Morgunblaðið - 01.07.1965, Page 14
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 1. júlí 1965
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Rítstjórar: Sigurður Bjarnason frá Víí;
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22430.
Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
ÆSISKRIF LEYSA
EKKI MÁLIN
Ctöðvun síldveiðanna er mik-
^ ið rædd manna á meðal
þessa dagana og sýnist sitt
hverjum.
í því sambandi er fróðlegt
að bera saman kurteislega orð
aða greinargerð skipstjóranna
og skrif stjórnarandstöðublað
anna, Tímans og Þjóðviljans,
um málið. Svo virðist, sem
síldveiðiskipstjórarnir hafi,
hvort sem þeim líkar betur
eða verr, eignast sjálfskipaða
’ málsvara úr óvæntri átt.
Hvergi er einkaframtakið
sterkara en í útgerðinni.
Þar hafa dugmiklir sjó-
menn byggt upp af eigin
rammleik umfangsmikil út-
gerðarfyrirtæki og það verð-
ur nú æ algengara, að bátarn-
ir verði í eign skipstjóra og
áhafnar að einhverju eða öllu
leyti.
Þetta er hið sterka einka-
framtak í landinu í dag, sem
hefur megnað að hefta vax-
andi ríkisrekstur og ríkisaf-
skipti í atvinnurekstrinum.
En þeir menn, sem hafizt
hafa til ábyrgðar í þessum
þróttmikla atvinnurekstri
verða að gæta þess, að þeim
er mikil ábyrgð á herðar lögð
og mega ekki halda þannig á
málum, að kollvarpað verði
þeim mikla árangri, sem
náðst hefur. Ábyrgðarleysi
mundi geta leitt til þess, að sá
áróður fengi byr undir báða
vængi á ný, að einstaklingar
og félög þeirra væru ófær um
að stunda þennan meginat-
vinnurekstur þjóðarinnar og
þess vegna ætti ríkisvald og
aðrir opinberir aðilar, ýmist
að hafa þennan rekstur beint
með höndum eða vera með sí-
fellda afskiptasemi og eftirlit.
Þetta þurfa síldveiðiskip-
stjórarnir að hafa hugfast.
Þeir menn, sem byggt hafa
upp þessi þróttmiklu atvinnu-
fyrirtæki af miklum dugnaði,
hafa hingað til ekki átt sér-
stakri vinsemd að fagna í her-
búðum Framsóknarmanna og
kommúnista.
maður Framsóknarflokksins,
Eysteinn Jónsson, sem sæti á
í stjórn Síldarverksmiðja rík-
isins, samþykkti á stjórnar-
fundi þeirra, að verksmiðjurn
ar gætu ekki greitt meira fyr-
ir síldina í sumar en 225 kr.
á mál. Þóroddur Guðmunds-
son, fulltrúi kommúnista í
stjórn Síldarverksmiðjanna,
stóð einnig að þeirri sam-
þykkt.
Þarna hafa menn á svörtu
og hvítu, falsið, öfugsnúning-
inn og yfirdrepsskapinn í
þessum sjálfskipuðu málsvör-
um síldarsjómanna. — En
kannski lýsir vanþekking þess
ara blaða á hugsunarhætti
sjómanna sér bezt í því, að
þau skuli halda, að sjómenn
gangist upp við slíku smjaðri.
Þjóðviljinn hvatti til þess
fyrir nokkrum dögum, að allt
yrði látið loga í skæruverk-
föllum í síldarplássunum fyr-
ir norðan og austan. Þar kem-
ur í Ijós hinn raunverulegi
hugur kommúnista til hags-
muna sjómanna og útgerðar-
manna, að allt verði látið loga
í skæruverkföllum, svo að
ekki sé hægt að vinna þá síld,
sem á land berst.
Það er von allra, að sú
deila, sem nú er upp komin
milli síldarseljenda og kaup-
enda, muni leysast sem fyrst
og hinn glæsilegi síldarfloti
okkar hefja veiðar á ný. En
um lausn deilunnar er hollt
að hafa í huga orð aflamanns-
ins Páls Guðmundssonar á
Árna Magnússyni hér í blað-
inu í gær, þegar hann segir:
„En ég held, að menn hafi
gott af því að gera sér grein
fyrir, að æsingar stuðla ekki
að lausn þessa máls“.
