Helgarpósturinn - 22.01.1987, Page 27

Helgarpósturinn - 22.01.1987, Page 27
„Frumskylda forlags er ad taka áhættu“ — Spjallað við forráðamenn Máls og menningar í upp- hafi fimmtugasta afmælisárs bókmenntafélagsins „Meginstefid í útgáfu Máls og menningar hefur veriö að kynna fólki verk eftir merkustu höfunda bókmenntasögunnar, fyrir utan að gefa át íslensk skáldverk, efni fyrir börn og allskonar handbækur. Það hefur aldrei árað svo illa að ekki hafi að minnsta kosti komið át nokkrar árvalsþýðingar frá forlag- inu. Og gott ef þœr fáu bœkur sem komu át, þegar verst lét, voru ekki einmitt allar í þeim flokki." Svona fórust einum forráða- manna Máls og menningar orð á fundi í vikunni, þar sem blaða- mönnum var sagt hvaða tíðinda væri að vænta frá forlaginu á fimmtugasta afmælisári þess. Það var stofnað sumarið 1937 að frum- kvæði Kristins E. Andréssonar. Og það hefur margt gerst í tíðinni milli þess sem tvær fyrstu bækurnar voru seldar á samanlagt tíkall og 200 þús- und bækur fóru í fyrra. Það eru nýir tímar núna, sem þrátt fyrir stjarfa skjátíð veita svigrúm til sóknar les- máls. Og nýjungar gilda. Forlagið stefnir að umfangsmestu útgáfuáætiun sinni frá upphafi og ætlar sér margt stórra hluta. Meðal annars stendur til að gefa út eina bók í hverjum mánuði ársins sem verður tileinkuð afmælinu og boðin á sérstökum kjörum fyrsta mánuð- inn eftir útkomu. Fyrsta bókin í þessari afmælisröð er góðfregn í ljóðsögu landsins, ný bók frá hendi Stefáns Harðar Grímssonar, sem nefnist Tengsl. Bók febrúarmánaðar verður svo endurútgáfa á Hundrað ára einsemd Gabríels García Marquez, sem er einn margra rit- snillinga samtímans sem forlagið hefur kynnt fyrir íslenskum lesend- um. Fyrsta bindi Náttáru íslands verður svo flaggskip afmælisútgáf- unnar, en Guðmundur Ólafsson er umsjármaður þessa stórvirkis. MIKIL RÆKT VIÐ AKVEÐNA HÖFUNDA Eins og bókaunnendum er kunn- ugt freistaði forlagið þess fyrir giska þremur árum að selja íslendingum góðbókmenntir á kiljum, á langtum lægra verði en bækurnar hefðu annars kostað. í framhaldi af þessari útgáfu var svo Islenski kiljuklább- urinn stofnaður, en hann telur nú hálft sjötta þúsund félagsmanna. Þá kynnti forlagið í fyrra valið safn úr verkum Þórbergs og kallaði Stórbók og að því er fram kom á fundinum í vikunni verður framhald á sam- nefndri útgáfu. Stórbók Astrid Lind- gren kemur út á árinu og geymir valdar smásögur, leikrit, bókarkafla og eina heila skáldsögu höfundar sem verður áttræð í ár. Stórbók ís- lenskra kvenna er einnig í burðar- liðnum. „Þegar ég hóf störf hjá þessu for- lagi og fór að blaða í sögu þess kom mér á óvart hvað það, sem við get- um kallað menningarstefnu þess, hefur verið óskýrt í gegnum tíðina," sagði Halldór Guðmundsson út- gáfustjóri aðspurður um þetta stóra orð. „Það hefur verið borið niður mjög víða í útgáfu og bókmennta- starfi, enda hefur áherslan gjarnan verið sú að ná til sem flestra. Kannski má þó segja að áherslan hafi verið meiri á metnaðarfyllri verk en léttmeti. Það