Helgarpósturinn - 14.01.1988, Page 15
skrifað bækur um efnið, m.a. „Sub-
liminal Seduction" og „Media Sex-
ploitatiorí'.
KYNLÍFSTABÚ í GOS-
AUGLÝSINGU
í bókinni „Subliminal Seductiorí'
reynir Key prófessor að sýna fram á
notkun neðanmarkaskilaboða (þ.e.
neðan marka meðvitaðrar skynjun-
ar) í ýmsum auglýsingum, á forsíð-
um tímarita og í kvikmyndum. Birt-
ir Key myndir af nokkrum auglýs-
ingum, bæði eins og þær komu fyrir
augu lesenda og einnig stækkar
hann einstaka hluta þeirra máli sínu
til stuðnings. í sumum tilvikum sér
maður fljótlega móta fyrir stöfum
eða útlínum fólks, en ekki gengur
það nú alltaf. Raunar leggur prófess-
orinn áhersiu á að maður greini
hvorki orðin né myndirnar nema
slaka alveg á og hætta að rýna af
einbeitni. Best sé að láta augun líða
rólega og átakalaust um auglýsing-
una.
Það eru hins vegar ekki eingöngu
klúr orð og léttklætt fólk, sem notuð
eru til að kitla undirmeðvitund okk-
ar í auglýsingum. Dýr koma þar iíka
við sögu, ásamt ýmsu sem tengist
dauðanum. Key segir t.d., að dýra-
myndir hafi verið teiknaðar á gin-
fiösku í auglýsingu frá Gilbey's (sjá
mynd). Segir hann þetta mestmegn-
is vera hundahöfuð. En það virðist
fremur sakleysislegt’ miðað við það,
sem prófessorinn ies út úr ákveðinni
Sprite-auglýsingu (sjá einnig mynd).
Auglýsingin birtist í karlaritinu
Esquire og var henni því beint til
þess aldurshóps og þeirrar mann-
gerðar, sem les slík rit. Segir Key
gosflöskuna tákna getnaðarlim og
styður þá fullyrðingu í löngu máli,
en síðan beinir hann augum lesand-
ans að glasinu við hlið flöskunnar.
Þar sé nefnilega ýmislegt að gerast
— nánar tiitekið rétt fyrir ofan sneið
af súraldini. Orðrétt segir í bókinni:
„Hægri hlið klakans fyrir ofan
súraidinsneiðina myndar hrygg á
dýri, sem annaðhvort er stór og loð-
inn hundur með frammjótt trýni
eða hugsanlega ísbjörn. Fætur dýrs-
SiGNCT.4*it T9HP.l’U >>Q)
SUBLIMINAL
SEDUCTION
HERt ARf 'Mj StCftET WAVS AO MtN AROUSt YOUH
-----—•‘HOOUC15 _______
_____L.BY WILSON BRYAN KEY
W*TM AN INIROO.X flöf; BY MARSMAil AVtUHAN ANO
A ifc ftAtit INSiiHI or R£VÍ AliTK. ÞHOTOORAWK iMAC.i S
Bókarkápa ritsins „Subliminal
seduction" eftir Wilson Bryan Key
prófessor. í undirtitlinum er spurt:
„Verður þú fyrir kynferðislegri áreitni
af völdum þessarar myndarT" og
ennfremur fullyrt að bókin leiði í Ijós
hvernig auglýsingasmiðir koma vör-
um á framfæri með því að nota alls
kyns áreiti. Fólk, sem vinnur við aug-
lýsingagerð, kannast hins vegar ekk-
ert við að nota umrædd vinnubrögð.
ins liggja tii vinstri eins og efri hluti
súraldin-sneiðarinnar. Dýrið virðist
hafa handleggina (eða fæturna!)
utan um aðra veru, sem hefur sítt og
kvenlegt hár. Andlit verunnar er
rétt ofan við höfuð dýrsins. Stöðu
þeirra er eiginiega ekki hægt að
lýsa betur en að segja, að þau séu í
samfarastellingum. ísbjörninn,
hundurinn, eða hvað þetta nú er,
hefur sem sagt samfarir við nakta
konu... inn í Sprite-auglýsinguna
var bætt kitlandi neðanmarkaert-
ingu í formi fordæmdrar kynlífsat-
hafnar."
