Helgarpósturinn - 26.11.1987, Síða 37
BOKMENNTIR
Þörf og tímabœr
ádrepa
Deilt á dómaranci
eftir Jón Steinar Gunnlaugsson, hrl.
Almenna bókafélagid, 1987.
(138 bls.)
Sumir vilja halda því fram, að vel-
flestir lögfræðingar þessa lands séu
vanhæfir til þess að ræða fræðigrein
sína og ýms lögfræðileg álitamál
nema með beinni tilvísan ti! laga og
viðurkenndra lagatúlkana. Þannig
getur það orðið harla erfitt fyrir
leikmenn að setja á umræður við
lögfræðimenntað fólk, því viðkvæð-
ið er ávallt hið sama, nefnilega, að
maður kunni ekki neitt í lögfræði og
sé þannig sjálfkrafa dæmdur úr leik.
Og þegar maður viðurkennir, að
vissulega sé maður ekki lögfræði-
menntaður og kunni því e.t.v. ekki
að gera full skil á hörðum lagabók-
staf og viðteknum lagatúlkunum,
þykist hinn lögmenntaði hafa pálm-
ann í höndunum.
Þetta er náttúrlega hrein og klár
þröngsýni lögfræðingsins og að lík-
indum áunnin minnimáttarkennd
ofan úr lagadeild háskólans. Hvert
einasta mannsbarn á og má hafa
skoðanir á lögum landsins og dóm-
um dómstólanna að því tilskildu, að
viðkomandi styðji mál sitt rökum.
Þess vegna er því komið hér á fram-
færi við þá almennu menn, sem
lenda í þessari einkennilegu að-
stöðu, að fá lögfræðinginn til þess
að víkja talinu frá lögunum og ræða
þess í stað anda laganna og dóma í
ljósi anda laganna.
Til þess eru allar skyni bornar ver-
ur hæfar.
Lög, lagabálkar, stjórnarskrár-
ákvæði og dómar byggðir á framan-
töldu geta ávallt orkað tvímælis og
eins og annað af því tæi má og á að
velta vöngum yfir þvílíku umhugs-
unarefni. Sum þessara álitamála
lúta að grundvallaratriðum réttinda
manna og stöðu þeirra í samfélag-
inu.
Heimspeki laganna og rammi
þjóðfélagsskipaninnar, eins og hann
er settur samkvæmt stjórnar-
skránni, eru umræðuefni og álita-
mál allra en ekki bara sérskipaðra
og oft og tíðum þröngsýnna lög-
fræðinga, sem eru uppfullir af „10
fermetra lögfræðinni", sem kennd
er í háskólanum.
Þess vegna á bók Jóns Steinars
Gunnlaugssonar um Hæstarétt,
DEILTÁ DÓMARANA, erindi til alls
þorra almennings. Jón Steinar á
hrós skilið fyrir að „rjúfa þagnar-
múrinn“ og fjalla um hina heilögu
belju, sem Hæstiréttur hefur ávallt
verið. Hæstiréttur Islands á að vera
ein af merkustu stofnunum þessa
samfélags og hlutverk hans er geysi-
lega mikilvægt. Þess uegna á að
vera STÖÐUG umrœda um þennan
œðsta dómstól okkar og niöurstöð-
ur hans í grunduallarmálum, eins
og þeim, sem Jón Steinar fjallar um
í bók sinni.
Ég geri ráð fyrir að Jón Steinar
hafi þurft á talsverðu hugrekki að
halda til þess að rjúfa þögnina. Hafi
hann ævinlega þakkir fyrir framtak
sitt. Raunar kemur fram í bókinni,
að höfundur hafi þurft á siðferðileg-
um stuðningi að halda, því hann
segir í formálsorðum, að hann hafi
orðið „bæði undrandi og glaður yfir
þeirri miklu hvatningu", sem hann
hafi nær undantekningarlaust feng-
ið við skrif bókarinnar.
En víkjum að bókinni sem slíkri.
Fyrir blaðamann er annar kafli
bókarinnar áhugaverðastur, en þar
fjallar hann um 72. grein stjórnar-
skrárinnar vegna tveggja dóms-
mála, málsins vegna Frjáls útuarps
(Valhallarútvarpið svokallaða) og
Spegilsmálsins. I útvarpsmálinu
hafnaði Hæstiréttur þeirri túlkun
Jóns Steinars o.fl., að „prentfrelsis-
ákvæði“ stjórnarskrárinnar næði al-
mennt til tjáningarfrelsis með
breyttri tækni, nýjum tímum og
aðild íslands að ýmsum erlendum
sáttmálum um þetta efni.
