Helgarpósturinn - 30.12.1986, Blaðsíða 17
níunda bekk sem flest reykja, fengu að sjá voða
ógeðslega mynd um lungnauppskurð og ein
stelpan gubbaði. Ég held að þau hafi flest hætt
að reykja. Það er hægt að varast krabbamein
með því að reykja ekki og borða hollan mat. Við
tölum ekki mikið um eyðni en auðvitað hugsar
maður um sjúkdóminn. Ætli allir verði ekki að
nota smokka í framtíðinni."
— Hefur tískan mikil áhrif á þig og félaga
þína?
„Smávegis — en samt reyni ég að fara eftir
eigin smekk. Auðvitað mega fötin ekki vera
hallærisleg: rósóttir kjólar og brúnar og appel-
sínugular peysur — mér finnast þeir litir ekki
fara vel saman. Mér finnst best að vera í víðum
fötum og reyni að komast hjá því að fara í þröng
föt."
— Huernig er fullordið fólk?
„Það er margt ágætt, en sumt ansi leiðinlegt.
Stundum þegar ég er að selja happdrættismiða
lítur fólk á mig einsog ég sé ekki til og er ekki
einu sinni að hafa fyrir því að svara og allir
krakkar þekkja það að vera að bíða eftir af-
greiðslu í búð þegar einhver fullorðinn ryðst
framfyrir mann og fær afgreiðslu. Svo segir
maður kannski: „Ég var nú á undan þér," og þá
er horft á mann með augnaráðinu: „Ég er nú
fullorðinn og það er fyrir öllu." Ég er bara hrædd
um að heimurinn breytist ekkert þegar við verð-
um fullorðin. Þá förum við bara að haga okkur
einsog fuilorðna fólkið og gleymum því hvernig
það var að vera barn."
SVO GAMAN AÐ VINNA SIG
INN í HLUTVERK
— Hvaö helduröu aö nýja áriö beri í skauli
sínu?
„Ég er nú enginn spámaður en ég vona að það
verði meiri friður í heiminum en núna. Svo má
hækka lágmarkslaunin. Ég segi nú bara einsog
Flokkur mannsins fyrir kosningarnar. Þrjátíu
þúsund krónur í lágmarkslaun.
Ég ætla nú ekkert að vera með nein nýársheit
en ég vona að ég geti hækkað mig í reikningi —
ég þarf oft að berjast ansi mikið við hann."
— Og aö lokum Nína, hvaö ætlaröu aö vera
þegar þú ert oröin stór?
„Mig langar að verða eitthvað sem engin kona
hefur verið áður — eða þá leikkona. Það er svo
gaman að lifa sig inní hlutverk. Verða annað
fólk og hugsa: hvað ætli það mundi gera í þess-
um sporum. Stundum þegar ég er að leika eitt-
hvað fyndið þá reyni ég þó að gera það sem eng-
um dytti í hug að gera. Kannski verð ég bara rit-
höfundur — það er svo ofboðslega frábært að
skrifa sögur"!