Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 36

Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 36
Er hann kaldur og hrokafullur? Mjúkur og indœll? Listfengur? Hamingjusamur, heilbrigöur, hraustur? Hefur þú séð hann í sundi? Er konan hans í kvennaframboöinu, faöir hans heildsali og móöirin í Hvöt? Er hann töff, kúl, eöa bara sléttur og felldur? Hinn nýi maöur stígur fram í dagsljósiö af síöum HP ’68-kynslóðin fullyrðir að þau hafi verið betri mann- eskjur en unga kynslóðin sem nú er. Að þau hafi hugsað um náungann eins og sjálfan sig, nokkuð sem sé ekki fyr- ir hendi í dag. Hinn nýi maður hann hugsi bara um sjálf- an sig, skeyti engu um samborgara sína, hann sé fastur í efnahagslögmáli eins og dýr í gildru. Munurinn er bara sá að nýi maðurinn áttar sig ekki á því að hann er fastur í gildru. Eða gerir hann það? Er hans gildra þá nokkuð öðruvísi en sú sem þessi ’68-kynslóð lenti í, eru kannski engar svona kynslóðir til og hinn nýi maður ekki heldur? Erfitt er að segja til um hvort ’68-kynsóðin, sem svo mikið hefur verið um rætt, hafi í rauninni nokkurn tíma verið til, nema í hugum seinni tíma manna, sem bjuggu þetta hugtak til með það fyrir augum að tíma- og staðsetja ákveðnar hræringar í samtímanum. Vegna þessarar staðsetningar hefur hún þó fengið ákveðna ímynd og ákveðið útlit, ákveðna hugmynda- fræði að kenna sig við og standa fyrir í augum þess fólks sem síðar kom í heiminn. í seinni tíð hefur þó orðið ljóst að þessi skilgreining, um kynslóð fólks sem gerði uppreisn gegn ákveðnum gildum og hefðum ríkjandi valda- stéttar og hafnaði ríkjandi verð- mætamati, á rétt á sér. Einkenni þessarar kynslóðar hafa nefnilega orðið skýrari þegar tímar hafa liðið, einkum og sér í lagi í ljósi þeirra sem nú eru ungir og eru þannig sam- bærilegir við þá sem mynduðu kjarnann í margnefndri kynslóð fyr- ir tuttugu árum. Hún hefur þannig orðið skýr í ljósi samanburðar og þessi samanburður gefur einnig skýra mynd af því sem hér er kailað hinn nýi maður. BYLTINGIN SEM HVARF Hin gríðarlega vitundarvakning 7da áratugarins var grundvölluð á því sem seinna fékk heitið félags- hyggja, þegar kommúnismi varð skammaryrði. Allir áttu að verða jafnir, jafnt fyrir guði sem annars staðar, og hugmyndirnar byggðust á bróðurþeli og vináttu. Vináttu sem kannski ekki var.byggð á grjóthörð- um staðreyndum heldur miklu fremur draumórum og hugsjónum um betra og mannlegra samfélag, sem hefði að grunni annað verð- mætamat en það þjóðfélag sem þá ríkti. Hugmyndirnar komu víða að, margar höfðu verið að þróast alla öldina og jafnvel lengur og fundu skjólstað í ungu fólki sem vildi gera uppreisn gegn þeim sem réðu því hvaða leið og í hvaða mynstur það ætti að fara þegar tími væri kominn á barneignir, bíl og íbúð. Allskyns dulspeki og fantasíukenndar heim- spekihugmyndir hrærðust saman við grjótharða stéttabaráttuna og marxismann. Byltingin var handan við hornið og hinir kapítalísku níð- ingar sáu sæng sína upp reidda og höfðu um sig hægt. Tuttugu árum síðar. Byltingin ekki orðin til nema í minningunni, síða hárið horfið og bróðurþelinu ýtt til hliðar fyrir grjóthörðum lögmálum efnahagslífsins. Hugsjónirnar lok- aðar bak við blokkarhurðir í Breið- holti eða fastar inni í litlum upp- gerðum bárujárnshúsum í Þingholt- unum. Hinn nýi maður kominn til sögunnar, plastið, glerið og járnið — geimaldarveruleikinn — tekinn við af timbrinu og gömlu hlutunum. Hug- myndirnar orðnar undir i lífsbarátt- unni, opinber starfsmaður hefur ekki efni á að reka hugsjónabaráttu, kannski líka búinn að gefast upp fyr- ir veruleikanum sem var alls ekki sá sem stóð í bókunum og draumarnir gægjast í hæsta lagi fram við ákveðnar kringumstæður; lag í út- varpinu, rykfallna bók, einhvern neista í Þjóðviljagrein eftir gamlan kunningja. Þjóðfélagið að breytast svo hratt að það er ekki hægt að festa hönd á neinu, ekki lengur hægt að stilla upp andstæðunum sem einu sinni dugðu, stéttirnar að renna saman í eina hrúgu og hinn eftir Kristján Kristjánsson Teikningar: Jón Óskar breiði massi orðinn allur annar en hann áður var. Tuttugu ár og samfé- lagið hefur gjörbylst, stendur á haus í miðri byltingu tækni, fjölmiðlunar og hugmynda sem enginn veit hvert munu leiða það. MARKAÐSSETTUR DRAUMUR Að sama skapi og kommúnisminn var sterkur á 7da áratugnum reis upp önnur hugmyndafræði sem ekki síður náði sterkri fótfestu á áð- urnefndum tuttugu árum. Frjáls- hyggjan, svar hægri aflanna við marxismanum, opinberaði hug- myndir sínar um hið frjálsa mark- aðshagkerfi