Helgarpósturinn - 21.05.1987, Qupperneq 3
FYRST OG FREMST
JÓN BALDVIN Hannibalsson
vill ólmur komast í stjórn með
Sjálfstœdisflokknum annars vegar
og hins vegar Kvennalista eða
Alþýdubandalagi. Reyndar hefur
hann lýst yfir þeim vilja að A-
flokkarnir sameinuðust á einn hátt
eða annan. Og sjálfsagt hefði
hann ekkert á móti því að fá
Kvennalistakonur í eina sæng með
sér. Þessi áhugi hans á samfloti
með „kommunum" hefur vakið
nokkra kátínu hjá sumum, meðal
annars ungum jafnaðarmönnum,
sem muna eftir því þegar Jón
brást í fyrra ókvæða við og kom í
veg fyrir sameiginlega ferð ungra
jafnaðarmanna og ungra aliabaila
til Þingvalla. „Þarna myndast
engin tengsi, hvorki tjaldatengsl,
svefnpokatengsl né önnur tengsl."
Nú vill Jón Baldvin tjaldatengsl
við fullorðna allaballa, svefnpoka-
tengsl við konurnar og önnur
tengsl við sjálfstæðismenn. Skyldi
verða haidin veisla í Valhöll í
sumar?
SERA Baldur Kristjánsson á
Höfn í Hornafirdi er ritfær maður
vel og skemmtilegur. Hann var
blaðamaður um skeið í borginni
áður en hann hélt austur í prest-
skap, en hefur samt sinnt þar sínu
gamla starfi meðfram guðsorðinu
sem skrifari í Eystra-horn, mál-
gagn þeirra Hornfirðinga. Nýlega
fékk Baldur litla ofanígjöf á for-
síðu blaðsins þar sem Reynir
nokkur Sigurþórsson skrifar í kjöl-
far fréttar Baldurs um byggingar-
mál eystra. Reynir endar bréf sitt
svona: ,,... Ég ætla þó ekki að
fara að karpa við prestinn á þessu
stigi málsins þar sem það yrði
máli þessu ekki til framdráttar."
Blaðamaðurinn Baldur svarar
Reyni að bragði í sama tölublaði,
reyndar í löngu máli, en endar
athugasemd sína svo í nettum
stríðnistóni: „Ekki verður séð
hvernig hinn ágæti sóknarprestur
okkar Hornfirðinga tengist þessu
rnáli," skrifar Baldur blaðamaður,
„og hörmum við ónot í hans
garð.“
Morgunblað-
inu
breytt í
kvennablað
BrUssel
Belgíska dagblaðið De Morg-
•'n, eða Morgunblaðið. b’”'-'
VITASKULD snarbrá dyggum
Moggalesendum á miðvikudags-
morgun — og gott ef þeim kær-
ustu svelgdist ekki líka á — þegar
þeir flettu inn á síðu 29 og ráku
augun í litla frétt með fyrirsögn-
SMARTSKOT
inni hér að ofan. Var karlmennska
Morgunblaðsins nú endanlega að
baki, eða — og þeim létti náttúru-
lega sem nenntu að rýna í smáa
letrið, hvar stóð: Belgíska bladid
De Morgen, eóa Morgunblaöiö,
birtist lesendum undir nafninu De
Madam, eöa Frúin, í gœr, enda
höföu fimm konur, sem eru blaöa-
menn viö blaöiö, tekiö ritstjórnina
í sínar hendur. . .
Það var einmitt það. Og spurn-
ing nú hvort Elín Pálma, Agnes
Braga og stöllur niðri í Aðalstræti
eigi ekki næsta leik . . .
ÁSTANDIÐ í húsnæðismálum
Islendinga á undanförnum árum
er þannig, að spunnist hafa
margar sögur í rússneskum anda
af málinu. Þannig segja menn um
brennivínshækkunina, sem í raun
hækkar húsnæðislánin, frá mann-
inum sem missti íbúðina sína
vegna greiðslubyrðar af lánum.
Hann lagðist í drykkjuskap og
þarf nú að gjalda áfram brenni-
vínshækkunar eftir að hann missti
húsnæðið. Þá tala húsnæðislána-
skuldarar um að þeir eigi við
áfengisvandamál að striða, sem sé
tvöfalt í eðli sínu; annars vegar
hækki bannsett húsnæðislánin
enn einn ganginn og hins vegar
hafi þeir ekki efni á að kaupa
áfengi. . .
ALBERT Guðmundsson stríðir
nú Þorsteini Pálssyni ótt og títt í
stjórnarmyndunarviðræðunum. í
nýafstöðnum kosningum má heita
að Albert hafi kippt buxunum
niður fyrir hné Þorsteins og flengt
hann reglulega og auðvitað á
Hvað sem síðar verður má segja
að staðan í viðureign þeirra félaga
sé svipuð og afli netabátanna
Alberts og Þorsteins í Keflavík.
