Helgarpósturinn - 14.01.1988, Síða 40
V
W ið sögðum frá því í síðasta
HP að Björn Björnsson, aðstoðar-
maður fjármáiaráðherra, myndi
taka við sem bankastjóri Alþýðu-
bankans og kom það ráðuneytis-
mönnum verulega á óvart. Nú
herma heimildir HP að upplýsinga-
fulltrúi fjármálaráðuneytis, Karl
Th. Birgisson, sé einnig á förum
frá ráðuneytinu enda þótt hans bíði
ekki bankastjórastóll. Er þá aðeins
eftir Bolli Þór Boliason af þeim
mönnum sem fjármálaráðherra tók
með sér inn í ráðuneytið þegar hann
tók við og verður sennilega erfitt
fyrir ráðherrann að finna starfs-
menn í stað þeirra tveggja sem nú
hverfa úr þjónustunni. Hefur HP
fregnað að skýringar á uppsögnum
iiggi m.a. í launakjörum sem ráðu-
neytismönnum er boðið upp á...
ll^rmálaráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, fór á Vog sl. mánu-
dag. Hann var þar í embætti fjár-
málaráðherra, að efna það fyrirheit
ríkisstjórnarinnar, _sem gefið var á
tíu ára afmæli SÁÁ í október sl., en
þá var heitið 15 milljón kr. stuðningi
við samtökin á fjárlögum 1988. Fjár-
málaráðherra afhenti formanni
SÁÁ, Pjetri Maack, ávísun upp á
milljónirnar fimmtán, sem vafalaust
fara til þess að létta byggingarskuld-
um af samtökunum, sem eins og
kunnugt er- byggðu stórt og veglega.
Innan SÁÁ vonast menn til þess að
framlög ríkisins hafi það í för með
sér að SÁÁ-menn geti nú farið að
snúa sér að öðru. ..
Góða
helgi!
Þú átt
þaö skiliö
SffB PIZZAHL’SI D
Grensásvegi 10, 108 R.
S: 39933
|k|
■ W ú þegar Árni Vilhjálms-
son hefur sagt sig úr bankaráði
Landsbankans er ekki sjálfgefið að
annar varamaður Sjálfstæðisflokks-
ins taki sæti hans. Morgunblaðið
hefur greint frá því að Jón Þorgils-
son sveitarstjóri muni taka þetta
sæti sem reglulegur bankaráðsmað-
ur, en þetta mun vera rangt. Hingað
til hefur Jón mætt á fundi í forföllum
Péturs Sigurðssonar en Árdís
Þórðardóttir í forföllum Árna.
Ekki var í fljótu bragði vitað um for-
dæmi í þessum efnum og er vitað að
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti sameinaðs þings, skaut
saman fundi um málið. Meðal ann-
ars þykir sterklega koma til greina
að það þurfi að kjósa í bankaráðið
upp á nýtt. . .
reiði ríkir meðal
margra sjálfstæðismanna út í Davíð
Oddsson borgarstjóra vegna fram-
göngu hans t ráðhúsmálinu. Þetta
kom m.a. fram á jólafundi sjálfstæð-
iskvennafélagsins Hvatar, þar sem
yfirleitt er drukkið kaffi, étnar kök:
ur og hiustað á huggulegar ræður. í
þetta skipti var borgarstjóri ræðu-
maður fundarins og brá Hvatarkon-
um heldur í brún, þegar Davíð hóf
mál sitt. Þá kom í Ijós, að ræða
Davíðs var bullandi áróðursræða
fyrir nýju tjarnarráðhúsi og var
hann meira að segja vopnaður
skyggnum máli sínu til stuðnings.
Þetta mun hafa farið illa í margan
fundarmanninn og jólastemmning-
in fokið út í veður og vind. . .
■ átt er meira rætt þessa dagana
en bankastjóraæfingar sjálfstæðis-
manna í Landsbankanum. Eftir
því, sem Helgarpósturinn hefur
heyrt, er talið hugsanlegt óvænt út-
spil í málinu, sem felst í því, að Jón-
as Haralz bankastjóri hætti við að
hætta og sitji sem fastast í stólnum,
sem Þor?teinn Pálsson hefur ver-
ið að bjástra við að bjarga undir
Sverri Hermannsson alþingis-
mann. Alkunna er, að Jónas styður
Tryggva Pálsson í bankastjóra-
starfið, og er spurningin núna sú
hvort hann vill eða getur hafnað fyr-
irhugnðu starfi sínu við Alþjóða-
bankann í Washington. . .
Stórskemmtilegur leikur á Stöð 2
SJÓNVARPSBINGÓ Á STÖÐ 2 — ALLTAF Á MÁNUDÖGUM KL. 20.30 í ÓTRUFLAÐRI DAGSKRÁ
GLÆSILEGIR VHTKTINGAR í
HVERRI VIKU
Nú á nýju ári gangast Styrktarfélag Vogs og Stöð 2 fyrir
skemmtilegum fjölskylduleik í beinni útsendingu á Stöð 2.
Á hverju mánudagskvöldi kl. 20.30 spilum við 2 umferðir
af SJÓNVARPSBINGÓ.
Aðalvinningur í hverri viku verður glæsileg bifreið frá
VELTI, Volvo 740 GL að verðmæti 1.100.000,- krónur.
Aukavinningar eru 10 talsins. 10 hljómflutningstæki
frá HLJÓMBÆ að verðmæti kr. 50.000,-
Tölvumyndir
SKIPHOLTI 50C
BINGÓSPJÖLDIN
VERÐASELD í SÖLUTURNUM
VÍÐSVEGAR UM LAND
UPPLÝSINGAR I SÍMUM 673560 og 673561
6
SPJOLDA
250 KE
HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA A HVERJU
MÁNUDAGSKVÖLDI VERÐUR ÞVÍ 1.600.000,00.
1. UMFERÐ: Spiluð verður ein lárétt llna um
10 aukavinninga.
2. UMFERÐ: Spilaðar verða þrjár láréttar
llnur (eitt spjald) um bllinn.
It
STYRKTARFÉ LAG
SÍMAR: 673560 og 673561
40 HELGARPÓSTURINN