hefur til dæm- ist verið lögð mikil rækt við ákveðna höfunda í þeim efnum." PÓLITÍKIN FÆR ÚTRÁS í TÍMARITINU Silja Aðalsteinsdóttir, sem ritstýrir Tímariti MM, var spurð hvort hún teldi að pólitík hafi staðið félaginu fyrir þrifum. Hún kvaðst ekki ætla að svo hafi verið. Pólitík hefði til dæmis ekki komið f ram í vali á verk- um. Tímaritið væri hinsvegar sá vettvangur þar sem pólitíkurinnar gætti — og reyndar væri þetta svo- lítið fyndið: „Utgáfan hefur helgast af smekk og tilfinningu manna sem svo hafa fengið sína pólitísku útrás í tímaritinu. Þannig hefur þetta verið aðskilið." Árni Einarsson framkvæmda- stjóri Máls og menningar segist halda að pólitískur stimpill félagsins sé óðum að mást og nánast einvörð- ungu til í hugum fólks nú orðið. Þetta hafi annars verið frægt hér í eina tíð: „Sagan segir að þegar okk- ar besti sölumaður frá árum áður, Einar Andrésson, ferðaðist til Suð- urnesja með góðbókmenntir sem útgerðarmennirnir á svæðinu gátu náttúrlega ekki staðist, hafi þeir lítið látið bera á kaupunum — og sumir falið þau!“ Hinar pólitísku hræring- ar um og uppúr stríði stóðu kannski rithöfundum sjálfum mest fyrir þrif- um, en ekki forleggjurunum, segja þau sem hér hefur verið rætt við... AB OG MM MEIRA SAMEIGINLEGT EN ÖNNUR FORLÖG Annars segir Silja að töluvert eimi enn eftir af gömlu aðskilnaðarstefn- unni í forlagsmálum og nefnir dæmi: „Það hafði samband við mig þáttagerðarmaður af sjónvarpinu fyrir ekki margt löngu og bað mig að taka þátt i einum þessara um- ræðuþátta um stöðu bókarinnar. Skömmu seinna hafði hann aftur samband við mig — því honum hafði greinilega snúist hugur í milli- tíðinni — og sagði að hann gæti ekki tekið mig með í umræðuna, því þá þyrfti hann að hafa einhvern frá AI- menna bókafélaginu líka!“ Þetta er semsé lífseigur andskoti. „En það er ekki lengur bókmennta- legur ágreiningur þarna á milli,“ bendir Halldór Guðmundsson á og læðir að upplýsingum um perlu- vinskap hans og Sigurðar G. Val- geirssonar sem er útgáfustjóri AB. „Ég býst við að þessi bókaforlög eigi núna meira sameiginlegt en önnur útgáfufélög í landinu. Þau hafa bæði miklar bókmenntalegar skyldur, og ágóðinn, ef einhver verður af einni bók, rennur beint til útgáfu þeirrar næstu.“ AF ÁHÆTTU OG FORSENDU HENNAR Halldór segir svo, inntur eftir þessum skyldum sem hann nefndi: „Frumskylda bókaforlags er að taka áhættu. Hún er til dæmis sú að setja rithöfund á starfslaun fyrirfram, þegar það hefur mikla trú á því að efniviður hans geti orðið merkileg- ur og forvitnilegur." En svo bætir út- gáfustjórinn reyndar við: „Auðvitað er svo forsendan fyrir því að þessi skylda fái staðist að forlagið fari ekki á hausinn hennar vegna." -SER. Halldór Guðmundsson út- gáfustjóri: „Býst viö að AB og MM eigi núna meira sam- eiginlegt en önnur útgáfufé- lög í landinu." Silja Aöalsteinsdóttir ritstjóri TMM: „Útgáfan hefur helg- ast af smekk og tilfinningu manna sem svo hafa fengið pólitíska útrás í tímaritinu..." Árni Einarsson fram- kvæmdastjóri: „Útgerðar- mennirnir á svæðinu létu lít- ið bera á kaupunum — og sumir földu þau." Á HÆTTUMÖRKUM (Dangerously Close) Ný „Verðirnir" eru glæpasamtök í Vist- menntaskólanum, sem einskis svífast. