Helgarpósturinn - 22.01.1987, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST
FUNDAHERFERÐ kratanna
Jóns Baldvins og Gudmundar
Einarssonar um Austurland vakti
athygli þar um slóðir. í framsókn-
armálgagninu Austra á Egils-
stöðum þ. 15. janúar birtist skop-
mynd af þeim krötum í þann
mund að brjóta Austurlandsmúr-
inn, en í þessu kjördæmi hafa
kratar ekki átt þingmann svo lengi
sem menn muna.
Eins og meðfylgjandi mynd úr
Austra sýnir er Jón Baldvin í þann
mund að „krambúlera" andlit
Guðmundar á múrnum.
Þessa dagana gengur Guð-
mundur Einarsson með miklar
sáraumbúðir á enni, vinstra
megin, og hafa menn eðlilega
SMARTSKOT
dregið þá ályktun að eitthvað hafi
„múrbrjóturinn" unnið á víg-
girðingunni fyrir austan.
Skýringin er hins vegar sú, að
daginn áður en Guðmundur fór
austur um miðjan mánuðinn lenti
hann í stappi með hestana sína
sem endaði með vænu höggi og
meðfylgjandi sári og mari, eins og
sjá má á myndinni af Guðmundi
Einarssyni, sem Árni Bjarnason
tók á Alþingi í fyrradag.
JAFNRETTISbaráttan heldur
víst örugglega áfram, því kven-
fólki þykir hægt ganga við að
rjúfa þéttan varnarmúr karla. En
misrétti kynja á milli einskorðast
ekki við mannkynið, því maðurinn
hefur útfært kynferðismat sitt yfir
á dýrin í ríkum mæli. Nýlega
mátti í Lögbirtingablaðinu sjá
auglýsingu frá ríkisskattstjóra um
eignarmat á búfé. Þar má sjá að
geltir eru metnir á 13.375 krónur
en gyltur á aðeins 8.710 krónur.
Karlkyns minkar eru metnir á
2.920 krónur en kvenminkar á
aðeins 1.945 krónur. Ekki er sama
hversu gamlar trunturnar eru.
Hestar á 5—13. vetri eru metnir á
20.450 krónur en jafnaldra hryssur
á 18.410. Á hinn bóginn ríkir
jafnrétti þegar trunturnar eru 14
vetra eða eldri. Og mennirnir
leggja að jöfnu ær og sauði,
kanínur, refi, geitur og fugla.
Aðeins í einu tilfelli er kvendýr
metið meira en karldýr. Þannig
þarf tvö og hálft naut til að jafnast
á við eina mjólkurkú. Á hinn
bóginn er nautakjötið mun
dýrmætara en kýrkjötið. ..
auglýsti nýlega kennsluskrá sína
fyrir vorönn og kenndi þar ýmissa
grasa að venju. Við rákum augun í
kynningu á námskeiði í blóma-
skreytingum og fannst nafn leið-
beinandans afar viðeigandi. Hún
heitir auðvitað Fjóla.
MENN hafa ályktað grimmt í
Norðurlandskjördæmi eystra
vegna brottvikningar fræðslu-
stjóra, og verið eindregni í afstöðu
sinni. í einni ályktuninni var geng-
ið svo langt að krefjast þess að
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra segði af sér
embætti. HP hefur fregnað að
þegar ályktun þessi var gerð stóð
að henni aldraður prestur. Fannst
klerki full sterkt að orði kveðið og
velti því mjög fyrir sér hvort hann
gæti stutt svo harðorð mótmæli. Á
endanum er sagt að klerkur hafi
seilst í jakkavasa sinn, skellt í sig
hjartapillu og rétt síðan upp hönd
samþykkur ályktuninni. Við selj-
um það ekki dýrara en við keypt-
um það.
DAGBLÖÐIN Tíminn og Þjóð-
viljinn fá aldeilis höfðinglega
meðferð í Vesturbænum í Reykja-
vík þessa dagana, þó tæpast geti
það verið til langframa. Fyrir síð-
ustu helgi sást nefnilega til leigu-
bílstjóra frá Hreyfli, sem ók um
með blöðin í aftursætinu og hljóp
með þau inn í hús áskrifenda,
glóðvolg úr hlýjunni í bílnum.
HELGARPÚSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR
Hyski
Víst hefur enginn við mér roð,
verjast mun ég grandi,
þótt úr sturla Steingríms joð
steypist ögn af hlandi.
Niðri
„77/ þess að viðhalda vœgi þess heims-
atburðar sem hér átti sér stað, verðum við
að öðlast gœðastimpil í vitund heimsins“
FRIÐRIK Á. BREKKAN HJÁ MENNINGARSTOFNUIM
BANDARÍKJANNA I GREIN UM TILLÖGU SÍNA AÐ
ALÞJÖÐLEGUM FRIÐARVERÐLAUNUM, SEM
KENND YRÐU VIÐ HÖFÐA
Sveinbjörn Beinteinsson, allsherjargoði
Ásatrúarmanna
„Við höfum nú ekki mikið komið saman á þessum tíma, en
þetta snýst um að benda fram til vorsins á miðjum eða úthall-
andi vetri. Skammdegið er eiginlega búið, eða það sem kallað
var skammdegi, og komnir útmánuðir. Þá er horft til vorsins."
— Bíðið þið tii vorsins með að hittast?
„Ja, við höfum stundum haft blót í þorrabyrjun, ef hægt hef-
ur verið að koma því við."
— Eru til einhverjar upplýsingar að ráði um þessa siði
frá því fyrr á öldum?
„Slíkar upplýsingar eru eiginlega hvergi til.
Á þorrablótum okkar er etið og drukkið, en það er það eina
sem vitað er um þetta til forna. Þetta var matar- og drykkju-
veisla! Við höfum samskonar mat og er í þessum hefðbundnu
þorrablótum og drekkum mjöð, sem við köllum. Það er eitt-
hvert sull úr öli og brennivíni, ekki ósvipað bjórlíkinu sem selt
var á tímabili. Fyrr á tímum var blótað til árs og friðar, bent á
vorið og gróðurtímann, bæði á að sá í akurinn og róa til fiskjar,
eða fara í kaupferðir."
— Er þetta svipað með aðra siði Ásatrúarmanna, þ.e.
að þið verðið sjálf að geta ykkur til um hvernig þeir hafa
verið?
,Já, svo að segja alveg."
— Hittist þið reglulega, fyrir utan þorrablótin?
,dá, í sumarbyrjun — á sumardaginn fyrsta. Svo aftur um
sólstöður, eða Jónsmessuna. Sumardagurinn fyrsti er eigin-
lega okkar dagur."
— Hvað eruð þið mörg í söfnuðinum?
„Það er alltaf ósköp svipuð tala. Einn og einn gengur úr og
svo eru einhverjir að bætast við. Á þjóðskrá eru eitthvað innan
við hundrað taldir Ásatrúar, en meirihluti þeirra sem koma á
blót eru ekki skráðir þar."
— Hvernig er kynjaskiptingin hjá ykkur?
„I skráningunni eru karlar miklu fleiri, en hins vegar eru kon-
ur yfirleitt í meirihluta á blótum og fundum, hefur mér virst.
Þær koma, en hirða kannski ekki um að skrá sig."
— Er sérstök inntökuathöfn fyrir nýja meðlimi?
„Nei, nei. Ekki nema sérstaklega sé óskað eftir þvi. Þá bless-
um við þá, ávörpum goðin og förum með eitthvað gott og gam-
alt."
— Ert þú eini goðinn?
„Ég er nú svona það sem kallað er formaður, en svo eru 9 í
allt, sem kallast goðar. Þetta er nokkurs konar stjórn í félaginu."
Þorrinn er nú að ganga í garð, enda jólamaturinn farinn að sjatna vel
(fólki. Hann er þó ekki til kominn til þess að skapa matreiðslumönnum
og húsmæðrum vinnu. Ásatrúarmenn hafa hinar aldagömlu hefðir (
heiðri og þess vegna höfðum við samband við Sveinbjörn Beinteins-
son í Draghálsi.
Hvernig blótarðu
þorra?
HELGARPÓSTURINN 3