Helgarpósturinn - 26.06.1986, Qupperneq 38
HELGARDAGSKRAVEIFAN
eftir Sigfinn Schiöth
Föstudagur 27. júní
19.15 Á döfinni.
19.25 Krakkarnir í hverfinu.
20.00 Fréttir.
20.40 Listapopp. Svipmyndir frá fyrri
popptónleikum Listahátíöar í Laugar-
dalshöll.
21.15 Sá gamli.
22.10 Seinni fréttir.
22.15 Ósýnilega konan ★★ Phantom
Lady) s/h frá árinu 1944. Leikstjófi
Robert Siodmak. Aðalhlutverk: Ella
Raines og Franchot Tones.
Ungur maður á uppleið er sakaður um
morðið á konu sinni. Fjarvistarsönnun
hans veltur á vitnisburði stúlku sem
enginn veit deili á. Hennar er ákaft
leitað, en ýmis Ijón verða á veginum.
23.40 Dagskrárlok.
Laugardagur 28. júní
16.00 Iþróttir.
17.25 Búrabyggð.
17.50 HM í knattspyrnu — 3. sætið. Bein
útsending.
20.00 Fréttir.
20.35 Kvöldstund með listamanni —
Björgvin Halldórsson. Jónas R. Jóns-
son ræðir við Björgvin.
21.10 Fyrirmyndarfaðir.
21.35 Ljón á veginum ★★ (Avanti). Banda-
rísk bíómynd frá árinu 1972. Leikstjóri
Billy Wilder.
Auðjöfur nokkur sem er í frfi á Ítalíu
fellur frá og kemur það f hlut sonar
hans að endurheimta jarðneskar leifar
hans. Brátt kemur i Ijós að ítalskir
skriffinnar eru honum þrándur í götu,
en hann er ekki einn um vandann.
23.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur 29. júnl
17.15 Sunnudagshugvekja.
17.25 Andrés, Mikki og félagar.
17.50 HM í knattspyrnu — Úrslit. Bein út-
sending.
20.00 Fréttir.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Aftur til Edens.
21.40 Annalisa Rothenberger og ungu
söngvararnir.
23.20 Dagskrárlok.
©
Fimmtudagur 26. júní
19.00 Fréttir.
19.50 Daglegt mál.
20.00 Stundarkorn með Bílurum. Um
starf Bandalags íslenskra leikfélaga.
20.45 Ljóðasöngur. Jessey Norman syng-
ur lög eftir Georg Friedrich Hándel og
Alban Berg.
21.20 Reykjavík í augum skólda.
22.00 Fréttir.
22.20 Fimmtudagsumræðan. Fiskeldi.
23.20 Frá tónlistarhátíðinni á Salzburg.
Shlomo Mintz leikur á fiðlu tónverk
eftir Johann Sebastian Bach.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur 27. júní
07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
07.15 Morgunvaktin.
09.05 Morgunstund barnanna.
09.20 Morguntrimm.
10.05 Daglegt mól.
10.30 Sögusteinn.
11.03 Samhljómur.
12.20 Fréttir.
14.00 Miðdegissagan: ,,Stjórnmála-
námskeið".
14.30 Nýtt undir nálinni.
15.20 Á hringveginum — Suðurland.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.03 Barnaútvarpið.
17.45 I loftinu.
19.00 Fréttir.
19.55 Daglegt mál.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Sumarvaka.
21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveins-
son kynnir verk sitt „Landet som icke
Sr.
22.20 Vísnakvöld.
23.00 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Lágnætti.
01.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 28. júnf
07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
07.30 Morgunglettur.
08.30 Fréttir á ensku.
08.45 Nú er sumar.
09.20 Óskalög sjúklinga.
10.05 Daglegt mái.
10.30 Sígild tónlist.
11.00 Fró útlöndum.
12.20 Fréttir.
13.50 Sinna.
15.00 Frá austurríska útvarpinu. Oktett í
Fdúr eftir Franz Schubert.
16.20 Sínhúe. Séra Sigurjón Guðjónsson
les egypska fornsögu í eigin þýðingu.
17.00 Barnaútvarpið.
17.40 Tríó í e-moll eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson.
*
Eg mœli meö
Útvarp föstudaginn 27. júní, síð-
degi klukkan 16.20: Fílasveitin í
Berlín í undirheimum, Kammó-
sveitin í Baden-Baden dansar
Keisaravals, Fílasveitin í Berlín
stígur flautudans og að lokum Fíla-
sveitin í Varsjá sofnar þyrnirósar-
svefninum langa, eins og þú.
19.00 Fréttir.
19.35 Hljóð úr horni.
20.00 Sagan: ,,Sundrung ó Flambards-
setrinu".
20.30 Harmoníkuþáttur.
21.00 Úr dagbók Henrys Hollands frá
árinu 1810.
21.40 (slensk einsöngslög.
22.20 Laugardagsvaka.
23.30 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar.
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur 29. júní
08.00 Morgunandakt.
08.30 Fréttir ó ensku.
08.35 Létt morgunlög.
09.05 Morguntónleikar.
10.25 Út og suður.
