisdalsvatn, norðvestan Þingvalla, eru
Halldór Kristjánsson og Karl Eiríksson, for-
stjóri hjá Brœðrunum Ormsson. í því landi á
Karl sumarbústað, sem og Einar heitinn
Agústsson, fyrrv. ráðherra og sendiherra. E\g-
endur Syðri-Stíflisdals er aftur á móti Lilja
Schopka, ekkja Júlíusar Schopka aðalrœðis-
manns, og á sonur hennar, Otto Schopka,
sumarbústað í landi Syðri-Stíflisdals. Otto er
framkvæmdastjóri Kassagerðarinnar.
Undir Hallinum
Og nú erum við komin aftur inn í sjálft Þing-
vallalandið, í sumarbústaðaröðina sem liggur
suður frá Vaihöll, suður með Hallinum svoköll-
uðum og niður í Kárastaðanes. Þessir sumar-
bústaðir hafa löngum verið umdeildir, þeir
liggja í glæsilegu og sögulegu umhverfi niður
við Þingvallavatn, en sjálfur landeigandinn er
náttúrlega ríkissjóður, enda heyrir landið
gömlu Þingvallajörðinni til. Þarna á Páll G.
Jónsson, fésýslumaður og forstjóri í Pólaris,
sumarbústað, Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri Útsýnar, á annan og sá þriðji er skráður
á nafn Sigurgeirs Sigurjónssonar hœstaréttar-
lögmanns, og sumarbústaður ásamt bátaskýli
er eign Guðjóns Guðjónssonar verslunar-
stjóra. Ekkja Vilhjálms Þórs ráðherra og seðla-
bankastjóra, Rannveig, á sumarbústað þarna
undir Hallinum, og einnig afkomendur Arna
G. Eylands, sem var einn helstur búnaðar-
málafrömuður á fyrri hluta þessarar aldar.
Lárus Fjeldsted, hæstaréttarlögmaður og faðir
Agústs lögfrœðings og stjórnarmanns í Sjóvá,
er skráður fyrir sumarhúsi á þessu svæði og
þarna eru líka sumarbústaðir skráðir á nöfn
fjögurra kvenna: Vilborgar Gunnlaugsdóttur,
InguDóru Gústafsdóttur, RagnhildarP. Ófeigs-
dóttur og Sonju Benjamínsson. Vilborg er gift
Gamalíel Sveinssyni viðskiptafrœðingi, lnga
Dóra er dóttir Gústafs kaupmanns Kristjáns-
sonar og eiginkona Einars O. Lövdal lœknis,
en Ragnhildur er dóttir Ófeigs Jósepssonar
lœknis. Tvo aðra sumarbústaðaeigendur á
þessu svæði má nefna, þá Jón Arason
Tryggvason og Kristján Steindórsson. Fast-
eignamat þessara sumarbústaða haustið 1984
var á bilinu 200—500 þúsund krónur. Þess má
svo geta að í Þingvallabænum sjálfum hefur
forsœtisráðherra tvær burstir til afnota, en
þjóðgarðsvörður og Þingvallaprestur þrjár.
Grafningshreppur —
Ölfusvatn
f Grafningshreppi eru nokkrar eftirsóttar
jarðir og er skemmst að minnast þess er Davíð
Oddsson borgarstjóri beitti sér fyrir umdeild-
um kaupum borgarinnar á Ölfusvatnslandi.
Þau kaup urðu að kosningamáli og þóttu bera
vott um greiðasemi við landeigendurna, einu
nafni Engeyjarœttina. Ölfusvatnsland var í
eigu Helgu Ingimundardóttur, ekkju Sveins
Benediktssonar, útgerðarmanns og þing-
manns Sjálfstœðisflokksins, og barna þeirra;
Benedikts Sveinssonar lögfrœðings, Ingi-
mundar Sveinssonar arkitekts, Guðrúnar
Sveinsdóttur og Einars Sveinssonar, forstjóra
Sjóvá. Það þótti ekki spilla fyrir kaupunum að
forstjóri Hitaveitu Reykjavíkur er Jóhannes
Zoéga, eiginmaður Guðrúnar Benediktsdótt-
ur, systurSveins. Seljendurnir halda sem kunn-
ugt er sumarbústaðaafnotum sínum næstu
hálfa öldina. Meðal annarra sumarbústaðaeig-
enda á landi þessu eru Ingvar Ingvarsson versl-
unarmaður og Tryggvi Blöndal skipstjóri.