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. STELLA I ORLOFI ★★★ Léttgeggjuð ærsl a la Islanda. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. FOOLFOR LOVE ★ Hjónabandssæla Eddi og May, fær ann- an Ijóma. Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. bMhöiíD| KRÓKÓDÍLA DUNDEE („Crocodile" Dundee) ★★★ Mick Dundee kemur alveg ókunnugur til New York, og þar lendir hann f ýms- um vandræðum. Gráthlægileg mynd. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. RÁOAGÓÐI RÓBÓTINN (Short Circuit) ★★★ Fjallar um róbót nr. 5 sem fer á flakk og lendir í hinum ýmsu ævintýrum. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. STRÁKURINN SEM GAT FLOGIÐ (The Boy Who Could Fly) ★★ Notaleg og vel meint unglingamynd. Sýnd kl. 5 og 7. LÉTTLYNDAR LÖGGUR (Running Scared) ★★ Grínlöggumynd með Gregory Hines. Sýnd kl. 7 og 9. ALIENS ★★★★ Spennandi spenna. Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. Nú fer hver að verða síðastur að sjá Aliens í Bíóhöllinni. Krókódíla Dundee f Bíóhöllinni er gráthlægileg mynd fyrir þá sem eru frekar fúlir. Og svo er allt að yfirfyllast af nýjum myndum, t.d. nýj- asta mynd Rob Lowe, Oxford Blues, og Á hættumörkum í Austurbæjarbíói. VITASKIPIÐ (The Lightship) ★★★ Góð mynd leikstýrð af Jerzy Skoli- mowiski (lék eitt aðalhlutverkið í White Nights). Sýnd kl. 9 og 11. UNDURSHANGHAI (Shanghai Surprise) ★ Splunkuný mynd með hjónakornunum Madonnu og Sean Penn. Sýnd kl. 5 og 11. BÍÓHÚSIÐ SKÓLAFERÐIN (Oxford Blues) ★★ Með hinum bráðmyndarlega Rob Lowe. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ifA&imðLuio NAFN RÓSARINNAR (The Name Of The Rose) ★★★ Stórt drama, sterk mynd. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Bönnuð börnum innan 14 ára. LAUGARÁS B I O WILLY MILLY ★★ Óskin rætist, en að breytast í strák á einni nóttu er full mikið. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. HETJAN HÁVARÐUR ★ öndin Hávarður fellur til jarðar. Og lend- ir þar í hinum ýmsu vandræðum. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. E.T. ★★★ Frábær fjölskyldumynd. Sýnd kl. 5 og 7. Miðaverð 160 kr. LAGAREFIR (Legal Eagles) ★★★ Mjúkt lögfræðingadrama. Sýnd kl. 9 og 11. IRÍ0NBOGNNN ELDRAUNIN (Firewalker) ★★ Með Chuck Norris og Lou Gossett. Spennandi ný grín-, ævintýra- og spennumynd. Sýnd kl. 3, 5,7,9 og 11.15. Bönnuð inn- an 16 ára. LEYNIFÉLAGIÐ (Camorra) ★★ Mafíuhópur sem stjórnað er af kven- mönnum. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. SAMTAKA NÚ (Gung Ho) ★ Vitlaust fjör. Sýnd kl. 3. LINK ★★ Um apa sem gera uppreisn vegna harð- stjórnar. Sýnd kl. 3.05,5.05,7.05,9.05 og 11.05. Bönnuð innan 12 ára. AFTUR I SKÓLA (Back to School) ★★ Dillandi grín og hraði. Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10. I KRÖPPUM LEIK (Heat) ★ Með Burt Reynolds. Sýnd kl. 3.15, 5.15 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. HINIR ÚTVÖLDU Ný Spennandi mynd um trúbræður og vini, en viðhorf þeirra eru afar ólík, svo úr því verða mikil átök. Sýnd kl. 7.15 og 9.15. ANDSTÆÐUR (Nothing in Common) ★★ Um samband feðga þegar móðirin yfir- gefur pabbann. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. VOPNAÐUR OG HÆTTULEGUR (Armed and Dangerous) ★★ Lögreglumaður og lögfræðingur gerast vopnaðir öryggisverðir. Sýnd kl. 7, 9 og 11. VÖLUNDARHÚSIÐ (Labyrinth) ★★★ Vel gerð fjölskyldumynd. Sýnd kl. 5. Tántéíó TÝNDIR I ORRUSTU II (Missing in Action II) ★ Með Chuck Norris. Sýnd kl. 5,7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ mjög góð ★ ★ miðlungs ★ þolanleg O tnjög vond MYNDBAND VIKUNNAR Alien ★★★ 77/ átleigu hjá m.a. Vídeómeist- aranum og Myndbandaleigu kvikmyndahásanna. Bandarísk. Árgerð 1979. Leikstjórn: Ridley Scott. Aðalhlutverk: Sigourney Weaver, John Hurt, Tom Skerritt, Yaphet Kotto o.fl. Þá er hún loksins fáanleg á myndbandaleigunum þessi fræg- asta og jafnframt einhver umdeild- asta hrollvekja síðari tíma. Menn hafa löngum velt vöngum og margir í mestu forundran yfir því, hvað valdi þeim gífurlegu vin- sældum sem þessi mynd hefur notiö gegnum tíðina. Kvikmynda- gagnrýnendur víða um heim ým- ist rökkuðu hana niður og þá oft- ast á þeim forsendum að kvik- myndin fjallaði ekki um nokkurn skapaðan hlut... annað en ógur- legt skrímsli, er í vellystingum vaðstappaði um eyðilegar vistar- verur geimferjunnar Nostormo, hámandi í sig áhöfnina af ótrúlegri matgræðgi einni saman. Aðrir lof- uðu hana í hástert og þóttust geta lesið milii línanna ýmsar dulúðug- ar og mislangsóttar túlkanir og skýringar á hreint ótrúlegri vel- gengni og vinsældum þessarar margræðu, en jafnframt sótsvörtu framtíðarsýnar. „Nútíma-goðsögn fyrir framtíð- ina! Margslungin hálf-freudisk Ódysseifsferð um rangala... óhlut- bundinna bakgarða velferðarsam- félagsins!" hrópuðu hinir síðar- nefndu í unaðsleiðslu yfir ósköp- unum, „... því hvað er skrímslið ógurlega annað en staðgengill fjöldaatvinnuleysisins, vígbúnað- arkapphlaupsins? Er það ekki óða- verðbólgan holdi klædd!?“ Og skýringin á hinum ótrúlegu vin- sældum myndarinnar: Jú, mann- verunni tekst hið ómögulega... eft- ir ótrúlega hrakninga, þrautir og þjáningar, að sigrast á ógnvaldin- um ógurlega. Öll þessi óhlut- bundnu og að því er virðist óyfir- stíganlegu vandamál, er að okkur steðja úti í óræðum veruleikanum utan veggja kvikmyndahússins eru s.s. mögulega, ef til vill og kannski ekki svo óyfirstíganleg þrátt fyrir allt. Með smá útsjónar- semi, kænsku og umfram ailt óbil- andi þrautseigju má finna ráð við flestum vanda. Nú, þeir sem litið eru gefnir fyrir slíkar vangaveltur og hégóma geta alltént notið fádæma vel unn- innar, hreint ómótstæðilega út- smoginnar tæknivinnslu myndar- innar, sem á köflum er hreint ótrú- leg. Gefið sérstakan gaum að hljóðvinnslunni. Hún er með ólík- indum... jaðrar við fullkomnun. Ó.A. HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.