Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 42
FRUMIEGUR HEIMIUSWNAOUR
Boðið upp á ráðningu
drauma og úrlausn
persónulegra vandamala ef
sendur er fimmhundruðkall
og bréf í pósthólf í
Breiðholti
umsjón Jónína Leósdóttirl
í septemberbyrjun í haust, birtist óvenjuleg
smáauglýsing í DV undir flokknum
„Ýmislegt“. Yfirskriftin var VANDAMÁL OG
DRAUMAR, en innihaldið var eftirfarandi:
Viltu fá ráöningu drauma þinna eða
úrlausn persónulegra vandamála? Sendu
okkur línu ásamt kr. 500 og við svörum
um hœl. Algjör trúnaður. Draumar, póst-
hólf 9061, 129 Reykjavík.
Eins og kunnugt er, hefur mikil vakning
orðið í neytendamálum undanfarið og
sífellt er verið að kanna þá vöru og þjón-
ustu, sem íslenskir neytendur fá fyrir
aurana sína, svo ekki fari á milli mála
hvað verið er að selja okkur. Við ákváðum
því að gera lítilsháttar athugun á þeirri
þjónustu, sem boðið er upp á í fyrrnefndri
auglýsingu og kostar kr. 500, fyrirfram.
Send voru þrjú bréf til pósthólfsins, ásamt
greiðslu. Efniviður þeirra er fenginn úr
bréfum til vandamálaráðgjafa erlends
tímarits, sem staðfærð voru og þýdd á
íslensku. Þarna er því um að ræða vanda-
mál raunverulegs fólks og alls ekki skáld-
skap eða glens.
Látum við lesendum blaðsins eftir að
dæma svör aðstandenda pósthólfsins í
Breiðholtinu og hvort verðlagningin sé
sanngjörn. Bréfin sex eru birt í heild sinni
hér í opnunni.
Reykjavík 4.9. ’86
Pósthólf 9061,
129 Reykjavík.
Ágæta pósthólf.
Ég hef miklar áhyggjur af dóttur minni, sem er 18 ára. Hún er
skarpgreind og lýkur t.d. stúdentsprófi um næstu áramót.
Vinkona hennar er dóttir bústjóra á sveitabæ og gegnum hana hitti
dóttir mín eiganda býlisins. Þá var hún 13 ára og hún varð strax
ástfangin af honum. Hann vissi ekkert um þetta fyrr en fyrir ári
síðan og þegar hann komst að því hvaða hug hún bar til hans, talaði
hann afskaplega skynsamlega við hana. Hann sagði henni að sér
þætti ákaflega vænt um hana og hann vildi að hún fengi sem mest út
úr lífinu, færi í langskólanám sem hún hefur áhuga á, o.s.frv.
Um síðustu helgi átti ég svo langt og opinskátt samtal við hana
dóttur mína. Hún sagðist hafa vitað að bóndinn færi alltaf i gönguferð
á sunnudagsmorgnum og að fyrir mánuði síðan hefði hún setið fyrir
honum. Þau gengu víst saman í 2—3 tíma og hafa gert það alla
sunnudaga síðan. Hann sagðist kveljast vegna þess hve hann laðaðist
að henni, en þau yrðu að taka tillit til þess hve aldursmunurinn væri
mikill. (Hann er 54 ára!)
Þrátt fyrir þetta voru þau allt í einu farin að kyssast og tjá hvort
öðru ást sína fyrir tveimur vikum, án þess að ráða almennilega við
sig. Og nú segist hún ætla að stefna að góðu stúdentsprófi, en giftast
síðan þessum manni. Hún ætlar að eignast tvö börn með honum og
fara svo í háskólann.
Ég er algjörlega miður mín út af þessu. Hvernig get ég sannfært
hana um það að hún muni örugglega hitta einhvern jafnaldra sinn og
geta eignast með honum börn að námi loknu? Ég get ekki áfellst
manninn, því ég veit að hún hefur elt hann á röndum. Hvernig getur
maður ætlast til að karlmaður standist áleitni gáfaðrar og fallegrar
stúlku, sem hefur elskað hann í 5 ár og vill að hann verði faðir
barnanna sinna?
42 HELGARPÓSTURINN