Helgarpósturinn - 21.05.1987, Blaðsíða 18
GERT ÚTÁ KAFFIOG KAKÓ í KARÍBAHAFI
ÁTÖK UNDIR ÍSLENSKI
VÍKUR HF: MEÐ 3 SKIP Á KARÍBA-
HAFI. DRANGUR: BROSTNIR EYJA-
FJARÐARDRAUMAR. AFLEYS-
INGASKIPSTJÖRI: OFHLEÐSLA,
BILANIR, MÚTUR. HIÐ OPIN-
BERA: LÆTUR SÉR NÆGJA AÐ
LOSNA VIÐ SKULDIRNAR. FINN-
BOGI KJELD: UNDIR ERLENDUM
FÁNA MÁ SPARA TALSVERÐAN
PENING. FYRIRTÆKIÐ STÆKKAR EF
VERKEFNIN HALDA ÁFRAM AÐ
AUKAST.
eftir Friðrik Þór GuSmundsson
Skipaíélagiö Víkur/Saltsalan hf.
hefur undanfarna mánudi uerid ad
fœra út kvíarnar í Karíbahafi og
hefur alls þrjú skip í vöruflutning-
um ú þessum slóðum. Á sídastlidnu
úri var skipid Drangur leigt ú þessi
mid til norskra adila, sem ekkistódu
í skilum og fóru ú hausinn. Forstjóri
Víkur, aöaleiganda Drangs, Finn-
bogi Kjeld, úkvaö aö fara út í þessa
útgerö sjúlfur og hafa fyrirtæki hans
ytra, Víkurskip in USA og Seacorp
Shipping, rekiö þar Drang, skipiö
Grindavík og auk þess tekiö ú leigu
enn eitt vöruflutningaskip.
Aðdragandinn að Karíbaœvintýri
Víkur hf. er sá að hlutafélagiö
Drangur hafði um áratug staðið að
útgerð flóabáts með sama nafni,
sem sigldi milli Akureyrar, Siglu-
fjarðar, Ólafsfjarðar, Hríseyjar og
Grímseyjar. Árið 1982 kom Finn-
bogi Kjeld inn í hlutafélagið, hlutafé
jókst og átti Finnbogi þá þriðjung
fyrirtækisins, Jón Steindórsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
þriðjung og ríkið og sveitarfélög fyr-
ir norðan samtals síðasta þriðjung-
inn. Um leið var keypt nýtt skip í
Noregi, 64 brúttólesta vöruflutn-
ingaskip, smíðað í Rúmeníu. Að
sögn Alfreös Jónssonar í Grímsey,
fyrrum stjórnarmanns í Drangi hf.,
hafði reksturinn gengið þokkalega
fyrstu árin, en fljótlega eftir að nýja
skipið var keypt tók við verkefna-
skortur og ekki komu lengur inn
tekjur fyrir afborgunum og vöxtum
lána.
„Finnbogi keypti þetta af okkur
eignaraðilunum fyrir norðan.
Reyndar á hann eftir að borga! og
afsal hefur ekki farið fram, þess
vegna erum við enn formlegir með-
eigendur, en að öðru leyti erum við
algjörlega komnir út úr þessu. Það
hefur að sjálfsögðu staðið til að
ganga endanlega frá þessu, en við
höfum ekki verið neitt tiltakanlega
harðir í innheimtunni. Þetta er í
höndum lögfræðings, þó ekki standi
myndir Jim Smart
reyndar til að fara í hart. Þetta eru
enda ekki miklar upphæðir, sveitar-
félögin hérna áttu um 16% og við
seldum okkar hlutabréf á 10% af
nafnvirði en Finnbogi tók yfir skuld-
irnar. Við fáum kannski það mikið
út úr þessu að við getum giaðst eins
og eina kvöldstund," sagði Alfreð í
samtali við HR
Þannig fór þá um flóaabátadraum
norðanmanna. Þegar Finnbogi
Kjeld kom inn í fyrirtækið eignaðist
hann 33% hlut í því, en annan
eins hlut átti Jón Steindórs-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins. Nú hefur Finnbogi keypt þenn-
an hlut af Jóni og á því 67% hlutafjár
auk þesssem hann hefur 16,5% hlut
sveitarfélaganna í sínum höndum.
