Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 4

Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 4
*'*■***♦ Um næstu helqi verður opnuö skemmtileq sýniriq á eídhúsáhöldum í Bogasal Þjóðminjasafnsins /Jað eru vart til í hugum okkar hversdagslegri fyrirbrigöi en eldhús og eldamennska, enda þarf mann- skepnan að nœrast daglega og þykir ekki í frásögur fœrandi hvernig þaö gengur fyrir sig á hvunndögum. Þegar framfarir veröa í tœkjum og tólum tengdum matreiöslu er held- ur ekkert veriö aö halda upp á þau gömlu. Lúin kaffikanna meö tau- poka þótti t.d. lítiö stáss eftir aö sjálf- uppáhellandi rafmagnskönnur komu til sögunnar. Starfsmenn þjóöháttadeildar Þjóöminjasafns- ins voru því í vanda, þegar ákveöiö var aö setja upp sýningu tengda eld- húsum fram á okkar daga. Meö því aö auglýsa í blööum og feröast um landiö í leit aö munum tókst þeim þó aö hrinda hugmyndinni í fram- kvœmd og almenningur fœr aö sjá afraksturinn á stórskemmtilegri sýningu í Bogasalnum um nœstu helgi. Þar munu margir hitta aftur „gamla kunningja" og ef til vill naga sig í handarbakiö fyrir aö hafa hent því sem nú telst nánast antik. Umrædd sýning í Þjóðminjasafn- inu yfirskriftina HVAÐ ER Á SEYÐI? og í Bogasalnum hefur einmitt verið komið fyrir einum slíkum, þ.e.a.s. „seyði“. Seyður, sem getið er um í Sitt af hverju tagi og frá ýmsum timaskeiðum. Hver man ekki eftir gömlu, góðu hyrnun- um frá Mjólkursamsölunni frá blómatíð '68-kynslóðarinnar. Ja, „góðu" má kannski liggja á milli hluta. Kaffibætirinn þótti hins vegar lengi ómissandi á hverju heimili. Og hver getur verið algjörlega án sykurs, þó fitandi sé? Sykurtoppar fengust á slnum tíma í nokkrum stærðum. Þá þurfti að klípa niður, svo úr fengjust sykurmolar, en einnig voru þeir skafnir yfir pönnukökurog annað bakkelsi sem átti aðsykra. Færsluföturnar (stund- um nefndar engjaspennur) eru frá þeim tíma þegar fólk var ekki farið að fá matinn sinn í einangruðum hitabökkum frá Veitingahöllínni. Þessi ílát gegndu þó sama hlutverki, bæði fyrir vinnandi fólk og þá, sem keyptu allan mat tilbúinn sökum aðstöðuleysis til eldamennsku. Isskápurinn úr búi foreldra Ragnars Halldórssonar „f Áln- um". Ætli hann hafi stundum nælt sér í tertubita og mjólkur- glas úr mublunni góðu? orðtakinu, var nefnilega nokkurs konar matreiðslutæki til forna, en um þetta fyrirbrigði segir m.a. í sýn- ingarskránni: „Seyðir var hola í jörðina sem not- uð var til að elda í mat, aðallega kjöt. U.þ.b. hnefastórir steinar voru hitaðir í eldi, látnir í holuna, kjötið var sett þar ofaná og síðan fleiri heitir steinar og að lokum var byrgt yfir með torfi og beðið þess að kjöt- ið meyrnaði í seyðinum. Að því búnu var seyðirinn rofinn og kjötið fært upp.“ Þegar spurt var um hvað væri á seyði til forna, var sem sagt verið að inna húsfreyju eftir því hvað væri í matinn! GRAUTAR- OG BJÚGNASLAGSMÁL Að sögn Hallgerðar Gísladóttur, þjóðháttafræðings hjá Þjóðminja- safninu, er ekki um auðugan garð að gresja hvað varðar lýsingar á matargerð og slíku í fornsögunum. Matseld er helst nefnd i tengslum við mannvíg og bardaga, þótt ótrú- legt megi virðast. Matreiðsla var auðvitað kvenna- starf og slíkri iðju voru ekki gerð ýkja mikil skil í íslendingasögum, nema þá helst að hún tengdist því að kona væri að eggja karl til hefnda, eða eitthvað í þeim dúr. Dæmi um það er t.d. að finna í Gísla sögu Súrssonar. Lýsingar á matar- gerð eða framreiðslu matar er hins vegar að