Nýverið var frá því greint að
Albert væri kominn með 15,8
tonn eftir 3 sjóferðir, en Þorsteinn
aðeins 7 tonn eftir heilar 4 sjó-
ferðir. Með öðrum orðum er einn
Albert samkvæmt þessu á við þrjá
Þorsteina.
HELGARPÚSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR
Stjórn ó stjórn Steini af stakri snilli er í stjórnmálahreyfingum. Hann er mikið ber á milli í makki og þreifingum. ,,Eg vœnti þess aö viö förum saman í rútu eftir landsfundinrí' SVAVAR GESTSSON FORMAÐUR AUÝÐUBANDA- LAGSINS VIÐ DV í VIKUNNI VEGNA KUNNRA KRITA I FLOKKNUM NÝVERID
Niðri.
Getur maður orðið
blautur af þurrum
kokkteilum?
Ragnar Örn Pétursson
/AJá, ef það er drukkið of mikið af þeim. Maður getur senni-
lega orðið blautur af þessu."
— Hvað tóku margir þátt í keppninni núna?
„Við vorum tólf sem kepptum. Það eru yfírleitt færri sem taka
þátt í keppni um þurra kokkteila en sæta eða „long drinks".
Ástæðan er sjálfsagt sú að menn telja að það sé erfiðara að
koma saman þurrum drykkjum en sætum. Þurru drykkirnir eru
hefðbundnari en þeir sætu. I sætum drykkjum hefur maður
meira val, hægt að notarjómaog fleira. Þaðfælir menn kannski
frá hversu hefðbundnir þessir þurru drykkir eru."
— Hversu oft hefurðu tekið þátt í keppni?
„Ég hef tekið þátt í kokkteilakeppni síðan 1978."
— Ertu alltaf að blanda?
„Nei, nei, ég geri það öðru hvoru og hef gaman af þessu. Ég
rek nú veitingahús hér í Keflavík og laga ekki mikið af kokkteil-
um. Hins vegar kvartaði starfsfólkið sáran undan því eftir síð-
ustu keppni að það væri orðið svo þreytt á að hrista því við seld-
um svo mikið af þessum ,,Starlight"drykk. Ég vona að það sé
bara viðbúið „Moonlight"!"
— Nú var þetta líka valinn „útlitsfegursti drykkur-
inn". Skiptir útlit drykkja máli?
, Já, það er gefið frá 1 upp í 5 fyrir útlit og frá 6 upp í 10 fyrir
bragð og þetta tvennt verður auðvitað að fara saman. Það verð-
ur að ná sem flestum stigum í þessu tvennu til að fá bestu
heildarstigin. Við lögum fjögur glös hver og eigum tækifæri á
að ná sextíu stigum. Þess vegna skiptir skreytingin líka máli.
Menn hafa verið með misjafnar skreytingar og hefur jafnvel ver-
ið talað um að menn setji heilu matjurtagarðana í glösin. Ég
held að númer eitt, tvö og þrjú sé að skreytingin sé í samræmi
við drykkinn. Þá skiptir ekki máli hvort það er eitt lítið kokkteil-
ber eða heill matjurtagarður."
— Með hverju skreyttir þú Moonlight?
„Moonlight er skreyttur með fersku ananasblómi sem er sett
á glasbarminn."
— Hvaö finnst þér sjálfum best að drekka?
„Mér þykir bjór alltaf mjög góður og svo held ég að Egils
appelsín komi næst þar á eftir."
— Er list að hrista rétt?
„Já, það tel ég vera. Þetta er mikil þjálfun. Margir halda að
til þess að blanda kokkteila þurfi maður að drekka þá líka. Það
er alrangt. Ég hef sett saman kokkteil á blað og sent í keppni
og lent í öðru sæti án þess nokkurn tíma að hafa búið hann til.
Ég man ekki betur en ég hafi líka orðið Norðurlandameistari á
svoleiðis drykk. Það er aðalatriðið að ein tegund skeri sig ekki
úr. Hlutföllin verða að vera þannig að engin ein tegund grípi
mann þegar maður smakkar það. Þetta er eins og í fótboltaleik,
það þýðir ekki að vera með neinn sólara og hinir tíu horfa á, það
verða allir að spila saman."
Og f restina fylgir uppskrift að „Moonlight'-drykknum:
2 cl Vodka Finlandia
1,5 cl Bols Blue Curaqao
1 cl Dry Martini
1 cl Cointreau
Sítrónuskvetta
Hrist. Glasið skreytt með fersku ananasblómi.
Ragnar örn Pétursson, barþjónn og eigandi veitingastaðarins Glaum-
bergs í Keflavík, sigraði f keppni um besta þurra kokkteilinn hjá Bar-
þjónaklúbbi islands á sunnudaginn. Ragnar kallar þennan drykk
„Moonlight" en Ifyrra sigraði hann I keppni um besta sæta kokkteilinn
með drykk sem hét „Starlight". Ragnar fer á alþjóðlega keppni I haust
þar sem hann verður einn þriggja íslendinga sem keppa I barþjóna-
keppni.
HELGARPÓSTURINN 3