Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2000, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2000, Blaðsíða 56
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 Seltjarnarnes: 53 prósent vilja Sigurð - sem sóknarprest r Nefnd sú sem velja á nýjan sóknar- prest á Seltjamarnesi hefur fengið í hendur undirskriftarlista með nöfn- um sóknarbarna sem safnað hefur verið undanfamar þrjár vikur. Undir- skriftarsöfnunin var gerð til stuðn- ings umsókn séra Sigurðar Grétars Helgasonar um embætti sóknar- prests á Nesinu en séra Sigurður hefur gegnt starfi aðstoðarprests í söfnuðinum und- anfarin ár. Séra Sigurður Grétar er einn fjögurra umsækjenda um brauð séra Sol- veigar Láru Guð- mundsdóttur sem kvaddi söfnuð sinn fyrir skemmstu og flutti í nýja sókn norður í landi. 53 prósent sóknarbarna á Seltjam- amesi rituðu nöfn sín á undirskrift- arlistana til stuðnings séra Sigurði Grétari eða 1.588 af þeim 3.050 sem á kjörskrá eru. Aðrir umsækjendur um embætti sóknarprest á Seltjamarnesi, era: Séra Þórhallur Heimisson, sóknar- prestur í Hafnarfirði, séra Þórir Jök- ull Þorsteinsson, sóknarprestur á Sel- fossi, og séra Guðný Hallgrímsdóttir, fræðslufúlltrúi hjá Þjóðkirkjunni. Valnefnd Seltjarnamesprestakalls mun taka ákvörðun um nýjan prest á næstunni. -EIR Siguröur Grétar Helgason Vinsæll prestur á Nesinu. Eldur við Eldshöfða Eldur kom upp í msli við Eldshöfða 10 í gærkvöldi. Ljóst er að um íkveikju var að ræða en ítrekað heftur kviknað þama í án þess að lögreglu hafi tekist að hafa hendur í hári brennuvarganna. „Þetta er alvarlegt mál. Þama gæti kviknað i húsum,“ sagði varðstjóri lög- reglunnar eftir að eldurinn hafði verið slökktur við Eldshöfða. -EIR (JF Sénhaefö "'W fasteignasala í atvinnu- og skrifstofuhúsnæöi STOREIGN FASTEIBNASALA Austurstræti 18» Sími 55 12345 Gódan. daginní ^CILSUNNAB IU*\ lvj:i\ iK: .rS I & Akmn ri: l I I ">( ÞAP VER.ÐUR DYRKEYPT ÞETTA HROSSAKJÖT! DV-MYND EINAR J. Tíska í Bláa lóninu Tískusýningin FUTURICE var opnuð í Bláa lóninu í gærkvöldi. Er sýningin liður í viðamikilli dagskrá Reykjavík menningarborg 2000. Gat þar m.a. að líta glæsilega kjóla úr smiðju systranna Báru og Hrafnhildar Hólmgeirsdætra. Björgunarflug: 9 ára stúlka féll af vélsleða Níu ára stúlka féO aftur yflr sig af vélsleða við skála Jöklaferða við Jökla- sel við rætur Skálafellsjökuls í gær- kvöld. Sjúkrabifreið frá Hööt í Homa- flrði sótti stúlkuna að skálanum og ók henni niður að Brunnhóli á Mýrum þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar beið. Flaug þyrlan með stúlkuna til Reykjavíkur. „Læknirinn þorði ekki annað en kalla þyrluna til þar sem skortur á tækjabúnaði á Höfn gerði honum ókleift að greina meiðsl stúlkunnar af nákvæmni," sagði forsvarsmaður Jöklaferða í gærkvöld. -EIR Veltan á Bústaöavegi Betur fór en á horfðist. Valt við Veðurstofuna Kona var flutt á slysadeild eftir að bifreið hennar lenti í árekstri og valt á Bústaðavegi við Veðurstofuna síð- degis í gær. Betur fór en á horfðist og reyndist konan ekki mikið slösuð. Ekki er ljóst hvað olli slysinu. -EIR Jón Ragnarsson segir hinn breska Michael Kriiger koma og kaupa í næstu viku: Þingvallanefnd stöðvar mig ekki í sölu Valhallar - kveðst einungis selja það sem hann á og kannað verði með forkaupsrétt ríkisins DVJHYND EINAR J. Jón Ragnarsson á 65 prósent f Valhöll. Hóteleigandinn segist ætla að ganga frá samn- ingi við breskan kaupanda í næstu viku. Jón Ragnarsson, sem á meiri- hluta í Hótel Valhöll, um 65 pró- sent, segir hinn breska Howard Krúger koma hingað til lands í næstu viku til að ganga frá kaup- um á hótelinu. Hann segist telja það klárt að Þingvallanefnd geti ekki stöðvað íslenska einstaklinga í að selja eignir sínar. Á hinn bóg- inn megi segja að „eftir á að hyggja" hefði hann átt að hafa samband við Þingvallanefnd fyrr í sumar og tilkynna henni um það kauptilboð sem honum stóð til boða og hann síðan undirritaði þegar í vor