Helgarpósturinn - 21.05.1987, Qupperneq 8
HAFFJARÐARÁRDEILUR
THORSARAR TAPA í HÆSTARÉTTI
Hœstiréttur felldi í vikunni merki-
legan dóm um ábúdarrétt á jördinni
Ytri-Raudamel í Hnappadal þar
sem vidurkenndur er lögbodinn rétt-
ur sveitarfélags til rádstöfunar á
jörd gegn vilja eiganda. Máliö
dœmdu 5 dómarar og skiluöu tveir
þeirra sératkvœöi þar sem þeir
töldu tilvitnaöar lagagreinar ganga
gegn eignarréttarákvœöum stjórn-
arskrárinnar. Minnihlutinn benti á
að með því að fela sveitarfélagi um-
ráðarétt yfir jörð eins og hér er gert
gœti lagst á eiganda kostnaður sem
ekki skilaði sér í jarðaafgjaldi og
engar bœtur eru tryggðar fyrir. Mál
þetta er eitt fjölmargra sem hafa
sprottið upp vegna deilna bœnda
við Haffjarðará og afkomenda Rich-
ards Thors sem eiga ána og 10
jarðir við hana.
Málavextir eru þeir að jörðin Ytri-
Rauðamelur í Eyjahreppi fór úr
ábúð 1982 og fékkst eftir það ekki
byggð þó eftir væri leitað hjá land-
eiganda, Thor R. Thors. Hrepps-
nefnd Eyjahrepps krafðist yfirráða
yfir jörðinni í krafti ákvæða ábúðar-
laga um skyldu sveitarfélaga til að
ráðstafa jörðum í ábúð til 5 ára í
senn fengjust þær ekki byggðar
með öðru móti. Ráðstöfunin á að
vera á þann hátt sem hagkvæmast
er fyrir sveitarfélagið.
Jarðeigandi svaraði þessari kröfu
Eyjahrepps með því að leigja jörð-
ina bónda í næstu sveit með bygg-
ingarbréfi 27. janúar 1984. Þeirri
ráðstöfun mótmælti sveitarfélagið á
þeirri forsendu að sýnt væri að um-
ræddur bóndi ætlaði ekki að setjast
að á Rauðamel, þar sem hann hafði
þá þegar ráðist í allmiklar byggingar
heimafyrir. Jarðanefnd sýslunnar
féllst heldur ekki á byggingarbréfið.
Sveitarfélagið hélt kröfu sinni því
til streitu enda er kveðið á um það
í 21. grein jarðalaga að ábúð á jörð
sé ekki lögleg nema ábúandi hafi
þar lögheimili sitt. Málið fór fyrir
héraðsdóm í Stykkishólmi þar sem
niðurstaða varð sú að enn væri ekki
sýnt hvort umræddur bóndi myndi
flytjast að Rauðamel. Þar kemur inn
í að þegar Rauðamelur fór í eyði
1982 voru hús þannig að það mátti
setjast þar að en orðin gömul og á
fáum árum varð íbúðin óíbúðarhæf
eftir að hætt var að kynda hana. Þá
eru útihús mjög úr sér gengin. Eins
og málum var komið gat bóndinn
því ekki flutt á jörðina nema ráðast
í töluverðar framkvæmdir áður.
Meirihluti Hæstaréttar sagði um
þetta að þar sem bóndinn hefði ekki
flutt á jörðina nú þegar málið er flutt
fyrir hæstarétti, sem er þremur ár-
um eftir að ábúðarsamningur er
gerður, yrði að telja ábúðarsamn-
inginn brjóta í bága við ábúðarlög-
in.
Minnihlutinn benti aftur á móti á
að þar sem ljóst væri að lagfæra
þyrfti byggingar og að jarðeigandi
yrði lögum samkvæmt að bera
kostnað af þeim lagfæringum þá
væri hér um að ræða skerðingu á
umráðarétti sem bryti í bága við 67.
grein stjórnarskrárinnar um frið-
helgi eingarréttarins. Meirihlutinn
tók það aftur á móti fram í atkvæði
sínu að umræddar takmarkanir á
eignarrétti í ábúðarlögum gætu
ekki talist andstæðar 67. greininni.
