Helgarpósturinn - 26.11.1987, Síða 31

Helgarpósturinn - 26.11.1987, Síða 31
Mikilvœgi líkamlegrar áreynslu fyrir andlega jafnt sem líkamlega líöan okkar er sífellt aö koma betur í Ijós, en fólk hefur alls kyns afsakanir fyrir því að leiða þessi sannindi hjá sér. MEÐAUÐ, SEM FOLK VILL EKKI Fæstir komast hjá því að kenna sér einhvers meins um ævina. Hin hefðbundnu viðbrögð við líkamlegum sem andlegum kvillum eru þau að leita til læknis í von um að ,,fá eitthvað við þessu“, eins og sagt er. Oft er lausnina hins vegar ekki að finna í pilluglasi, heldur í aukinni hreyfingu. Það sýna bæði vísindalegar rannsóknir og frá- sagnir þeirra, sem reynt hafa. eftir jónínu leósdóttur myndir jim smart Sífellt berast okkur fréttir af fram- förum í læknavísindum. Á ári hverju eru fundin upp ný lyf og tæki, sem gera læknum kleift að framkvæma ýmis kraftaverk. En samhliða því að vísindunum fleygir fram hefur skiln- ingur manna á mikilvægi hvers kyns heilsuræktar einnig aukist. Læknar leggja í síauknum mæli áherslu á hreyfingu sem aðferð til að losna við líkamlega jafnt sem andlega kvilla. Þjáist þú t.d. af fyrir- tíðakvillum, þunglyndi, vöðvagigt, höfuðverk, bakverk eða liðagigt getur stundum verið skynsamlegra að fá hjá lækninum leiðbeiningar um líkamsrækt en lyfseðil. Skýrast sést þessi þróun kannski í breyttri meðhöndlun fólks, sem fengið hefur hjartaáfall, er með of háan blóð- þrýsting eða þjáist af bakverkjum. Áður fyrr voru þessum sjúklingum gefin lyf og þeir látnir fara afskap- lega varlega með sig. Núna eru lík- amsæfingar ómissandi þáttur í með- ferðinni og fáir myndu hvetja sjúkl- ingana til að hegða sér eins og brot- hættar postulínsdúkkur. 1 vestrænum nútímaþjóðfélögum þjáist flest fólk hins vegar af kvilla, sem nefnist tímaskortur. Hann gerir það að verkum, að við erum alltaf að leita einhvers töfralyfs sem leysir allan vanda á svipstundu, svo við þurfum ekki að hægja á ferðinni í kapphlaupinu. Frásagnir af þróun læknavísindanna hafa líka gefið okkur falsvonir um „hókus-pókus“ meðul, en lausnin er oft ekki í pillu- formi — þó sumir eigi erfitt með að kyngja þeirri staðreynd. Það er líka grátbroslegt að hlusta á fólk, sem ver drjúgum tíma í að heimsækja heimilislækna, sérfræðinga, sjúkra- þjálfara og nuddstofur, segjast ekki hafa nokkurn tíma til að fara í leik- fimi eða sund. Til slíkra aðila er beint veggspjaldi í Heilsurœkt Sel- tjarnarness, en þar segir: ,,Ef þú hef- ur ekki tíma fyrir heilsu þína í dag, hefurðu ekki heilsu fyrir tímann þinn á morgun." I ritinu Alternative Medicine birt- ist í fyrra grein um rannsókn, sem gerð var á áhrifum jógaiðkunar á líkamsstarfsemina. Niðurstöðurnar sýndu svo ekki var um villst, að jógaæfingar eru mjög góðar fyrir stressað nútímafólk. Fengnir voru 30 karlkyns sjálf- boðaliðar á aldrinum 20—30 ára og áður en tilraunin hófst voru þeir rannsakaðir hátt og lágt. Állir mennirnir voru bindindismenn á vín og tóbak og ekki háðir neinu eit- urlyfi. Þeim voru kenndar ákveðnar líkams: og öndunaræfingar, ásamt hugleiðslutækni, og á hverjum morgni í sex mánuði framkvæmdu tilraunadýrin klukkutíma langt „prógramm". Læknar rannsökuðu síðan sjálfboðaliðana bæði að þrem- ur og sex mánuðum liðnum. Niðurstaðan var sú, að 23 af mönnunum þrjátíu sögðu líðan sína mun betri eftir jógaæfingarnar en fyrir þær. Þeir sögðust sofa betur, vera kraftmeiri, yfirvegaðri og jafn- lyndari en áður og þar að auki væri mikill munur á meltingarstarfsem- Sigfríður Vilhjálmsdóttir hjá Yoga- stöðinni Heilsubót inni. Við blóð- og þvagrannsókn kom líka margt fram, sem studdi þessar fullyrðingar sjálfboðalið- anna. Verulegar breytingar höfðu orðið á ýmsum taugaboðefnum, hormónum og ensímum, en lækn- arnir töldu þær einmitt stuðla að hinni bættu líðan mannanna. T.d. fannst aukið magn serotonins í blóð- inu, en það er taugaboðefni sem innleiðir svefn. Þessar jákvæðu efnabreytingar eiga sér hins vegar ekki eingöngu stað við jógaiðkun, heldur má búast við því að öll hreyfing og líkams- rækt hafi svipuð lífefnafræðileg áhrif. Við áreynslu aukast sem sagt m.a. efni, sem stuðla að auknu and- legu jafnvægi, og viðkomandi verð- ur færari til að mæta því álagi sem fylgir lífi í vestrænu streituþjóðfé- lagi. Dr. Hallgrímur Þ. Magnússon, sem rekur Heilsurækt Seltjarnar- ness, beitir óhefðbundnum aðferð- um við meðferð sjúklinga sinna. 