Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.11.1986, Qupperneq 35

Helgarpósturinn - 13.11.1986, Qupperneq 35
SKIPTANNA Forsetar Alþingis. Ingvar Gíslason, Þorvaldur Garðar Kristjánsson og Salóme Þorkelsdóttir. Forsetar eiga að fá greinargerðir frá formönnum þingflokka um ráðstöfun fjár til sérfræðiaðstoðar. Það er ekki gert. þýðubandalag kr. 1.313.200, Al- þýðuflokkur kr. 787.920, Bandalag jafnaðarmanna kr. 525.280 og Samtök um kvennalista kr. 393.960. Auk þessa úthlutar nefndin sér- stökum blaðastyrk til Alþýðublaðs, Tíma og Pjóðvilja. Þetta er gert með því að kaupa mánaðarlega á árinu 1986 150 eintök af hverju blaði. Þá er Dagur á Akureyri einnig keyptur og kaupir ríkið um 100 eintök af því blaði mánaðarlega. Gert er ráð fyrir að mánaðaráskrift kosti 500,00 kr. Samtals er flokksblöðum þessum út- hlutað 3.3. milljónum á þessu ári. Samtals hefur þessi stjórnskipaða nefnd því úthlutað 28 milljónum króna til flokkanna. Annað hvort beint til þingflokka, eða til blað- anna. Þingflokkar, og flokkar, fá því úthlutað af forsetum Alþingis eða frá stjórnskipaðri nefnd um 35 millj- jónum króna á þessu ári. Davlð Scheving Thorsteinsson styður flokkana fjóra — þar með talið Alþýðu- bandalag. í þessu sambandi skal tekið fram, að Kristín S. Kvaran fékk ekki út- hlutað sérstaklega sem þingmaður utan flokka, þegar hin stjórnskipaða nefnd gekk frá tillögum sínum í jan- úar s.l. Var hún reiknuð með BJ. Bandalagi jafnaðarmanna var hins vegar gert að greiða henni til baka það sem hún hefði átt að fá, skv. tillögu frá nefndinni eftir að hún sagði sig úr BJ. Fékk hún því úthlut- að eins og þingmaður utan flokka á endanum, samtals kr. 229.320. (131.320 til dagblaða og/eða lands- málamálgagna og 98.000 til útgáfu- mála). Þar að auki fékk Kristín S. Kvaran framlag frá forsetum Al- þingis til sérfræðiaðstoðar þannig að hún, sem þingmaður utan flokka, fékk um 260.000 kr. á árinu 1986 til þingmannarekstrarins. HVERT RENNA PENINGARNIR? Eins og áður sagði renna styrkir til þingflokka og sérfræðiaðstoðin venjulega beint til íramkvæmda- stjóra flokkanna, eða beint til gjald- kera þeirra. Fæstir þingflokkar gefa út sérstök málgögn, enda þótt flokk- arnir sjálfir gefi út ýmiss konar blöð og blöðunga. Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Samtaka um kvennalista, upplýsti í samtali við HP, að allir þeir fjármun- ir, sem Samtök um kvennalista tækju í styrkjum frá fjármálaráðu- neyti, eða forsetum Alþingis, gengju beint til skrifstofu samtakanna. Þar væru þeir notaðir til þess annars vegar, að launa starfskonu þing- flokksins og hins vegar til útgáfu- mála á vegum Samtaka um kvenna- lista. Samtökin gæfu út fréttabréf, en auk þess rynni ákveðin upphæð til útgáfu Veru. Kristín Halldórsdótt- ir sagði ennfremur, að kvennalista- konur hefðu kannað það í upphafi, þegar þær fengu fyrst úthlutað úr ríkissjóði, hvernig ætlast væri til að þessu væri varið og hvort þeim bæri að gera grein fyrir ráðstöfun fjárins og að þeim hefði þá verið tilkynnt, að ráðstöfun væri algjörlega á valdi þingflokkanna sjálfra. Þeir réðu því hvernig þeir verðu þessu fé. Samtök um kvennalista fengu á árinu 1986 kr. 3.397.427 í útgáfu-, blaða- og sér- fræðistyrk. Kristín S. Kvaran fékk úthlutað eins og þingmaður utan flokka fyrir árið 1986. Hún upplýsti í samtali við HP, að hún hefði notað það fé sem henni var úthlutað til að undirbúa mál sem hún flytur á þingi um sam- félagsþjónustu. „Ég þurfti að ferðast til Norðurlandanna til að kynna mér ýmislegt í sambandi við þetta mál,“ sagði Kristín S. Kvaran. Hún var spurð, hvort stór hluti framlaganna væri ekki ætlaður til útgáfu og hvað hún hefði gefið út, eða hygðist gefa út fyrir þetta fé. „Það er nú teygjan- legt hugtak hvað þú gefur út og hvað ekki, hvort það er útgáfa á þingmáli, eða hvað þú ert að gera. Mér vitanlega hefur það aldrei verið skilgreint hvernig fé þetta á að nota.