Dómsorð Hæstaréttar var því á þá
leið að ábúðarsamningurinn frá 21.
janúar 1984 „telst eigi vera í gildi". í
samtali HP við Svan Guðmundsson
oddvita Eyjahrepps kom fram að
hann telur málinu samt engan veg-
inn lokið því enn sé ekki búið að fá
dómsúrskurð um rétt sveitarfélags-
ins til að ráðstafa jörðinni svo sem
henni best hentar. A meðan á mála-
ferlunum hefur staðið var lagður
kvóti á hefðbundna landbúnaðar-
framleiðslu og er Ytri-Rauðamelur
kvótalaus þar sem jörðin var í eyði
viðmiðunarár kvótaúthlutunar,
1984 og ’85. Jörðin Ytri-Rauðamel-
ur er ein landstærsta og besta jörð
Vesturlands auk þess að vera kirkju-
staður Eyhreppinga.
Meirihluta Hæstaréttar skipuðu
Guðmundur Jónsson, Magnús Þ.
Torfason og Arnljótur Björnsson
prófessor en minnihluta þeir Sigurð-
ur Líndal prófessor og Magnús
Thoroddsen.
8. maí síðastliðinn féll annar
Hæstaréttardómur í málum bænda
og Thorsara við Haffjarðará og þar
unnu jarðeigendur málið. Sigurður
Oddsson, fyrrum bóndi á Höfða,
sem borinn var út af jörð sinni með
lögregluvaldi fyrir ári, krafðist þess
að fógetaúrskurður sem útburður-
inn byggði á yrði úr gildi felldur.
Þessari kröfu hafnaði Hæstiréttur
og taldi að jarðeiganda hefði, eins
og málum var háttað, verið heimilt
að byggja Sigurði út.
Útburður Sigurðar af Höfða vakti
mikla fjölmiðlaathygli síðasta vor
því þegar lögreglan mætti að bæn-
um snemma morguns hafði stór
hluti íbúa úr Hnappadalnum safnast
heim að bænum og vildi með því
mótmæla lögregluaðgerðinni. Lög-
reglan þurfti að brjóta sér leið inn í
íbúðarhúsið en til átaka kom ekki.
—b.h.
Húsakostur á Ytri-Rauðamel er mjög úr sér genginn en jörðin í röð fremstu
bújarða og Eyhreppingum því sárt um að henni sé haldið í eyði. Byggingar-
bréf sem Hæstiréttur ógilti í vikunni hefur orðið þess valdandi að jörðin er nú
kvótalaus. Mynd: Guðni B. Guðnason.
íslensk hagfræði
Brennivínið hækkar húsnæðislánin
Hækkunin á dögunum á brennivíni og bensíni leiddi til hækkunar á lánskjaravísitölu.
Húsnæðiskaupendur enn einu sinni skattlagðir með brennivíninu. Greiðslubyrðin þyngd. 150
milljónir á öll húsnæðislán.
Brennivínið hækkaði um nokkur
prósent á dögunum og var yfirlýstur
tilgangur að bæta stöðu ríkissjóðs.
Áætlað er að hækkunin skili um 600
milljónum króna í ríkissjóðinn. Fyr-
ir hinu fór minna, að með þessari
hækkun var verið að auka greiðslu-
byrði margra þeirra sem illa standa
að vígi: húsnæðiskaupenda og ann-
arra skuldara. Verð á áfengi er
bundið inn í vísitölu þannig, að þeg-
ar framfærsluvísitala hækkar, þá
hækkar einnig lánskjaravísitala.
Hækkunin sem varð á áfengi auk
hækkunarinnar sem varð á bensíni
leiddi til þess að lánskjaravísitalan
hækkaði um 0,5%. Þar með hækk-
aði höfuðstóll lánanna, þ. á m. hús-
næðislána, og greiðslubyrðin jókst
enn. Við skulum skoða dæmið
nánar:
Lánskjaravísitalan er sett saman
úr tveimur vísitölum; vísitölu fram-
færslukostnaðar (2/3) og vísitölu
byggingakostnaðar (1/3). Verð-
tryggð lán á húsnæði í landinu eru
talin nema um 15% af söluverði
þess. Söluverðið er að mati Stefáns
Ingólfssonar, eins heista sérfræð-
ings þjóðarinnar í þessum efnum, í
kringum 200 milljarðar króna eða;
verðtryggð lán eru þá um 30 millj-
arðar króna á öllu húsnæði í land-
inu. Við hækkunina á brennivíni og
bensíni á dögunum hækkuðu lánin
því um 150 milljónir króna gróflega
áætlað. Hér er að sjálfsögðu aðeins
um höfuðstól lánanna að ræða, en
vaxtakostnaður eykst að sjálfsögðu
við hækkandi höfuðstól. Reikna má
með að vaxtakostnaður fólks aukist
um 6 milljónir á þessu ári hjá öllum
af þessari ástæðu einni. Ef reiknað
er með 20 ára lánstíma hefur hin
nýja hækkun í för með sér 13,5 millj-
ón króna kostnað í auknum afborg-
unum og vöxtum á þessu ári.
