Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 06.11.1986, Qupperneq 10

Helgarpósturinn - 06.11.1986, Qupperneq 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Ingólfur Margeirsson og Halldór Halldórsson Ritstjórnarfulltrúi: Sigmundur Ernir Rúnarsson. Blaðamenn: Gunnar Smári Egilsson.Friðrik Þór Guðmundsson, Helgi Már Arthursson, Jóhanna Sveins- dóttir, Jónína Leósdóttir og Óskar Guðmundsson. Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson. Ljósmyndir: Jim Smart. Útgefandi: Goðgá h/f. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson. Skrifstofustjóri: Garðar Jensson. Auglýsingastjóri: Steinþór Ólafsson. Auglýsingar: Hinrik Gunnar Hilmarsson Sigurður Baldursson. Dreifing: Garðar Jensson (heimasími: 74471). Guðrún Geirsdóttir. Afgreiðsla: Berglind Nanna Burknadóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, sími 68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36. Sími 68-15-11. Setning og umbrot: Leturval s/f. Prentun: Blaðaprent h/f. gðisyfirvöld eiga leikinn LEIÐARI AIDS: Heilbri Ólafur Ólafsson landlæknir kom ný- lega fram í sjónvarpsviðtali og lagði fram nýjar og uggvænlegar upplýsingar um útbreiðslu AIDS-veirunnar. Meðal annars kom fram í máli landlæknis að tveir ein- staklingar, karl og kona, sem hafa AIDS- veiruna í blóði sínu samkvæmt mæling- um, og eru bæði eiturlyfjaneytendur, hafa að öllum líkindum smitað tugi ís- lendinga og þar á meðal ungt fólk sem ekki telst til hefðbundinna áhættuhópa þegar alnæmi er annars vegar. Ólafur Ólafsson landlæknir segir í við- tali sem birtist í HP í dag, að ungt fólk álíti, að ef það tilheyrir ekki áhættuhóp- unum hommum eða sprautusjúklingum, sé það varið gegn veirunni. Landlæknir bendir á að svo sé ekki. AIDS-veiran sé farin að breiða sig út fyrir fyrrnefnda áhættuhópa og því verði ungt fólk að endurskoða kynlífshegðan sína í Ijósi nýrra staðreynda um útbreiðslu veirunn- ar. Helgarpósturinn birtir ennfremur í dag ítarlegt viðtal við íslenskan karlmann sem smitast hefur af AIDS. I viðtalinu kemur fram að hann telur sig hafa smit- ast af kvæntum manni. Sú fullyrðing segir sína sögu. í viðtalinu kemur einnig frma að hommar sem búa í hjónabandi eða hafa samræði við konur, mynda nýj- an áhættuhóp sem sýkir fjölda einstakl- inga. Tveir nafngreindir aðilar í Samtökun- um 78 segja við Helgarpóstinn að stuðla þurfi að samvinnu Samtakanna og heil- brigðisyfirvalda um upplýsingu um sjúk- dóminn AIDS og hvernig beri að standa að forvörnum. Meðlimir Samtakanna 78 benda á, að almenningur í landinu svo og fjölmiðlar hafi tilhneigingu að líta á samkynhneigða sem hina holdsveiku menn nútímans. Þeir benda ennfremur á, að lítið sem ekkert sé gert fyrir smitaða menn og sjúka og þeim ekki veitt nægi- leg geðræn og félagsleg aðstoð. Öllum þeim sem Helgarpósturinn hef- ur rætt við í umfjöllun blaðsins um AIDS, ber saman um að fjárveiting heilbrigðis- yfirvalda til upplýsinga og forvarna sjúk- dóminum sé allt of lág og gera verði rót- tæka breytingu þar á og það fljótt. Helg- arpósturinn tekur undir þessa skoðun. AIDS-veiran er komin til íslands. Það þýðir ekki lengur að stinga hausnum í sandinn og segja: Þetta hendir ekki mig. AIDS er ekki lengur einkasjúkdómur homma og sprautusjúklinga. Við verðum að bregðast við þessum vágesti þegar í stað. Ólafur Ólafsson landlæknir hefur sýnt lofsamlegt fram- tak með því að vekja athygli á útbreiðslu- hættunni og hann á einnig þakkir skildar fyrir þá miklu upplýsingaherferð sem embættið hefur skipulagt fyrir skóla og vinnustaði. íslensk