Þau 16,5% sem eftir eru tilheyra rík-
issjóði. Fulltrúi ríkisins í stjórn
Drangs hf. er Halldór S. Kristjúns-
son, skrifstofustjóri samgönguráðu-
neytisins.
UNDIR FÁNA PANAMA
í síðustu viku birtist frétt þess efn-
is að til stæði hjá Víkur hf. að afskrá
Drang hér á landi og sigla undir fána
Panama og það haft eftir Finnboga
Kjeld. í samtali HP við Halldór Krist-
jánsson fyrir helgi sagðist hann
„koma af fjöllum" og þurfa að
kynna sér málið betur áður en hann
svaraði nokkrum spurningum, með-
al annars þyrfti hann að ræða við
Finnboga. Sagði hann að til þess að
afskrá skipið og sigla því undir er-
lendum fána þyrfti ríkið að selja
eignarhlut sinn og að vilji væri fyrir
því. Jafnframt sagðist hann vita til
þess að það væri vilji Jóns Stein-
dórssonar að Finnbogi tæki yfir sinn
hlut í fyrirtækinu. Þessi síðasttalda
yfirlýsing skrifstofustjórans er lýs-
andi fyrir það hversu einráður Finn-
bogi Kjeld hefur verið um málefni
fyrirtækisins, því eins og að framan
greinir hafði téð yfirtaka farið fram!
Og auðvitað segir það sitt að fulltrúi
ríkisins skuli hafa komið af fjöllum
þegar rætt var um að afskrá skipið
Vlkur/Saltsalan hf. við Hjarðarhaga I Reykjavlk. Fyrir fáeinum árum dróst velta fyrirtaekisins verulega saman vegna minnkandi söltunar og saltfiskútfl
leyti keypti Finnbogi Kjeld (innfelld mynd) stóran hlut f hlutafélaginu og skipinu Drangi. Skipið er nú í eigu hans að mestu og leigt til dótturfyrirtækis
Útgerðin þar gengur vel og Finnbogi kominn með 3 skip f reksturinn!
hér á landi, því slíkt þarf Finnbogi
auðvitað að bera undir meðeigend-
ur.
í Þjóðviljanum var ítrekað sagt frá
því að Finnbogi Kjeld hygðist um-
skrá skipið í Panama. En þegar HP
ræddi við Halldór S. Kristjánsson á
mánudaginn sagði hann:
„Ég talaði við Finnboga um helg-
ina og hann sagði ekkert við mig
um að hann hefði í hyggju að um-
skrá skipið. Ég las þetta síðan í Þjóð-
viljanum í morgun og veit ekki hvað
hann er að fara þarna!"
Halldór sagði að ríkið væri fyrir
sitt leyti tilbúið að selja sinn eignar-
hlut í fyrirtækinu. „Finnbogi hefur
boðist til að kaupa eignarhlut ríkis-
ins og ég er að vona að það geti
gengið sem allra fyrst. Ríkið á ekki
að eiga eignir úti í löndum og til-
gangurinn með fyrirtækinu er orð-
inn allt annar en í upphafi," sagði
Halldór. Aðspurður um hvað Finn-
bogi hefði boðið í hlutinn sagði
hann að ekki væri rétt að greina frá
því fyrr en um hefði samist. Hvort
hann teldi líklegt að ríkið fengi eðli-
legt verð?