En hvernig lítur dæmið út fyrir
einstaklinginn, sem skuldar um 2
milljónir í íbúð sinni? „Þá hækkar
áhvílandi lán um 10 þúsund krónur
og afborganir og vextir hækka um 1
þúsund krónur á árinu. Ef reiknað
er með 20 ára lánstíma þá er hér um
að ræða útgjaldaaukningu upp á um
14 þúsund krónur," segir Stefán Ing-
ólfsbon.
„Þetta sýnir hversu óheppilegt er
að hafa svona vélgenga lánskjara-
vísitölu og hversu hættulegur út-
reikningurinn er að baki hennar,”
segir Stefán. Margir benda þá á, að
það geti verið réttlætanlegt að
skattleggja óreglu, eins og áfengi er
tákn fyrir. Hærra verð á áfengi
þýddi einangrað, að meira fjármagn
færi til sameiginlegra þarfa frá þeim
sem neyta áfengis. En talið er að
beinn og óbeinn kostnaður vegna
afleiðinga áfengisdrykkju nemi
mun hærri upphæðum en fást af
tekjum vegna áfengissölu. Hvað um
það, verðhækkun á áfengi þýðir á
Islandi allt annað og meira eins og
hér hefur verið rakið að ofan; hún
þýðir að greiðslubyrði þeirra sem
illa standa — skulda fjármagn, t.d.
vegna ibúðarkaupa, er þyngd.
Þannig mætti segja, að ákvörðun
um verðhækkun á áfengi og bensíni
sé ekki einungis skattlagning á
neyslu, heldur pólitísk ákvörðun um
að þyngja greiðslubyrði ákveðins
þjóðfélagshóps.
Margir vísir menn hafa lagt til að
núverandi útreikningur Ijánskjara-
vísitölu verði lagður niður, af þvi
hve ósanngjarn hann er gagnvart
t.d. húsnæðiskaupendum. Meira að
segja hefur forsætisráðherra haft
orð á þessu atriði, og Albert Guð-
mundsson upplýsti í kosningabar-
áttunni, að hann hefði lagt til í ríkis-
stjórninni að lánskjaravísitölunni
yrði breytt 1983, þegar vísitölubind-
ing launanna var slitin, en lánin
héldu áfram að aukast. Ríkisstjórnin
hefði ekki haft áhuga á slíkum
varnaraðgerðum þá. Stefán Ingólfs-
son bendir t.d. á, að ef lánskjaravísi-
talan hefði einungis verið bundin
byggingavísitölunni stæði hún trú-
lega um 10% lægra en ella. Þeim
fjölskyldum hefði fækkað sem
misstu húsnæðið og komust á von-
arvöl vegna greiðslubyrðarinnar á
undanförnum árum.
-ÓG.
HALLA JONSDÓTTIR Á BLAÐAMANNAFUNDI MEÐ
SÆNSKU KONUNGSHJÓNUNUM I GÆR
HLOKKUM TIL
ÍSLANDS-
FERÐARINNAR
Kóng og drottningu þekki ég bara úr ævintýrunum.
Þau sem búa í stóru höllinni og borða jafnvel af gull-
diskum. Þess vegna er ég kannski fyrst og fremst forvitin,
þar sem ég bíð eftir að hitta alvöru konungshjón. Sænsku
konungshjónin hafa í tilefni opinberrar heimsóknar sinn-
ar til Islands í sumar opnað höll sína fyrir íslenskum
blaðamönnum. Sjálf hafa þau undanfarin 6 ár búið fyrir
utan Stokkhólm, svo að gamla höllin í hjarta höfuðborg-
arinnar er einungis móttöku- og starfsstaður.
