Helgarpósturinn - 30.12.1986, Blaðsíða 33
þegar einkaaðilar eru í samkeppni
við ríkisfyrirtæki. Svo hefur verið
síðan einkafyrirtækjum var gefinn
kostur á að keppa við Póst og síma
á hluta af fjarskiptamarkaðnum.
Samkeppnisaðilar Pósts og síma
unnu fyrir nokkru lítinn sigur á ris-
anum. Fjármálaráðuneytið tók þá
í lurginn á risanum, eftir ábendingu
eins af litlu samkeppnisaðilunum,
fyrir frjálslega túlkun á tollaflokk-
un. Þannig var að Póstur og sími
hafði flutt inn hugbúnað í sjálfvirkar
símstöðvar í tollaflokki sem tilheyrir
hugbúnaði í tölvur. Það má víst
ekki. Samkvæmt skilningi fjármála-
ráðuneytisins eru tölvur tölvur og
símstöðvar símstöðvar. Póstur og
sími fékk því bágt fyrir og það
gladdi að sjálfsögðu margan sím-
tólainnflytjandann.. .
Þ
að er með ólíkindum hvað
nýjasta tækni gerir mögulegt. Þeir
Bylgjumenn notuðu hana t.d.
nýstárlega í jóladagskránni, sem
þeir tóku að hluta til upp fyrirfram.
Til þess að þurfa ekki að vera sífellt
að skipta um segulbandsspólur, var
tónlistin tekin upp á venjulegar
vídeókassettur. Vídeótæki var tengt
við upptökuhljóðverið, sett í gang á
hálfum hraða og þannig mátti taka
upp 8 klukkustundir af útvarpsefni á
vídeóspólu, sem annars má nota í 4
stunda sjónvarpsupptöku. Þetta
hljómar furðulega, en satt er það
engu að síður . . .
Þ
að er ekki allt dýrt á íslandi.
í Símablaðinu sem nýlega kom út
upplýsir Þorsteinn Óskarsson að
stofn- og afnotagjald Pósts og síma-
málastofnunarinnar sé mun lægra
en annars staðar á Norðurlöndun-
um. Munar þar allt að 300%. Póst-
burðargjald er einnig lægst á ís-
landi. Það borgar sig sem sagt ekki
að fara til Norðurlandana að hringja
á sama hátt og það er hagkvæmt að
versla í Glasgow. . .
LESENDAKÖNNUN HELGARPÓSTSINS
Munid að senda inn spurningalistana. Látið aðeins annan happdrættismiðann
fylgja. Geymið hinn.
LESENDAKÖNNUN HELGARPÓSTSINS
Við óskum landsmönnum gleðilegra jóla,
árs og friðar og þökkum samstarfið
á árinu sem er að líða.
ÉBRunnBúraFÉLflG ísinnos
Bl
LÍFTRYGGING
GAGNKVTMT TRYGGINGAFELAG
Tökum hunda ígœslu
til lengri eða
skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags íslands
Arnarstöðum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030
H
M
M
N D
áá Tímarit þeirra sem áá
w w fylgjast með * *
HELGARPÓSTURINN 33