heilbrigðisyfirvöld verða að koma á móti þessum góða hug og dugnaði landlæknis með aukinni fjár- veitingu. BRÉF TIL RITSTJÓRNAR Um leiklistar- gagnrýni í Helgarpóstinum þ. 23.10/86 er „leiklistargagnrýni" skrifuð af Elísa- betu Brekkan um sýningu Hlað- varpans á „Veruleika". Það er alltaf gaman að sjá ný and- lit í umf jöllun um menningu og listir, því maður lifir í þeirri von að fram komi fólk sem vill vanda sig við að gagnrýna, þ.e. að rýna í gegnum verkið, setja það í samhengi við þann samfélagsveruleika sem það gerist í, og í leiklist að rýna í gegn- um vinnu leikara, leikstjóra og tæknifólks, sem gerir leikrit að leik- sýningu. Eitt af þeim vandamálum sem leiklistin á við að etja er að leiklist- argagnrýnendum hættir oft til að vera of uppteknir af verkinu sem þeir sjá og gleyma þessum síðast- nefnda þætti, sem þó gefur leikriti líf. Þetta á jafnvel oft við um okkar reyndustu og elstu gagnrýnendur, en við því er, að okkur skilst, ekkert hægt að gera. Því miður er þetta svo algengt að nýir gagnrýnendur þekkja svo til aðeins þessar fyrirmyndir að vinnu- brögðum. Þegar Elísabet Brekkan skrifar um „Veruleika" virðist hún allavega ekki þekkja aðrar aðferðir. Hún segir efnislega frá verkinu, eins og hún hafi lesið það og sé að semja útdrátt. Við lestur gagnrýni hennar er hvergi hægt að merkja að hún hafi verið á leiksýningu. Svona vinnu- brögð hafa enga þýðingu fyrir leik- hópinn sem þarf að fá faglega úttekt á vinnu sinni. Álit utanaðkomandi aðila er mikilvægt fyrir leikara sem vilja læra af mistökum og vita hvað vel er gert svo þeir geti unnið úr upplýsingunum og þroskast í list- grein sinni. „Leiklistargagnrýni" Elísabetar sem líkist bókmenntagagnrýni, sem hún er þó ekki afþví Elísabet kýs eingöngu að rekja efni verksins, segir okkur ekkert um leiksýning- una sem hún sá, eða hvað? Fékk hún kannski bara handritið lánað áður en hún skrifaði?. Hafa lesendur Helgarpóstsins einhverja sönnun á því að leiksýning hafi átt sér stað? Hvað finnst eiginlega ritstjórum blaðsins um svona vinnubrögð? í þágu og þjónustu hverra eru þau lát- in viðgangast? Leikhússfólks? Áhorfenda? Metnaðar blaðsins? Gudný Helgadóttir Ragnheidur Trygguadóttir Súsanna Suauarsdóttir P.S. Nína er ekki skilnaðarbarn. For- eldrar hennar skildu fyrir fimm ár- um. Pabbinn fékk þann gráa og yngdi upp. Allt voðaiega venjulegt. Nafnabrengl Lúdvík en ekki Sverrir Þau leiðu mistök urðu í dálkum Listapóstsins í síðasta tölublaði að nöfn Sverris Kristjánssonar og Lúð- ÍÞRÓTTIR Hætti sem hetja Það er farin að færast harka í spá- keppni fjölmiðlanna. í síðustu viku var aðalspámaður Þjóðviljans rek- inn fyrir slælega frammistöðu og kvaddi hann á tilheyrandi hátt því hann náði bestum árangri spá- manna að þessu sinni — með 9 rétta. Um Ieið komst Þjóðviljinn af kuldalegum botninum. Staðan á toppnum breyttist lítið, þeir bestu voru allir með 7 rétta, en DV virðist ætla að dragast aftur úr. í fyrsta sæti er enn Bylgjan rneð 39 rétta, en Heigarpósturinn og Ríkisútvarpið með 38 rétta, Dagur er með 37, Mogginn með 36 og DV 34, en lest- ina reka Þjóðviljinn með 31 og Tím- inn með aðeins 28. Það eru því 11 réttir á milli efsta og neðsta sætis. í keppni HP og AB er staðan nú 32:31 fyrir AB. Næsta vika er sprengivika ís- lenskra getrauna og því um að gera að íhuga seðilinn vel, því nú er pott- urinn óvenju stór. Um leið birtist sú nýbreytni að hafa einn leik úr þýsku knattspyrnunni í dæminu. Eftir áfall Sigurvinssonlausra Stuttgarts- slökunaræfingar Sallraeðistoöin UERDU