Helgarpósturinn - 21.05.1987, Page 19
I FLAGGI
rtnings. Um svipað
Finnboga (Flórída.
við slíku eftir að hafa óhlýðnast fyr-
irmælum gróflega. Fleira vildi hann
ekki láta hafa eftir sér um þetta
„vandræðamál".
„En þetta mál verður leyst. Á hinn
bóginn hefur ekkert verið ákveðið
hvort farið verður með skipið undir
Panama-fána. Við höfum reyndar
verið að hugsa um að sigla því undir
fána Turks- og Caicos-eyja, sem við
siglum til, en eyjarnar eru sjálfstæð-
ar undir landstjóra frá Bretlandi.
Akkurinn við að sigla undir erlend-
um fána felst fyrst og fremst í því að
mannahald verður ódýrara og ekki
þarf að senda mannskap í frí heim
til íslands, það munar talsvert um
það. En þetta er ekki á morgun og
ekki hinn, það þarf að ganga frá
ýmsu áður. Það hefur staðið á því að
gera upp við þá fyrir norðan, það
hefur staðið á bókhaldinu og það er
okkur vissulega til skammar að hafa
ekki gengið frá þessu fyrr. Ég vil
ekkert vera að tjá mig um kaupverð
en vil þó segja að þó skuldirnar séu
viðráðanlegar þá er skipið örugg-
lega ekki keypt of ódýrt, ef eitthvað
þá heldur dýrara en markaðsverð
hljóðar upp á.“
Um fullyrðingu Friðriks um mútu-
starfsemi og óskráða gáma sagði
Finnbogi að hann hefði aldrei heyrt
um slíkt og að Friðrik þekkti lítið til
mála ytra.
. . . SKILAR HAGNAÐI
„Þetta eru staðhæfingar sem
hann verður sjálfur að sýna fram á
að séu réttar. Auðvitað sé ég ekki í
smáatriðum úr 2500 kílómetra fjar-
lægð hvað er að gerast og hef ég
reyndar nýráðið mann til að vera
fulltrúi okkar ytra í rekstrinum, en
það er Finnbogi Gíslason, og byrjaði
hann um svipað leyti og Grindavík-
in kom í spilið. Ég geri síðan ráð fyr-
ir því að það verði fleiri og fleiri ís-
lendingar sem sjá um sjálfan rekst-
urinn.“ Finnbogi Gíslason er ekki
óvanur skipaflutningum, hann starf-
aði áður hjá Hafskip.
Útgerð Víkur hf. á Karíbahafi hef-
ur að sögn Finnboga gengið vel. En
samkvæmt því sem fram kemur á
veltulistum Frjálsrar verslunar hef-
ur velta Víkur/Saltsölunnar hér á
landi dregist talsvert saman síðari
ár, úr föstu verðlagi úr tæpum millj-
arði 1983 á núvirði í um hálfan millj-
arð 1986. Þetta er vegna minni sölt-
unar og um leið samdráttar í salt-
fiskútflutningi. Og þó veltan sé að
aukast aftur þá er vöxtur Víkurskipa
á Karíbahafi öllu meiri og athyglis-
verðari!
„Ef verkefnin halda áfram að auk-
ast og reksturinn er traustur er eðli-
legt að fyrirtækið stækki. Auk
Drangs og Grindavíkur erum við
með leiguskip og meira að gera á
degi hverjum. Það eru ákveðnar
vonir tengdar við þetta, þær eru að
þegar fram líða stundir þá getum
við grætt á þessu."
Þannig fór um sjóferð þá! Draum-
ur norðanmanna um hagkvæma
flóabátaflutninga um Eyjafjörðinn
varð að engu vegna verkefnaskorts
og fjármagnskostnaðar. Síðan hefur
Finnbogi Kjeld yfirtekið fyrirtækið
og flóabátinn, sem siglir ekki lengur
um Eyjafjörðinn heldur flytur kaffi,
kakó og ávexti um Karíbahaf. Og
skilar gróða.
BÍLEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. Á FLEST-
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST Á
STAÐNUM.
BÍLPLAST
Vagnbotóa 19, «im< 688233.
Póststndum.
Ödýrir sturtubotnar.
Tökum að okkur trefjaplutvinnu.
Veljið íslenskt.
KJORSTAOUR
KAUPAHEDNA
Tii forna leystu höfðingjar þjóðarinnar
ágreiningsmál sín á Þingvöllum.
Þo.. nútímamenn noti aðrar og oftast friðsamlegri aðferðir
til að leysa sín mál eru
Þingvellir enn sem fyrr viðeigandi umhverfi fyrir
viðskiptafundi.
Bjóddu viðskiptavinum þínum næst í viðskiptaverð á
Hótel Valhöll,
það tekur aðeins 40 mínútur að aka þangað frá Reykjavík.
Sannaðu til, þar komist þið að góðri niðurstöðu.
<f> Hótel Valhöll
A Þingvöllum
sími 99-2622
Það jafnast ekkert á við
nýstandsett baðherbergi
frá parwia í Hafnarfirði.
Útborgun 20%.
Eftlrstöövar í allt að 9 mánuði.
mmmmi
.:i'< ■
ammCÍByggingavörvr hf.
Reykjavikurvegi 64, Hafnarfirði, sími 53140
STÖRKOSTLEGT
ÚRVAL
PLAKÖT OG MYNDIR
RAMMA
MIÐSTOÐIN
SIGTÚN 20, 105 REYKJAVÍK. SÍMI 25054.
HELGARPÓSTURINN 19