Helgarpósturinn - 14.01.1988, Page 10

Helgarpósturinn - 14.01.1988, Page 10
HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Halldór Halldórsson, Helgi Már Arthursson Blaöamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir, Friörik Þór Guðmundson, Gunnar Smári Egilsson, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson, Ólafur Hannibalsson, Páll Hannesson. Prófarkir: Sigriður H. Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Jim Smart Útlit: Jón Óskar Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Dreifingarstjóri: Birgir Lárusson Sölu- og markaösstjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Auglýsingar: Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir, Siguröur Baldursson. Áskrift: Guðrún Geirsdóttir Afgreiösla: Bryndís Hilmarsdóttir Aösetur blaösins: er í Ármúla 36, Reykjavík, simi 91-681511. Útgefandi: Goðgá hf. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaðaprent hf. Að reka menn — og banka Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að ráða sér bankastjóra. Hann er Sverrir Hermannsson. Hann hefur að vísu meiri reynslu í að reka menn en banka, og var alls ekki kjörinn á þing fyrir flokk sinn í Austfjarðakjördæmi til að setjast í stól bankastjóra, en hvað um það, vegir stjórnmálanna er vandrataðir. Þeir sem í vor ætluðu sér stóra hluti í ráð- herrastóli voru neyddir inn í banka. Eftir situr þingflokk- ur Sjálfstæðisflokksins, einum sjálfstæðum sjálfstæðis- manni fátækari. Þingflokkurinn verður meðfærilegri, en spurning um áhrifin fyrir Sjálfstæðisflokkinn — og Landsbanka íslands. Hér var sagt að Sjálfstæðisflokkurinn væri búinn að ráða sér bankastjóra. Það er raunveruleikinn. Þannig lít- ur hann út. ÖIl afgreiðsla málsins jaðrar hins vegar við það að vera lagabrot. Hún gengur þvert á anda þeirra laga sem gilda um stjórn ríkisbanka. Sjálfstæðisflokkurinn kýs ekki menn í bankaráð ríkis- bankanna. Bankaráðsmenn eru ekki fulltrúar flokka, eða fasteignir, sem flokkarnir hafa parkerað á kontórum ríkisbankanna og geta skipað út og suður. Bankaráðs- menn starfa í umboði Alþingis. Alþingi og stjórnmála- flokkur eru tvennt ólíkt. Dr. Arni Vilhjálmsson er ekki kosinn af Sjálfstæðis- flokknum í bankaráð Landsbankans og veður því í villu og svíma, þegar hann er að láta þvæla sér í að ræða mál- efni bankans við Þorstein Pálsson, eða aðra menn óvið- komandi bankanum að öðru leyti en því að eiga þar ávís- anareikning. Dr. Árni Vilhjálmsson átti að ganga á fund fulltrúa Alþingis og kvarta yfir því að fá ekki frið til að sinna þeim störfum, sem hann tók að sér í umboði Al- þingis, fyrir þeim Þorsteini Pálssyni, Friðriki Sophussyni og Birgi ísleifi Gunnarssyni. Hann átti í rauninni að ganga á fund Þorvalds Garðars Kristjánssonar og kvarta í stað þess að segja af sér bankaráðsstöðunni og viður- kenna með því yfirráðarétt þriggja manna sem alls ekki eru í stjórn Landsbankans og bera hreint enga ábyrgð á rekstri hans gagnvart Alþingi. 