Það er í þessum anda, sem
vinna ber að lausn síldardeil-
unnar, en ekki með skinhelg
æsingaskrif Tímans og Þjóð-
viljans í huga.
GREINARGERÐ
SKIPST JÓRANNA
En nú bregður skyndilega
svo við, þegar deila verður
um síldarverð, að málgögn
Framsóknarmanna og komm-
únista rísa upp af heilagri
vandlætingu og reyna að láta
líta svo út sem þeir séu hinir
einu og sönnú málsvarar sjó-
manna.
Tíminn segir þessar mót-
mælaaðgerðir snúast gegn að-
gerðum ríkisstjórnarinnar. Og
hvers vegna túlkar Tíminn að
gerðirnar á þennan hátt?
Vegna þess, að sjálfur for-
/''reinargerð síldveiðiskip-
” stjóranna fimm, sem birt
var hér í blaðinu í gær, sting-
ur mjög í stúf við æsingaskrif
Þjóðviljans og Tímans um
síldardeiluna.
Það er hins vegar ljóst, að
í greinargerð þeirra eru ýmis
atriði, sem ekki er hægt að
fallast á.
Skipstjórarnir gagnrýna
þann seinagang, sem verið hef
ur á verðákvörðun Verðlags
ráðs sjávarútvegsins og þaf{
er alveg rétt. að ákvörðun um
Markaðsrannsóknir
hefjast í Sovétríkjunum
Sérstök stofnun á að kanna
framboð og eftirspurn,
:ig öskir neytenda
HINIR frjálslyndari hag-
i'æöingar í Sovétríkjunum
geta nú merkt fleiri nýjung-
ar í efnahagsmálum Sovét-
ríkjanna. í þessari viku var
tilkynnt að hleypt hefði verið
af stokkunum í Sovétríkjun-
um stofnun, sem annast á
markaðbrannsóknir — hinni
fyrstu slíkri austur þar. Er
stofnun þessari ætlað að
rannsaka hugtökin fram-
boð og eftirspurn með ný-
tízkulegum aðferðum og
stuðla þannig að því að al-
menningur í Sovétríkjunum
fái þær neyziuvörur, sem
hann þarfnast.
Eftir öllu að dæma er það
þó ekki fyllilega ljóst hvem-
ig framkvæma á þessar rann-
sóknir í raunveruleikanum.
Vestrænir sérfræðingar
benda á vissa erfiðleika, sem
þessu er samfara þar sem
áætlunarhúskapur ríkir líkt
og í Sovétríkjunum. Sam-
kvæmt því, sem blaðið „Kom
somolskaja Pravda“ segir, á
stofnunin fyrst og fremst að
halda uppi kerfisbundnum
spurningum meðal hinna
ýmsu þjóðfélagshópa, og
reikna út fjárhag fjölskyldna
með nýtízkulegum reikniað-
íerðum.
En í „Komsomolskaja
Pravda“, heldur sérfræðingur
einn því fram að minnsta
skyssa í þessum efnum geti
eyðilagt allt starf stofnunar-
innar. Hann vill heldur taka
upp aðferð, sem beitt hefur
verið í fatnaðarverksmiðju
einni í Moskvu, „BosOhevet-
ika“, en þar hafa á síðustu
árum verið framkvæmdar
markaðsrannsóknir. Hefur
verksmiðjan verið I beinu
sambandi við verzlanir sem
selja vörur hennar.
Aðferðin er sú, að á hverja
flík, sem framleidd er í verk-
smiðjunni er sett sérstakt
vörumerki, sem síðan er tek-
ið af eftir að flíkin hefur ver-
ið seld. Þessum merkjum er
safnað saman í verzlunum og
þau síðan send aftur til verk-
smiðjunnar. Stjórn verksmiðj
unnar getur þannig gert sér
grein fyrir óskum viðskipta-
vinanna, og þetta er ein á-
hrifamesta og bezta aðferðin
til þess að kanna eftirspurn-
ina, segir sérfræðingurinn í
„Komsomolskaja Pravda“.