og eftir því sem tímar liðu og lífsbaráttan hremmdi hug- sjónamennina úr röðum hippanna varð frjálshyggjan sterkari. Reis upp úr millibilsástandi sem skapaðist á ofanverðum 8da áratugnum, fram- takssemi pönkaranna og neðanjarð- armenningin og sá kraftur sem í henni bjó urðu grundvöllur fyrir einstaklingshyggjuna sem á endan- um gerði lítið úr félagshyggjunni. Smám saman missti vinstrið tökin og leystist upp í friðarbaráttu á al- mennum grunni, eitthvað sem allir gátu sætt sig við, en hægrað, ein- staklingurinn, markaðurinn og dýrkun æsku og fegurðar í gegnum sísterkari fjölmiðla, varð ofan á. Áróðurinn fyrir hægri stefnunni, vonbrigðin með vinstri stefnuna, upphafning líkamans og þreyta fólks á hinum félagslegu sjónarmið- um héldust í hendur. Hugmynda- fræðin var framleidd, hugsjónirnar markaðssettar og þegar lýðurinn átti ekki til hnífs og skeiðar, var orð- inn þreyttur á að berjast fyrir ein- hverju sem var greinilega vonlítið að myndi nást, sáu undirróðursöfl hins nýja manns sér leik á borði. Draumarnir, sem áður höfðu verið andans efni, voru færðir yfir á ver- aldlegt plan, og settir á markað sem eitthvað sem fólk gat ekki verið án. Þegar búið var að hamra járnið meðan það var sannanlega heitt, búið að telja fólkinu trú um að kók væri it, eða að þú værir vonlaus nema þú litir vel út, búið að skipu- leggja lævíslegar skírskotanir aug- lýsingastofanna í hugmyndafræði og lífsstíllinn orðinn klár varð hinn nýi maður til, grundvöllurinn var lagður. Varan, þ.e. lífsmátinn, var tilbúin á markað. ÚLFALDINN OG NÁLARAUGAÐ Hann spratt fram, skyndilega, en samt alskapaður. Klæddur í jakkaföt og með bindi, einfaldur smekkur, smekklega klipptur og greiddur, karlmannleg- ur. Leðurstressari í hægri hendinni á leiðinni úr skrifstofunni í leikfimina, sólarlampana eða veggjatennisinn. Hugurinn bundinn við peningamál, verðbréf, vexti, eða nýja vöru sem hann hefur með höndum að mark- aðssetja. Hann veit sem er að það er hægt að markaðssetja allt, jafnvel lífsstíl, ef rétt er að farið, og hann veit að þegar hann gengur eftir göt- unni er hann gangandi auglýsing fyrir lífsstíl sem hann tók sjálfur þátt í að búa til. Hann skammast sín ekki fyrir að viðurkenna að peningarnir eru allt í hans lífi, það snýst um við- skipti og verslun. Hann getur líka verið óhræddur við að viðurkenna það því þeir sem hann tilheyrir eru sterkari, þeir eru búnir að drepa sameignar- og samhjálparstefnuna og er sama þó að það standi í bók frá Austurlöndum að það sé erfiðara fyrir ríkan mann að komast í guðs- ríki en úlfalda gegnum nálarauga. Samt er hann sæmilega kirkjuræk- inn, stundum jafnvel trúaður, svona mitt á milli þess sem hann leggur höfuðið í bleyti út af nýjustu hag- fræðikenningunni um jafnvægi í rík- isbúskap og frjálsa vexti. Heima bíða konan og húsið og krakkarnir, sér þau ekki oft en ekki er mikið við því að gera, viðskipta- lífið er harður húsbóndi, einfaldur smekkur dýr og sumarleyfin, bílarn- ir og brauðið ekki síður. TÍMAMORÐINGINN Hann sprettur fram alskapaður. Ólíkt þeim sem fram komu með hugmyndir sínar tuttugu árum fyrr og urðu þess valdandi að eitthvað eitt varð ofan á kemur hinn nýi maður ekki fram með neitt nýtt sjálfur, heldur er hann búinn til af öðrum og línurnar eru lagðar ann- ars staðar en á sellufundum póli- tískra hreyfinga. Hann sprettur því fram alskapaður, af öðrum, sem enginn veit samt hver er. Ut úr sjónvarpinu, af síðum blaða og tímarita og úr heimi kvikmynd- anna geysist hinn nýi maður fram. Enginn veit nákvæmlega hver kom honum þar fyrir, eða af hverju hann er eins og hann er. Hann er bara þarna, hamingjusamur, sterkefnað- ur, vel giftur með fjölskylduna vel tennta, hátt enni, beint nef, fær aldrei kvef, eins og segir í textanum. Hann er maður afþreyingarinnar og léttmetisins, vill drepa tímann, og það er hann sem hefur komið með orðin létt og skemmtilegt inn í málið, enda gerir hann þá kröfu til allra hluta að þeir séu léttir og skemmtilegir. Hann er yfirlýstur andstæðingur Menningarinnar, en ef hann er spurður um uppáhaldsrit- höfund þá nefnir hann hiklaust Halldór Laxness, Kjarval hendir hann á lofti eins og merkingarlaust orð ef hann er spurður út í myndlist og fer frekar í Plakat-gallerí og kaupir litríkt plakat. Jónas Hall- gríms, ástmögur þjóðarinnar, er bara einhver af þessum gömlu og sá nýi skynjar ekki muninn á Þórs- kabarett og Þjóðleikhúsi nema í hlátrasköllum. FLÖSUSJAMPÓ OG GOSDRYKKUR Þrátt fyrir kerfisbreytingar sem 36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.