1 stað þess að leggja megináherslu á Iyf notar Hallgrímur t.d. nálastung- ur og líkamsæfingar við hinum ýmsu kvillum, svo sem vöðvagigt, bakverkjum og höfuðverkjum. Hjúkrunarfólk og leikfimikennarar aðstoða sjúklingana í stórum æf- inga- og tækjasal og sjá til þess að þeir fari rétt að. Nálastungurnar framkvæmir Hallgrímur hins vegar eingöngu sjálfur, en Tryggingastofn- un ríkisins tekur engan þátt í þeirri meðferð og verða sjúklingarnir því að greiða hana að fullu sjálfir. Það er svolítið kaldhæðnislegt, þegar til þess er hugsað að læknirinn gæti verið að skrifa út lyfseðla allan lið- langan daginn, sem kostuðu ríkið gífurlegar fjárhæðir. Trygginga- stofnunin tæki aftur á móti möglun- arlaust þátt í kostnaði við slíkar lækningaaðferðir. Mikil áhersla er lögð á hvers kyns hreyfingu í heilsuræktinni á Nesinu, en Hallgrímur Þ. Magnússon segir að við Islendingar reynum yfirleitt ekki nóg á líkamann. Hann segir gamla fólkið líka eiga að taka þetta til sín. Erfiðleikar aldraðra með að sofna á kvöldin eiga nefnilega oft rót sína að rekja til of lítillar líkam- legrar áreynslu. Fólk, sem átti við öfgafullar tilfinningasveiflur að stríða, hefur einnig í mörgum tilvik- um fengið mikla bót við að reyna reglulega á líkamann, t.d. með því að skokka, synda, fara í leikfimi eða annað slíkt. Erlendis hafa læknar kannað or- sakir hreyfingarleysis, m.a. með því að rannsaka áhrif þess á geimfara í geimferðum. I þeim rannsóknum kemur fram hið gagnstæða við fyrr- nefnda jógatilraun: svefnerfiðleika verður vart, viðkomandi verða pirr- aðir og streita á greiða leið að þeim. Ef fólk hreyfir sig ekki nóg getur það líka bitnað á hjartanu, öndunar-, meltingar- og þvagfærunum og mið- taugakerfinu. Það segir sig því sjálft, að aukin hreyfing hlýtur að sama skapi að hafa jákvæö áhrif á þessa líkamsstarfsemi. Hjónin Kristinn Stanojev og Sig- frídur Vilhjálmsdóttir eru eigendur Yogastöövarinnar Heilsubót í Reykjavík. Viðskiptavinir þeirra eru á öllum aldri, eða frá tvítugu til sjö- tugs, en meirihlutinn eru konur. Stundum kemur líka fyrir að erlend- ir jógaiðkendur, sem hér eru á ferðalagi, líti t.d. inn til þess að liðka sig eftir hinar klassísku rútuferðir um landið. Fólk lærir jóga af ýmsum ástæð- um. Sumir laðast einfaldlega að æf- ingunum og þeirri alhliða þjálfun sem þær hafa í för með sér. Aðrir koma vegna einhvers krankleika, svo sem hryggskekkju, vöðvagigtar eða höfuðverkja, en í auglýsinga- bæklingi stöðvarinnar stendur að markmið jógaiðkunarinnar sé að „verjast og draga úr hrörnun og efla heilbrigði á sál og líkamá'. Algeng- ast er að menn komi tvisvar í viku, í klukkutíma í senn. Það á að nægja til að byggja upp sæmilega vörn gegn hinum dæmigerðu sjúkdóm- um, sem fylgja nútímaþjóðfélaginu og orsakast t.d. af streitu, lélegu mataræði, offitu og hreyfingarleysi. Þegar blaðamaður Helgarpósts- ins kom við á Yogastöðinni í byrjun vikunnar var að hefjast kvennatími. Við náðum tali af fjórum afar hress- um konum, sem virtust vera á aldr- inum 35—60 ára, og inntum þær eft- ir reynslunni af jógaæfingunum. Þær sögðust koma í tíma tvisvar í viku og áttu ekki næg lýsingarorð til að tjá hrifningu sína af jógaþjálfun- inni. Ein konan hafði upphaflega komið til að losa sig við vöðvabólg- ur og kvaðst hún hafa verið orðin mun betri eftir tvo mánuði. „Þú get- ur sko skrifað að þetta virki mjög vel á vöðvabólgu, því ég væri tæp- lega ofanjarðar ef ég hefði ekki komið hingað! Ég var hræðilega slæm,“ sagði hún með áherslu. Allar sögðust konurnar finna mikinn mun á sér andlega og vera afslappaðri og rólegri en áður. Og hressleikinn bókstaflega geislaði af þeim, þegar tíminn hófst og þær hurfu inn í leik- fimisalinn á vit æfinganna. HELGARPÓSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.