Helgarpósturinn - 21.05.1987, Blaðsíða 7
NÝR EINVALDUR Á ULLARMARKAÐINUM AÐ FÆÐAST
Allt bendir nú til þess að Álafoss og Iðnaðardeild Sam-
bandsins renni saman. Samningaviðrœður Sam-
bandsins og Framkvæmdasjóðs íslands, sem er eig-
andi Álafoss, eru nú komnar á það stig að fátt getur
staðið í veginum fyrir algerri sameiningu. Ef svo fer
verður hið nýja fyrirtæki einrátt á ullarmarkaðinum.
Þaö yrði sömuleiðis stœrsta iðnaðarfyrirtœki Islend-
inga. Aðeins álverið í Straumsvík yrði umfangsmeira.
BORGAÐ MEÐ ÁLAFOSSI
Þrátt fyrir að Álafoss sé töluvert
umfangsmeira fyrirtæki en Iðn-
aðardeildin er í samningaviðræð-
unum gert ráð fy rir jöfnum eignar-
hlut beggja fyrirtækja. Ástæðan
er slæm staða Álafoss. Eins og
fram kom í Helgarpóstinum fyrir
tveimur mánuðum er fyrirtækið á
barmi gjaldþrots. Það skuldar nú
yfir einn milljarð króna. Eins og
staðan í ullariðnaðinum er í dag
getur fyrirtækið ekki Iifað án þess
að eigið fé þess sé aukið.
Endanlegt fyrirkomulag á sam-
einingunni liggur ekki fyrir. Þó er
ljóst að leggja þarf fram nýtt hluta-
fé, umfram eignir og eigið fé Ála-
foss og Iðnaðardeildarinnar, við
stofnun hins nýja fyrirtækis. Sam-
kvæmt heimildum Helgarpóstsins
hefur sú hugmynd komið upp á
samningafundunum að Fram-
kvæmdasjóður greiði með Ála-
fossi. Sambandið fái 50% hlutfjár
fyrir Iðnaðardeildina eins og hún
er í dag. Framkvæmdasjóður
verði hins vegar að leggja fram
mun stærra fyrirtæki og auk þess
yfir eitt hundrað milljónir króna
fyrir sinum 50% hlut.
Upphaflega var stefnt að því að
þessum viðræðum yrði lokið fyrir
aðalfundi félaganna. Þær hafa
hins vegar dregist. Stefnt er að því
að halda aðalfund Álafoss næst-
komandi mánudag. Þar mun ekki
verða gerð grein fyrir stöðunni í
viðræðunum. Hins vegar má bú-
ast við umtalsverðum breytingum
á stjórn félagsins.
Á aðalfundinum er heldur ekki
að vænta tíðinda af framlagi Fram-
kvæmdasjóðs til aukins eigin fjár
Álafoss. Ákvörðun um slíkt hefur
verið frestað þar til niðurstaða
hefur verið fengin í viðræðum
sjóðsins við Sambandið. Sam-
kvæmt heimildum Helgarpóstsins
má búast við þeim niðurstöðum
innan fárra vikna.
SAMBANDIÐ VILJUGT
Sameining ullarþvottastöðva
fyrirtækjanna hefur þegar verið
gerð heyrinkunn, án þess að skýrt
hafi verið hvernig staðið yrði að
þeirri sameiningu. Ákvörðunum
um endanlegt fyrirkomulag var
slegið á frest, þar til niðurstöður úr
viðræðum um hugsanlegan sam-
runa liggja fyrir.
Þeir sem taka þátt í þessum við-
ræðum fyrir hönd Framkvæmda-
sjóðs og Álafoss eru þeir Ingjaldur
Hannibalsson, forstjóri Alafoss,
Benedikt Antonsson, stjórnar-
formaður fyrirtækisins og starfs-
maður Framkvæmdasjóðs, Þórð-
ur Friðjónsson, stjórnarformaður
sjóðsins, og Guðmundur B. Ólafs-
son, framkvæmdastjóri hans. Fyr-
ir Sambandið sitja viðræðurnar
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri, og
Jón Sigurðarson, framkvæmda-
stjóri Iðnaðardeildarinnar.
Þegar Helgarpósturinn leitaði til
samningamannanna vildu þeir lít-
ið tjá sig um málið. Þórður Frið-
jónsson sagði þó að sú hagræðing
sem menn sáu í sameiningunni
eftir fyrstu könnunarviðræður
hefði síst minnkað eftir því sem
menn könnuðu málin nánar. Jón
Sigurðarson tók í svipaðan streng.
