Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 28
Borgarbókasafnið ( Reykjavfk. Þegar fjölskylda Ólafs Johnson bjó (húsinu voru þarna
líka garðhýsi og hesthús, enda lóðin stærri í þá daga.
*
Ur Rússahöndum
til íslensks
stórefnamanns
Sá merki maður, herra A. Obenhautt, sem margir halda að hafi verið þýskur en ku (raun
hafa verið rússneskur gyðingur.
Landflótta rússneskur
gyðingur lét reisa
hina glœsilegu bygg-
ingu, sem nú hýsir
Borgarbókasafnið.
Seldi það síðan og
flutti úr landi.
Hús Borgarbókasafnsins viö Þing-
holtsstrœti í Reykjavík er meö glœsi-
legri byggingum höfudstaðarins —
og þótt víðar vœri leitað. Það var
hins vegar ekki reist í þeim tilgangi
að trýsa bœkur. Landflótta gyðingur
frá Rússlandi hóf byggingu þess í
upphafi aldarinnar, en seldi húsið
og hélt til Danmerkur áður en það
var fullgert. Kaupandinn var Ólafur
Johnson, í O.Johnson og Kaaber.
Húsið var í eigu hans frá árinu 1916
og fram undir 1950 og þar uxu börn
Olafs úr grasi, sjö að tölu.
1 þessari sérstöku umgjörð um ís-
lenskt heimilisltf á fyrri helmingi
aldarinnar voru þar að auki bœði
vinnukonur, erlendar barnfóstrur
og matráðskonur. Harla frábrugðið
lífsstíl hins almenna borgara —
bœöi þá og nú.
Hannes O. Johnson, einn sex sona
Ólafs Johnson, þekkir vel til sögu
hússins, sem flestir þekkja einfald-
Iega sem Borgarbókasafnið við
Þingholtsstræti. Hann kveður það
algengan misskilning, að Herra A.
Obenhautt, sá sem lét byggja húsið,
hafi verið Þjóðverji. Hann hafi verið
rússneskur gyðingur.
„Eftir því sem ég veit best," sagði
Hannes, „kom Obenhautt hingað á
meðan keisarinn var við völd í Rúss-
landi. Síðan fór hann aftur heim í
kringum 1914-15, en eins og við vit-
um étur byltingin börnin sín . . . Það
hefur eflaust ekki verið gott fyrir
gyðinga að vera þarna fyrir austan
á þessum tíma frekar en núna, þó
vitneskja um það hafi ekki verið í
hámæli í þá tíð. Obenhautt kom
a.m.k. til baka til íslands og þá
byggði hann í þriðja sinn hús hér á
landi. Það stendur við hlið Herkast-
alans í miðbænum.
Dóttir hans dó hér á landi og var
grafin hérna, en kistan var síðar
flutt til Danmerkur. Obenhautt sett-
ist nefnilega á endanum að þar.“
ÚR VILLA FRIEDA í
ESJUBERG
Hannes kvað það einnig misskiln-
ing að þessi erlendi herramaður
hefði orðið gjaldþrota. „Hann fór
einfaldlega í burtu. Þetta var maður
í viðskiptalífinu og hann flutti bara
af landi brott. Hann byggði líka hús-
ið neðst á Hverfisgötunni þar sem
Heildverslun Garðars Gíslasonar er
til húsa. Skrifstofa Obenhautts er
meira að segja enn óbreytt frá því
sem hún var þegar hann sat þar.“
Hannes Johnson sagði húsið við
Þingholtsstræti alls ekki hafa verið
fullgert þegar faðir hans keypti það.
Þó hafði Obenhautt þegar gefið því
nafn, Villa Frieda. Olafur Johnson
skírði húsið hins vegar upp á nýtt og
kallaði það Esjuberg. Nafnið er feng-
ið ofan af Kjalarnesi. Ein af útjörð-
um Móa, sem voru í eign ættarinnar,
heitir einmitt þessu nafni.
Teikning hússins er þýsk, sam-
kvæmt upplýsingum Hannesar, en
þegar Ólafur tók við því var það
„ekkert nema skelin". Gluggar voru
ekki einu sinni komnir í húsið og
eru allar innréttingar þess vegna
gerðar með óskir nýja eigandans í
huga, en Ólafur flutti inn í húsið árið
1916.
