Helgarpósturinn - 13.11.1986, Síða 8
eftir Halldór Halldórsson myndir: Jim Smart
HAFSKIPSRANNSÓKNIN - SAKBORNINGARNIR
REYNDU AÐ SNÚA Á SKIPTARÁÐANDA OG RLR
HELGIÆFÐI
llil
SAMRÆMDAN OG
UPPLOGINN FRAMBURD
VIÐ HÚSLEIT HJÁ BJÖRGÓLFI, RAGNARI OG HELGA
FUNDUST SKJÖL, SEM KOMU UPP UM SAMSÆRIÐ
Ein af nidurstöðum rannsóknar Rannsóknarlög-
reglu ríkisins á Hafskipsmálinu er sú, að sex þeirra
manna, sem í upphafi uoru álitnir bera þyngstar
sakir í málinu hafi með einum eða öðrum hœtti
sammœlzt um framburð sinn við yfirheyrslur hjá
skiptaráðanda og rannsóknarlögreglu. Þykir full-
sannað, að þessir menn hafi œft upplognar sögur
og skýringar á sakarefnum í vissum tilvikum og
þessum æfingum hafi Helgi Magnásson fv. löggiltur
endurskoðandi Hafskips hf. stjórnað.
sóknaraðilum auk þess, sem Sigur-
þór Guðmundsson aðalbókarinn
fyrrverandi hefur greint ítarlega frá
máli þessu öllu. Helgi hefur á hinn
bóginn neitað því að hafa tekið þátt
í því að búa til sögu um tilurð þess-
ara tveggja útgáfa þrátt fyrir viður-
kenningar hinna þriggja.
Mál þetta varð strax uppvíst við
rannsókn skiptaráðenda eftir að
þeir höfðu tekið við búi Hafskips til
þrotaskipta. Þá fundust í búinu gögn
fyrir sama tímabil, sem voru í veru-
legum fjárhæðum ólík. Þetta var
annars vegar samanburðarskjal til
Hafskipsnota, sem fjallaði um sama
tímabil og annað plagg af nákvæm-
lega sama toga með sömu fyrirsögn,
sem hafði verið sent Útvegsbanka
íslands.
Samkvæmt „innanhússplagginu"
hljóðaði tap Hafskips fyrstu átta
mánuði ársins 1984 upp á 25 millj-
ónir tæpar eða um 19 milljónum
króna hærri upphæð en milliupp-
gjör Helga endurskoðanda. Þannig
hljóðaði tapið samkvæmt endur-
skoðandanum upp á 6 milljónir og
það var sú tala, sem Útvegsbankinn
fékk að sjá. Við rannsóknina hefur
verið sýnt fram á, að með bókhalds-
leikfimi breytti endurskoðandinn
einum sex stórum liðum í bókhald-
inu til þess að ná því að sýna „glæsi-
legri" útkomu.
Þessi „bókfærsla" var borin undir
þá Árna, Þórð, Helga, Pál Braga
Kristjónsson, Ragnar Kjartansson
og Sigurþór bókara og þeir spurðir
Annars vegar mun vera um að
ræða framburð Árna Árnasonar fv.
fjármálastjóra Hafskips og Þórðar
H. Hilmarssonar fv. framkvæmda-
stjóra hagdeildar varðandi saman-
burð á rekstraráætlun og rekstrar-
reikningi dagsettum 31. ágúst 1984,
en slíkur samanburður fannst í
tveimur útgáfum við rannsókn
málsins.
Hins vegar munu svo þeir Björg-
ólfur Guðmundsson forstjóri og
Ragnar Kjartansson stjórnarfor-
maður fyrrverandi búið til skýring-
ar ásamt Helga Magnússyni á eigna-
færslu upp á 39,4 milljónir króna á
milli áranna 1984 og 1985 til þess að
„lagfæra" lokaniðurstöðu ársreikn-
ingsins fyrir 1984 (sem sýnt þykir að
var gróflega falsaður, eins og HP
sagði í grein snemma í sumar).
Helgi Magnússon hefur í blaða-
viðtali, heilum bókarhluta og í Kast-
ljósviðtali lýst yfir því, að sú frelsis-
svipting, sem þeir Hafskipsfélagar
voru látnir sæta með gæzluvarð-
haldi, sé réttarfarshneyksli og rök-
stutt það m.a. þeim rökum, að enga
nauðsyn hafi borið til svo harkalegr-
ar aðgerðar, þar sem öll gögn máls-
ins hafi legið fyrir meira og minna,
og í þokkabót skrifleg.
Aðalskýring þeirra, sem unnu að
rannsókninni mun vera sú, að brýna
nauðsyn bæri til að tryggja, að þeir
félagar næðu ekki saman til þess að
samræma framburð sinn, eins og
sannazt hafði og sannaðist enn bet-
ur eftir að gæzluvist þeirra var
hafin.
Þá fundust nefnilega skjöl, sem
bentu beinlínis til þess, að efnt hefði
verið til „Ieikæfinga" vegna hugsan-
legra spurninga í yfirheyrsium. Við
húsleit hjá Björgólfi Guðmundssyni,
Ragnari Kjartanssyni og Helga
Magnússyni fundust skjöl með
minnisatriðum, sem sýndu, að þeir
félagar höfðu hitzt og lagt skipulega
á ráðin um framburð vegna við-
kvæmra atriða.