1. janúar sl. tók við starfi umboðsmanns Alþingis Gauk- ur Jörundsson, vandaður fræðimaður í júru, og líklegur til að láta mikið að sér kveða í ungu embætti. Það færi vel á því að hann gerði þetta bankastjóramál Sjálfstæðis- flokksins að sínu fyrsta verkefni f.h. kjósenda og Alþingis og kannaði, hvort afskipti forystumanna Sjálfstæðis- flokksins í máli þessu séu í samræmi við strangasta skiln- ing laganna. Kvennalistinn Samtök um kvennalista — Kvennalistinn — hafa eina ferðina enn sannað í skoðanakönnun HP, að þau njóta verulegs stuðnings meðal þeirra sem þátt taka í slíkum könnunum. Kvennalistinn er skv. könnuninni þriðji stærsti stjórnmálaflokkurinn. Vinsældir samtakanna og árangur í kosningum á síðasta ári eru merkustu tíðindi í stjórnmálalífinu hin seinni ár, ef undan eru skilin fylgis- hrun Sjálfstæðisflokksins og persónulegar vinsældir Steingríms Hermannssonar. Samkvæmt HP-könnuninni er Kvennalistinn stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn á þingi. Fulltrúar hans hafa ítrekað kvartað yfir því að vera hunsaðir á opinberum vettvangi fjölmiðlanna og hafa þeir ýmislegt til síns máls í því efni, en þögnin um Kvennalistann tekur ekki af hon- um fylgið. Það staðfesta skoðanakannanir — og kosning- ar. Þær hafa að mestu sniðgengið sukk í pólitík — gengið á undan með góðu fordæmi. Það er kannski veigamesta skýringin á stöðugu fyígi Samtaka um kvennalista. 10 HELGARPÓSTURINN ' Söluhappdrætti Helgarpóstsins Dregið var í söluhappdrætti Helgarpóstsins sl. fimmtudag, 7. janúar. Verðlaunin voru litsjónvarpstæki frá Hljómbæ. Sú heppna var að þessu sinni Bára Oddsdóttir, Mosfells- bæ, og sést hún hér á myndinni taka við þessum veglegu verðlaunum. En söluhapp- drættið heldur áfram. Næst verður dregið í febrúarbyrjun og þá verða einnig glæsileg verðlaun í boði. Lausnir á jólaleikjum HP Grídarlegur fjöldi lesenda Helgar- póstsins sendi inn lausnir á verd- launakrossgátu, myndgátu og Ijós- myndagetraun bladsins. Dregid var um verölaunahafa viö hátíölega athöfn á ritstjórn. Lausn myndgátunnar sem R. Lár setti saman er þessi: Verkföll hafa verið óvinsæl hjá yfirvöldum en nú byrja þau hjá ríkisstjórninni og má búast við að þau verði víð- tæk á komandi ári. Vinningshafinn er Bryndís Jónasdóttir, Asparfelli 6, 111 Reykjavík. Hún fær senda bók- ina Gunnlaðarsögu eftir Svövu Jakobsdóttur. Bókin kom út fyrir jólin og fékk mjög góða dóma. Lausn ljósmyndagetraunarinnar er þessi: 1. Oddur Ólafsson 2. Herdís Þorgeirsdóttir 3. Kristinn Sigtryggs- son 4. Arnar Jensson 5. Tómas Helgason 6. Björn Guðbrandsson 7. Vigdís Grímsdóttir 8. Sævar Karl Ólason 9. Arnór Hannibalsson 10. Kristján Árnason 11. Jón Magnús- son 12. Amy Engilberts 13. Geir Hallgrímsson 14. Sigurlaug Bjarna- dóttir 15. Erlingur Gíslason 16. Bragi Ásgeirsson 17. Björgvin Hall- dórsson 18. Rúrik Haraldsson 19. Kristín Einarsdóttir og 20. Sigríður Guðmundsdóttir. Allt eru þetta menn sem hafa ver- ið í opnuviðtali HP og myndirnar tók Jim Smart svo sem sjá mátti. Vinningshafinn er Ásdís Einars- dóttir, Dunhaga 19, 107 Reykja- vík. Hún fær sent nýútkomið ritsafn Sigurðar Nordal í þremur bindum. Lausn verðlaunakrossgátunnar er hér til hliðar. Verðlaunahafinn er Hulda Nóadóttir, Hlíðarhvammi 3,220 Kópavogi og fær hún senda bókina Móður, konu, meyju eftir Nínu Björk Árnadóttur. Helgarpósturinn þakkar þeim fjölmörgu lesendum sínum, sem sendu inn lausnir, fyrir þátttökuna.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.