Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 38

Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 38
PA©£ 3CRARMEÐMÆU Enska knattspyrnan — bein út- sending Bikarúrslitáeikur á Wembley er alltaf spennandi og mikil stemmning sem honum fylgir. Reyndar verður að segj- ast að það hefur heldur dofnað yfir leiknum, eftir að það varð skylda að hafa íslenskan þul, eða lýsanda ef svo má segja. Laugardagur kl. 21.10. Óhræsi í Undralandi IMalice in Wonderland) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1984 með Elizabeth Taylor og Jane Alexand- er. Þær leika kerlingar sem höfðu Holly- wood á valdi sínu á árum áður, sem rit- stjórar slúðurdálka. Þær hittast og rifja upp liðna tíð. Þetta er mjög góð mynd og þær stöllur Taylor og Alexander þykja standa sig mjög vel. Úr kvikmyndinni Sumarið langa á Stöð 2 á föstu- Huggulegur rabbþáttur um vorið og manneskj- dagskvöldið. Paul Newman og Anthony Fran- una í vorinu á fimmtudagskvöld á Rás 1, a la ciosa. Jónas Jónasson. © RÚV - Rás 1 Fimmtudagur kl. 20.00 Tæpur hálftími í umsjón Jónasar Jónassonar. Huggulegur hálftími með Jónasi, þeim vinsæla útvarpsmanni, þar sem hann fléttar saman tal og tóna og spjallar við hlustendur um vorkom- una. Fimmtudagur kl. 22.20 Kæri herra Hólms i umsjón llluga Jökulssonar. Illugi er einn af áheyrilegri útvarpsmönnum yngri kynslóðarinnar, laus við allan fíflagang og þess háttar,. sem einkennir marga af jafnöldrum hans. Hann vinnur þar að auki þætti sína þannig að þeir eru ekki einasta góð skemmtan, heldur líka fróðlegir. Föstudagur kl. 21.45 Sumarið langa (The Long Hot Summer) Bandarísk kvikmynd frá 1958. Gerð eft- ir skáldsögu Williams Faulkner og sömuleiðis tveimur smásögum hans. Hlutverkaskipanin er markviss, Orson Welles fer á kostum og að auki stendur Angela Lansbury sig vel sem fyrri tíma hjákona hans. Aðrir leikarar eru ma. Paul Newman og kona hans Joanne Woodward og Lee Remick. Föstudagur kl. 20.00 Helgin Innlend dagskrárgerð er alltaf spenn- andi. Fréttamenn Stöðvar 2 sjá um þennan 20 mínútna þátt og þeir ætla að reyna að komast að því hvernig al- menningur eyðir helgunum. GÓÐLÁTLEGUR HÚMOR Flosi Ólafsson leikstýrði fram- haldsleikritinu Dickie Dick Dick- ens og hann hafði eftirfarandi um það að segja: „Já, ég var leikstjóri og frú Lilja var þýðandi. Eg var líka sögumaður, ásamt Gunnari Eyj- ólfssyni, við skiptum því á milli okkar. Þetta gerist á bannárun- um í Ameríku, á tímum Al Capones, Dillingers og fleiri manna sem voru taldir óvinir þjóðfélagsins nr. 1. Dickie var hinsvegar smákrimmi, elskuleg- ur og hjartahreinn, en átti mögu- leika á að ná þessari vegtyllu sem var að verða óvinur sam- félagsins nr. 1. Þetta er svona paródía á þessa upphafningu á krimmum, bæði stórum og smá- um, ósköp góðlátlegur húmor. Annars heyrði ég bara af endur- flutningnum á skotspónum, ég hélt eiginlega að búið væri að henda þessu.