Árið 1930 var reist sexstrent garð-
hús á lóðinni, sem teiknað var af
Einari Erlendssyni, fyrrum Húsa-
meistara ríkisins. Það kvað Hannes
Johnson aðallega hafa verið byggt
fyrir yngstu kynslóðina til að leika
sér í. Garðhýsið var síðan flutt inn í
Laugardal eftir að Reykjavíkurborg
hafði eignast húsið.
Ekki skorti heldur börnin á þessu
heimili í Þingholtunum. Þau voru
alls sjö, sex synir og ein dóttir, af
tveimur hjónaböndum Ólafs John-
son. (Nú eru tveir synirnir látnir,
þeir Friðþjófur og Örn.) Friðþjófur
og Pétur, bróðir hans, dvöldu hins
vegar einna minnst í húsinu við
Þingholtsstrætið, vegna skólagöngu
og búsetu erlendis.
HESTHÚS Á LÓÐINNI
Eitthvað hefur nú líklega farið fyr-
ir systkinunum, eins og gerist og
gengur með hress ungmenni.
Vinnufólk bjó þar að auki einnig á
staðnum, m.a. erlendar „stofustúlk-
ur“, matráðskonur og fleiri, svo tæp-
ast hefur tómahljóðinu verið fyrir
að fara. Á jarðhæð voru tvö stór her-
bergi, svokölluð stúlknaherbergi,
fyrir vinnukonurnar. En eldri kyn-
slóðina vantaði heldur ekki í húsið.
Gömul ömmusystir yngri systkin-
anna bjó þarna t.d. í mörg ár.
Gestkvæmt var líka í þessu rúm-
góða húsi, en meðal „heimaganga"
voru menn eins og Þór Vilhjálms-
son, hæstaréttardómari, Geir Hall-
grímsson, Seðlabankastjóri, Thor
og Dick Thors (synir Richards
Thors), Sigurður Haukur Lúðvíks-
son, málari, og fleiri og fleiri.
Auðvitað var ekki alltaf dvalið
innan fjögurra veggja, heldur fundu
krakkarnir upp á ýmsu skemmti-
legu, bæði inni og úti. Sagði Hannes
að lóðin fyrir framan húsið hefði
m.a. verið vel nýtt af strákunum
sem fótboltavöllur. Ólafur Johnson
hafði líka hesta í skúr á lóðinni og
var gjarnan riðið út á laugardögum
og sunnudögum. Reiðtúrarnir, sem
Hannes man eftir, voru t.d. inn að
Elliðaám. Það þótti mjög langt í þá
daga! „Þá var meira að segja langt
út í gamla Kennaraskóla," eins og
Hannes Johnson orðaði það.
Uppbyggingin í Þingholtunum var
heldur ekki söm og nú. Af „hlaðinu"
fyrir framan Esjuberg var þannig
hægt að horfa beint út á Tjörnina.
Trén skyggðu þar að auki ekki á út-
sýnið úr gluggunum á þessum tíma.
Þau voru, að sögn Hannesar, „pínu-
lítil".
Þessir alvarlegu ungu menn, sem standa fyrir framan garðskálann
( Þingholtsstrætinu, eru (taliö frá vinstri) Aarent Claessen yngri,
Oddur Thorarensen tstOar lyfsali), Geir Hallgrtmsson (núverandi
SeOlabankastjóri) og stuttbuxnaklæddur Björn Tryggvason (aO-
stoOarbankastjóril. Allir voru þeir heimagangar á heimili Ólafs
Johnson eldra.
Olafur Johnson yngri, núverandi forstjóri 0. Johnson og Kaaber,
hefur á þessari gömlu mynd stillt sér upp við hlið Þórs Vilhjálms-
sonar, sem nú er orðinn Hæstaréttardómari, enda mikið vatn runnið
til sjávar frá þvl þessi mynd var tekin í garðinum fyrir utan heimili
Ólafs í Þingholtsstrætinu. Þór er sá ískrautlegu fötunum og með sér-
kennilega höfuðfatið, en Ólafur sá peysuklæddi, (stuttbuxum (sést
ef myndin prentast vel) og með vettlingana festa við peysuna.
28 HELGARPÓSTURINN
leftir Jónínu Leósdóttur
myndir Jim Smartl