Helgarpósturinn - 13.11.1986, Side 11
þess að reyna að ófrægja ákveðna
aðila og gera þá tortryggilega.
VANDI HITAVEITU
AKUREYRAR
Þar sem hvatinn að atburðarás
síðustu vikna hjá Hitaveitu Akureyr-
ar er hár orkukostnaður hjá notend-
um veitunnar, er rétt að huga að
ástæðum þess.
Það er einkum tvennt sem hefur
farið á annan veg en upphaflega var
gert ráð fyrir:
1. Fjármagnskostnaður orðið
miklu meiri en gert var ráð fyrir.
2. Vatnsöflun hefur gengið miklu
verr og orðið mun dýrari en gert var
ráð fyrir.
Onnur atriði svo sem minni mark-
aður, minni vatnsnotkun og aukinn
kostnaður vegna tvöfalds dreifikerf-
is og kyndistöðvar eru fyrst og
fremst afleiðing þessara tveggja
atriða.
Fyrra atriðið stafar af þróun vaxta
og gengis og er á sína vísu þjóðfé-
lagslegt vandamál.
Síðara atriðið teljum við að vart
hafi verið hægt að sjá fyrir, þó svo
að einhverjir telji sig hafa varað við
óhóflegri bjartsýni.
Verkfræðistofa Norðurlands hf.
Sigurdur Hermannsson
Verkfr.st. Sigurðar Thoroddsen hf.
Haraldur Sveinbjörnsson
ÁRÉTTING
Að gefnu tilefni skal tekið fram, að
upplýsingar þær sem komu fram í
grein um verðlagningu lyfja, sem
birtist í síðasta HP, voru hafðar eftir
landlækni, Ólafi Ólafssyni, en hann
veitti leyfi til þess að efni úr Frétta-
bréfi lækna væri notað. Ritstjóri
Fréttabréfs lækna er Birna Þórðar-
dóttir. Ritstj.
Athugasemd
frá Skáís
Vegna túlkunar í fjölmiðlum á nið-
urstöðum skoðanakönnunar, sem
birtist í Helgarpóstinum 6. nóvem-
ber si. vilja forsvarsmenn Skáís taka
fram eftirfarandi.
í greinargerð með niðurstöðu seg-
ir: ,,ii) Horfið þið á Stöð 2? (frá „dálít-
ið“ til „mjög mikið"). í „Töflu B kem-
ur fram að 71,3% úrtaksins (þ.e. 273
af 400) horfir á Stöð 2. í þessari
könnun var ekki gerð tilraun til að
flokka áheyrendur með hliðsjón af
því hvort þeir horfðu „dálítið" eða
„mjög mikið“ á Stöð 2. Nauðsynlegt
er að hafa þetta í huga þegar niður-
stöðurnar eru skoðaðar. Að öðru
leyti vísast í umræddar töflur og
greinargerð í HP, 6/11 '86, bls. 27.
LAUSNIR Á
SKÁK-
ÞRAUT
31 Niels Höegh
Hér er krossgötuþemað á ferð-
inni, svörtu mennirnir flækjast
hvor fyrir öðrum:
1. Rc7 hótar bæði Dd8 og Dg7
1. - Bxc7 2. Dg7
1. - Hxc7 2. Dd8
32. Ari Guðmundsson
1. Rd8l Kd5 2. Dd4
1.- Kd3 d. Dd4
1.- Ke5 2. Dd4
Mátin eru lagleg.
Kjartan Jóhannsson renni hýru
auga til bankastjórastóls. í Búnaðar-
bankanum gengur sú saga fjöllum
hærra, og er sögð ættuð úr banka-
ráðinu sjálfu, að í gangi séu samn-
ingaviðræður um það að Kjartan fái
stól Stefáns Hihnarssonar sem fer
að hætta vegna aldurs. Kratar munu
telja sig eiga þetta upphefðarstarf í
kerfinu en verða að reiða sig á
stuðning íhaldsins. Við leggjum
áherslu á að þetta eru vangavelt-
ur. . .