“ Sunnudagur kl. 16.20 „Dickie Dick Dickens" framhalds- leikrit. Endurflutningur á leikritinu íleik- stjórn Flosa Ólafssonar. Flutt slðast 1970 og þeir sem þá voru börn og ungl- ingar munu vafalítið njóta þess að rifja upp dularfulla og hrollvekjandi rödd sögumannsins. Af RÚV - Rás 2 Laugardagur kl. 18.00 Tilbrigði (umsjón Hönnu G. Sigurðar- dóttur. Afbragösgóður þáttur hjá Hönnu, sem vert er að vekja athygli út- varpshlustenda á. i þættinum leikur hún tilbrigði við eitt og annað og fer víða í tónlistarsöguna til að leita fanga. Af þeim sökum er þátturinn fjölbreytt- ur, ekki einungis í hvert skipti heldur líka milli vikna. Sunnudagur kl. 20.00 Noröurlandanótur f umsjón Aðal- steins Ásbergs Sigurðssonar. Aðal- steinn leikur tónlist frá Norðurlöndum eins og nafnið gefur til kynna. Hann nýtur þess að um gott efni er að ræða, en er að auki áheyrilegur útvarpsmaður og vel að sér um það sem hann er að fást við. 9tf-y IBYL GJANl Bylgjan FM 98,9 Föstudagur og laugardagur. Dagskrá til styrktar vímulausri æsku. Hlustendum Bylgjunnar gefst kostur á að slá tvær flugur f einu höggi á föstu- dag frá 10 árdegis til miðnættis á laug- ardagskvöld. Þá verður á stöðinni dag- skrá til styrktar vímulausri æsku, hlust- endur hringja inn óskalög og borga fyrir að þau séu leikin. Ágóðinn rennur til styrktar samtökunum um vfmulausa æsku. ÚTVARP eftir Jónínu Leósdóttur * Odauðleg eða hvað? Heimir og Andres önd heilluðu mig Loksins er farið að tala um dauðann. Það er alveg makalaust hvað þessi eina lífs- reynsla mannskepnunnar sem tryggt er að við munum öll standa frammi fyrir — fyrr eða síðar — hefur verið mikið tabú þar til nú upp á síðkastið. Við höfum verið önnum öll eigum við eftir að fara f ökutúr með „R 14", sem stendur þarna fyrir utan Dómkirkjuna, eða öðru ámóta farartæki. Sú staðreynd breytist ekki, þó svo við reynum að loka augun- um fyrir henni. Kvfðinn magnast einmitt ef hann er byrgður inni og þjóðfélagið lætur þar að auki eins og slfkar tilfinningar séu ekki til. kafin við að ýta frá okkur allri hugsun (að maður tali nú ekki um samræðum) um dauðann í vægast sagt ömurlegri tilraun til að afneita þessum endalokum. Það er eins og fólk hafi haldið í örvæntingarfulla von um að verða ódauðlegt, ef það bara léti eins og dauðinn væri eitthvað sem kæmi ekki fyrir í góðum fjölskyldum. Fjölmiðlarnir hafa lengst af gert lítið til þess að pota svolítið í Jón, Gunnu og okkur hin og fá fólk til að horfast í augu við þessa óumflýjanlegu staðreynd. Þetta er aðeins að breytast. Sem betur fer. Það er hætt að þykja alfarið „neikvætt" eða „drungalegt" að fjalla um dauðann. Og svei mér ef það er bara ekki að verða viðurkennt að þetta kemur fyrir á bestu bæjum, hjá ungum og gömlum, ríkum og blönkum. Ég er sannfærð um að opnari umræða um dauðann verður til góðs. Það getur ekki verið heppilegt að byrgja inni sorg eft- ir ástvinamissi eða hræðslu við eigin dauða, fremur en aðrar erfiðar tilfinningar. Umræða er einmitt ein leið til að losa um spennuna. Þess vegna fagna ég útvarpsefni eins og þáttaröðinni um sorg og sorgarvið- brögð, sem nýverið hófst í ríkisútvarpinu. Margir virðast líka hafa lagt við eyrun, því þættirnir eru töluvert ræddir manna á meðal og viðbrögðin almennt jákvæð. Hringiða Brodda Broddasonar og Mar- grélar Blöndal er allt annar handleggur, sem