“ Kristín S. Kvaran var einnig spurð um það hvort hún héldi bókhald yfir greiðslur tengdar þessum styrkjum. „Ég held bókhald fyrir sjálfa mig, en hef ekkert verið að sýna það, enda reiknaði ég með að skila forsetum Alþingis því í árslok." BÓKHALDSLEYND Samkvæmt heimildum HP rennur það fé, sem í yfirliti frá fjármála- ráðuneyti er klárlega merkt til ákveðinnar starfsemi, beint í flokks- sjóði. Ekki er haldið sérstakt bók- hald vegna þessa fjár og fiokkar ekki skyldaðir til að gera öðrum en sjálfum sér grein fyrir ráðstöfun fjár- ins. í þessu efni er Framsóknarflokk- ur undanskilinn svo sem áður er sagt. Einn liður fjárframlaganna er styrkur til kjördæmamálgagna. Sumir flokkar gefa ekki út kjör- dæmamálgögn, en taka samt við þessum styrk. Geir A. Gunnlaugs- son, gjaldkeri Alþýðuflokksins, var spurður um það hvort styrkurinn til kjördæmamálgagnanna gengi til kjördæmablaðanna. „Við gefum út blöð í flestum kjördæmum og ætli við notum hann ekki til að gefa út blöð í þessum kjördæmum." Geir A. Gunnlaugsson vildi ekki upplýsa hvert styrkurinn rynni í smáatrið- um. Hann sagði að þetta fé rynni til útgáfumála. Geir var þá spurður að því hvort haldið væri sérstakt bók- hald yfir þetta fé og sagði hann að svo væri ekki. „Við getum ekki gefið ykkur neina sérstaka sundurliðun á því hvernig þessu fé er varið. Fénu er varið í samráði við þingflokk og framkvæmdastjórn og við gerum viðkomandi aðiljum grein fyrir ráð- stöfun fjárins," sagði Geir A. Gunn- laugsson. Alþýðuflokkur gerir, eins og aðrir flokkar, út á happdrættismiða. í samtalinu við Geir A. Gunnlaugsson kom fram, að tekjur flokksins af happdrætti voru um 900 þúsund krónur á ári. Hann sagði jafnframt að flokkurinn nyti ekki styrkja frá einstökum fyrirtækjum. Og þegar HP fór fram á að fá aðgang að bók- haldi flokksins sagði Geir: „Við telj- um ekki að við þurfum að gera ykkur sérstaka grein fyrir því.“ Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, sagði þegar hann var spurður um hvort bókhaldið væri opið: „í skipu- lagsreglum flokksins segir að reikn- ingar skuli lagðir fyrir miðstjórn og er það gert. Við höfum ekki riðið á vaðið með að birta okkar bókhald." Af þeim stjórnmálasamtökum sem HP ræddi við um reikninga var Bandalag jafnaðarmanna einu sam- tökin sem gátu og vildu gefa upp bókhald sitt. Hér er átt við Bandalag jafnaðarmanna í þeirri mynd sem það var áður en þingmenn BJ gengu til liðs við aðra flokka. í ljósi þeirrar ónákvæmni sem rík- ir í fjármálum flokkanna, þeirrar staðreyndar að þeir eru ekki bók- haldsskyldir og geta ekki gert grein fyrir nema takmörkuðum hluta þeirra fjármuna sem þeir velta, þá fer að verða spurning hver „glæp- ur“ Stefáns Benediktssonar var — og hver er „glæpur" hinna. Fyrirtæki styrkja flokksstarf - SVAVAR ÞRÆ.TIR ENN Baldur Oskarsson er fyrrver- andi framkvœmdastjóri Alþýðu- bandalagsins. HPspurði hann eft- irfarandi spurninga um styrki til Alþýðubandalags í tilefni um- mœla Svavars Gestssonar þess efnis að flokkurinn þœgi enga styrki frá fyrirtœkjum. — Hefurþú farið í fyrirtœki í því skyni að safna fé fyrir Alþýðu- bandalagið? „Ég tók þátt í því, að fara til fyr- irtækja — bæði til að selja þeim happdrættismiða, útvega vinn- inga vegna happdrætta og fá eins konar „sníkjuauglýsingar“.