í Spegilsmálinu telur Jón Steinar,
að Hæstiréttur hafi ósköp einfald-
lega dæmt í blóra viö 72. grein
stjórnarskrárinnar, þar sem segir:
„Huer maður á rétt á að láta í Ijósi
hugsanir sínar á prenti; þó uerður
hann að ábyrgjast þœr fyrir dómi.
Ritskoðun og aðrar tálmanir fyrir
prentfrelsi má aldrei í lög leiða."
Þannig eru allar tálmanir á tján-
ingarfrelsi og prentfrelsi fyrirfram
óheimilar, en þessi regla var ekki
virt í Spegilsmálinu og útgefandinn
dæmdur. Höfundur slær því fram í
hálfkæringi(?), að málareksturinn
gegn Spegli hafi helgast af þessu:
„Útgefandinn er nefnilega hann
Úlfar, sem vann á Þjóðviljanum. Svo
var hann víst með einhvern
óþverraskap í blaðinu."
Það skyldi þó aldrei vera, að þetta
hafi verið í bakþanka þeirra, sem
sóttu að Speglinum á sínum tíma.
í bókinni Deilt á dómarana fjallar
höfundurinn síðan um Skatta og
uernd eignarréttar (40., 67. óg 77.
greinar stjórnarskrárinnar, m.a.
Kjarnfóðurgjaldsmálið og Gengis-
munarmálið). Varðandi skattinn
rekur Jón Steinar hvernig löggjaf-
inn hefur afsalað sér stjórnarskrár-
vernduðu valdi sínu til skattlagning-
ar. Þá víkur höfundur jafnframt að
því mikilvæga máli sem er útgáfa
bráðabirgðalaga og hvað felist í
hugtakinu „brýn nauðsyn", sem eru
þau orð, sem notuð eru í 28. grein
stjórnarskrárinnar, þegar réttlætt er
heimild til útgáfu slíkra laga.
Loks víkur sögunni að félaga-
frelsi, sem er tryggt í 73. grein
stjórnarskrárinnar. Þar segir frá
máli bónda nokkurs, sem vildi ráða
því sjálfur, í skjóli félagafrelsis, hvort
hann ætti aðild að Stéttarsambandi
bænda og búnaðarfélagi.
í heild er hægt að draga saman
niðurstöðu Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar með þeim orðum, að Hæsta-
rétti íslands sé fyrirmunað að dæma
í samræmi við „prinsípp", þ.e.
grundvallarreglur þær, sem stjórn-
arskráin kveður á um.
Að auki dragi Hæstiréttur taum rík-
isins, rökstyðji ekki niðurstöður sín-
ar nema að takmörkuðu leyti og
höfundur beinir þeim tímabæru
áhrinsorðum til blaðamanna, að
þeir verði að leggja harðar að sér
við umfjöllun um dóma og fá til þess
liðveislu lögfræðinga. Undir þetta
er tekið.
Bókin Deilt á dómarana er stutt
bók og aðgengileg almenningi í
framsetningu, þótt undirrituðum
hefði þótt meiri akkur í ítarlegri út-
tekt á Hæstarétti og störfum hans.
Málfar er gott og raunar furðugott
miðað við, að lögfræðingur heldur á
.penna! Bókin er merkilega laus við
alls kyns „frasá' úr lögfræðinni og
ættu sem flestir að verða sér úti um
þessa bók, sem á sinn hátt brýtur
blað í umræðu um lögfræði og dóm-
stóla hér á landi.
Halldór Halldórsson
LITRIK ÞJONUSTA
Optö 10-18.45
Laugardaga og sunnudaga 10—16
Austurströnd 6
Seltjarnarnesi
Sími 612344
Gisting
Veitingasala
Bar
Bíó
Fundarsalir
Ráöstefnur
Dans
HÖTEL
VALASKJÁLF
EGILSSTÖÐUM Sími: 97-1500
DESEMBERTILBŒ)!
Nú getur þú fengið þennan 6 sæta leður-
hornsófa á aðeins 75.500 kr. staðgreitt
og líka með afborgunarskilmálum.
Aðeins örfáir sófar eftir.
HELGARPÓSTURINN 37