ég hef reyndar haft lítil sem engin kynni af, en mikið óskaplega hafði ég gam- an af brotabroti úr þætti sem ég heyrði fyr- ir tilviljun nú í vikubyrjun. Þar var fyrr- nefndur Broddi að reyna eftir fremsta megni að koma konu nokkurri í skilning um að hún væri að tala í beinni útsendingu, án þess að hafa erindi sem erfiði. Satt að segja var ég farin að halda að ég væri eitthvað óvenjulega taugatrekkt á laugardagskvöldið þegar fara átti að telja stigin í Eurovision. Að vísu var ég búin að sætta mig við að við myndum ekki sigra á hægan og hljóðan hátt, enda gerðu margir (og þar á meðal ég) sig að fíflum i fyrra þeg- ar maður var svo viss um að Gleðibankinn sigraði að það tók margar vikur að jafna sig eftir úrslitin. Nú átti sem sé að taka þessu með jafnaðargeði og sætta sig við fimmt- ánda sætið. En þá byrjaði Kolbrún Hall- dórsdóttir á viðtalinu sínu við Kristján Bernburg í Brussel — og það ofan í stiga- gjöfina. Hvað heldur fólk eiginlega að maður sé að horfa á í sjónvarpinu? Stiga- gjöfin er það mest spennandi af þessu öllu, einkum eftir að frændur vorir Norðmenn gáfu okkur fjögur. En nei takk, þarna mátti maður værságod hlusta á Kristján lýsa sig- urlíkum fyrir Kolbrúnu! Loksins þegar við fengum sex stig var Kolbrún líka að tala. Munið þetta næst, kæru þulir! Svo finnst mér einhvern veginn óþarfi að fá fólk í sjónvarpssal eftir keppnina í þeim tilgangi einum (að manni virðist) að finna „eitt- hvað“ til að setja út á. í fyrra voru það bún- ingarnir, „þau voru eins og þjónar", og nú „hefði Halla Margrét átt...“ Reyndar var ég alveg sammála Þuríði Pálsdóttur, en það er annað mál. Það má alveg sleppa þessum gagnrýnisröddum svona beint eftir útsend- inguna frá útlöndum. Helgi Pétursson stal úr mér hjartanu en að vísu ekki fyrr en á mánudagskvöld þeg- ar ég horfði á „Meistara" af myndbandi. Reyndar stal hann því ekki alveg, öllu nær væri að segja að Heimir Bragason, blikk- smiður frá Akureyri, hafi heillað mig upp úr skónum. Að detta í hug að velja sér sér- sviðið „Andrés önd og félagar — danska útgáfan" er einhver sú besta hugmynd sem nokkur hefur komið upp með í sjónvarpinu í mörg ár. Þetta dempaði vel hræðsluna sem gerði vart við sig þegar „Bjargvættin- um“ var lokið, enda sú hugmynd að láta morðingja elta blinda konu alveg kjörin til að hrista upp í hræðslunni sem maður er alltaf að reyna að fela. En vel á minnst, veit nokkur um svona Bjargvætt hér á landi? Það væri ekki amalegt að fá einn svona til að bjarga Visa-málunum. Þetta var sem sé bara hin besta sjón- varpshelgi þegar tekið er tillit til þeirrar útreiðar sem Helgi Pé fékk hér um daginn í sambandi við Meistarann. Mér finnst meira að segja Svarti stóllinn ekkert líkur rafmagnsstól lengur og þá er bara nokkuð mikið sagt. Illugi Jökulsson brilleraði að vanda og Arnþór Helgason var ekki eftir- bátur hans enda var þessi „Meistari" alveg prýðileg kennslustund fyrir unga jafnt sem aldna þótt þeir yngri á heimilinu hafi að vísu staðið dyggilega með Heimi Braga- syni. Áfram með svona góðar hugmyndir! 38 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.