TÖLVUSTÝRÐ HLJÓÐ-
STJÓRN GERIR ÝMIS-
LEGT MÖGULEGT
En það eru ekki bara auglýsendur,
sem notfæra sér næmni mannshug-
ans. Þetta er líka tíðkað í kvik-
myndagerð og í tónlist. Sumir halda
því jafnvel fram, að neðanmarka-
hljóð séu í nær öllum popplögum,
sem gefin eru út í Bretlandi og
Bandaríkjunum. „Menn eru hrein-
lega ekki samkeppnisfærir nema
nota þetta!" sagði t.d. einn viðmæl-
andi okkar.
Hilmar Örn Hilmarsson tónlistar-
maður tjáði blaðamanni að mikið
væri núorðið unnið með neðan-
markatóna í tónlistarheiminum —
bæði erlendis og hér á landi. „Það
er hægt að gera ýmislegt í góðum
hljómgreinum! En þetta flokkast nú
líka eiginlega undir músík... Tölvu-
stýrð hljóðstjórn er komin á svo hátt
stig að margt, sem gert er, myndi ef-
laust fiokkast fyrir neðan skynjun-
arþröskuldinn. Það er hægt að
klippa hljóð niður í einn hundrað-
asta úr sekúndu!
í rauninni er það bara rökrétt að
menn fari út í þetta, hvort sem er í
auglýsingum, tónlist eða kvikmynd-
um. Markmiðið hlýtur jú alltaf að
vera það, að ná sem sterkustum
áhrifum. En það er ekki bara farið
niður fyrir skynmörkin með hljóð-
um og myndunum. Það er hægt að
beita fleiri aðferðum við auglýsinga-
gerð, t.d. því sem á ensku nefnist
„neuroiinguistic programming"
(geðræn og málvísindaleg forritun)
og víða er farið að kenna. Þá eru
orðaröð, orðaval og setningaskipun
sálfræðilega úthugsuð með það fyr-
ir augum að láta lesandanum finn-
ast hann hafa dottið niður á það
EINA rétta.“
Blends, boudbons,Canadians:
lendusyourears.
Dónalega Sprite-auglýsingin. Þegar
Ijósmynd hefur verið tekin af mynd-
inni í bók Keys og Ijósmyndin síðan
prentuð er því miður ekki lengur
hægt að greina isbjörninn og konuna.
Þau eru þó vel merkjanleg á mynd-
inni í bókinni.
Aðspurður um dæmi um kvik-
myndir, þar sem neðanmarkahljóð-
um hafi verið beitt, nefndi Hilmar
Örn til sögunnar myndirnar Exor-
cist og Earthquake. „Við gerð fyrr-
nefndu kvikmyndarinnar voru tek-
in upp á segulband hljóð í grísum,
sem verið var að leiða til slátrunar,
og þau spiluð rétt undir heyrnar-
tíðni í mestu spennuatriðunum.
Þetta jók mikið á áhrif þessara
atriða. En í Earthquake tóku þeir
upp nístandi hræðsluöskur og spil-
uðu þau undir heyrnartíðni, þegar
persónur myndarinnar voru í sem
mestri hættu og spennan í há-
marki."
VINSÆL KENNING EN
ÓSÖNNUÐ
Ekki vildi Ólafur Stephensen
kannast við að neðanmarkaskila-
boðum væri komið fyrir í ísienskum
auglýsingum. Sagði hann raunar, að
þetta væri „tómt þvaður“. Fyrir
nokkrum árum hefðu farið af stað
miklar tröllasögur og málið hefði
verið tekið fyrir á alþjóðlegri ráð-
stefnu auglýsingahönnuða, en eng-
inn hefði kannast við að þetta væri
notað. „Þetta er dæmigerð fjöður,
sem verður að hænu,“ sagði Ólafur.
