Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 47
FRÉTTAPÓSTUR
Stefán Ben. hættir
Stefán Benediktsson, fyrrum þingmaður Bandalags jafnað-
armanna og núverandi liðsmaður Alþýðuflokksins, til-
kynnti sl. þriðjudagskvöld að hann hygðist ekki gefa kost á
sér á framboðslista alþýðuflokksmanna i Beykjavik fyrir
næstu kosningar. Tilkynning Stefáns fylgdi í kjölfar fréttar
á Stöð 2, sem höfð var eftir ónafngreindum bandalagsmönn-
um.
Stefán Benediktsson hefur lýst því yfir í viðtölum við fjöl-
miðla, að hann hafi ekkert ólöglegt aðhafst. Hann viður-
kennir þó að hafa fengið að láni HO þúsund krónur af fé
Bandalagsins til þess að standa straum af hluta af kostnaði,
sem hann varð fyrir á ferðalögum í þágu BJ árið 1984. Segir
Stefán fé þetta greitt að fullu og að enginn skuldi neinum
neitt í Bandalagi jafnaðarmanna. Ennfremur hefur það
komið fram i viðtölum f jölmiðla við þingmanninn, að hann
hafi fengið 200 þúsund króna lán hjá skrifstofu BJ árið
1985 á meðan hann beið eftir bankaláni. Ástæðuna fyrir
þeirri ákvörðun sinni að hætta við prófkjörsþátttöku innan
Alþýðuflokks segir Stefán vera þá að aflétta þeim þrýstingi,
sem þessi áburður skapi á f jölskyldu sína og núverandi og
fyrrverandi flokkssystkin.
Guðmundur G. í slaginn
Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrverandi alþingismaður
Framsóknarflokksins í Reykjavík, hefur ákveðið að hann
taki þátt í prófkjöri flokksins i höfuðstaðnum fyrir næstu
alþingiskosningar. Guðmundur stefnir á fyrsta sætið á lista
Pramsóknar, en það gera einnig þau Haraldur Ólafsson,
þingmaður, Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður sjávarút-
vegsráðherra, og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, dag-
skrárgerðarmaður og innkaupastjóri. Bolli Héðinsson, hag-
fræðingur, hafði áður tilkynnt um þátttöku í prófkjörinu í
Reykjavík, en hann hefur nú dregið sig í hlé af persónuleg-
um ástæðum.
Alnæmissmitberar sviptir sjálfræði?
Tveir íslenskir fíkniefnaneytendur, sem sýktir eru af al-
næmi, eru taldir hafa smitað fjölda einstaklinga af hinni ill-
ræmdu veiru. Eiturlyfjasjúklingarnir tveir, karl og kona,
hafa fengið sérstök fyrirmæli frá læknum varðandi varnar-
aðgerðir gegn frekara smiti. Að sögn landlæknis kemur til
greina að svipta þau sjálfræði, ef þau fara ekki að þessum
fyrirmælum. Karlmaðurinn mun nýverið hafa farið af landi
brott.
Skýrslan um Hjálparstofnun kirkjunnar
Nefnd sú sem dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði til þess
að rannsaka starfsemi Hjálparstofnunar kirkjunnar,
skilaði skýrslu sinni um siðustu helgi. Nefndin tekur i
flestum meginatriðum undir gagnrýni Helgarpóstsins, sem
hratt þessari umræðu um stofnunina af stað fyrir nokkrum
vikum, og segir forráðamenn m.a. hafa lent á nokkrum
villigötum. Leggur nefndin til, að starfsmenn
Hjálparstofnunarinnar brejrti um starfshætti, dragi úr
útgjöldum og auki allt aðhald í rekstrinum, fyrir utan
brejrtingar á bókhaldi.