Við erum leidd í Sibylliu-íbúðina,
þar sem móðir Karls Gústafs kon-
ungs bjó, og móttakan á sér stað í
gula herberginu. Þetta er alveg eins
og í sögunum, allt úr gulli og kristal.
Þegar konungshjónin birtast skil ég
vel hversu sænskir fjölmiðlar hafa
verið uppteknir af útliti drottningar
sinnar, hún er enn fallegri en ég
hélt, og stelpuleg, með tagl og auð-
vitað svarta slaufu í hárinu. En það
er ekki bara það, stöðugt og hlýtt
augnaráð hennar vekur forvitni
mína. En það er konungurinn sem
hefur orð fyrir þeim, og það er ekki
nema með því að beina spurningum
sérstaklega til hennar sem hún tek-
ur til máls.
KONUNGLEGT UPPELDI
Konungshjónin sænsku eiga 3
börn, Viktoríu krónprinsessu 9 ára,
Carl Philip 8 ára og Madeleine 4 ára.
Á áttunda áratugnum urðu harðar
umræður um erfingjaréttinn. Jafn-
réttisraddir kröfðust þess að stúlku-
barn hefði sama rétt til krúnunnar
og sveinbarn, og það varð úr. Með
lögum frá 1980 er það frumburður-
inn sem ríkið erfir, óháð kyni. Ég
spurði konung hvernig þau hjón
hefðu undirbúið krónprinsessuna
undir að taka við ríkinu.
„Hún, eins og systkini hennar,
gengur í almennan skóla, og tekur
þar þátt í leik og starfi innan þeirra
marka sem öryggiskröfur leyfa. Við
reynum síðan að fylgjast með
hvernig áhugamál hennar þróast og
styðja við hana á þann hátt.“
Eftir því sem hún eldist verður
hún meiri þátttakandi í hinu opin-
bera lífi, en að undirbúa hana sér-
staklega sem konu sem ganga á inn
í hlutverk föður síns virtist konungi
fjarlæg hugsun.
Silvíu drottningu er auðsjáanlega
uppeldi barna sinna hjartans mál.
Hún segist hafa stöðuga sektar-
kennd yfir því að geta ekki sinnt
þeim sem skyldi, vegna anna í starfi,
en bætir við að það sama gildi víst
um aðrar útivinnandi sænskar
mæður. Eins og hún vildi síðan verja
sig með að segja að það væru gæði,
en ekki magn, sem skiptu höfuð-
máli. Aðspurð sagðist hún lesa
ævintýri fyrir börnin sín, um kónga
og drottningar í ríkjum sínum ...
MYNDIN AF SILVÍU
DROTTNINGU
Silvía, sem er dóttir vestur-þýsks
kaupmanns og brasilískrar konu
hans, kynntist Svíakonungi á
Ólympíuleikunum í Múnchen. Frá
því að trúlofun þeirra var tilkynnt í
mars 1976 og allar götur síðan hafa
sænskir fjölmiðlar verið stoltir af
drottningunni. Spenntir hafa þeir
fylgst með klæðaburði drottningar,
einkum höttum hennar, hvar sem
hún hefur verið stödd í heiminum.
Sjálf segist hún óánægð með þessa
umfjöllun. Málefni þau sem hún hef-
ur sinnt hafa ekki fengið verðskuld-
aða athygli. Málefni þroskaheftra
liggja henni þungt á hjarta, og hefur
hún til dæmis lært táknmál til að
geta tjáð sig og skilið. Silvía lýsti yfir
eindreginni löngun sinni til að hitta
þroskahefta í opinberri heimsókn
sinni til íslands, og geta tjáð sig á
hinu alþjóða táknmáli.
Um önnur áhugamál sín var
drottningin fáorð, segir bara að eftir
10 ára búsetu í Svíþjóð eigi hún
margt ólært um sænska menningu,
svo taki börnin mikinn tíma. Annars
óski hún þess að í opinberum heim-
sóknum þeirra hjóna í framtíðinni
gefi sænskir fjölmiðlar meiri gaum
þjóð og landi, sem þau sækja heim,
og dragi úr umfjöllun um klæðnað
hennar.
AÐ SKAPA VELVILD
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan konungur var einvaldur í hinu
sænska ríki. Með nýju stjórnarfyrir-
komulagi frá 1975 liggur hið póli-
8 HELGARPÓSTURINN
/