11.00 Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju.
Hádegistónleikar.
12.20 Fréttir.
13.30 Huldumaðurinn Bertel Þorleifs-
son.
14.30 Allt fram streymir. Um sögu kór-
söngs á íslandi.
15.10 Alltaf á sunnudögum. Svavar
Gests velur, býr til flutnings og kynnir
efni úr gömlum útvarpsþáttum.
16.20 Framhaldsleikrit: ,,Villidýrið f
þokunni" eftir Margery Alling-
ham.
17.00 Benny Goodman 1909 — 1986.
18.00 Sunnudagsrölt.
. 19.00 Fréttir.
19.30 Ólöf K. Harðardóttir syngur.
20.00 Ekkert mál.
21.00 Nemendur Franz Liszt túlka verk
hans.
21.30 Útvarpssagan: ,,Njáls saga".
22.20 Strengleikar.
23.10 Kvöldtónleikar.
24.00 Fréttir.
00.05 Milli svefns og vöku.
00.55 Dagskrárlok.
£
Fimmtudagur 26. júní
09.00 Morgunþóttur.
12.00 Hlé.
14.00 Andró.
15.00 Djass og blús.
16.00 Nýræktin.
17.00 Einu sinni áður var.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö.
21.00 Um náttmál.
22.00 Rökkurtónar.
23.00 Heitar krósir úr köldu stríði.
24.00 Dagskrárlok.
Föstudagur 27. júní
09.00 Morgunþáttur.
12.00 Hlé.
14.00 Bót f máli.
16.00 Frítíminn.
17.00 Endasprettur.
18.00 Hlé.
20.00 Þræðir.
21.00 Rokkrásin.
22.00 Kvöldsýn.
23.00 Á næturvakt.
03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 28. júní
10.00 Morgunþáttur.
12.00 Hlé.
14.00 Við rásmarkið.
16.00 Listapopp.
17.00 Á heimaslóðum. Þáttur með ís-
lenskri tónlist og spjalli við fólk úti á
landi.
18.00 Hlé.
20.00 Bárujárn.
21.00 Milli strfða.
22.00 Framhaldsleikrit: ,,Villidýrið í
þokunni" eftir Margery Alling-
ham.
22.33 Svifflugur.
24.00 Á næturvakt.
03.00 Dagskrárlok.
Svæðisútvarp virka daga
vikunnar frá mánudegi til
föstudags
17.03-18.15 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík
og nágrenni — FM 90,1 MHz.
17.03-18.30 Svæöisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni — FM 96,5 MHz.
ÚTVARP
Af útvarpsleikritum
eftir G. Pétur Matthíasson
SJÓNVARP
eftir Margróti Rún Guðmundsdóttur
Heimsmeistarakeppnin í
einkastöðvar
Útvarpið á í vök að verjast. Þó ekki rás 2,
heldur gamla góða gufuradíóið, sem nú er
farið að kalla rás 1. Rás 1 á í mikilli sam-
keppni við sjónvarpið og rás 2 sérstaklega
og einnig við myndbönd, bíó og aðrar af-
þreyingar okkar nútímamanna.
Ég hef það á tilfinningunni að mjög fáir
hlusti á útvarpið á öðrum tímum en milli
klukkan sjö og átta á kvöldin. Og meðan
sýndir eru leikir frá HM í knattspyrnu á
þessum tima er enn minna hlustað, reikna
ég með. Ég hef það líka á tilfinningunni að
ég sé ekki einn um þetta álit. Þessi tilvistar-
kreppa rásar 1 er ekki ný af nálinni, margir
hafa orðið til að minnast á hana. En minna
virðist hafa orðið um breytingar sem duga
til að gera rás 1 að þeim vinsæla miðli
sem hún hefur verið í marga áratugi.
Útvarp, annarskonar en tólistarútvarp, er
mjög heillandi miðill. Ég nefni sem dæmi
útvarpsleikrit og lestur framhaldssagna.
Hvorttveggja er þetta útvarpsefni sem frá
árdögum útvarpsins hefur notið gífurlegra
vinsælda. En nú virðist mér sem einungis
eldra fólk hlusti á þessa dagskrárliði; eða
hlusti á rás 1 yfirleitt.
Höldum okkur við útvarpsleikritin. Síð-
astliðinn fimmtudag ætlaði ég að hlusta á
leikritið Stríð og ástir eftjr Don Haworth.
Heima hjá mér háttar þannig til að það er
ekki komin ró á heimilishaldið eftir kvöld-
matinn klukkan átta. Ég missti þannig af
byrjuninni. Þar sem fimmtudagskvöld eru
mikil bíókvöld voru nokkrir heimilismeð-
limir að hugsa um bíóferð, einnig ég. Ég
missti því líka nokkuð úr síðasta hluta leik-
ritsins! Leikritið fór sem sagt að nokkru
leyti fyrir ofan garð og neðan hjá mér. Það
er hægt að horfa á sjónvarp með öðru aug-
anu en útvarpsleikrit krefjast allrar athygli
hlustandans. Ég lít á það sem kost. En tím-
inn á útvarpsleikritum klukkan átta er ekki
nógu góður. Það mætti að ósekju færa
þau aftur um einn klukkutíma eða svo, til
klukkan níu. Þá er meiri von til þess að öll
börn séu komin í rúmið og ró sé komin á.