Hasar hjá Framsókn á Norðurlandi
Um síðustu helgi fór frama aukakjördæmisþing Framsókn-
arflokksins á Norðurlandi eystra og hreppti Guðmundur
Bjarnason, þingmaður, fyrsta sæti framboðslistans, sem
ákveðinn var á fundinum. Valgerður Sverrisdóttir á Lóma-
tjörn fókk kosningu í annað sætið. Stefán Valgeirsson, þing-
maður, hafði áður lýst því yfir að hann tæki ekki við öðru
en fyrsta sætinu og þegar úrslit um kjör í það lágu fyrir, hélt
hann stutta ræðu um svokallaða ,,aftöku“ sína, bað um
tveggja mínútna þögn og gekk úr salnum. Miklar vangavelt-
ur eru nú um það hvort Stefán fari í sérframboð.
Hópuppsagnir fóstra
Um 80% fóstra hjá ríki og borg hafa sagt upp störfum frá 1.
febrúar. Kröfur eru enn í mótun, en ljóst er að fóstrur munu
krefjast umtalsverðra launahækkana og hika ekki við að
láta uppsagnirnar taka gildi ef tilboð frá viðsemjendum
reynist ófullnægjandi.
Fréttapunktar
• Undirbúningur að stofnun fiskmarkaðar er hafinn i
Hafnarfirði.
• Um helgina er búist við niðurstöðum úr atkvæðagreiðslu
háskólamenntaðra kennara um það hvort HÍK sameinist
KÍ.
• Gunnar G. Schram, sem skipaði annað sæti framboðslista
Sjálfstæðisflokksins i siðustu kosningum, lenti i sjötta sæti
í skoðanakönnun flokksins fyrir alþingiskosningarnar að
vori. Gunnar var þó færður í 5. sætið i tillögu kjörnefndar
um uppstillingu listans og er þar með kominn framfyrir
Víglund Þorsteinsson, sem fékk þremur atkvæðum meira
en þingmaðurinn í könnuninni.
• Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur VSÍ, hefur þegið boð
sjálfstæðismanna á Norðurlandi vestra um að skipa annað
sæti framboðslistans þar í komandi kosningum.
• í febrúar á næsta ári verður haldið skákmót í Reykjavik
á vegum fyrirtækisins IBM og mun Kasparov,
heimsmeistari í skák, að öllum líkindum keppa á mótinu.
• Hreyfing er að komast á viðræður aðila vinnumarkaðar-
ins um næstu kjarasamninga.
• Fíkniefnalögreglan hefur handtekið eiganda og tvo
starfsmenn ákveðins fyrirtækis í Reykjavik i tengslum við
smygl á amfetamíni, en ekki hefur verið upplýst hve mikið
magn hér er um að ræða, enda er rannsókn ólokið.
Andlát
Dr. Henrik Frehen, kaþólski biskupinn á íslandi, lést í
Reykjavík aðfaranótt 31. október.
Kristin Anna Þórarinsdóttir, leikkona, lést á Borgarspital-
anum um síðustu helgi.
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÓS
veitir eftirtalda þjónustu:
tjöruþvott, djúphreinsun teppa
og sœta, mótorþvott, mössum
bónum og límum ó rendur.
Opiö virka daga kl. 8—19.
Opið laugardaga kl.
10-16.
Bón- og þvottastööin Ós, Langholtsvegi 109 Sími 688177
samaRa
V\^sr 5BLPÍ ^IUJNn/
Þá hefur hún slitið barnsskón-
um Lada Samara og sýnt að
hún stendur upp úr í hópi fram-
hjóladrifinna bíla. Þar haldast í
hendur útlit hennar, eiginleikar
og kostir. Rúmgóður og örugg-
ur fjölskyldubíll sem er hannað-
ur fyrir aðstæður sem við
þekkjum allan ársins hring.
Lada Samara 4 gíra kostar að-
eins 247 þúsund með ryðvörn.
Góð greiðslukjör.
Skiftiborð Verslun Verkstæöi Söludeild
38600 39230 39760 31236
Bifreiöar & Landbúnaöarvélar hf
Suðurlandsbraut 14
HELGARPÓSTURINN 47