Helgarpósturinn - 21.05.1987, Side 4
Karvel Pálmason alþingismaöur er nú staddur í Bretlandi, vegna
þeirra fullyrðinga lœkna Borgarspítalans í bréfi til borgarlögmanns,
aö orsaka alvarlegra veikinda hans sé m.a. að leita þar í landi
Eins og þegar hefur komid fram á síðum Helgar-
póstsins hefur Karvel Pálmason, alþingismaður, höfð-
að mál á hendur borgaryfirvöldum vegna veikinda
þeirra, sem í árslok 1985 höfðu nær dregið hann til
dauða. Karvel telur þá sem höfðu yfirumsjón með um-
önnun hans á Borgarspítalanum bera ábyrgð á því
hvernig fór. Þeir álíta orsakarinnar hins vegar m.a. að
leita hjá kollegum sínum í Bretlandi og Bolungarvík.
Þingmaðurinn brá sér af þeim sökum til Lundúna um
síðustu helgi og hefur undanfarna daga verið í rann-
sókn hjá læknunum, sem skáru hann upphaflega og
tóku síðan við honum nær dauða en lífi nokkrum vik-
um síðar.
eftir Jónínu Leósdóttur mynd Jim Smart
Fyrir um það bil mánuði sendi
yfirlæknir lyflækningadeildar
Borgarspítalans borgarlögmanni
bréf, þar sem fram koma skoðanir
viðkomandi lækna á veikindum
Karvels Pálmasonar í kjölfar
hjartaaðgerðar síðsumars 1985.
Læknarnir telja sig ekki bera
nokkra ábyrgð á hinum alvarlegu
eftirköstum, sem nærri kostuðu
Karvel lífið. Þeir benda hins vegar
á ákveðin atriði varðandi meðferð
sjúklingsins í Bolungarvík og Bret-
landi, sem þeir segja að gætu hafa
haft áhrif á gang mála.
í bréfinu er vikið að þeim tíma
þegar Karvel Pálmason dvaldi á
Bolungarvík og byrjað var að
grafa í brjóstholi hans. Segir yfir-
læknirinn, Gunnar Sigurdsson, að
læknum Borgarspítalans hafi ekki
verið tilkynnt að útlit skurðarins
hafi versnað frá því að sjúklingur-
inn var skoðaður í Reykjavík.
Þeim hafi heldur ekki verið sagt
frá því að blóðþynningarmæling
hafi verið framkvæmd. Hefði það
hins vegar verið gert telur yfir-
læknirinn líklegt, að Karvel
hefði verið látinn taka minni
skammt af blóðþynningarlyfjum.
VAR UPPHAFLEGA
AÐGERÐIN EKKI
NAUÐSYNLEG?
Gunnar Sigurðsson telur þannig
að við aðra en lækna Borgarspítal-
ans sé að sakast varðandi meðferð
þingmannsins á fyrrnefndu tíma-
bili, þ.e. læknana vestur á fjörðum.
Hins vegar kemur fram í bréfinu til
borgarlögmanns, að læknarnir
draga stórlega í efa að þessi atriði,
blóðþynningin og útlit skurðarins,
hafi gegnt mikilvægu hlutverki
þegar á heildarmyndina er litið.
Yfirlæknirinn telur í framhaldi
af þessari staðhæfingu upp
nokkra punkta, sem hann álítur
mun fremur að ráðið hafi úrslitum.
Þeir eru t.d.:
Sýking, sem komst inn fyrir
bringubein sjúklingsins við að-
gerðina sjálfa.
Blóðþynning, sem bresku lækn-
arnir leggja mikla áherslu á eftir
hjartauppskurði.
Sú staðreynd, að nota þurfti blá-
æðar úr handlegg Karvels við að-
gerðina, þar sem ekki var hægt að
fá æðar úr fótleggjum hans vegna
æðahnútaaðgerðar, sem hann
hafði áður gengist undir.
Gunnar Sigurðsson, yfirlæknir,
gefur þar að auki í skyn í bréfi sínu
til borgarlögmanns, að ekki hafi
endilega verið nauðsynlegt að
gera hina upphaflegu hjartaað-
gerð á Karvel Pálmasyni. Hann
bendir á, að sjúklingurinn hafi ver-
ið sendur út í kransæðamynda-
töku og það hafi síðan verið
ákvörðun bresku læknanna að
skera hann upp. Þó hafi Karvel
haft takmörkuð einkenni, út-
breiðsla kransæðaskemmda ekki
verið á háu stigi og ljóst að hentug-
ustu æðar var ekki að fá til aðgerð-
arinnar.
í títtnefndu bréfi kemur einnig
fram kvörtun lækna Borgarspítal-
ans vegna umfjöllunar læknaráðs
í vetur um umrætt mál Karvels
Pálmasonar. Telur Gunnar áliti
ráðsins í mörgu ábótavant og segir
m.a. að enginn aðili sem tengdist
þessu á spítalanum hafi verið kall-
aður fyrir læknaráð eða siðamála-
deild þess til að skýra sína hlið á
málinu.
LÝTALÆKNIRINN VILL
ÓLMUR LAGFÆRA
Helgarpósturinn hafði samband
við Karvel Pálmason, alþingis-
mann, í Lundúnum síðastliðið
þriðjudagskvöld og spurði frétta
af heimsókn hans til læknanna í
sjúkrahúsi Heilags Tómasar. Þá
var rannsókninni lokið ,,í bili”,
eins og Karvel komst að orði.
Karvel kvaðst hafa farið í alls-
herjar skoðun til hjartasérfræð-
ingsins og lýtalæknisins og myndi
sá fyrrnefndi senda skýrslu til Is-
lands í kjölfar rannsóknarinnar.
Ennfremur hefði lýtalæknirinn
viljað gera lítilsháttar aðgerð til að
lagfæra útlit brjóstkassans. Slíka
aðgerð er einnig hægt að fram-
kvæma á íslandi og sagðist Karvel
ekki hafa tekið afstöðu til þess
hvort hann tæki boði breska lækn-
isins eður ei.
Haft var samband við Gunnar
Sigurðsson, yfirlækni á lyflækn-
ingadeild Borgarspítalans, en
hann kvaðst ekki kjósa að tjá sig
um málið þar sem það væri nú
fyrir dómstólum og vettvangur
umræðu um einstök atriði væri
því þar.
HEIGA8POSTUR1NN
KARVEL PÁLMASON ÞINGMAÐUR
helsýktist eftir hjarta
aðgerðiLondon.
Mistök é mistök ofan
höfðu næstum kostað
hann lífið:
Fyrir 16 mánuðum sagði Karvel Pálmason I (tarlegu viðtali við HP frá Kfsreynslu
sinni í kjölfar hjartaaðgerðar. Nokkru sfðar ákvað hann að fara með máliö fyrir
dómstóla og hefur undirbúningur þess staðið í vetur.
Karvel Pálmason er um þessar mundir staddur (Lundúnum, þar sem hann gengst
undir læknisrannsókn (tengslum við mál hans á hendur Reykjavfkurborg.
LÆKNARNIR BENDA TIL
BRETLANDS OG BOLUNGARVÍKUR
4 HELGARPÓSTURINN