Helgarpósturinn - 13.11.1986, Page 40
aðfaranótt þriðjudagsins um hvort
ætti að láta toppana fjúka. Þeir sem
vildu að kirkjuleg stofnun gæfi for-
dæmi í þessu máli fyrir þaulsetna
menn sem orðið hafa uppvísir að
mistökum, afglöpum og hagsmuna-
árekstrum urðu undir. Þeir beygðu
sig í lokin undir að þekking núver-
andi starfsmanna stofnunarinnar
væri það mikil að hún þyldi ekki þá
blóðtöku. Þessi afstaða er merkileg
þar sem aðeins einn fastur starfs-
maður, Guðmundur Einarsson
framkvæmdastjórí, var á listanum
yfir þá sem hugsanlegt var að yrðu
látnir fara. Samkvæmt því hefði
mátt ætla að þekking annarra
starfsmanna yrði eftir hjá stofnun-
inni. Svo er þó ekki. Allir aðrir
starfsmenn stofnunarinnar, Gunn-
laugur Stefánsson, Sigurjón
Hreiðarsson og Jenný Ásmunds-
dóttir, lýstu yfir stuðningi við Guð-
mund með því að gefa í skyn að ef
hann færi fylgdú þau honum.. .
11
tlit er fyrir að bokautgef-
endur breyti um auglýsingataktík
fyrir þessi jólin sem eru framundan.
Hingað til hafa stærstu útgáfurnar
jafnan valið giska fimm af bókum
sínum til mestrar kynningar — sem
þeir telja þá vera „sölubækurnar" —
og auglýst þær hvað grimmast og
mest í sjónvarpi. En nú eru aldeilis
aðrar forsendur komnar til sögunn-
ar. Stöðvarnar eru orðnar tvær, auk
þess sem RUV tók upp á því nýverið
að hækka auglýsingaverð sitt um 25
prósent í einu lagi, þrátt fyrir fyrir-
sjáanlega minna gláp. HP heyrir að
bókaútgefendur tali nú saman um
að draga verulega úr sjónvarpsaug-
lýsingum fyrir næstu jól og leita
frekar til prentmjðlanna, einkum
tímarita, auk útvarpsstöðvanna, þar
sem einna best náist til afmarkaðra
markhópa eins og það er kallað í
þessum geira viðskiptanna...
s
ffl^töð 2 skaut ríkissjónvarp-
inn ref fyrir rass í málefnum fegurð-
arinnar og sýnir beint í kvöld,
fimmtudagskvöld Miss World
keppnina um gervihnött frá Lond-
on. Þetta framtak stöðvarinnar er
þó ekki einvörðungu henni að
þakka, því Samband íslenskra
samvinnufélaga „sponsorerar"
þennan dagskrárlið, þ.e.a.s greiðir
fyrir útsendingu hans. Það verður
því SÍS-merkið sem rammar af þetta
vinsæla efni — og hrein spurning
hvort mönnum komi þetta sam-
bland á óvart: SÍS og fegurð. En
greinilegt að nýjum herrum fylgja
nýir siðir við Sölvhólsgötu...
Kfllnn hefur Stefán Valgeirsson
ekki látið uppi um hugsanlegt utan-
flokkaframboð sitt í Norðurlands-
kjördæmi eystra, en í kjördæminu
hafa gengið undirskriftalistar hon-
um til stuðnings. Innstu koppar í
Framsókn fyrir norðan staðhæfa að
á undirskriftalistunum séu fæstir
framsóknarmenn og það sem meira
er, Stefán njóti ekki einu sinni fylgis
40 HELGARPÓSTURINN
hins harða framsóknarkjarna í
Norður-Þingeyjarsýslu. Rétt er þó
að geta þess að nokkrir Stefáns-
menn á Þórshöfn tala máli bóndans
frá Auðbrekku...
SSins og fram hefur komið í
fréttum ætlar Stefán Guðmunds-
son, alþingismaður úr Norður-
landskjördæmi vestra, sér fyrsta
sæti Framsóknar í kjördæminu en
þar situr fyrir þungaviktarmaður-
inn Páll Pétursson frá Höllustöð-
um. Þegar fréttin barst varð Páll
hvumsa við, hugsaði sitt ráð í
nokkra daga og er búinn að finna
krók á móti bragði. „Krókurinn" er
sá að Páll sem að sjálfsögðu stefnir
í fyrsta sætið áfram ætlar að styðja
Sverri Sveinsson, veitustjóra á
Siglufirði, í annað sætið. Þar með er
Páll búinn að mynda bandalag á
milli Húnvetninga og Siglfirðinga,
jafnframt því sem hann á mikinn
stuðning í sveitum Skagaf jarðar. Tal-
ið er að BB-framboð Ingólfs
Guðnasonar á Blönduósi sé búið
að vera og raunar segir sagan að
Páll þingflokksformaður sé búinn
að „ná ástum“ margra Vestur-Hún-
vetninga aftur. Með þessu má telja
nær víst að Stefán Guðmundsson
mun eiga í vök að verjast með Sauð-
árkrók nánast einan á bak við sig og
gæti farið svo að hann félli á eigin
bragði og hreinlega dytti útaf
þingi.. .
þótt þú stefnir á háa vexti
Kjósir þú að stunda Lotusparnað, hefur þú alltaf baktryggingu.
Það er ekki síst þetta öryggi sem gerir Lotusparnað að almennri sparnaðar-
aðferð sem allir geta stundað.
Teljir þú þig einhvern daginn hafa meiri not fyrir spariféð í öðru en að
safna á það Lotuvöxtum — þá tekur þú það formálalaust út.
Og þú hefur engu tapað,
því þú nýtur auðvitað ávöxtunar þeirrar lotu sem þú laukst. Hafir þú
ekki lokið fyrstu lotu, nýturðu að sjálfsögðu ávöxtunar og verð-
tryggingar Innlánsreiknings með Ábót allan tímann.
ÞETTA ÖRYGGl ,KUNNA FORSJÁLIR AÐ META
1. LOTA: 18 mánuðir 16,04% ársávöxtun
1_- ■ 2. LOTA: 24 ir 16,59% n
3. LOTA: 30 H 17,15% n
4. LOTA: 36 H 17,71% ir
L O T U
c PARNAfil JR
einföld og örugg sparnaðarleið.
\ !
L \_ L_V._-U. u_.\Lv_L
Þú færð allar upplýsingar um Lotusparnað á afgreiðslustöðum bankans.