Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 14.05.1987, Qupperneq 16

Helgarpósturinn - 14.05.1987, Qupperneq 16
eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur myndir Jim Smart galli eda guösgjöf? Friðrik B. kemur frá heitu landi þar sem hann vandist því aö karlmenn „voru eiginlega allir med bringuhár. Mér finnst þetta því alltaf mjög eölilegt" segir hann. „Þetta er aö minnsta kosti ekki galli í mínum augum. Mér finnst þetta að mörgu leyti kostur hérna á íslandi; maður hefur svona „aukapeysu" innan á sér! Ég veit ekki hvort mér finnst þetta „fallegt" eða hvort það er einhver sexappíl í þessu. Því finnst mér að konur eigi að svara en ekki karlmenn! Það er svo huglægt mat hvað fólki finnst fallegt eða ljótt. Sumir eru með stórt nef og Ijótir, aðrir með stórt nef og mynd- arlegir. Nei, ég renni yfirleitt ekki renniiásnum svo mikið upp að hann festist í! Mér hefur aldrei verið strítt nema þá góðlátlega. Sumir segja að þetta séu ekki bringuhár heldur hafi ég fengið mér andlitslyftingu og þetta séu „hinsegin hár“!“ — Hvað heldur þú að konum finnist um bringuhár? ;,Það veit ég ekki. Það er ekki algengt hérna á Islandi að maður viti hvað konur hugsa! Það finnst mér í rauninni betra, að vita aldrei hvað konur eru að hugsa. Það eykur á skemmtileg- heitin að vita ekki allt!“ Hann segist ekki reyna að láta sjást í bringu- hárin viljandi: „Sumir vilja að þau sjáist og eru þá kannski sannfærðir um að það sé karlmannlegt, en það finnst mér svolítið bjánalegt. Konur eiga líka að svara því hvort þetta er karlmannlegt eða ekki, ég treysti mér ekki til að svara þeirri spurningu. Líttu bara á alla leikarana þarna fyrir vestan. Þeir eru flestir sköllóttir að fram- an. Sjáðu bara Robert Redford. Ég hugsa bara að hann hafi látið raka sig að framan, eða hvað? Margir aðrir eru líka þekktir sem kyn- tákn og ég hugsa að fáir þeirra séu með svona „peysu" framan á sér. Nei, ég hef aldrei öfund- að þá hárlausu. Ég fór að fá smáhýjung þegar ég var 16, 17 ára og sé enga galla við að hafa bringuhár." GÓÐ AUKAPEYSA Þaö var ekki nóg meö aö Björn Magnússon svaraöi spurningum okkar greiölega heldur reyndi hann sitt ýtrasta til aö ná í aöra karl- menn í viötal fyrir okkur: „Þaö gengur bara ekki, þaö skammast sín allir fyrir þetta nema ég!“ sagöi hann. Spurningunni um hvort bringuhár væru galli eða guðsgjöf svaraði hann án umhugs- unar: „Þetta er náttúrulega guðsgjöf! Veistu það að ég hef aldrei gert mér grein fyrir hvort mér finnst þetta fallegt eða ekki, en þetta kitl- aði stelpur fyrir löngu síðan ..." — Þú heldur sem sagt að konum þyki þetta fallegt? „Það er sennilega misjafnt. Ég veit að sum- um þykir þetta hræðilegt, öðrum fallegt." — En er aldrei óþægilegt að vera með bringuhár, rennirðu til dæmis aldrei rennilás í þau? Þessari spurningu var fljótsvarað: „Ekkert frekar að ofan en að neðan!" — Hefur þér verið strítt á bringuhárunum? „Nei —■ en að vísu hefur stundum verið sagt við mig að ég sé kominn skemmra frá öpunum en sumir aðrir. Það hef ég nú alltaf talið vera öfund!" — Reynirðu stundum að láta sjást í bringu- hárin? „Nei, það held ég ekki. Að minnsta kosti ekki viljandi." — Finnst þér karlmannlegt að hafa bringu- hár? „Já já. Ég hef unnið töluvert með Dönum og þar er talað um að maður hafi „hár pá brystet" — og þykir ekki verra. Nú er ég meira að segja kominn með grá hár!“ — Hefurðu einhvern tíma öfundað menn sem eru „sköllóttir" á bringunni? „Nei, það hef ég aldrei gert. Þar spilar upp- eldið kannski inn í því faðir minn heitinn hafði hár á brjóstinu og það fannst mér karlmann- legt.“ — Hvenær fórst þú sjálfur að fá bringuhár? „Ætli ég hafi ekki verið svona 18—19 ára. Mér fannst bringuhár alltaf bera vott um karl- mennsku." — Finnst þér eitthvað mæla sérstaklega með því að karlmenn hafi bringuhár? „Já, það hlýtur að vera miklu hlýrra. Að minnsta kosti er mér aldrei eins kalt og mörg- um öðrum." Helga Mattína Björnsdóttir kaupkona: „Mér finnst svolítill galli þegar karlmenn eru með bringuhár. Mér finnst þeir sætari hárlaus- ir. Já ég fer dálítið í sund og ósjálfrátt fylgist ég svolítið með því hvort karlmenn eru með bringuhár eða ekki. Ég hugsa að þeim finnist sjálfum að þeir séu karlmannlegri með bringu- hár þótt mér þyki þeir hárlausu meira spenn- andi!