Samkvæmt heimildum Helgar-
póstsins voru Sambandsmenn
heldur vantrúaðir á hag sinn af
sameiningu í upphafi samning-
anna. Vegna stöðu Álafoss leit svo
út að sá akkur sem ynnist með
sameiningu ætist fljótt upp vegna
skuldabaggans sem fylgdi með
kaupunum. Nú mun staðan hins
vegar vera önnur. Heimildir segja
samningamenn Sambandsins
hafa lýst yfir fullum vilja til sam-
einingar.
DRAGBÍTUR
FRAMKVÆMDASJÓÐS
Unnið er nú að ítarlegu eignar-
mati fyrirtækjanna og kafað er
ofan í skuldastöðu þeirra. Jafn-
framt hefur verið reynt að leggja
mat á mismunandi viðskiptavel-
vild þeirra. Reynt hefur verið að
leggja mat á hvers virði vörumerki
þeirra eru á erlendum mörkuðum.
Eins og áður segir er talið líklegast
að á endanum verði Fram-
kvæmdasjóður að borga með Ála-
fossi, þrátt fyrir meiri eignir og rót-
grónara vörumerki.
Álafoss hefur á undanförnum
árum verið dragbítur á Fram-
kvæmdasjóð íslands. Þegar sjóð-
urinn var færður undir forsætis-
ráðuneytið fyrir tveimur árum var
gert ráð fyrir því í frumvarpinu, að
sérstakt eignarhaldsfyrirtæki rík-
isins tæki yfir hlutabréf sjóðsins í
Álafossi. Það náði hins vegar ekki
gegnum þingið, þar sem slíkt eign-
arhaldsfyrirtæki var ekki til.
Framkvæmdasjóður íslands hefur
því ekki orðið sá virðulegi yfir-
sjóður fjárfestingarsjóða atvinnu-
veganna sem ráð var fyrir gert í
lögunum. í þeim er ekki gert ráð
fyrir að sjóðurinn láni einstökum
fyrirtækjum. Lán sjóðsins til eign-
ar sinnar, Álafoss, hafa verið blett-
ur á ásjónu hans. Eftir því sem
staða fyrirtækisins hefur versnað,
með verri afkomu ullariðnaðar-
ins, hefur þessi blettur orðið æ
ljótari.
Eins og fram kom í Helgarpóst-
inum fyrir tveimur mánuðum hef-
ur Framkvæmdasjóður reynt að
losa sig undan skuldbindingum
Álafoss á undanförnum misserum.
Þetta fyrirtæki, sem sjóðurinn tók
upp í skuldir í upphafi áttunda ára-
tugarins, er hins vegar það stórt
að það hefur reynst ofvaxið flest-
um þeim aðilum sem sjóðurinn
hefur leitað til. Þegar allt annað
hafði verið reynt leitaði sjóðurinn
til Sambandsins.
NAUÐARSAMNINGAR
Ef af sameiningunni verður mun
verða um sögulegan atburð að
ræða. Velta Iðnaðadeildarinnar er
um 7%-8% af veltu Sambandsins.
Við sameininguna gæfi því Sam-
bandið eftir væna sneið af veldi
sínu til nýs hlutafélags. Þetta nýja
hlutafélag yrði síðan algerlega
einrátt á ullarmarkaðinum.
Það blæs reyndar ekki byrlega á
þeim markaði. Lækkandi gengi
bandaríkjadollara, fastgengis-
stefnan og aukinn kostnaður inn-
anlands, samfara minnkandi sölu
á Vesturlöndum og lokun Rúss-
landsmarkaðar á síðasta ári, léku
ullariðnaðinn grátt. Lítillega virð-
ist þó hafa birt til. Nýlega var skrif-
að undir tiltölulega stóran samn-
ing við Rússa. Hins vegar bendir
lítið til þess að betur horfi á öðrum
sviðum.
Útlitið verður því ekki bjart hjá
hinu nýja fyrirtæki ef af stofnun
þess verður. Það sem rekur stjórn-
armenn í Framkvæmdasjóði og
fulltrúa Sambandsins áfram í þess-
um viðræðum er hins vegar það,
að útlitið fyrir fyrirtækin, hvert í
sínu lagi, er enn dekkra.
Ef ullariðnaðurinn á að standast
þá kreppu sem hann er nú í þarf að
vinna hann út úr henni með stóru
átaki. Það þarf að vinna átak í
markaðsmálum, eftir sölufall á
hefðbundnum mörkuðum. íslend-
ingar brugðust mjög seint við
minnkandi sölu á þessum mörk-
uðum og þeir hafa fengið að súpa
seyðið af því. Jafnframt átaki í
markaðsmálum þarf iðnaðurinn
að aðlaga framleiðsluna hér
heima nýjum mörkuðum.
Hvort nýtt fyrirtæki í eigu Sam-
bandsins og Framkvæmdasjóðs
íslands tekst þetta átak leiðir svo
tíminn í ljós.
eftir Gunnar Smára Egilsson
HELGARPÓSTURINN 7