Helgarpósturinn - 14.01.1988, Side 2
Hafa einhverjir
skráð sig?
„Viö erum búnir aö fá um eða yfir 30 ábendingar um fjall-
myndarlega karlmenn, en þaö er ekki búiö að ákveöa enn-
þá hverjir keppa. Viö reiknum meö aö keppendur veröi sjö,
átta eða jafnvel níu og við eigum eftir aö ganga á þessa
karlmenn sem þegar hefur veriö bent á og fá einhverja
þeirra til aö vera með. Ég reikna með aö þaö verði fleiri en
7 til 9 sem vilja vera meö og þá á eftir að velja úr hópnum."
Til hvers eruð þið að þessu?
„Við viljum koma íslenskum karlmönnum á framfæri,
bæði hér heima og erlendis. Jafnvel þá sem fyrirsætum."
Ykkur er full alvara?
„Já, okkur er full alvara. Við reiknum með aö þessi
keppni verði árviss viðburður. Þetta er ekki vaxtarræktar-
keppni og þetta er ekkert grín — þetta er full alvara."
Ykkur finnst sem sé „fegurð" ekki afstætt hugtak?
„Auövitað er fegurð afstætt hugtak. Því er erfitt að neita.
En við höfum fyrirmyndina að svona keppni, Ungfrú ís-
land, og keppni eins og þessi er til úti í heimi. Hvers vegna
þá ekki að leika sama leikinn?"
Á hvaða aldri eiga keppendur að vera?
„Við setjum engan hámarksaldur, enda hefur hver aldur
sína fegurð. Hins vegar þurfa keppendur að verða 18 ára á
árinu, ekki yngri."
Eruð þið komnir í samkeppni við Broadway?
„Samkeppni? Nei það held ég nú svona tæplega. Enda
var það ekki ætlunin að fara í neina samkeppni. Hins vegar
finnst okkur alveg sjálfsagt að færa svona stórviðburði
hingað norður til okkar og þetta er liður í því að sýna frum-
kvæði hér."
Hverjir verða í dómnefndinni?
„Það liggur ekki fyrir hverjir verða í dómnefndinni fyrr en
eftirnæstu helgi. Þóerákveðið að Anna Margrét Jónsdótt-
ir, Ungfrú ísland 1987, verði meðal dómara. Ennfremur er
öruggt að Bryndís Schram verður kynnir en annað er ekki
alveg komið á hreint."
Koma keppendur fram á baðfötum?
„Já, þeir koma fram í samkvæmisklæðnaði og síðan á
sundskýlum."
Fær Herra Island kórónu?
„Nei, Herra ísland fær að sjálfsögöu ekki kórónu. Herra
ísland fær silfursleginn pípuhatt og verður krýndur með
honum á glæsilegan hatt. Þessi hattur er unninn af gull-
smíðastofunni Skarti hér á Akureyri."
Fylgja titlinum einhverjar skyldur?
„Nei, honum fylgja engar skyldur."
Hvenær rennur út frestur til að skrá sig í keppnina?
„Hann rennur út 22. janúar."
Farið þið eftir öllum ábendingum?
„Já, við gerum það. Það er mikið um að kvenfólk hringi
í okkur með ábendingar og við könnum auðvitað alla
möguleika. Helst reynum við að hitta þessa karlmenn enda
höfum við enn ekki fengið margar ábendingar úr Reykjavík.
Það er fólk í Reykjavík sem er að vinna í þessum málum þar
fyrir okkur."
Til hvers ættu karlmenn að taka þátt í þessari keppni?
„Þeir myndu koma sér á f ramfæri, en fy rst og fremst ætti
þetta að verða skemmtilegt. Verðlaunin ættu auðvitað að
freista karlmanna, sólarlandaferð með Útsýn og fataúttekt
í fataverslun JMJ hér á Akureyri. Allir keppendur fá Ijósa-
tíma og snyrtivörur og þeim standa til boða þjálfun og tím-
ar í líkamsrækt."
Jafnréttisbaráttan heldur áfram á ýmsum sviðum. Nú hafa þrjú
fyrirtæki á Akureyri, Hljóðbylgjan, skemmtistaðurinn Zebra og
Stjörnusól, ákveðið að efna til keppni um titilirm „Herra Island" 13.
febrúar nk. á skemmtistaðnum Zebra á Akureyri. Við höfðum
samband við Ómar Pétursson, útvarpsstjóra á Hljóðbylgjunni, og
spurðumst nánar fyrir um keppnina.
FYRST OG FREMST
BOJtGARA
FLOKIíURim
Opinn fundur um
fiskveiðistjórnun
verður haldlnn þriðjudaoinn 12- januar kl.
20.30 I Holiday Inn.
Frunrmwlaadt:
Jónason.
Stjórn kjördæmafélags
Reykjavíkur.
BORGARAFLOKKURINN
auglýsti sl. sunnudag i Mogga
opinn fund um fiskveiðistjórnun.
Sjálft fundarboðið kom ekki á
óvart, en það gerir frum-
mælandinn, Hreggviður Jónsson.