og samþykkti. Jón seg- ir að hinn væntanlegi breski kaup- andi hafi fyrst boðið mun lægra verð fyrir eignina, í apríl, en síðan hafi sú tala hækkað og hann fallist á verðið - tæpar 460 milljónir ís- lenskra króna. í tilboðinu er ákvæði þar sem fram kemur að 10 prósent verðsins skuli lögð inn á vörslu- reikning Magnúsar Leópoldssonar fasteignasala - við kaupsamning verði síðan gengið frá því hvernig greiðslum eftirstöðva verði hagað. Sel ekki það sem ég á ekki „Ég ætla ekki að selja það sem ég á ekki. Ef ríkið á þann hluta eignarinnar sem ágreiningur er um - klósettaðstöðu sem byggð var árið 1963 - þá verður svo að vera. En ég ætla að selja mína eign,“ sagði Jón sem eignaðist 50 pró- senta hlut í Hótel Val- höll árið 1964 þegar hann keypti hluta af Sigursæli Magnússyni i Sælakaffl. Faðir Jóns, Ragnar Jónsson, átti þá einnig 50 prósent en áður hafði Þor- valdur í Síld og fiski átt þriðjung hótelsins á móti Ragnari og Sigur- sæli. Feögarnir ráku síðan hótelið saman en þegar Ragnar féll frá skiptust hans 50 prósent á milli Jóns og tveggja systkina hans sem nú eiga um 35 prósent í eigninni en Jón um 65 prósent. Jón segir eignina Hótel Valhöll frá upphafi, árið 1897, þegar það stóð suðaustan Öxarár, alltaf hafa verið í eigu einkaaðila nema ef und- an er skilinn umdeildur eignarhluti ríkisins hvað varðar framangreinda salemisaðstöðu frá 1963. - En finnst Jóni ekki slæmt að selja „þjóðarsálina" í og við Valhöll í hendur erlends aðila? „Jú, mér finnst það slæmt. Ég er íslendingur og þetta pirrar mig, sér- staklega ef þama verður ekki hótel- rekstur áfram. Þingvellir eru ís- lenskir og eiga að vera það. Ég held hins vegar að væntanlegur kaup- andi ætli að hafa eignina fyrir sjálf- an sig, þó veit ég það ekki. En ég get ekki farið eftir hugarórum heldur því hvað er skynsamlegt fyrir mig og mína fjölskyldu,“ sagði Jón Ragnarsson. Hann segir fyrirvara vera um það í kauptilboði Howards Krúgers að þess skuli gætt að við afhendingu á eigninni skuli vera búið að ganga frá öllum lausum hnútum hvað varðar islensk stjómvöld. „Ef ís- lenska ríkið telur sig eiga forkaups- rétt þá verður svo að vera og sama verð verði greitt fyrir þá eign sem hér um ræðir,“ sagði Jón Ragnars- son. Bjöm Bjamason, menntamála- ráðherra og formaður Þingvalla- nefndar, sagði i DV í gær að fast- eignin Valhöll væri sameign Hf. Valhallar og ríkissjóðs. Eignin verði þvi ekki seld án þess að báðir eig- endur komi að því máli. -Ótt ^ íslensku hrossin í víkingaskipinu orðin norsk: Akærur blasa við Sigurbirni - þrjú klár brot, segir yfirdýralæknir Allt bendir til að Sigurbjöm Bárð- arson, heimsmeistari í hestaíþrótt- um, verði ákærður fyrir brot á regl- um um útflutning hrossa eftir við- skipti sem hann átti við Ragnar Thor- set, skipstjóra á víkingaskipinu Hvít- serki. Sigurbjöm seldi skipstjóranum graðhest frá Kirkjubæ og tvær stórættaðar merar fyrir á sjöttu millj- ón króna og sigldi kaupandinn með hrossin yflr hafið til Noregs í trássi við bann yfirdýralæknis þar um. „Ég fór fram á opinbera rannsókn á þessu máli og að henni lokinni tek- ur dómskerfið við. Ég sé strax þrjú klár brot seljanda. Hann flutti hross- in af Rangárvöll- um til Hafiiar í Homafirði á bíl, 300 kílómetra leið, þó svo sé kveðið á um í reglum að ekki megi flytja Braut reglur. Halldór Runólfsson Hrossin norsk. þau lengri leið en 150 kílómetra sama sólarhring og þau era flutt út. Þá vora hrossin ekki skoðuð af dýralækni fyrir út- flutning né heldur farkosturinn sem flytja átti hross- in,“ sagði Halldór Runólfsson yfir- dýralæknir. Hvitserkur Komst alla leið til Noregs með hrossin. Stóð- hesturinn og hryss- umar sem hér um ræðir era nú komin í haga á búgarði víkinga- skipstjórans í Noregi og eiga ekki aft- urkvæmt. „Við tökum aldrei neitt til baka sem komið er út. Þessi hross era orð- in norsk og verða það áfram," sagði yfirdýralæknir. -EIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.