Helgarpósturinn - 26.11.1987, Blaðsíða 7
Alþingismenn með allt á hreinu — í lifeyrismálum.
Þeir eiga þess sumir kost að taka lífeyri úr mörgum sjóðum og hafa fyrirhafnarlaust samþykkt hagstæðar lífeyrisgreiðslur fyrir sjálfa sig. Sóknarkonur fá aðeins brot af lífeyrisgreiðslum þeim sem
þingmenn geta fengið...
Pingmenn og rádherrar á margföldum lífeyri Sóknarkvenna
Lífeyrisgreiðslur til alþingismanna ná því að verða
fertugfaldar miðað við lífeyrisgreiðslur til Sóknar-
kvenna. í mörgum tilvikum fá fyrrverandi alþingismenn
greitt úr fieiri en einum sjóði. Misrétti í launum heldur því
áfram og fer vaxandi á milli manna allt fram í andlátið.
Breytingar á lífeyrisgreiðslum til þingmanna hafa verið
afgreiddar frá alþingi í kyrrþey. Lífeyrismál almennings
hafa hins vegar þvælst á milli opinberra aðila í fjölda ára,
án þess að misréttið sé upprætt.
EFTIR ÓLAF HANNIBALSSON
Hefurðu athugað lífeyrisréttindi
þín og hvernig þau eru til komin? í
almennu iífeyrissjóðunum eru líf-
eyrisréttindin reiknuð sem stig er
standa í hlutfalli við innborgun í
sjóðina. Þeir verða líka að bera sjálf-
ir tapið, sem þeir urðu fyrir vegna
rýrnunar á óðaverðbólguárunum
fyrir verðtryggingu, og jafna því
með einhverjum hætti niður á sjóð-
félaga. Öðru máli gegnir um lífeyris-
sjóði opinberra starfsmanna. Þar
eru iðgjöld og réttindi ekki í neinu
beinu samhengi hvort við annað,
heidur reiknast lífeyristakan sem
hlutfall af launum þeim er á hverj-
um tíma fylgja starfi því er hann
gegndi síðast. Þannig greiðir ríkið
nú um 80% lífeyris opinberra starfs-
manna, að sögn Péturs Blöndal hér
í HP nýlega, en einungis um 20%
koma af iðgjaldagreiðslum sjóðfé-
laga.
MISRÉTTI FRAM I
ANDLATIÐ
Bent hefur verið á að með þessum
tvennum mismunandi reglum, er
gilda eftir því hvort viðkomandi hef-
ur unnið hjá því opinbera eða ekki,
sé verið að leggja grunninn að enn
meira tekjumisrétti þjóðfélagsþegn-
anna eftir að þeir hafa látið af störf-
um og sest í helgan stein en þó ríkti
meðan þeir voru starfandi á vinnu-
markaðnum.
Hvergi er þó munurinn eins
hrikalegur og áberandi og þegar
kemur til lífeyris ráðamanna þjóðar-
innar. í nóvemberhefti SAL-frétta,
sem gefnar eru út af Sambandi ai-
mennra lífeyrissjóða eru tekin eftir-
farandi dæmi:
Á árinu 1986 námu iðgjöld til Líf-
eyrissjóðs ráðherra um 652 þús. kr.
A sama tíma greiddi lífeyrissjóður-
inn lífeyri að fjárhæð 6.385 þús. kr„
en þar af nam framlag ríkissjóðs
5.814 þús. kr.
Á árinu 1986 námu iðgjöld tii Líf-
eyrissjóðs alþingismanna um 5.920
þús. kr. Á sama tíma námu lífeyris-
greiðslur alis 41.005 þús. kr. Af
þeirri fjárhæð nam framlag ríkis-
sjóðs alls kr. 32.995 þús. kr. Eftir sem
áður vantaði 2 milljónir kr. upp á að
jöfnuður næðist milli heildarið-
gjalda og lífeyrisgreiðslna.
Á árinu 1986 námu lífeyrisgreiðslur
frá Lífeyrissjóði Sóknar um 21.450
þús. kr. Lifeyrir til alþingismanna
nam því u.þ.b. helmingi hœrri fjár-
hæðum en til Sóknarkvenna á árinu
1986.
450 ÞÚSUND —
53 ÞÚSUND
Til viðbótar þessum upplýsingum
SAL-frétta leitaði HP fregna hjá
Hauki Hafsteinssyni, forstöðumanni
þeirra lífeyrissjóða sem eru í vörslu
Tryggingastofnunar ríkisins, og hjá
Erni Arnþórssyni hjá Lífeyrissjóði
Sóknar. í ljós kom að greiðslur úr
Lífeyrissjódi rádherra deilast á 22
adila, eða að meðaltali kr. 290.000 á
hvern lífeyrisþega. Greiðslur úr Líf-
eyrissjódi alþingismanna deilast á
90 aöila, eða nema kr. 455.000 á
hvern. Greiðslur úr Lífeyrissjódi
Sóknar deilast á 616 adila og gera
því um kr. 36.000 á hvern aðila. Auk
þess fær um helmingur lífeyrisþega
Sóknar greiðslur úr Eftirlaunasjódi
aldradra og sé þeim deilt jafnt á alla
lífeyrisþegana er Sóknarfólk komið
með 53.000 kr. að meðaltali.
ÞEIR FÁ FERTUGFALDAN
LÍFEYRI
Samanburður lítur þá svona út:
Meðaltalslífeyrir alþingismanna er
8,5 sinnum hœrri en meðaltalslíf-
eyrir Sóknarfólks. Meðaltalslífeyrir
alþingismanna, sem gegnt hafa ráð-
herrastörfum fimm ár eða lengur, er
14 sinnum hœrri en Sóknarfólks. Að
auki má geta þess að margir fyrrver-
andi alþingismenn og ráðherrar
njóta eftirlauna eða lífeyris með
ödrum hœtti, t.d. hafi þeir verið
bankastjórar, eða gegnt öðrum
störfum hjá þvi opinbera sem veitt
hafa þeim rétt til þátttöku í Lífeyris-
sjódi starfsmanna ríkisins, og þeir
hafa viðhaldið þeim réttindum sín-
um með áframhaidandi greiðslu í
sjóðinn. í þeim tilfellum getur lífeyr-
ir alþingismanna numiö 20-40-
földum lífeyrisgreiöslum Sóknar-
x fólks.
HELGARPÓSTURINN 7