Helgarpósturinn - 14.01.1988, Blaðsíða 34
Philips sjönvörp
20” með þráðlausri
fjarstýringu
skrá«g á skjáá öHum slillingum,
Litir: Svart og grátt.
VERÐ AÐEINS KR'
20” án fjarstýringar
Frábærlega hagkvœm Kaup i úrvalstæki.
Mynd og tóngæöi í sérflokki. 8 stoðva
Jnni. Stafræn (digital) skrán.ng á sk]á
öllum stillingum, ofl. ofl.
Litir. Hnota og grátt.
VERÐ AÐEINSKR.
16” ferðasjónvarp an
fjarstýringar
"Fribáer mynd og tónn/IOstöðva minni. Stunga
fyrtf3heyrnartól. Innbyggt loftnet, ofl. ofl.
Litir: svart og grátt.
VERÐ AÐEINSKR
Tengistmeðslæu^'^J^Sj^
ofi. Litur: svart og grátt.
VERÐAÐEINSKR.
NIEÐ SPENNUBREYTIAÐEINS KR. 29.900.“
Heimilfötee^ W
■ _____ kr.NGLUNNI »: 691
S-rt.B.æi.l. HAFNAaSTR.,691f25 KRINGLUNN..:691520s
\fá>mttoSve^M&e^oo SMOÚyM*
Morgunblaðinu á dögunum
sagði Arni Sigftísson borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins: „Við mun-
um efna loforðið um ráðhús." Stað-
reyndin mun hins vegar vera sú, að
ráðhúsið umdeilda var alls ekki á
kosningaloforðaskrá sjálfstæðis-
manna og er raunar staöhæft, að
margur sjálfstæðismaðurinn hefði
alls ekki kosið flokkinn, ef þetta
„loforð" hefði komið fram fyrir
kosningar...
I ú hefur Sjómannafélag
Reykjavíkur óskað svara Rann-
sóknarnefndar sjóslysa við tutt-
ugu spurningum varðandi Suður-
landsslysið, sem Helgarpósturinn
fjallaði um í sumar. Ástæðan mun
meðal annars vera ummæli Magn-
úsar Jóhannessonar siglinga-
málastjóra í blaðinu um að ekki
væru enn öll kurl komin til grafar í
þessu máli. Þetta þykir þeim hjá Sjó-
mannafélaginu einkennilegt þar
sem sjóslysanefnd hefur sent frá sér
niðurstöður sínar. Þeir hjá Rann-
sóknarnefnd sjóslysa munu hins
vegar ekki vera par hrifnir af þessu
framtaki Sjómannafélagsins og alls
óvíst mun vera hvort þeir ansa þess-
um spurningum . ..
llt bendir til þess að Sverr-
ir Hermannsson komist af þingi
inn í Landsbankann í stól Jónasar
Harrtlz. Um leið losnar þingstóll
Sverris og í hann mun þá setjast
þriðji maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Vestfjörðum, Kristinn
Pétursson, framkvæmdastjóri á
Bakkafirði. Og um leið verður fyrsti
varamaður flokksins, Hrafnkell A.
Jónsson, formaður verkalýðsfé-
lagsins Árvakurs á Eskifirði, sem
eitt sinn var kyrfilega staðsettur á
vinstri væng íslenskra stjórnmála,
innanborðs hjá sjálfum erkifjendun-
um, Alþýðubandalaginu...
F
■ yn
lyrir stuttu gerðu forsætisráð-
herra, Þorsteinn Pálsson, og kona
hans, Ingibjörg Rafnar, sér sér-
staka ferð á Vog til að kynna sér
áfengismeðferðina sem þar fer
fram. Dvöldu þau hjón dagstund á
Vogi og munu hafa haft á orði þegar
þau yfirgáfu fyrirlestrana, að fæstir
gerðu sér grein fyrir því mikilvæga
starfi sem þar væri unnið...
l^r
Iram hefur komið að Sveinn
Jónsson endurskoðandi var ráðinn
aðstoðarbankastjóri Búnaðar-
bankans. Innan bankans er talinn
mikill fengur að Sveini, sem þykir
traustur fyrir utan það að hafa yfir-
gripsmikla þekkingu á bankamál-
um. Heimildarmenn HP telja að
ráðning Sveins minnki líkurnar á að
Kjartan Jóhannsson hreppi
bankastjórastól á næstunni og komi
jafnvel í veg fyrir að Sólon Sigurðs-
son, sem nú er aðstoðarbanka-
stjóri, hljóti þennan stól. Víst er að
bankastjóraslagurinn heldur
áfram . . .
Þ.
egar dollarinn tók enn nýja
dýfu í síðasta mánuði fengu ýmsir
þeirra sem skulda stórt í erlendri
mynt hland fyrir hjartað. Eftir að
ríkissjóður tók að slá lán í þýskum
mörkum og japönskum jenum síð-
astliðið vor á grundvelli spár hag-
fræðinga um að dollarinn væri kom-
inn á botninn fóru margir að ráði
ríkisins. Þannig breyttu til dæmis
bæði Landsvirkjun og Seðla-
bankinn hluta af sínum lánum úr
dollurum og yfir í aðra mynt. Þetta
hafði þær afleiðingar að íslendingar
hafa ekki grætt nema lítillega á sigi
dollarans á síðasta ári, þrátt fyrir að
í byrjun ársins hafi þeir skuldað um-
talsvert meira í dollurum en sem
nemur hlutfalli viðskipta þeirra i
þessum gjaldmiðli...
|k|
segjast flestir ráðherr-
anna vera gáttaðir á því hvaða af-
leiðingar ákvarðanir þeirra um auk-
inn söluskatt og breytingar á tollum
hafa haft á verðlag og reyna með
þessu að kasta ábyrgöinni á Jón
Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra. Hann ber sig karlmann-
lega og segist ekkert vera hissa,
nema á því að kótilettur skuli hafa
hækkað. í gær sendi fjármálaráðu-
neytið síðan frá sér fréttatilkynn-
ingu um að það skyldi sjá til þess að
kótilettur hækkuðu ekki. Fyrirhug-
uð hækkun á þeim mun hafa numið
fáeinum prósentum. Hins vegar
hækka margar aðrar nauðsynjavör-
ur um tugi prósenta, án þess að
ráðuneytið sjái ástæðu til aðgerða.
En kótiletturnar. . .
1«
Hfli appdrættisæðið ætlar seint
að renna af þjóðinni. Nú er farið af
stað sjónvarpsbingó á vegum SÁÁ
og virðist það ætla að slá öll met.
Seldust bingóspjöldin upp og þrátt
fyrir óskir þar um gátu sumar sjopp-
urnar ekki fengið fleiri spjöld.
Drjúgt mun hafa selst í Happahús-
inu í Kringlunni, eða nálægt sex
hundruð spjöldum á einum degi. . .
FISHER
•***?#*
• BORGARTUNI 16
! REYKJAVÍK. SÍMI 622555
SJÓNVARPSBÚDIN
34 HELGABPÓSTURINN