l deiglunni er að Baldur Her-
mannsson kjarneðlisfræðingur
m.m. taki að sér þáttagerð fyrir
Hrafn Gunnlaugsson á sjónvarp-
inu, en Baldur hefur áður gert ýmis-
lega þætti fyrir stofnunina. Nú er
helst rætt um einhverskonar vís-
indaþætti á breiðum grundvelli og
því hnýtt aftan við; eins og Jónas
frá Hriflu hefði staðið að málum.. .
lESftir að tilkynnt hafði verið um
frambjóðendur í forvali Alþýðu-
bandalagsfélags Reykjavíkur rann
mörgum kalt vatn milli skinns og
hörunds, því fjöldi nánustu sam-
verkamanna Ásmundur Stefáns-
sonar meðal frambjóðendanna
þótti helsti mikill. Kjörnefnd félags-
ins hefur heimild tii að tilnefna fleiri
þátttakendur í forvalinu og hafa
nefndarmönnum borist ótal áskor-
anir frá félögum að tilnefna Gudna
Jóhannesson verkfræðing og for-
mann ABR. Fylgjendur hans stefna
á þriðja sæti listans og vilja Gud-
rúnu Helgadóttur í annað sæt-
ið...
Í^kksforysta Alþýðuflokksins í
Reykjavík fór heldur illa útúr próf-
kjöri flokksins á Suðurlandi. Fulltrú-
ar Ámunda Ámundasonar og
Jóns Baldvins Hannibalssonar,
þeir Guðlaugur Tryggvi Karlsson
og Eyjólfur Sigurðsson, voru
næstneðstir og jafnir í opnu próf-
kjöri, sem Magnús Magnússon
sigraði í með yfirburðum. . .
mí ið rákumst á skondna klausu
í vinnuverndarlögunum frá árinu
1966. Ekki hefur jafnræði kynjanna
verið lengra komið en svo á þessum
blómabarnatíma, að eftirfarandi
var sett í 44. grein laganna: „í reglu-
gerð má leggja bann við starfa
kvenna innan 18 ára á veitingahús-
um og skemmtistöðum, þar sem
ætla má að siðferði þeirra sé sérstök
hætta búin.“ Embættismenn þeir
sem lögin sömdu hafa sem sagt talið
siðferði kvenna meiri hætta búin en
karla. Athyglisvert. . .
D
■^Áannsóknalögregla ríkisins
leitar nú að 21 árs gamalli sænskri
konu sem talin er hafa verið í slag-
togi með Sea Shephard mönnunum
tveimur sem sökktu skipum Hvals
hf. Stúlkan bjó með mönnunum á
Herkastalanum og fór með þeim ut-
an í flugvélinni á sunnudagsmorg-
un. Stúlkan heitir Christina
Madeling. ..
^PÍ/^álfundafélag félags-
hyggjufólks hélt fund um tengsl
verkalýðsfélaga og stjórnmála-
flokka fyrr í vikunni. Einn frum-
mælenda, Þorbjörn Guðmunds-
son, var harðorður í garð sjálfstæð-
ismanna í verkalýðshreyfingunni og
sagði að flokkurinn notaði þá til
þess að breiða yfir áhrif eigna-
manna og til þess að geta veifað
slagorðinu „Flokkur allra stétta".
Samkvæmt þessari kenningu eru
því Magnús L. Sveinsson, Guð-
mundur H. Garðarsson og Björn
Þórhallsson puntudúkkur . ..
i
Alþýðubandalaginu þykir
það nokkrum tíðindum sæta að
Skúli Thoroddsen, einn frambjóð-
enda í forvali, skuli hafa verið með-
mælandi framboðs Ásmundar
Stefánssonar. Á hinn bóginn er
einn meðmælenda Skúla Guðrún
Guðmundsdóttir framkvæmda-
stjóri, en hún er eiginkona Ásmund-
ar. Skúli tilheyrði áður þeim hópi
fólks sem löngum hefur eldað grátt
silfur við forsetann á ASÍ-skrifstof-
unni...
BÚNAÐARMNKINN
TRAUSTUR BANKI
OSA SIA
Fjölbreytt úrval af fallegum gjafavörum.
Við útbúum fallegan jólapakka og sjáum um að
hann komist til viðtakanda á réttum tíma.
^llafossbúöin
VESTURGÖTU 2, SÍMI 13404
Sendum um allan heim.
HELGARPÓSTURINN 11