SLÖKUNARTÆKNI Snœlda og bœklingur fást í bóka- og hljómplötudeildum um allt land. DREIFING KREATOR SÍMI 687075 víks Kristjánssonar brengluðust í vinnslu greinar um íslenska sjávar- hætti þess síðarnefnda. í greininni stóð að Sverrir væri höfundur verksins, sem er vitaskuld rangt. Lúðvík Kristjánsson hefur unnið að þessu yfirgripsmikla verki og á allan heiður af tilurð þess. Hann hefur helgað hátt í sextíu ár ævi sinnar í vísindarannsóknir á íslenskum sjáv- arháttum, sem núna hafa skilað landsmönnum fimm bindum af fróðleik um þennan snara þátt í lífi og lífsafkomu þjóðarinnar. Loka- bindið kemur út hjá Menningarsjóði á morgun. Þess má geta að þá fer fram athöfn í húsakynnum Menn- ingarsjóðs, þar sem Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra mun heiðra Lúðvík fyrir fræði- mennsku sína á sviði sjávarhátta. Helgarpósturinn óskar Lúðvík til hamingju með þessi tímamót í fræðimennsku sinni, um leið og blaðið biður hann velvirðingar á nafnabrenglinu í síðasta blaði. Ritstj. Athugasemd í smáfrétt í síðasta Helgarpósti greindum við frá því, að Friðrik Páls- son forstjóri SH og Magnús Gunn- manna um síðustu helgi og stórsigur W. Bremen á hálf Eðvaldssonlaus- um Uerdingenmönnum mætti ætla að valið þar væri öruggur útisigur, en ég vel öruggt jafntefli. Seðillinn er að öðru leyti nokkuð erfiður að þessu sinni, aðeins leikur Everton og Chelsea getur talist sæmilega borðleggjandi. Sem fyrr fylgir hinni einföldu spáröð 64-raða kerfi, þar sem er að finna 6 aukamerki. Gangi ykkur vel! LEIKVIKA 12 Leikir 8. nóvembnr 1906 K 1 X 2 1 Stumnrt - W.Mdor fírcrnen 2 Coventry - Nott'm Foicr.t 3 fvoiton - ('holson i $ 4 1 rieoster - f Jowcnstle 5 Mnn. City - Ar.ton Villn G Norwich - Tottonham J • 1 X • 7 Oxford - Mnn. United 8 O.P.R. - l.ivcrpool 9 Shcíf. VVed. - Southarnpton 1 tx • a. 10 Wntford - Charlton 11 Wimblodon - Lnton 12 nirmingham - Oldham 1 1 • arsson hjá SIF hafi verið þess letj- andi, að stofnaður yrði fiskmarkað- ur í Reykjavík og reynt að koma þeim sjónarmiðum á framfæri við borgarstjóra. Friðrik Pálsson hefur óskað eftir því við Helgarpóstinn, að fram komi, að þetta sé rangt og hvorki hann né Magnús hafi reynt að hafa áhrif á gang málsins í Reykjavík. Hins vegar tók Friðrik fram, að hann væri hlynntur stofnun frjáls fiskmarkaðar í Reykjavík. Helgarpósturinn birtir þessa leið- réttingu hér með, en við tökum að sjálfsögðu fram, að þessu var varp- að fram sem tilgátu enda sagt, að „hermt væri“ o.s.frv. -Ritstj. LAUSNIR Á SKÁK- ÞRAUT Til þess að hægt sé að svína tígli tvisvar og síðan komast inn í borð- ið svo hægt sé að taka á fjórða tíg- ulinn, þá verðum við að gera sér- stakar ráðstafanir. Þetta er vanda- laust ef laufið er skipt 3-2, en ef það liggur 4-1, þá verðum við að vera viðbúnir því. Til þess að tryggja sig gegn háu einspili aust- urs (tíunni eða áttunni), þá látum við fyrst laufaníuna, sem við tök- um með gosanum. Þá svínum við tíglinum og látum níuna, sem vest- ur mun taka. Hann lætur sjálfsagt lauf. Borðið tekur á kónginn og í hann kösturn við dömunni úr því að austur er laufalaus. Þá er tígli svínað aftur og tían hélt. Tígulásn- um spilað og þá féll kóngur aust- urs. Laufinu svínað og fjórði tíg- ullinn tekinn. Fimm slagir í laufi, þrír í tígli og einn í spaða, gera samtals níu slagi og þarmeð er þrautin unnin. Þannig voru öll spilin: ♦ 10-6-5-3 Q _ O G-7-4-3 + Á-K-G-7-2 ♦ K-G-8-4 CÁ-7 O D-8-2 + 10-6-5-4 ♦ Á-9 ♦ D-7-2 7 D-10-8-6-3-2 OK-6-5 + 8 K-G-9-5-4 O Á-10-9 + D-9-3 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.