“ — Fórstu í þessar ferðir að beiðni einhvers í flokknum? „Það var litið svo á, að það væri í eðli starfsins að reka flokkinn með öllum mögulegum ráðum. Þessar sníkjur okkar voru fyrst og fremst til einstakra verkefna, eins og t.d. þegar við vorum að byggja hús okkar að Hverfisgötu 105. Þá komu framlög af þessu tagi og sömuleiðis í happdrætti tengd kosningu." — Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalags, hefur svarið fyrir allan stuðning frá fyrirtœkj- um til Alþýðubandalags og fullyrt að flokkurinn njóti ekki og hafi ekki notið styrkja frá fyrirtœkjum. Er hugsanlegt, aö Svavar hafi ekki vitað um þennan stuðning? — Ég tel eðlilegt að Svavar Gestsson svari þessu sjálfur. Það hefur ekki verið hlutverk æðstu forystumanna flokksins að sjá um fjármál hans.“ — Þú hefur þá skilað þessu fé til flokksins? „Ég afhenti það, já, á flokksskrif- stofunni og varðandi húsið, þá af- henti ég þeim aðilum féð, sem höfðu húsið á sinni hendi f.h. Sig- fúsarsjóðs." — Leitaðir þú til fyrirtœkja Davíðs Schevings Thorsteinssonar f.h. Alþýðubandalagsins? „Af gefnu tilefni vil ég taka það fram, að flestir þeir aðilar sem ég leitaði til með þessum hætti utan flokks fóru fram á það við mig, að þetta yrði trúnaðarmál á milli við- komandi og mín. Ég get hins veg- ar sagt í tilefni þess, að Davíð Scheving hefur opnað þetta mál með sínum hætti, þá get ég upp- lýst, að ég gekk tvisvar á hans fund að því er ég man best og þá lögðu fyrirtæki hans fram pen- inga. í annað skiptið í sambandi við húsið og í hitt skiptið í sam- bandi við kosningar. Var það í vor sem leið. Það er því rétt hjá Davíð Scheving Thorsteinssyni, Alþýðu- bandalagið hefur fengið fé frá fyr- irtækjum hans." Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalags hefur haldið því fram opinberlega, að flokkurinn nyti ekki styrkja frá fyrirtækjum. I tilefni viðtalsins við Baldur Oskarsson spurði HP Svavar um þessa fullyrðingu hans. „Ég hef alltaf sagt og stend við það að Al- þýðubandalagið hefur ekki verið með fé frá fyrirtækjum í neinum mæli í flokksreksturinn." Svavar var þá spurður, hvort hann liti ekki á kosningabaráttu sem flokks- rekstur. „Auðvitað er hún það,“ svaraði Svavar. ,,Ég fullyrti að Al- þýðubandalagið nyti ekki styrkja til flokksrekstrar frá fyrirtækjum. Það kann að vera, að eitt og eitt fyrirtæki hafi slæðst þarna með vegna þess að þau hafa verið tengd okkar stuðningsmönnum, en ég veit hins vegar ekkert um það hvort einstök fyrirtæki hafi keypt happdrættismiða af okkur. í flokksrekstur er hverfandi lítið um önnur framlög en þau sem koma beint frá félögunum," sagði Svavar Gestsson. Baldur Óskarsson og Svavar Gestsson. Orð gegn orði. Úthlutun fjár til þingflokka Á linuritinu má sjá hlutfallslega skiptingu þeirra tæplega 25 milljóna króna, sem þing- flokkar fá til ráðstöfunar á árinu 1986. Þingflokkar þurfa ekki að gera grein fyrir ráðstöf- un fjárins. 7.377.826 4.753.947 3.836.667 2.919.386 3.020.747 2.791.427 B HELGARPÓSTURINN 35

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.