Hann tjáði blaðamanni ennfrem-
ur, að menn hefðu enga kunnáttu til
að koma skilaboðum af þessu tagi á
framfæri, enda fengi hann ekki
heila brú í það hvernig fólk ætti að
fara eftir hlutum, sem það hvorki
heyrir né sér!
Við höfðum þá samband við sál-
fræðing og spurðum hann álits á
fullyrðingum bandaríska prófess-
orsins. Sagði sálfræðingurinn þetta
vera mjög vinsæla kenningu, þar
sem það lægi fyrir, að minni manna
‘-’væri eins og radar. Það tæki inn öll
merki, sem það skynjaði. Maðurinn
gleymdi hins vegar öllu, sem væri
neðan skynþröskuldsins. A.m.k.
hefði ekki tekist að sanna annað!
Hins vegar sagðist sálfræðingur-
inn ekki efast um að reynt væri að
setja neðanmarkaskilaboð inn í
auglýsingar. Hvort þau yrðu síðan
til þess að lesendur keyptu frekar
eina vörutegund en aðra — mörgum
mánuðum eftir að þeir sáu hina
„áreitnu" auglýsingu — væri hins
vegar allt önnur saga!
Þetta er ginauglýsing með dýrahöfð-
unum, sem vrtnað ertil í greininni, en
óvíst er að „teikningarnar" skili sér
nægilega vel í prentuninni.
Bandarískur prófessor heldur því fram, ad leyni-
legum skilaboöum sé komid fyrir í auglýsingum, á
forsíöum tímarita og í kvikmyndum til þess aö auka
áhrif þeirra. Wilson B. Key segir auglýsingahönnuöi
m.a. „teikna“ léttklœddar konur og „skrifa“ klám-
yröi, sem heilinn nemur en augaö ekki. Þessu
afneita bœöi erlendir og íslenskir auglýsingamenn.
BÍLEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. Á FLEST-
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST Á
STAÐNUM.
BÍLPLAST
Vbgnhöföa 19, simi 686233.
PóttMndum.
Ödýrir sturtubotnar.
Tökum að okkur trefjaptaatvinnu.
>á.M!A l-»---tA
roijK) tsransin.
HANDMENNTASKÓLI ÍSLANDS
Sfmi 27644 box 1464 1 21 Reykjavík
Handmenntaskóli íslands hefur kennt yfir 1250 íslending-
um bæði heima og erlendis á síðastliðnum sex árum. Hjá
okkur getur þú lært teikningu, litameðferð og skrautskrift
- fyrir fullorðna - og föndur og teikningu fyrir börn í
bréfaskólafomi. Þú færð send verkfæri frá okkur, sendir
okkur úrlausnir þínar og þær eru sendar leiðréttartil baka.
Þeim, sem minni tíma hafa, bjóðum við upþá stutt
hæfileikapróf á þessum sviðum. - Biddu um kynningu
skólans með því að snda nafn og heimilisfang til okkar eða
hringdu í síma 27644 núna strax, símsvari tekur við
pöntun þinni á nóttu sem degi. - Tímalengd námskeið-
anna stjórnar þú sjálf(ur) og getur því hafið nám þitt,
hvenær sem er, og verið viss um framhaldið. Hér er
tækifærið, sem þú hefur beðið eftir til þess að læra teiknun
og skrautskrift á auðveldan og skemmtilegan hátt. Þú
getur þetta líka.
I ÉG ÓSKA EFTIR AD FA SENT KYNNiNGARRIT
I HMI MÉR AD KOSTNAÐARLAUSU
NAFN.
I
I
^HEIMILISF..
KÉR^SIÁSE
ÁTT ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ.
LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU-
MEISTARANUM.
SPURÐU HANN UM KERASTASE.
FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM.
‘FRÁ LORÉAL PARÍS
HELGARPÓSTURINN 15