Helgi Magnússon mun hafa neitað
því að hafa tekið þátt í slíku, en
rannsóknarlögreglan telur sig vita
betur, m.a. vegna tilvísana til skoð-
ana og álits Helga í pappírum Ragn-
ars og Björgólfs, þar sem til dæmis
er sagt: „HM telur, að . . .“ o.s.frv.
Varðandi framburð Árna Árna-
sonar og Þórðar H. Hilmarssonar
um ástæður þess, að til væru tvær
útgáfur af samanburði á rekstrar-
reikningi og rekstraráætlun er rétt
að taka strax fram, að báðir hafa
þeir Árni og Þórður viðurkennt að
hafa reynt að villa um fyrir rann-
Helgi Magnússon fv. lögg. endurskoð-
andi Hafskips: Stjórnaði æfingum á upp-
lognum sögum og skýringum á sakarefn-
HÚSLEIT VARPAR LJÓSI Á HLUTAFJÁRSVINDLIÐ
RAGNARLAUG
HELGIÞAGDI
Þeir félagar Ragnar Kjartansson
og Helgi Magnússon hafa báðir
verið sakleysið uppmálað í opin-
berri „skýrslugerð" sinni um Haf-
skipsmálið. Meðal annars hafa
þeir báðir vikið lítillega að hinum
fræga hluthafafundi í febrúar í
fyrra, þegar hlutafé var aukið um
70 milljónir króna. Niðurstaða
rannsóknar RLR er sú, að forsvars-
menn Hafskips hafi beitt blekking-
um og kynnt stöðu félagsins með
röngum upplýsingum gegn betri
vitund.
í tilviki sem þessu er það endur-
skoðandans að leggja fram tölur í
áætlanir um endurmat og fyrning-
ar auk þess, sem hlutafélagslögin
kveða á um, að endurskoðandi
hlutafélags skuli gefa vegna hluta-
fjárútboðs skýrslu um stöðu við-
komandi fyrirtækis. Þetta van-
rækti Helgi Magnússon og sat sem
fastast á fundinum — og þagði.
Við yfirheyrslur hefur hann
ásamt Ragnari Kjartanssyni, þá-
verandi stjórnarformanni, borið
því við, að hann hafi ekki vitað um
þessa skyldu sína!
Á fundinum var kynnt áætlað
rekstrartap upp á 55 milljónir
króna vegna ársins 1984, en fals-
aði ársreikningurinn fyrir 1984
sýndi um 96 milljón króna tap, en
hefði átt að sýna einhverjum tug-
um milljóna meira tap.
Við húsleit á skrifstofu Helga
Magnússonar í Síðumúla fundust
hins vegar plögg frá þvi í janúar
1985 (stuttu fyrir hluthafafundinn)
áætlanir um rekstrarútkomu árs-
ins 1984. Þessar áætlanir voru
tvær.
Önnur gerði ráð fyrir um 100
milljón krónatapi 1984, en hin 115
milljón króna tapi.
Nokkrum dögum síðar sat svo
þessi löggilti endurskoðandi Haf-
skips á hluthafafundinum og
hlýddi á Ragnar Kjartansson
kynna viðstöddum hluthöfum
hugsanlegt tap 1984 upp á um 55
milljónir. Hann vissi betur, eins og
þau plögg sýna, sem RLR fann við
húsleitina.
Það stefndi í helmingi meira tap
samkvæmt útreikningum Helga,
en hann og forsvarsmenn Haf-
skips hf. hafa kosið að halda því
leyndu.
í bréfi saksóknara til RLR var
sérstaklega beðið um rannsókn á
hugsanlegum blekkingum vegna
hlutfjáraukningar. Þar segir:
„Grunur þykir leika á því að for-
ráðamenn Hafskips hf. hafi með
ósannindum og blekkingum vakið
og hagnýtt ranga hugmynd um
fjárhagsstöðu félagsins hjá þeim,
er lögðu til aukið hlutafé til félags-
ins að fjárhæð yfir kr. 70.000.000
í kjölfar hluthafafundar 8. febrúar
1985 og með því atferli gerst sekir
um stórfellt brot gegn XXVI. kafla
hegningarlaganna. Ennfremur að
þeir starfsmenn félagsins, er lögðu
forráðamönnunum liðveislu í
þessum efnum, hafi gerst sekir um
hlutdeild að því broti."
Talan um tapið 1984 er reyndar
upp runnin úr bráðabirgðaupp-
gjöri Helga fyrir árið 1984, sem
búið er að sanna, að var lagfært,
rangt og falsað uppgjör.
Þetta er eitt dæmið um þau
vinnubrögð, sem viðhöfð voru í
þessu makalausa Hafskipsævin-
týri. Og svo leyfa menn sér að
undrast, að sá einstaklingur, sem
lagði fram nær einn fjórða hluta-
fjáraukningarinnar, Finnbogi
Kjeld, skuli hafa höfðað mál vegna
blekkinga þeirra Hafskipsmanna!
8 HELGARPOSTURINN