Helgarpósturinn - 22.01.1987, Blaðsíða 15
Þ
að falla mjög óvaegin orð úr
penna Jóns Oddssonar, hæstarétt-
arlögmanns, í bréfi hans til Boga
Nilssonar, rannsóknarlögreglu-
stjóra, vegna innheimtuaðgerða
Ríkisútvarpsins. Jón kærir í bréfinu
innheimtudeildina fyrir brot á hegn-
ingarlögum og okurlögunum (sál-
ugu?) og sendir innheimtulögmönn-
um auk þess tóninn. Á einum stað í
bréfinu segir Jón m.a.: „Stöðva þarf
þá þróun hér á landi, að fjárplógs-
starfsemi undir yfirskyni lög-
mennsku sé rekin áfram í þessu
landi og fari eins og engisprettufar-
aldur inn á alþýðuheimili í landinu,
því sannarlega kemur þetta verst
niður á þeim er síst eru þess um-
komnir að standa undir óþarfa álög-
um.“ Þá upplýsir Jón í bréfinu að við
rannsókn Geirfinnsmálsins hafi
komið í ljós víxilkrafa frá Theódór
Georgssyni, innheimtustjóra Ríkis-
útvarpsins, til eins ungmennisins er
þar var ákært. Það mun hafa verið
Sævar Marino Ciesielski, en
hann samþykkti víxilinn þó hann
hafi þá verið ófjárráða sökum æsku.
Víxillinn stóð fyrir láni vegna inn-
flutnings á fíkniefnum, að sögn
Jóns, en hann var verjandi Sævars í
Geirfinns- og Guðmundarmálinu.
Þessi víxill var frá þeim tíma er
FUNDARSALIR
Höfum fundarsali fyrir
hverskonar minni og stœrri fundi.
Öll þjónusta og veitingar.
Gerum föst verðtilboð.
Hafið samband tímanlega.
Pétur Sturluson
RISIÐ
Veislu- og fundarsalir
Hverfisgötu 105
Símar 29670 - 22781
Theódór var lögmaður Fasteigna-
sölu Austurbæjar og rak hana
ásamt Guðbjarti heitnum Páls-
syni. Ekki er með þessu verið að
segja neitt um það hvort lögmann-
inum hafi verið kunnugt um hvern-
ig „barnið" varði andvirði víxils-
ins. . .
F
I ræðslustjóramálið hefur ýmsar
hliðar. Skrifstofustjóri sá í ráðuneyt-
inu sem hefur með fjárhagsmál
grunnskóla að gera og hlýtur þar af
leiðandi að vera maðurinn sem
reiknar í_hendur menntamálaráð-
herra er Örlygur Geirsson. Örlyg-
ur er jafnframt varaforseti BSRB og
ætti því að þekkja vel til reglna um
réttindi og skyldur opinberra starfs-
manna, sem málsvarar Sturiu
Kristjánssonar telja að hafi verið
brotnar með tafarlausri uppsögn.
Spurningin er hvort skrifstofustjór-
inn hefur bent ráðherra á ákvæði
um uppsögn starfsmanna ríkisins,
þegar mál þessi voru til umræðu, en
í fjölmiðlum lét Sverrir mennta-
málaráðherra þess getið að yfir-
menn í ráðuneytinu hefðu verið
hafðir með í ráðum þegar ákvörðun
var tekin...
V
irtur þingskörungur með
húmorinn í góðu lagi laumaði þess-
ari athugasemd við Sturlumálið að
HP á þinggöngunum í vikunni:
„Það voru nú alveg síðustu forvöð
hjá Sverri að reka Sturlu, því ella
hefði Sturla rekið hann...!“. ..
BILEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÖDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. A FLEST-
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST A
STAÐNUM.
BILPLAST
Vhgnhöfða 19, timi 688233.
Póststndum.
Ödýrir cturtubotnar.
Tökum aö okkur trefjaplaatvinnu.
Veljiö islenskt.
CHEVROLET MONZA
453.000 3ja dyra beinskiptur
Verö: 507.000 3ja dyra sjálfskiptur
Verð:
460.000 4ra dyra beinskiptur
514.000 4ra dyra sjálfskiptur
GM Ajmwm
CHEVROLET \
BíLVANGURsff
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
HELGARPÖSTURINN 15