Eftir málþófið í desember þar sem
þingmaðurinn þagði og komst
fyrir bragðið í heimsmetabækur
velta menn því fyrir sér hvort
hann hafi slegið metið sl. þriðju-
dag og þagað enn lengur . . .
VOLVA Vikunnar spáir því að
einhver útvarpsstöð muni hætta á
árinu. Ekki svo ólíklegt og menn
velta því stíft fyrir sér hver þeirra
það muni vera. Búið að skera
mikið niður á rás 2 og næsta skref
kannski að leggja hana niður. Eða
er það Ljósvakinn sem gengur
ekki sem skyldi? Kannski Stjarnan
fari á hausinn — eða þá að
félagslega útvarpsstöðin Rót deyi
strax á sínu fyrsta ári. Af nógu er
að taka. Ef til vill er spádómur
völvunnar svo bara óeiginlegrar
merkingar og hún á við sam-
dráttinn i rekstri RÚV sem auð-
vitað drepur stofnunina á
endanum...
OG ENN um jólaleikritið. Það
fór víst fyrir brjóstið á aldraðri
móður ungs manns sem sagði frá
því síðar í óspurðum fréttum að
hún hefði náð að segja fjórtán
sinnum á meðan á sýningu þess
stóð: Nei, nú horfi ég ekki á
þennan hrylling lengur. Það þarf
víst ekki að taka það fram að
kerlingin sat sem fastast allan
tímann.
BRÁVALLAGÖTUHJÓNIN
Halldór og Bibba fóru nokkrum
orðum um áramótaskaup sjón-
varpsins í þætti sínum á Bylgjunni
fyrir skemmstu. Bibbu fannst
skaupið skemmtilegt en Halldóri
þótti það víst ekki. Samt var ekki
laust við að menn greindu
einhvern meinhæðinn tón í tali
Bibbu, eins og verið væri að
benda fólki á að þetta hefði allt
verið frekar gamaldags, húmorinn
þunnur og dálitið þreyttur og sumt
hreinlega hallærislegt. Áramóta-
skaupið er auðvitað hápólitískt
mál og einhverjum hefur þótt
gagnrýnin koma úr hörðustu átt
enda hörð keppni meðal íslenskra
grínista um að hlægja þjóðina...
LÆKNAR nokkrir hafa stofnað
félag sem nefnist því umhugsunar-
verða nafni Félag íslenskra lœkna
undir sjávarmáli! Hér munu ekki
vera á ferðinni samtök lækna á
kafbátum, aðstoðarlækna kafara
né heldur lækna á vegum
Hafrannsóknastofnunar. Nafngiftin
er sem sé ,,lúmsk“ ábending frá
íslenskum læknum í Hollandi um
hversu „neðarlega" þeir starfa ...
í DV ER um helgar liður sem
heitir Hin hliðin og þar sýna
ýmsir þjóðfélagsþegnar á sér þá
hlið sem DV kallar hina hliðina.
Þetta er svosem ekki í frásögur
færandi nema vegna þess að um
síðustu helgi var einhver maður
að sýna á sér þessa hlið og var,
hefðinni samkvæmt, spurður að
því hver væri uppáhaldsbókin
hans. Hann svarar því auðvitað;
Þrúgur reiðinnar eftir Hemingway!
Aðrir sem lesið hafa bók með
þessu nafni eftir Hemingway eru
beðnir að gefa sig fram.
DAGBOK útgáfunnar Varmár
fyrir 1988 inniheldur meðal
annars málshætti fyrir hvern
afmælisdag. Ráðherrar og þing-
menn eiga afmæli eins og aðrir.
Málsháttur Þorsteins Pálssonar
forsætisráðherra er þannig: „Þeir
fá sem fyrst koma." Málsháttur
Steingríms Hermannssonar
utanríkisráðherra er: „Sá er ekki
fátækur, sem lítið á, heldur sá,
sem aldrei þykist eiga nóg.“ Jón
Baldvin fær eftirminnilega
áminningu: „Vinur í valdastöðu er
tapaður vinur." Albert
Gudmundsson, formaður Borgara-
flokksins, er einnig áminntur:
„Engir verðleikar eru svo miklir,
að ekki megi rýra þá með því að
gera of mikið úr þeim.“ Sverrir
Hermannsson fær hins vegar
sérstaka hvatningu í sókn sinni í
bankastjórastól hjá Lands-
bankanum: „Guðirnir geta ekki
aðstoðað þann, sem lætur sér-
hvert tækifæri sleppa úr greipum
sér.“
JýflSSRTRÚÐUR í\ PIILLI DTEIN5 ^áEG&JU...
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Morgunskattur
Furðar mig hver andsk. það er „Ég pœli lítið I skák."
sem ónafngreindur refur — GUÐFRI'ÐUR lilja grétarsdóttir, besta
matarkyns í munn á sér SKÁKKONA ÍSLANDS OG ÞRISVAR ISLANDS- MEISTARI, 1 MBL. 13. JAN. SPURÐ HVORT HUN
í morgunskattinn hefur. GERÐI ANNAÐ EN TEFLA OG LÆRA.
Niðri
2 HELGARPÓSTURINN