“ Auður Halldórsdóttir, verslunareigandi Grænu línunnar: Ég met nú ekki karlmannleikann eftir því hvort þeir hafa mörg hár á bringunni — hvort þeir geta skipt í miðju eða ekki! Ég hef aldrei spáð neitt í það hvort karlmenn eru með hár á bringunni eða ekki. Mér finnst það ekkert minni karlmenn sem eru sköllóttir á bring- unni. Það eru afskaplega fáir sem hafa ekki einhver strá þarna en hins vegar leggja þeir afskaplega mikið upp úr þessum fáu stráum! Margrét Andreassen verslun- arkona: „Sko, ef ég vildi apakött þá færi ég til Afríku og fengi mér einn þar! En án gamans þá fer það eftir því hversu hárprúðir þeir eru. Ef það er passlega mikið af hárum á bringunni geta þeir sjálfsagt verið silkimjúkir! Hins vegar fer ég ekki í sundlaugarnar til að horfa á bringur karlmanna heldur til að hreyfa mig! Ég horfi bara á manninn minn.“ — En höfuðókostir þess að hafa hár á bring- unni? „Ég man nú ekki til þess að hárin hafi valdið mér nokkrum óþægindum. Að vísu á ég tvo syni og ég man að öðrum þeirra fannst óþægi- legt að liggja á maganum á mér og lenda með höfuðið „í loðnunni", hinum fannst þetta fal- legt." KITLAÐI STELPUR „Viltu ekki bara taka viötal viö mig?" spuröi vinur minn einn sem vissi aö ég var aö leita aö bringuhárs-prúöum karlmönnum um helginaf.) Hann hneppti frá efstu tölunum á skyrtunni: „Sjáöu bara! Tvö hár, enda kallar konan mín þetta „arfanrí'!" Hins vegar sagöist hann alls óhrœddur viö aö spranga um á Spánarströnd- um því þar ku vera hœgt aö fá „ leigöan lepp til aö líma framan á sig" eins og hann oröaöi þaö. Annars var hreint ekkert grín að finna karl- menn sem voru til í að ræða um hvort bringu- hár væru galli eða guðsgjöf. Starfsmenn Vest- urbæjarsundlaugarinnar gerðu sitt besta til að ganga að sundlaugargestum og spyrja þá hvort þeir væru til í að ræða þessi mál. Aðeins tveir samþykktu — en annar bakkaði þegar út í spurningarnar var komið. Sagðist ekki vera mikið hrifinn af að svara þessu. Konurnar voru heldur ekkert skárri. Flestar sem leitað var til vildu svara — en ekki undir nafni og því síður undir mynd. Ein á besta aldri gaf þá skýringu að hún gæti „fælt frá sér ein- hverja með svona yfirlýsingu" en fannst þó í lagi að segja álit sitt nafnlaust. Við héldum lengi í þá von að við gætum fengið einhverja nafngreinda sem væri hrifin af bringuhárum en þar sem sú von brást fylgir hér umsögn þeirrar sem fannst mikið til bringuháranna koma: „Þetta er náttúrlega miklu karlmannlegra," sagði hún. „Hárlausir menn eru alltaf veimil- títulegri — hinir eru meiri karlmenn. Ég er sjálf alin upp með loðnum og vöðvastæltum föður og bróður og myndi aldrei líta á karl- mann nema hann hefði hár á bringunni. Hins vegar finnst mér karlmenn ekki eiga að flíka þessu, til dæmis með því að ganga um bæinn með fráhneppta skyrtu. Þennan leyndardóm á fyrst að afhjúpa þegar þeir eru í einrúmi með konu — þetta á að vera nokkurs konar „sur- prise" fyrir konuna og koma henni þægilega á óvart þegar á hólminn er komið. Mér finnst ekki nauðsynlegt að fara í sundlaugarnar til að horfa á svona menn, maður getur áttað sig nokkuð vel á því hvort þeir eru loðnir á brjóst- inu með því að horfa á handleggina á þeim og skeggvöxtinn. Þess vegna hef ég aldrei orðið fyrir vonbrigðum. Satt að segja held ég að ég fengi hláturskast ef ég væri ein með karlmanni á hárómantísku augnabliki og kæmist að því að hann væri hárlaus! Mér finnst jákvætt að gegnsæjar hvítar skyrtur skuli vera í tísku því þá er auðveldara að kíkja á þá! Ég hef reyndar einu sinni lent í árekstri út af bringuhárum. Þá var ég að aka um í Þingholtunum þar sem nokkrir smiðir voru við vinnu. Ég gleymdi mér alveg og keyrði aftan á næsta bíl! í stuttu máli finnst mér hárprúðir karlmenn hinir einu sönnu karlmenn." En konurnar í verslunum á Laugaveginum voru ekki á sama máli og þessi og láta ekki sitt eftir liggja í skoðunum sínum á bringuhár- um: 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.