En til þess að hægt væri að
beita aðferð þessari um land-
ið allt, yrði að setja upp sér-
stakar véiar, að sögn, og hef-
ur því verið sett á stofn sér
stök deild í fyrrgreindri
markaðsrannsóknastofvm,
sem rannsaka á eftirspurnina
með aðstoð rafeindaheila.
Þeir, sem með málum fylgj
ast í Moskvu, líta á hina
nýju markaðsrannsóknastofn-
un sem skref í þá átt að gera
kenningar hinna frjálslyndari
hagfræðinga Sovétríkjanna, t.
d. Liebermans og Tarpzni-
kovs, að veruleika. Ákveðnir
aðilar í Moskvu segja að mið-
stjóm kommúnistaflokksins
muni koma saman innan
fárra mánaða til þess að ræða
m.a. nýja efnahagsstefnu,
sem samræmist verulega
kenningum hinna frjálslyndu
hagfræðinga.
Fyrir skömmu var opnað tjaldstæði í Laugardal, skammt frá sundlaugunum, sem verið er að
hyggja þar. Við tjaldstæðið er litið skýli með snyrtiherbergjum karla og kvenna. Einnig eri*
rúmgóð bílastæði við höndina. Farfuglar höfðu á svipuðum stað tjaldstæði, þar til þeir fluttu úr
húsnæði sínu í Laugardal, og reyndist staðurinn mjög hentugur. A.m.k. fyrst um sinn’verðut
ekki hafður vörður í skýlinu, og er þess vænzt að menn sjái sóma sinn i að ganga vel um á
staðnum.
síldarverðið var ekki tekin
innan lögákveðins tíma.
Hins vegar er ekki við ríkis
stjórnina að sakast í þessu
efni, þar sem hún er ekki aðili
að þessari verðákvörðun.
í verðlagsráði eiga sæti full
trúar sjómanna, útgerðar-
manna og síldarkaupendá og
þyí er við þá að sakast en ekki
aðra um þann seinagang, sem
á starfi verðlagsráðs hefur
verið.
Þetta er nauðsynlegt að
menn géri sér ’alveg íjóst.
Skipstjórarnir benda á, að
þau ellefu síldarskip, sem
lögðu afla sinn inn til vinnslu
hjá Síldarverksmiðjum ríkis-
ins hafi fengið greiddar kr.
66.00 á mál í uppbót. En í því
sambandi er á það að líta, að
þessi skip tóku á sig áhætt-
una af verðsveiflum á lýsi og
mjöli, en við höfum af því
reynslu á síðustu árum, að
hún getur verið mikil,
Það gefur hins vegar nokkr
ar vönir um, að deila þessi
verði leyst á þann veg, sem
báðum aðilum verði sómi að,
að greinargerð skipstjóranna
er laus við allan æsing og skil
yrðislausar kröfur.
Er þess að vænta að þær
viðræður, sem nú standa yfir
urn þessi mál, fári fram í þeim
anda. •• •
Sáttanefndivi
situr enn
London, 29. júní (NTB-AP)
WILSON, forsætisráðherra,
sagði í ræðu er hann flutti í
neðri málstofunni í dag, að sátta
nefnd samveldislandanna í Viet-
nam-málinu myndi starfa ótráuð
áfram, þrátt fyrir slæmar undir-
tektir. Sagði Wilson nefndina
myndu bíða átekta í þeirri von
að horfur bötnuðu. Litlar líkur
eru þó taldar á að nefndin leggi
land undir fót eins og fyrirhug-
að var, þar sem bæði Kína og
Sovétríkin hafa néitað að veita
henni viðtöku og stjórn Nörður-
Vietnam ekki virt tilmæli henn-
ar um áð fá að koma þangað
svars, og muni þá Lítill akkúr
í að húrt fari’til Washingtoit og
Saigon.