finna á nokkrum stöðum þar sem karlmenn koma við sögu, eins og þegar karl dró bjúga upp úr potti og notaði það til að slá frá sér með. Einnig er dæmi um menn á ferðalagi, sem elduðu sér graut, en slettu honum síðan hver á annan í stað þess að taka til matar síns. í Bogasalnum hefur verið gerður langeldur að ævafornum sið, fyrir utan fyrrnefndan seyð. Hlóðatíma- bilinu eru einnig gerð skil á sýning- unni og þætti húsfreyjum nútímans eflaust ekki árennilegt að munda níðþungt vöfflujárnið, sem formæð- ur þeirra hafa eflaust glaðst óstjórn- lega yfir að eignast. DÚNN NOTAÐUR VIÐ ELDAMENNSKUNA Moðsuðukassi, eins og þeir sem notaðir voru á mörgum heimilum á fyrri hluta þessarar aldar, er líka á sýningunni í Þjóðminjasafninu. Kassarnir byggðu raunar á mat- reiðsluaðferð, sem mjög hefur verið í tísku á síðari árum, þ.e. hægsuðu. Hugmyndin að baki þeim var hins vegar orkusparnaður. í útliti voru kassarnir á ýmsa lund, mjög misfín- ir. Sumir voru afskaplega einföld smíð og lítið skrautlegir, en dæmi eru einnig um kassa sem einangrað- ir voru með dúni og fiðri og skreyttir að utan. Eldamennskan fór þannig fram, að suða var fyrst látin koma upp á þeim matföngum sem verið var að tilreiða. Þegar því stigi var náð var potturinn settur ofan í moðsuðu- kassa, sem bólstraður var með heyi, moði eða hálmi. Þarna var matur- inn síðan hafður tímunum saman, t.d. frá hádegi og fram á kvöld, allt þar til hann var borinn fram. Eins og margir vita er þetta ein- mitt talin góð matreiðsluaðferð, sökum þess að næringarefnin í fæð- unni haldast frekar ósködduð á þennan hátt en þegar maturinn er soðinn við mikinn hita. Á síðari tím- um er líka farið að framleiða nú- tímalega steikingarpotta, sem byggja á sömu hugmynd, en þeir eru látnir við vægan hita inn í bak- arofn. Þykir íslenska lambakjötið m.a. einkar ljúffengt eftir slíka með- ferð. ÍSLANDS TÖGGUR Margt núlifandi fólk man eflaust eftir moðsuðukössunum frá æsku- dögum, en það er ýmislegt annað á sýningu Þjóðminjasafnsins sem kemur jafnvel einstaklingum „á besta aldri“ kunnuglega fyrir sjónir. Og það er ótrúlegt að óreyndu, hve skringilega skemmtilegt það er að hitta aftur gamla kunningja eins og rósóttu kökukassana hennar mömmu og súrmjólkurhyrnu eins og þær sem svo gjarnan sprungu við minnsta álag, þegar maður var sendur út í búð. Það var lítið fyndið á þeim tíma, en núna er þetta allt saman heilmikil „nostalgíá'. Á sýningunni má þannig sjá hitt og þetta úr fortíðinni, bæði manns eigin og forfeðranna. Eldavélar af ýmsum gerðum, frá því fyrir og eftir tilkomu blessaðs rafmagnsins, gefur að líta þarna. Einnig potta og pönn- ur, sleifar, skálar, vogar og yfirleitt flest það sem við kemur elda- mennsku, geymslu og framreiðslu matar. Allt milli himins og jarðar, ásamt járnkassa undan brjóstsykri sem nefnist því viðeigandi nafni „Islands töggur“... Þegar Hallgerður Glsladóttir, þjóðhátta- fræðingur, lyfti pottinum upp úr moð- kassanum á sýningunni sannaðist hið fornkveðna: Vlða er pottur brotinn! | Longu gleymdar minningar Iskj'óta upp qömlurrt kollinum fþeqar maóur hittir aftur kaffibætisbauka, rósótta köku- Ikassa, emaleruð eldhúsáhöld, mjólkurbrúsa og margt fleira. Forsíðumynd af leiðarvísi með „nýrri" hrærivél. Hvaða skoðanir ætli hún hafi haft á reynsluheimi kvenna, þessi skælbrosandi húsmóðir? „Reynslu ... hvað?" 4 HELGAFSPÖSTURINN eftir Jónínu Leósdóttur myndir Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.