Helgarpósturinn - 22.01.1987, Blaðsíða 35

Helgarpósturinn - 22.01.1987, Blaðsíða 35
„Þaö vœri mjög gáfulegt og gœfulegt fyrir mannkyniö ef hægt vœri aö sameina í heildrœnar lœkningar öll svið austrœnnar og vest- rœnnar þekkingar. Það er nú svo aö í Vesturlöndum er oft ráöist á sjúkdómseinkenni eins og aö þau séu aöal óvinurinn og dœlt ísjúkl- ingaýmiss konar lyfjum. Þaö er allt oflítiö, eiginlega sama og ekkert um fyrirbyggjandi adgeröir. Maöur veröur einmitt mjög var viö aö fólk veröur œþreyttara á aö ganga á milli lœkna, þegar þaö fœr nýja °S nýja lyfseöla og veit vart lengur hvaö er sjúkdómurinn og hvaö aukaverkanir. Þaö er mörg þúsund ára reynsla á bak viö austrœn lœkningavísindi, sem menn á Vesturlöndum œttu ekki aö hundsa. Eg get nefnt lítiö og einfalt dœmi á nálastungum, að þaö er hœgt aö nota punkt á þvagblöðruorkubrautinni til aö snúa fóstri sem er i vit- lausri stellingu. I 90% tilfella hefur fóstriö snúiö sér innan sólar- hrings. Margir lœknar hér og almennt á Vesturlöndum eru óánœgö- ir meö núverandi ástand mála, meö þá heilbrigöisstefnu sem ríkj- andi er og vissulega hafa oröiö hér ánœgjulegar breytingar síöastliö- inn áratug eöa svo. Eg held aö segja megi aö viö séum aö ganga inn í nýja öld. Þaö endar auövitaö meö því aö lœknar Vesturlanda kom- ast endanlega aö því sem þó hefur verið vitað í þúsund ár, aö orka feröast um líkamann á brautum Viðmælandi Helgarpóstsins er Soffía Lára Karlsdóttir, nuddari. Hún býður þjökuðu nútímafólki upp á nudd að austrænni fyrirmynd — svokallaða Shiatsu-aðferd. ,,Eg var svo heppin að kynnast japönskum nuddara, Yuichi Kaw- ada, árið 1979 og lærði mjög mikið af honum og félaga hans, sem er sjúkraþjálfari. Það varð síðan æ sterkara í mér að leggja þetta fyrir mig sem starf og ég ákvað að fara til Frakklands, þar sem ég nam í eitt ár við ,,École de Massage Energétique de Paris" og síðan til London, þar sem ég var tvo vetur við „Kushi Institute", að læra nudd og heild- ræna heilsufræði. Þarna voru bestu kennarar heims í þessum fræðum — utan Japans. Og til að skilja orku- flæðið enn betur tók ég einn vetur í nálastungum við „The London School of Chinese Medicine". Shiatsu er ekki ein sérstök aðferð, heldur þróað kerfi, samræming á mörgum aðferðum sem urðu til í Kína og Japan fyrir óralöngu. Leyndardómurinn er fólginn í því að þekkja og skilja orkubrautir líkam- ans, þar sem ríkir háflæði — „Jitsu" — og lágflæði — Kyo" — orkunnar, rétt eins og með flóð og fjöru. Mað- ur lærir ýmsar aðferðir til að hafa áhrif á orkuflæðið, en þróar eigin leiðir og auðvitað verður maður að treysta á eigið innsæi og tilfinningu, enda enginn líkami eins og vanda- mál fólks af mismunadi toga. Teorí- an sjálf þótt nauðsynleg sé má ekki glepja hugann um of, hún getur stundum afvegaleitt mann. Þetta er svipað og að læra á píanó, fyrst lærir maður nóturnar, en síðan verður Sofffa Lára Karlsdóttir hefur numið nudd, heilsufræði og nálastungufræði í Paris og London. eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Árni Bjarnason maður að þróa sig út frá þeim, nota það sem maður hefur lært en finnur jafnframt sinn eigin stíl.