Helgarpósturinn - 13.11.1986, Page 4

Helgarpósturinn - 13.11.1986, Page 4
1 YFIRHEYRSLA nafn: Guðmundur Einarsson fæddur: 6.2. 1950 heimili: Móaflöt 24, Garðabæ staða: Framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar áhugamál Starfið bifreið: Volvo '86 heimilishagir: Giftur Þórstínu Unni Aðalsteinsdóttur, 3 börn laun: Föst laun: 63 þús. kr. Gífurlegt áfall eftir Gunnar Smára Egijsson myndir Jim Smart í kjölfar greinaskrifa Helgarpóstsins um Hjálparstofnun kirkjunnar, og sídar skýrslu rannsóknarnefndar er skipuö var vegna þeirra, hefur krafan um aö fyrir- svarsmenn stofnunarinnar segöu af sér gerst æ háværari. Tengsl stofnunarinnar viö kirkjuna hafa orðiö til þess að gera kröfuna um siðferðilegan styrk enn kröftugri. Þar til síðastliðinn þriðjudag hafa forsvarsmenn Hjálparstofnunarinnar viljað gera sem minnst úr hinni hörðu gagnrýni. Yfirlýsing stjórnarinnar boðaði hinsveg- ar ýmsar breytingar á rekstri og aukið aðhald. En fyrirsvarsmennirnir sitja áfram. Þess vegna er Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkj- unnar, í Yfirheyrslu HP. — Það kemur f ram i yfirlýsingu stjórn- ar Hjálparstofnunar kirkjunnar að fjár- hagsáætlanir stofnunarinnar hafa farið úr skorðum. Það er því sýnt að trúnaðar- brestur hefur orðið á milli Hjálparstofn- unarinnar og almennings. Telur þú for- svaranlegt að sömu mönnum og leiddu stofnunina á nokkrar villigötur, eins og sagt er í skýrslu rannsóknarnefndarinn- ar, sé falið að endurvinna trúnað al- mennings? „Ég held að ég geti ekki svarað þessu bet- ur en stjómarformaðurinn hefur gert. Við viðurkennum að Hjálparstofnunin hefur orðið fyrir gífurlegu áfalli og ég, stjórnarfor- maðurinn og framkvæmdanefndin buðumst til að segja af okkur. Stjórnin hafnaði þeirri beiðni á þeirri forsendu að hún treysti okkur til að vinna traust almennings aftur." — Þurftir þú að hugsa þig lengi um áð- ur en þú gekkst að vilja stjórnarinnar? „Ég neita því ekki að þegar að maður lend- ir undir skriðu eins og þessari, sem meðal annars birtist í því að hringt var heim í börn- in mín með svívirðingar í minn garð við þau, að þá er auðveldara að flýja en standa. En þar sem stjórnin óskaði eftir því við mig að ég stæði varð ég við því.“ — Árleg jólasöfnun Hjálparstofnunar- innar er skammt undan. Ef útkoma hennar verður á þá lund að sýnt sé að stofnunin hefur ekki endurunnið trún- aðartraust almennings, munið þú og aðrir fyrirsvarsmenn stofnunarinnar þá segja af ykkur? „Eg get ekki svarað þessari spurningu miðað við aðstæður í dag.“ — Stjórn stofnunarinnar er þannig ekki að leggja málið í dóm almennings? „Hjálparstofnunin á íslandi er ekki fyrsta hjálparstofnunin sem verður fyrir gagnrýni af þessu tagi. Það hefur tekið mislangan tíma að ná aftur trausti. Við vitum um dæmi þar sem hafa orðið mannaskipti og þar sem þau hafa ekki átt sér stað. Það er ekki hægt að draga lærdóm af því. Viö verðum að sjá hvað setur." — Nú á kirkjan að vera fyrirmynd okk- ar í siðferðismálum. Hefði ekki verið eðlilegt að hún hefði sýnt styrk í þessu máli í kjölfar