Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 19
u
■ ýlega var haldið þing
íþróttasambands ísiands og virð-
ast atburðir þar ætla að draga dilk á
eftir sér. Ýmsum þeim, sem höfðu
horn í síðu framkvæmdastjóra sam-
bandsins, Sigurðar Magnússonar,
þótti þar mælirinn fyiltur og Sigurð-
ur beinlínis sýna af sér dónaskap við
þingheim á ýmsan hátt — meðal
annars er hann gagnrýndi óvægi-
lega starfsmann sambandsins og
flutti óundirbúnar munnlegar tillög-
ur. Nú heyrum við að stjórn sam-
bandsins hafi borist áskoranir frá
Ungmennasambandi Kjalarnes-
þings og Ungmennasambandi
Borgarfjarðar um að Sigurði verði
sagt upp og fylgir sögunni að ef
þetta dugir ekki til, verði farið út í
allsherjar undirskriftasöfnun. Ýmis
sérsambönd munu þegar hafa dreg-
ið úr samskiptum sínum við aðal-
stöðvar ÍSÍ og leita frekar eftir fyrir-
gi^iðslu hjá Ungmennasamþandi
íslands. . . «
l kjölfar hinnar dramatísku út-
göngu Stefáns Valgeirssonar og
Norður-Þingeyinga af kjördæmis-
fundi Framsóknarflokksins á Húsa-
vík á dögunum er allt komið á för og
flaug um héruð nyrðra. Undirtektir
undir sérframboð hafa verið mjög
góðar. Athyglisvert þykir að Stefán
hefur stillt þessu máli pólitískt upp:
Framsóknarflokkurinn sé að breyt-
ast í þéttbýlisflokk. Því til staðfest-
ingar sé formaður flokksins Stein-
grímur Hermannsson að flytja sig
suður í Reykjanes til framboðs. 1
öðru lagi sé flokksforystan í sama
tilgangi með puttana í framboðs-
málum í Norðurlandi eystra og hafi
barist á móti Stefáni nyrðra. Hér sé
um meðvitaða áherslubreytingu að
ræða, — að breyta dreifbýlisflokkn-
um fyrrverandi í þéttbýlisflokk. Og
síðan leggja menn saman tvo og tvo
og fá það út, að mikil þörf sé á dreif-
býlisflokki í stað Framsóknarflokks-
ins. Þess vegna þurfi ekki endilega
að líta á hugsanlegt sérframboð í
Norðurlandi eystra einangrað.
Áhugamenn um sérframboðið hafa
þegar haft samband við óánægða
framsóknarmenn í Norðurlandi
vestra og á Vestfjörðum og þar ku
vera nokkur hljómgrunnur fyrir
hliðstæðum sérframboðum. Ingólf-
ur Guðnason á Hvammstanga,
sem var með sérstakt framboð við
síðustu alþingiskosningar hefur ver-
ið nefndur til þessarar sögu og
herma heimildir nyrðra að hér gæti
allt að eins verið í fæðingu nýr
stjórnmálaflokkur, Dreifbýlis-
flokkurinn. ..
LÁTID OKKUR TAKA BETRI MYND
TRONUHRAUNI 8 HAFNARFIRÐI SÍMI 54207
BJARNI JÖNSSON LJÓSMYNDARI
VATN SMIÐSTÖÐVAR
afkastamiklar og
fyrirferðarlitlar.
12 og 24 volta fyrir
bifreiðir, vinnuvélar
og báta.
Aðeins kr. 6.800-
Bosch miðstöðvarmótorar 24ra volta
fyrir Man, Benz o.fl.
Þyrill s.f.
Tangarhöfða 7 2. hæð Sími 685690
Mildur hárlitur
ENNTASKOLII
ISLANDS 1
Sími: 27644 Box 1464 121 Reykjavík <A
Handmenntaskóii Islands er fimm ára gömul stofnun, i
sem yfir 1100 nemendur hafa stundað nám við. Skólinn
býður upp á kennslu í teiknun og máluny skrautskrift og
barnateikninau og föndri í BREFASKOLAFORMI. Þú I
færð sena verlcefni frá okkur og lausnir þínar verða leið- j
réttar og sendar þér aftur. Innritun í skólann fer fram
fyrstu viku hvers mánaðar. Þeir sem enn hafa ekki beðið
um kynningarrit skólans, geta fyllt út nafn og heimilis- I
fang hér að neðan og sent skólanum eða hringt í síma I
27644 milli kl. 14 og 16. (Ath. fastur símatími). Hér er
tækifærið sem þú hefur beðið eftir til þess að læra þess- |
ar ofannefndu greinar á auðveldan og skemmtilegan .
hátt. Þú getur þetta líka.
Ég óska eftir aö fá sent kynningarrit HMI
mér aö kostnaöarlausu
Nafn...................................
Heimilisfang............................ i
HELGARPÖSTURINN 19