Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 20
eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Jim Smart
Er Akrópólis á Köllunarkletti?
SVITNAÐ í
ÆRANDI ÞÖGN
HP kíkir á áhyggjufulla framhaldsskólanema glíma
viö miskunnarlaus prófeyöublöö undir haukfránum
sjónum kennara sinna
Loftið er spennu þrungið, þver-
sögnin er rafmögnuð: Ungt fólk á
sínu friskasta skeiði, ncer undan-
tekningarlaust brosandi í ótrúleg-
ustu uppátcekjum, nú glaseygt og
áhyggjufuilt, nagandi neglur eða
blýantsenda, að rifja upp svör sem
þau eiga að kunna utanbókar. Inni
er drungaleg þögn, úti er sumar og
sól. Um þessar mundir heyja á ann-
an tug þúsunda framhaldsskóla-
nema próf. Þar af œtla um 1500
ungmenni um tvítugt að gerast
„stúdentar". Til þess þurfa þau að
sanna getu sína á hefðbundinn hátt,
þau þurfa að uppfylla kröfur, þurfa
að standast próf. Sumir eru metnað-
arfullir og leggja á sig ómœlda
vinnu, aðrir œtla að láta sér nœgja
að vera sœmilega langt frá fallein-
kunn. En öll þurfa ungmennin að
ganga í gegnum athöfnina; um
nokkurra vikna skeið að sitja af og
til í drungalegri þögn undir hauk-
fránum prófstjóraaugum og sanna
það með svörum sínum að þau hafi
tileinkað sér námsefni vetrarins á
fullnœgjandi hátt. Að prófum lokn-
um taka tápið og fjörið við á ný
nema kannski hjá fallistum!
Maður fann það vel að próftíminn
er ekki „eðlilegt ástand", þegar tveir
menntaskólar voru heimsóttir í vik-
unni. Engin ærsl á göngunum, eng-
ar skrafræður um tilgang lífsins eða
þá hvað hafi eiginlega gerst eftir
ballið um helgina. í Ménntaskólan-
um við Sund sást ekki hræða á
göngunum. Niðri í „Skálholti", sem
er samkomusalur nemenda, var
ekki sálu að finna og enginn að
stjórna diskótekinu „Tónkvísl", en
Paul Simon lét það ekki stöðva sig
ogsöng hástöfum. Á borði lá ónotað
Trivial Pursuit; nú voru aðrar og allt
annars konar spurningar í gangi og
afdrifaríkari; ekki hlegið að röngum
svörum. í „Reykholti" var heldur
engan að finna, ekki einu sinni
taugaóstyrka próftakendur. En
reykjarstybban bar vott um að þar
ÁTT ÞÚ VON Á GESTUM?
VIÐ BJÓÐUM ÞRJÁR GERÐIR AF ÍDÝFU.
Vogaídýfu m/kryddblöndu
Vogaídýfu m/lauk
Létta Vogaldýfu m/beikoni
sem eru jafnframt góðar sem sósur með
öllum mat
20 HELGARPÓSTURINN