Það hefur verið nokkuð um það á laugar-
dögum að auglýstir hafi verið dagskrárliðir
á rás 1 með hætti rásar 2. Þetta hefur gefist
mjög vel að mínu áliti. Og mætti taka upp
þessa háttu oftar. T.d. mætti auglýsa út-
varpsleikritin á þennan hátt, vekja athygli
á þeim. Eg er hræddur um að margir at-
hugi ekki að skipta yfir á rás 1 klukkan átta
á fimmtudögum þegar vinsældalisti rásar 2
dynur á þeim. Slíkt gæti breyst með auglýs-
ingum á leikritunum.
Það er líka athugunarvert hvort alltaf
þurfi að hafa leikritin á fimmtudögum. Ég
er t.d. viss um að margir myndu frekar vilja
hlusta á gott útvarpsleikrit í stað þess að
horfa á lélega Hótelþætti á miðvikudags-
kvöldum. Það er nauðsynlegt fyrir rás 1,
vilji hún ná til fólks, að fylgjast með dag-
skrá sjónvarpsins. Þess vegna mætti aug-
lýsa útvarpsleikrit rækilega á miðvikudög-
um, jafnvel í sjónvarpinu sjálfu, og þannig
ná að brjóta niður einokun sjónvarpsins og
breyta fjölmiðlanotkun neytenda.
Til allrar hamingju fer nú þessari heims-
meistarakeppni í knattspyrnu að ljúka og
þá munu margir sem gersneyddir eru
áhuga á þvílíkri fótafimi varpa öndinni létt-
ar og sumir eflaust hoppa hæð sína af
gleði. Síðastliðið laugardagskvöld máttum
við hin áhugalausu þola þvílíkar raunir að
elstu menn muna varla annað eins. Sjón-
varpið var einn stanslaus fótbolti og það
var ekki fyrr en nokkuð eftir miðnætti sem
þar varð einhver breyting á og þeir sem
beðið höfðu eftir því að koma sér þægilega
fyrir til að horfa á létta hryllingsmynd
fengu loksins ósk sína uppfyllta. í fjölmiðl-
um hafa að undanförnu komið fram há-
værar raddir um það að í næstu heimsmeist-
arakeppni verði leikirnir sýndir á sérstakri
rás og það er ein lausn á þessu máli. Og að
fjórum árum liðnum, þegar næsta heims-
meistarakeppni verður haldin (guði sé lof)
að þessi ósköp eru ekki á hverju ári) verður
þessi hugmynd líklega orðin að raunveru-
leika. Islensk útvarps- og sjónvarpsfélög
eru komin á skrið og ætla að fara út í út-
varps- og sjónvarpsrekstur um leið og þau
hafa getu til. Þá mun líklega hlaupa enn
meira kapp í þá sem vilja ólmir að Ríkisút-
varpið setji á fót aðra sjónvarpsrás, þótt
einhverjar vöflur séu á mönnum um það
hvort Ríkisútvarpið hafi yfirhöfuð efni á
því.
En hóf er best í öllu. Ef við fengjum aðra
ríkisrás, einkastöðvar, kapalsjónvarp,
gervihnattasjónvarp ofan í allt vídeóæðið
færi nú gamanið aldeilis að kárna. Frjálsar
stundir okkar, þeirra fáu hræða sem byggja
þetta land,yrðu svo mikið bitbein allra
þessara sjónvarpsstöðva að með ólíkindum
væri. Og hvað þá með kvikmyndahúsin,
leikhús, bóklestur o.fl. sem íslendingar
hafa hingað til haft mikla skemmtun af?
Það er ekki að furða að listamenn og
menningarpostular hafi áhyggjur af fram-
tíð íslenskrar tungu og menningar og tali
áhyggjufullir um framtíð „Ljóðsins," „Bók-
arinnar", „Kvikmyndarinnar", „Leikhúss-
ins” o.s.frv. Sjálf tek ég heils hugar undir
þann kór, sérstaklega þegar ég reyni að sjá
fyrir mér glær augu sjónvarpsáhorfenda
framtíðarinnar. Þess vegna finnst mér
besta lausnin á þeirri togstreitu sem nú er
risin upp milli íþróttaáhugamanna og
þeirra sem ekki hafa snefil af áhuga á slík-
um málum að einkastöðvarnar sem hér
rísa væntanlega upp næli sér bara í einka-
rétt á sýningu heimsmeistarakeppni í fót-
bolta, handbolta og öðrum (bolta)íþróttum.
Það held ég að sé jafnbesta lausnin á þessu
vandamáli og kem henni hér með á fram-
færi. Þá ættu allir að geta verið ánægðir,
því allir fá þá sitt...
38 HELGARPÓSTURINN