siðferðilegra umræðna í þjóðfélaginu og afsagnarmála? „Ég held að kirkjunnar menn skiptist nokkuð í tvo flokka. Annars vegar þá sem lesa skýrslu nefndarinnar og álit hennar á starfsmönnum Hjálparstofnunarinnar. Þeir sjá að þrátt fyrir gagnrýni hefur stofnunin unnið mjög gott starf. Þeir sjá því ekki for- sendur til þess að grípa til uppsagnar. Hins vegar eru þeir sem einblína á fölnuð lauf- blöð. Þeir fordæma skóginn." — í skýrslu sinni tíundar nefndin atriði sem hún telur ekki forsvaranleg, ámælisverð, aðfinnsluverð, umdeilan- leg, vafasöm og Hjálparstofnuninni ekki hagstæð. Telur þú þessi atriði ekki nægj- anlegar ástæður fyrir afsögn? „Það er ekki átit stjórnarinnar, og nefndin kemst í raun sjálf að þeirri niðurstöðu, að þrátt fyrir gagnrýni hafi stofnunin unnið mjög gott starf." — Nefndin telur viðskipti Hjálpar- stofnunarinnar og Skálholtsútgáfunnar ámælisverð. Stofnunin greiddi útgáf- unni m.a. fyrir verk sem aldrei voru unn- in. Nú ert þú framkvæmdastjóri Hjálpar- stofnunarinnar og áttir jafnframt sæti í framkvæmdanefnd Skálholtsútgáfunn- ar þegar þessi viðskipti fóru fram. Telur þú það ekki næga ástæðu til þess að segja af þér? „Eg tel að þau viðskipti séu ámælisverð að því leyti að við ákváðum að skipta við útgáfu kirkjunnar. Hún var sett á laggirnar vegna þess að menn bundu vonir við að ef kirkju- legar stofnanir beindu viðskiptum sínum til hennar yrði það nægilegur grundvöllur und- ir starfsemina. Það vita allir um örlög þeirrar útgáfu og margir þeirra sem skiptu við þá stofnun hafa tapað fé. Við töpuðum ein- hverju fé, en fengum hins vegar tryggingu í bókalager sem okkur getur nýst til styrktar öðrum líknarsamtökum. Þannig að ég tel ekki ástæðu til uppsagnar þó við höfum skipt við fyrirtæki sem fór illa.“ — En tengsl þín við Skálholtsútgáf- una? „Nei. Eins og ég sagði áðan þá var það stefna allra stofnana kirkjunnar að skipta við þetta fyrirtæki. Við gerðum eins og aðrar stofnanir." — Prestar hafa gagnrýnt að þú hafir margföld prestlaun. Telur þú slíkt eðli- legt? „Laun mín eru ekki margfalt hærri en laun presta. Ég er í launaflokki 149 í launastiga BHM. Prestar hafa eitthvað aðeins minna, en þeir eru opinberir starfsmenn sem við hjá Hjálparstofnun erum ekki. Við fáum síðan greitt fyrir yfirvinnu innan ákveðins ramma, en við fáum hins vegar ekki að vinna önnur störf úti í þjóðfélaginu. Við fáum heldur ekki prósentur eða aukagreiðslur fyrir verk sem við innum af hendi. Ég held að það sé ekki sambærilegt að líkja launum mínum og presta saman. Hér er líka um að ræða rekst- ur, mannafla og forráð. Og vel að merkja, þá set ég mér ekki laun sjálfur, heldur stjórnin.“ — Hefur það komið þér á óvart hversu há laun þín þykja meðal almennings? „Nei, ekki þegar litið er til þess með hvaða hætti þetta er sett fram. Ég er afskaplega þakklátur að ég fór ekki nema fjórar ferðir annað árið og fimm ferðir hitt árið, þar sem kostnaði við þessar ferðir var bætt ofan á launin. Þannig að þetta hefði getað orðið hærri tala með þeim útreikningi en raun varð á." — Telur þú að laun þín séu eðlileg fyrir framkvæmdastjóra Hjálparstofnunar kirkjunnar? „Já.