Hagavík
Þar með eru lönd Engeyjarættarinnar í
Grafningshreppi ekki upptalin. Stórir landeig-
endur í Hagavík eru einnig af sömu ætt og
þekktar persónur; börn Helga Tómassonar, yf-
irlœknis á Kleppi, þau Tómas Helgason, sem
tók við af föður sínum, og Ragnhildur Helga-
dóttir, alþingismaður og ráðherra. Þau hafa
þarna sinn sumarbústaðinn hvort; bústaður
Ragnhildar (byggður 1981) er þó öllu veglegri
og meðal þeirra allra veglegustu á Þingvalla-
svæðinu, á 5000 fermetra lóð. Á landi þeirra á
síðan Skólastjórafélag íslands veglegan búst-
að og bátaskýli á tveggja hektara landi.
Bíldsfell
Stórir landeigendur við Bíidsfell, Krók og
Grímkelsstaði eru Egill Guðmundsson, Elfa
Guðmundsdóttir, Þórdís Todda Guðmunds-
dóttir, Guðmundur Ólafsson og Guðmundur
Jóhannesson. Þetta voru jarðir Guðmundar
Þorvaldssonar á Bíldsfelli. Þórdís Todda er eig-
inkona Erlings Þorsteinssonar, yfirlœknis
Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar. Þau hafa
þarna veglegan bústað, sem byggður var 1971,
en skammt frá er 7 ára gamall sumarbústaður
Ragnars Þorsteinssonar vélvirkja, bróður
Erlings. Þá á í landi Króks jafn gamlan sumar-
bústað Sigurður Þorsteinsson vélstjóri.
í landi Króks eiga jarðir Borghildur Edwald,
Jón Haukur Edwald og Jón O. Edwald lyfja-
frœðingur, börn Jóns S. Edwald kaupmanns
og vararœðismanns.
Nesjar
í Nesjum eru flestallar jarðir skráðar á Ástu
Pétursdóttur í Reykjavík og er um mjög víð-
áttumikið iand að ræða. Þar á þó land og
bústað Valgarð Briem, hœstaréttarlögmaður
og fyrrv. forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins,
valinkunnur sjálfstæðismaður. Sumarbústaðir
í landi Ástu eru fjölmargir og í eigu nafntog-
aðra manna. Meðal þeirra eru SigurðurE. Þor-
valdsson skurðlœknir, Haraldur Björnsson
framkvœmdastjóri, Vilhjálmur Ingvarsson,
útgerðarmaður og ísbjarnarbróðir, Áki Jóns-
son, framkvœmdastjóri Aco, Geir G. Zoéga
framkvœmdastjóri, Hinrik Thorarensen fram-
kvœmdastjóri (sonur Odds Thorarensen apó-
tekara), Sverrir Ólafsson viðskiptafrœöingur,
Einar Þorkelsson verkfrœðingur, Kjartan Þor-
bergsson tannlœknir, Jón Aðalsteinn Jónas-
son kaupmaöur, Gunnar Þormar tannlœknir
og síðast en ekki síst Hilmar Fenger, fram-
kvœmdastjóri Nathan og Olsen, stjórnarmað-
ur í Tollvörugeymslunni í Reykjavík og tengda-
sonur Vilhjálms Þórs, fyrrverandi ráðherra og
seölabankastjóra.
Nesjavellir —
Villingavatn
Landeigendur við Nesjavelli og Úlfljótsvatn
eru Hitaveita Reykjavíkur og Rafmagnsveita
Reykjavíkur, en þar eru nokkrir bústaðir af
„minni" sortinni. Einna stærstur þeirra er
bústaður Gunnars H. Pálssonar byggingaverk-
frœðings.
Landið Villingavatn er að mestu í eigu Sig-
urðar Hannessonar, en einn hektara lands þar
á Gísli Teitsson framkvœmdastjóri (Innkaupa-
stofnun Reykjavíkurborgar). Gísli er tengda-
sonur Stefáns alþingismanns Stefánssonar í
Fagraskógi, bróður skáldsins. Margir sumar-
bústaðir þarna eru í eigu iðnaðarmanna, en
þann stærsta og veglegasta á hins vegar Bessi
Bjarnason leikari, en sá bústaður var byggður
fyrir aðeins fjórum árum.
HELGARPÓSTURINN 37