“ RÓTIN AÐ GÓÐRI HEILSU Shiatsu byggir ekki eingöngu á því að nota nudd til að hafa áhrif á orkuflæði líkamans í því skyni að lækna og fyrirbyggja. Mikil áhersla er og lögð á mataræði. Matur er reyndar talinn rótin að góðri heilsu. Soffía leggur þannig mikla áherslu á gæði fæðunnar jafnframt nuddinu og ætlar að standa fyrir matarnám- skeiðum í náinni framtíð. „Næringarskortur og óviðeigandi fæða getur verið afar skaðlegt lík- amanum. Það vita reyndar allir og skilja, en bregðast ekki alltaf við á viðeigandi hátt. Oft er fyrsta skrefið að fara út í fæðubótarefni; vítamín, steinefni og svo framvegis, síðan út í breytt fæðuval. Stefna stjórnvalda á þessu sviði er mjög stíf, en lyfja- löggjöfin jafnframt óraunhæf og vart til að hafa hendur á. Þannig eru t.d. svokölluð hómópatísk lyf eða smáskammtalyf bönnuð, þó þau megi víðast hvar annars staðar fá greiðlega og án lyfseðils og hafa auk þess ekki aukaverkanir, eins og flest lyf á markaðnum hafa. Eg ligg ekki á þeirri skoðun minni að það þarf að taka Iyfjalöggjöfina rækilega til end- urskoðunar, það þarf að leyfa fólki í ríkari mæli að velja og hafna — nú, það ríkja nú óþarfa öfgar og fólki hreinlega sagt að það sé of heimskt til að geta valið sjálft á nokkurn hátt og verði því að hafa vit fyrir því! Fólk á að hafa frelsi og tækifæri til að prófa það sem reynst hefur vel, en á ekki að þurfa að fara undir jörð- ina til að leita lækninga á annan hátt en lífsstíll Vesturlanda býður upp á. Það þýðir ekkert að horfa framhjá þessu, það sem pressað er niður þrífst undir yfirborðinu og kemur síðan upp í óánægju og van- trausti á læknastéttina. Og eins og ég sagði áðan þá eru margir læknar langt frá því að vera ánægðir með að starfa við núverandi aðstæður, en vilja heildrænar lækningar, þar sem öll svið þekkingarinnar eru í praksís og þar sem allir eiga að geta fundið aðferðir og leiðir sem henta þeim — um leið og aukin áhersla er lögð á skynsamlega fæðu og holla hreyfingu. Við núverandi aðstæður er fólk að verða æ hræddara við heilbrigðisyfirvöld og fer krókaleið- ir. Við þurfum meiri umræðu um þessi mál innan heilbrigðisstétt- anna. Nú eru t.d. æ fleiri hjúkrunar- fræðingar að gera sér grein fyrir slæmum áhrifum lélegrar fæðu á sjúkrahúsunum; bæði á starfsfólk og sjúklinga!" NÁTTTRÖLL SEM DAGAÐ HEFUR UPPI Soffía segir að núverandi tolla- löggjöf og innflutningur séu fjand- samleg þeim sem vilja hugsa um gæði fæðunnar. í stað þess að stýra neyslunni til viðurkenndrar holl- ustuvöru eru slíkar vörur dýrar vegna hárra tolla, sérstaklega græn- meti. „Hér gætu komið upp mörg smærri fyrirtæki sem sérhæfa sig í hollustufæði og vafalaust er framtíð í því. En oft hugsa ég með mér að þjóðfélagið virðist ekki í stakk búið að veita fólki það, sem það virkilega þarf í þessu þjóðfélagi neyslunnar. Hvað náttúrulyf og aðrar heildræn- ar leiðir varðar finnst mér kerfið vera eins og nátttröll sem dagað hef- ur uppi. Þrátt fyrir aukinn tækjakost hefur heilsufar ekki batnað. Það virðist nefnilega ekkert hægt að gera fyrr en „eitthvað" hefur fundist og þess vegna er hálf-heilbrigt eða hálf-veikt fólk oft á tíðum afskipt." Blaðamaður kveður Soffíu — „lurkum laminn og fótum troðinn" — reynslunni ríkari um áhrifamátt Shiatsu-nuddaðferðarinnar. Soffía fann marga spennubletti undir hör- undi hins stressaða blaðamanns, sem hefur markvisst misþyrmt maga sínum, nýrum og fleiri líkams- hlutum með óhóflegri kaffidrykkju og ruslfæðu. Og ekki laust við að hann geti tekið undir með Soffíu um að oft verði fólk fyrst vart við að það hefur líkama í raun og veru þegar farið hefur verið um hann þjálfuö- um höndum — og fótum! HELGARPÓSTURINN 35

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.