“ — Nú á kirkjan að vera fyrirmynd okk- ar í siðferðilegum málum. Ef lesenda- bréf eru einhver mælikvarði á skoðanir mannsins á götunni þá álítur stór hluti almennings að Hjálparstofnunin hafi í raun tekið fjárgjafir til hungraðra í heiminum og notað til þess að greiða laun og ferðakostnað starfsmanna sinna. Er hér ekki um að ræða hrikalegt siðferðisáfall fyrir kirkjuna? „Ef lesendabréf eru sú endurspeglun af almenningsálitinu sem þú gerir ráð fyrir þá er það engin spurning að ef niðurstöður þessa máls er túlkaðar með þessum hætti þá er það mikið áfall. Hins vegar get ég ekki fall- ist á svo grófa túlkun." — Á kirkjan og Hjálparstofnunin ekki fyrir höndum gríðarlegt átak til að end- urvinna traust almennings? „Jú, og ég vitna þar til kjörorðs ykkar á Helgarpóstinum: „Helgarpósturinn veitir aðhald". Það virðist hafa sannast í okkar dæmi þó það hafi orðið á þá lund að gagn- rýnin hafi orðið eins og skriða. Það jákvæða sem hefur verið gert hefur gleymst en þó hefur þetta orðið til þess að veita aðhald, sem er nauðsynlegt. Við höfum orðið sam- mála um að taka tillit til gagnrýni frá óvil- höllúm aðilum til þess að fólk geti treyst því sem við gerum." — Komu viðbrögð fjölmiðla við skýrslu rannsóknarnefndarinnar þér á óvart — hversu ólík þau voru viðbrögð- um fram kvæmdanefndarinnar? „í sjálfu sér ekki. Þegar við lásum þessa skýrslu þá sáum við strax að á einni blaðsíðu voru gagnrýnisatriði samþjöppuð, ca. 10 sentimetrar, og þau voru ekki glæsileg. Við gerðum okkur grein fyrir því að ef menn vildu lesa þessa skýrslu með neikvæðu hug- arfari þá væri þar efni í fyrirsagnir. Sú varð raunin." — Nú tóku nær öll blöðin mjög harða afstöðu í leiðurum, sem varla stjórnast af fyrirsögnum. „Nei, ég neita því ekki að þessi umfjöllun hefur verið mjög beinskeytt og hörð, og í eina átt. Það sýnir manni hversu fljótt er að snjóa yfir það sem vel hefur verið gert þegar fram kemur gagnrýni." — Hver heldur þú að sé dómur al- mennings? „Ég held að það sé augljóst að Hjálpar- stofnunin þurfi að hugsa það gaumgæfilega með hvaða hætti hún heldur starfi sínu áfram. Hvort hún getur vænst sama stuðn- ings og áður strax. Þetta er eitt af því sem stjórn þessarar stofnunar verður að velta fyr- ir sér. Hvort hún treystir sér til að óska eftir framlögum frá almenningi ef Ijóst er að hún nýtur ekki trausts. En það breytir ekki því að við vitum af skjólstæðingum okkar. Við sem þekkjum þessa skjólstæðinga með nafni, höfum umgengist þá, lofað þeim aðstoð, við gerum allt sem í okkar vaidi stendur til að koma þeim til hjálpar." — Munuð þið bíða þess að það fenni yf- ir sporin og snúa ykkur þá til almenn- ings á ný? „Ég held að Hjálparstofnunin verði að íhuga það. Það er of skammt á þessa umræðu liðið til þess að það sé hægt að taka þá ákvörðun. En ég á mér engan draum heit- ari en að Hjálparstofnunin, með eða án mín innanborðs, njóti þess trausts að geta höfðað til almennings aftur."

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.