Helgarpósturinn - 21.05.1987, Page 36
v
wm angaveltur manna um
hvern Steingrímur Hermanns-
son skipar í embætti umboðsmanns
alþingis ágerast með hverri viku, en
þetta er nýtt starf sem alþingi ákvað
að búa til á síðasta þingi til að koma
til móts við manninn á götunni. Þær
raddir gerast nú æ háværari að
Steingrímur ætli að ráða Jónatan
Þórmundsson prófessor í lögfræði
i embættið, en þar fer vinsæll og
góður fræðimaður, sem margir
hyggja að nýtast muni vel í þessu
starfi. ..
Fyrirtækið Veltir í Reykjavík,
sem helst er þekkt af innflutningi og
sölu sænsku Volvo-bílanna, hefur
nú fengið umboð fyrir Hertz-bíla-
leiguna kunnu, en hún er með allra
stærstu bílaleigum í heimi hér. Velt-
ismenn voru einn af fimm aðilum
sem sóttu um rekstur bílaleigu við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í
krafti þessa nýja umboðs síns, en
hinir aðilarnir voru erkifjendurnir
Arnarflug og Flugieiðir og bíla-
leigurnar Vík og Rás, sem mun
vera gerð út frá Grindavík. Hvorki
Veltir né Arnarflug hafa áður staðið
í rekstri bílaleigu og þótti umsókn
beggja um leigureksturinn við Leifs-
stöð bera vott um áræði á sama tíma
og nokkrum reyndustu og stærstu
leigunum sem eru fyrir á íslandi,
svo sem Bílaleigu Akureyrar,
þótti leyfið of dýrt. Þrír básar voru í
boði fyrir jafn margar leigur, hver á
miljón í leigukostnað á ári fyrir utan
sameiginlegan kostnað. Bílaleiga
Arnarflugs bauð hæst i bás, alls
1.320.000 og var öðrum umsækj-
endum þá boðið að ganga að þeim
kjörum. Flugleiðir, Vík og Veltir
gerðu það, en Rás datt úr skaftinu.
Að svo komnu máli var dregið um
þær tvær leigur sem myndu fá leyfið
ásamt hæstbjóðanda og reyndust
það vera Flugleiðir og Vík, en Veltir
þurfti frá að hverfa með sitt nýja
Hertz-umboð. Það verða því erki-
fjendurnir Arnarflug og Flugleiðir
ásamt Vík sem leigja út bíla frá Leifs-
stöð fyrir milljón per ár — og byrjar
ballið á næstu vikum, að því er HP
heyrir. . .
Dreymir þig stundum að þú liggir á strönd og
borðir góðan mat, að þú siglir á fallegum bát, spilir
golf, akir um grænt landslag, stundir leikhús, tónleika,
diskótek og hver veit hvað? Við þekkjum drauminn og
bjóðum þér að upplifa skemmtilega og fjölbreytta
daga hjá góðum grönnum okkar, Bretum. Flugleiðir
fljúga cdlt að átta sinnum í viku til London í sumar og
þrisvar í viku til Glasgow. Hér koma örfá dæmi um
Ijúfa „breska daga“.
fara hreinlega í „golfferð" um Skotland, aka milli
spennandi golfvalla og góðra hótela.
Flug og bátur
Þú lætur þig líða um kyrrlátt landslag Norfolk á
bát eftir síkjum og ám, leggur að bryggjum lítilla bæja
eða freistandi veitingastaða og kráa sem liggja víða
meðfram bökkunum. Norfolk er náttúruverndarsvæði
ríkt af fuglalífi og vatnágróðri.
Flug, bfll, hús og golf
Á bíl ertu pinn eiginn fararstjóri, heimsækir þá
staði sem þig hefur dreymt um og hagar tímanum
eftir þínum hentugleika. Skemmtilegt væri t.d. líka að
leigja eitt af rómantískum BLAKES-SUMARHÚSUNUM
í nokkra daga og aka stuttar ferðir í nágrenninu eða
BLAKES-BÁTAR
Flug+bátur í 1 viku kr. 20.824 á mann. Verð miðað við 2
fullorðna og Cciribou bát. Mjög margir aðrir möguleikar.
LONDON
Flug+bíll í 2 vikur kr. 14.605 á mann. Verð miðað við 2 fullorðna
og 2 börn, 2-11 ára, í Ford Fiesta.
GLASGOW
Flug+bíll í 2 vikur kr. 13.169 á mann. Verð miðað við 2 fullorðna
og 2 börn, 2-11 ára, í Ford Fiesta.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofurnar.
Ath. Öll flugumferð Hugleiða ti] og frá Heathrow
fer um Terminal 1.
FLUGLEIÐIR
---fyrir þíg
FLUGLEIÐIR
Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25 100
MALLORKÁ
Fj ölskylduferð
13. júní til 4. júlí
Royal íbúðahótelin
góðkunnu.
dTCdMm
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1,
SÍMAR 28388 — 28580
Fjölskyld u tilboð
<TTC^*VTM<
Dæmi um
4ra manna
fjölskyldu
Verð á mann kr. 27.300 miðað við hjón
oÍN^s8cLUBa"vr,r með tvö börn undir 16 ára aldri.
INTERNATIONAL
Gildir
aðeins
í þessa ferð
36 HELGARPÓSTURINN
AUK hf. 110.6/SlA