„Maður getur aldrei sagt um það,
því skuldirnar eru það miklar sem
hann tekur yfir. Þær eru svipaðar og
verðmæti skipsins eftir því sem ég
veit best.“
MILLJÓNIR í FLÓABÁT
Ef að líkum lætur verður ráðu-
neytið himinlifandi að losna við
Drang! Það hefur undanfarin ár
greitt ófáar milljónirnar vegna
þeirra lána sem tekin voru við kaup-
in fyrir 5 árum. Á ríkisreikningi sést
að framlag ríkisins hækkaði ár frá
ári 1980 til 1984. Á föstu og núgild-
andi verðlagi nam framlag ríkisins
þannig 6,8 milljónum króna árið
1980 en var komið upp i 19,1 milljón
króna árið 1984, hafði nær þrefald-
ast að raungildi á 5 árum. Á árunum
1980-1984 nam framlag ríkisins
vegna Drangs samtals um 65 millj-
ónum króna en til samanburðar má
nefna að á sama tíma nam framlag
ríkisins vegna Akraborgarinnar um
40 milljónum króna og framlagið
vegna Herjólfs um 85 milljónum.
Væntanlega telur ríkið sig sleppa
vel með að ganga að svipuðum
kostum og norðanmenn, að selja
hlut sinn á 10% af nafnvirði og láta
Finnboga hirða skuldirnar!
Á meðan eignarhlutur ríkisins og
norðanmanna eru ófrágengnir
verður Drangur að sigla áfram undir
íslenskum fána á Karíbahafinu. Sem
fyrr segir hófst útgerðin vestra með
því að Drangur hf. leigði skipið til
norskra aðila. Ekki gekk útgerð
þeirra sem skyldi og fóru þeir á
hausinn. Víkur hf. fékk engar
greiðslur frá þeim og er það mál fyr-
ir dómstólum. En Finnbogi Kjeld
segist hafa ákveðið eftir að hafa far-
ið vestur að kynna sér málavexti að
réttast væri að fara sjálfur út í þessa
útgerð og voru fyrirtækin Víkurskip
in USA og Seacorp Shipping þá
stofnuð. Skipið Drangur er síðan
leigt til þessara fyrirtækja og má
reyndar um leið segja að Víkur hf.
leigi sjálfum sér skipið. Aðalskip-
stjóri Drangs er Guömundur Arason
en Grindavíkinni stýrir Hallbjörn
Ólafsson. Nýlega þurfti Guðmundur
að fara í frí til Islands og var þá ráð-
inn á Drang til afleysinga Friörik
Alexandersson. Sá var hins vegar í
síðustu viku beðinn að hætta eftir
árekstra við framkvæmdastjóra
Víkurskips USA. Friðrik brást
ókvæða við og í samtali við Helgar-
póstinn hafði hann ýmislegt út á
rekstur skipsins að setja.
MÚTUR ALLSRÁÐANDI?
„Skiðið er í niðurníðslu og ekkert
gert við það þó það hafi legið eitt
sinn í marga daga. Það er nánast
vélarvana og iðulega ofhlaðið og
undirmannað. Stýrisgangurinn hef-
ur farið og öryggismál öll í ólestri.
Það má nefna að ekki er hægt að
loka vatnsþéttu skilrúmunum. í síð-
asta túr voru gámar sem hvergi voru
á vörulista. Mér er sagt að á Haiti
hafi verið borgaðir 950 dollarar fyr-
ir einn gám, sem síðan innihélt allt
annað en í honum átti að vera. Ef
Finnbogi veit ekki af þessu þá er
verið að „stela hann blindan". Mútur
eru allsráðandi í rekstrinum þarna
og án þeirra virðast dæmin ekki
ganga upp."
Finnbogi sagði ekkert að marka
þessi ummæli Friðriks, hann væri
einfaldlega illur yfir að hafa verið
látinn fara, hann hefði mátt búast
INNRÖMMUN
ALHLIÐA INNRÖMMUN, SMELLURAMMAR,
TILB. ÁLRAMMAR
LAUGARDAGA TIL KL. 16.00
NÆG
BÍLASTÆÐI
18 HELGARPÓSTURINN